Morgunblaðið - 11.08.1987, Side 41

Morgunblaðið - 11.08.1987, Side 41
41 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1987 Þaó ólgar og hvissar. Það er fútt / Sóldós/ 5ÓL Þverholti 17-21, Reykjavík Mig langar með örfáu línum að minnast Áróru vinkonu minnar, sem fór í sína hinstu for 12. júlí sl., aðeins 63 ára að aldri. Það var friður og ró yfir hennar brottfor. Hún gekk hress til hvflu að kveldi og vaknar ei aftur að morgni. Svo stutt getur bilið stund- um verið milli lífs og dauða. Henni varð að ósk sinni í það skiptið. Áróra fékk snert að heila- blæðingu fyrir nokkrum árum og varð óvinnufær. Ég dáðist oft að því, með hvflíkri ró og jafnaðargeði hún tók örlögum sínum. Það er mikil lífsreynsla, þegar fótunum er allt í einu kippt undan fólki í fullu §öri. Ég held að við hugsum aldrei þá hugsun til enda. Þá koma oft langir dagar og þá fyrst veist þú hversu marga vini þú átt; að vera lokaður inni á sjúkrastofnun í lang- an tíma, þó svo að allt sé gert fyrir sjúklingana, sem hægt er. Við ættum oftar að fóma örlitlum tíma fyrir það fólk, sem hlýtur slík örlög í lífinu. Það er svo dásamlegt að geta glatt aðra og gefa svolítið af sjálfum sér. Ég kynntist Áróru fyrir rúmum 40 árum er við unnum saman á saumastofu. Hún var ákaflega vel verki farin við hvað sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var með sína eigin saumastofu í Lækjargötu 6, þegar hún veiktist. Aróra giftist ekki en eignaðist einn yndislega góðan og fallegan son, Guðmund Þór Guðmundsson, sem var hennar sólargeisli í lífínu. Það var eitthvað svo hlýtt við það, ar. Við komum oft á heimili þeirra að Hvassaleiti 26, Reykjavík, þar sem þau bjuggu 4 saman, systumar Ingibjörg og Áróra svo og Guð- ■mundur með sinni konu, Guðrúnu Bjömsdóttur. Þar var tekið á móti manni með reisn. En skjótt skipast veður í lofti; Guðmundur veikist af banvænum sjúkdómi og lést á Borg- arspítalanum 8. október 1986, aðeins 42 ára að aldri. Hann var öllum ástvinum sínum mikill harm- dauði. En maðurinn með ljáinn er stundum svo miskunnarlaus að okk- ur finnst. Hann fer ekki eftir aldursröð. Við spyijum en fáum ekkert svar. Ég held að það ráði enginn sínum næturstað. Þetta var mikið áfall fyrir Áróru, en hún tók þvf með stakri ró, eins og öllu öðru. Blessuð sé minning þeirra mæðg- ina. Ingibjörg mín og Gunna, við hjónin sendum ykkur innilegar sam- úðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Jónína og Árni Vilberg Morgunblaðið/Sverrir Breiðholtsblóm í nýtt húsnæði Blómaverslunin Breiðholtsblóm er flutt i nýtt eigið húsnæði að Álfa- bakka 12 i Mjóddinni. Að sögn Birnu Björnsdóttur eiganda verslunar- innar, verslar hún með pottablóm, afskorinblóm, blómaskreytingar og gjafavörur. Verslunin er opin frá kl. 9 til 21 aUa daga. Frá vinstri Harpa Jónsdóttir og Birna Björnsdóttir. * Aróra Guðmunds- dóttir - Minning Fædd 18. febrúar 1925 Dáin 12. júlí 1987 Áróra Guðmundsdóttir var fædd að Nesjum í Miðneshreppi, dóttir hjónanna Þórunnar Símonardóttur og Guðmundar Guðmundssonar. Áróra var yngst 5 systkina sem öll eru látin fyrir nokkuð mörgum árum, nema Ingibjörg Guðmunds- dóttir, er lifir systur sína. Áróra ólst upp að Nesjum fram undir fermingu en þá missti hún föður sinn, aðeins 14 ára gömul, og flutti hún fljótlega eftir það til Reykjavíkur þar sem hún bjó til dánardags. í Reykjavík bjó Aróra lengi vel með móður sinni og systk- inum, en þau systkinin voru mjög samheldin. Lengst bjuggu þau á Kleppsvegi 54. Áróra giftist aldrei en eignaðist son 18 ára gömul, Guðmund Þór Guðmundsson. Guðmundur andað- ist á síðasta ári, þá einungis 43 ára gamall. Var hann Áróru mikill harmdauði, því Guðmundur var mesta gleðin í lífi hennar. Aróra vann lengst af á sauma- stofum í Reykjavík, lengst í 20 ár hjá Þorgils Þorgilssyni, Lækjargötu 6a. Síðustu 5 árin sem hún vann var hún með eigin saumastofu. Hún var ávallt glaðlynd í fasi, dugleg og vandvirk við vinnu sína en veikt- ist mikið fyrir 7 árum og varð þá að Játa af störfum. Áróra Guðmundsdóttir bjó í 14 ár að Hvassaleiti 26 í sambýli við systur sína, Ingibjörgu Guðmunds- dóttur, son sinn Guðmund Þ. Guðmundsson og sambýliskonu Guðmundar, Guðrúnu M. Bjöms- dóttur. Síðustu 4 æviárin dvaldi hún síðan á Elliheimilinu Gmnd. Systur Áróm, Ingibjörgu Guð- mundsdóttur, sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Baldur Vlðar Hannesson þegar Gummi sagði „heyrðu rnútta". Þau vom svo góðir félag- tlöfðar til JLJLfólks í öllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.