Morgunblaðið - 08.03.1987, Page 61
ing starfar í landinu og að yfír 50
milljónir íbúa Sovétríkjanna eru
múhameðstrúar. Islam er tíma-
sprengja_ óskynseminnar á okkar
tímum. Eg skil Rússana, ótta Rúss-
anna. Þeir hafa ekki aðeins þurft
að berjast gegn þjóðum í vestri,
Pólvetjum, Þjóðveijum, Svíum,
heldur einnig gegn islam. Það verð-
ur að minnast þess að allur Balkan-
skagi var einu sinni tyrkneskur.
En ég reiddist innrásinni í Tékkó-
slóvakíu og afstöðunni til Póllands
af því að það var átakanleg reynsla
fyrir báðar þjóðirnar."
Það á ekki við að grípa fram í
fyrir Durrenmatt. Hann talar hægt
og fer úr einu í annað. Hann lætur
forvitnilegar skoðanir í. ljósi án þess
að vera spurður. „Moskva hefur
stækkað gífurlega, hún er eins og
eitt samfellt úthverfí með óteljandi
sjö- til áttahæða húsum og enda-
lausum breiðgötum. Rauðatorgið
er auðvitað á sínum stað en það
var of kalt til að rölta um. Hún er
heldur engin borg til að ganga um
í. Það virðist alltaf taka klukkutíma
keyrslu að komast af einum stað á
annan. Átta milljón manna borg
sem stækkar ótakmarkað út á við.
Moskva er ein allsheijar grámygla.“
Fátækrahæli orðið að
borg lægri millistéttar
„Það er miklu flóknara að búa
þar en á Vesturlöndum. Allt tekur
sinn tíma. Ég ætlaði til dæmis að
taka 2.000 rúblur, sem ég á alltaf
þama, út af bankabók. Mér var
vísað úr einum banka í annan og
að lokum í einhvern sparisjóð. „Já,
peningarnir vom hér hjá okkur,“
sagði afgreiðslustúlkan. „En þér
komuð aldrei að sækja pá svo að
þeir eru komnir í annan sparisjóð."
Og sá var auðvitað búinn að loka
þegar ég kom þangað,“ sagði Dúrr-
enmatt , og glettnin skein úr
augunum. „Fólkið hefur nóg að
borða þótt það sé auðvitað þreyt-
andi að kaupa í matinn. Og það
sjást engin fátækrahverfí. Maður
fær á tilfinninguna að allir tilheyri
millistéttinni, lægri millistétt. Hér
áður fyrr var eins og maður væri
staddur á velreknu fátækrahæli.
Andrúmsloftið í hópi listamanna
er líka allt annað. Þar ríkir mikil
von. Mér var sagt af rithöfundi af
gyðingaættum sem samdi leikrit um
andlát Leníns þar sem það kemur
fram að Stalín hafi eiginlega steypt
honum af stóli — sem sagt mjög
hæpið verk. Þessi höfundur lét þá
skoðun í ljósi í ræðu á mannmörgum
fundi að það ætti að fjalla opin-
skátt um sögulega atburði í rússn-
eskum bókmenntum. Forsætis-
nefnd kommúnistaflokksins sat
fyrir aftan hann á fundinum og
hann þorði aldrei að líta við. En
hann hélt eftir á að einn hinn fyrsti
sem þakkaði honum fyrir ræðuna
væri í forsætisnefndinni. Það tók
áður fyrr mörg ár að fá leyfi til að
sviðsetja hæpin verk í Sovétríkjun-
um en leikritinu um dauða Leníns
var veitt sýningarleyfi á einum og
hálfum degi.“
Kommúnisminn er Dar-
winismi án líffræði
Tæplega þúsund manns frá 80
löndum sóttu friðarráðstefnuna í
Moskvu. Frægu fólki á sviði stjóm-
mála, vísinda og lista var boðið til
borgarinnar í þijá daga á kostnað
sovésku ríkisstjórnarinnar. Mikhail
Gorbachev hélt ræðu í lok ráðstefn-
unnar og bauð til veislu. „Fyrstu
fundimir voru hundleiðinlegir.
Ræðutíminn var ótakmarkaður og
allir sögðu það sama, hversu hættu-
leg kjarnorkusprengjan væri og
Dúrrenmatt: „Núna þegar ég
hugsa til baka um Gorbachev ...
þökkuðu svo Gorbachev," sagði
Dúrrenmatt. Honum leiddust ræð-
urnar, hann varð önugur og líkti
ráðstefnunni við fund risaeðla fyrir
30 milljón árum í eigin ræðu. „Risa-
eðlurnar komu þá saman og ræddu
hvernig þær gætu lifað áfram. Þær
komust að þeirri niðurstöðu að þær
gætu það ekki og ákváðu að verða
fuglar og spendýr. Þær voru orðnar
alltof þungar til að sitja á eggjum
og hættu því. Þannig dóu þær út.
Við stöndum nú frammi fyrir sams-
konar spurningu varðandi kjarn-
orkusprengjuna. Sprengjan er ekki
bara hættuleg heldur einnig okkar
eigin tækni og mengun andrúms-
loftsins. Ég benti á að mannskepn-
an hefur frá upphafi staðið frammi
fyrir tvenns konar vanda: frammi
fyrir leysanlegum vanda og frammi
fyrir óleysanlegum vanda. Mann-
skepnan getur lifað áfram, það er
leysanlegur vandi. Hún fann upp
vopn, hún var hægfara dýr en vann
bug á líkamlegum galla með því
að nota andagift sína, með því að
finna upp vopn, með því að ná valdi
á eldi. Það voru leysanleg vanda-
mál. En mannskepnan stóð frammi
fyrir óleysanlegum vanda þegar
hún uppgötvaði að einstaklingurinn
deyr. Það var hræðilegt áfall og
þess vegna fann hún upp trúmál,
háspekina, menningin bjó hana til.
Og þannig er þetta enn í dag. Hver
og einn mun deyja, pólitík breytir
engu þar um. En við getum leyst
tæknileg og vísindaleg vandamál.
Hver leysanlegur vandi á sviði
vísindanna leiðir hins vegar til nýs
vanda sem einnig þarf að leysa.
Tæknin gleypir jafnóðum við
vísindalegum uppgötvunum og
þannig verða kjamorkusprengjur
til, þannig mengum við umhverfið.
Maður gat óhræddur sagt skoð-
anir sínar á ráðstefnunni. Ég vitnaði
í líffræðing sem sagði: Kommún-
isminn er Darwinismi án líffræði.
Þetta er ein besta skilgreiningin á
marxisma sem ég hef heyrt. Og ég
sagði í einum umræðuhópi að það
væri ekki nóg fyrir Gorbachev að
gagnrýna Stalín, Breshnef og kerf-
ið. Hann yrði einnig að gagnrýna
utanríkisstefnu Sovétríkjanna. Það
þarf líka að endurskoða hana.
Bandaríkjamönnum verða á mistök
og Rússum verða á mistök. Þetta
gat maður sagt.“
Alltaf haft ímugust
áforingjum
„En mér fannst ráðstefnan eigin-
lega vera stór sýning. Ég á alls
ekki von á að hún leiði neitt af
sér. Ræða Gorbachevs var hápunkt-
ur sýningarinnar, snjöll og þaul-
hugsuð. Konan mín hefur rétt fyrir
sér þegar hún segir að hann sé
marxískur Demosthenes. Mér varð
hugsað til vitleysunnar sem valt upp
úr mönnum á rithöfundaþingi í
Moskvu fyrir 20 árum, ræðunnar
sem einhver menningarviti úr for-
sætisnefnd flokksins flutti. Hún
hefði ekki einu sinni átt heima á
málfundi í grunnskóla. En ræða
Gorbachevs var meistaraverk. Einn
mikilvægasti punkturinn í henni —
og maður ætti að íhuga hann —
var afsönnun fælingarkenningar-
innar. Hún er stórhættuleg, eins
og hann sagði, af því að hún verður
að vera tniverðug. Það er ekki
hægt að fæla endalaust og aldrei
gera neitt. Hættan er að fælingar-
krafturinn verði einhverntíma
sýndur. Það er söguleg staðreynd
að það hefur verið rætt í tólf tilvite<f
um að beita kjarnorkuvopnum.
Bandaríkjamenn veltu fyrir sér
hvort að þeir ættu að varpa kjarn-
orkusprengju á Víetnam. Kjarnork-
ustríð er Áuschwitz mannkynsins,
það er ekki stríð.“
Dúrrenmatt teiknaði mynd af
glottandi kjarnorkusprengju, sem
vofir yfir heiminum og starir niður
á áhrifalausar fígúrur veifandi
spjöldum gegn kjarnorkusprengjum
og með nýjum þankagangi, á meðan
gestgjafinn talaði. „Ég sá samskon-
ar ráðstefnu fyrir mér að fimmtíu
árum liðnum, þegar ég hlýddi á
Gorbachev, þar sem hann hamrar
enn á afvopnun. Vandinn er nefni-
lega sá að það er búið að firina upj? —
kjarnorkusprengjuna og það sem
einu sinni er búið að finna upp verð-
ur aldrei afturkallað.
Max Frisch (kollega Dúrrenmatts
frá Sviss) hélt að ég væri að grínast
þegar ég sagði undir lok ráðstefn-
unnar að það væri hægt að banna
kjamorkusprengjuna, en hið djöful-
lega væri að við gætum aldrei verið
vissir um að einhver hefði hana
ekki undir höndum. Mér var alvara,
þetta er verulegt vandamál. Það er
vitað að ísraelar hafa sprengjun;f~*-
Og hverjir fleiri?
Sovétmenn þarfnast friðar. Þeir
finna að þeir komast ekki lengra ;i
tæknisviðinu án aukinna samskipta
við umheiminn. Gorbachev er
kannski af þeirri kynslóð sem skynj-
ar að hugmyndafræði þeirra stend-
ur þeim fyrir þrifum. Breyting til
batnaðar mun taka langan tíma.
En flótti til baka í faðm Leníns er
líka fyrir hendi. Gorbachev verður
þá kommúnistískur Ayatollah,"
sagði Dúrrenmatt, kímdi, varð svo
hugsi og klóraði sér í höfðinu. „Það
er alltaf ískyggilegt þegar einn for-
ingi hefur öll völd í hendi sér. Núna
þegar ég hugsa til baka um Gorbac-
hev . . . allt í einu minnti hann mig' "
á Mússólíni. Ég veit ekki hvað verð-
ur. Eðlishvötin ræður mínum dómí.
Ég hef gífurlega ímugust á foringj-
um. En Sovétmenn þekkja ekki
annað. Foringjar hafa ávallt stjóm-
að þeim.“
mmkM
2F-821X ÞVOTTAVÉL
Lin vegna hagstæöra innkaupa.
CíFífffÍ'P
magn
LÆEKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI: 50022
Þvottamagn 4,2 kg. 16 þvottakerfi
400/800 snún. vinduhraöi.
Mál (HxBxD) 85x60x55 cm.