Morgunblaðið - 25.09.1987, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.09.1987, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987 Kirkjiimál í Svíbjóð: Sljórn jafnaðarmanna stefnir að því að taka þjóðskrána undan kirkjunni Leiðtogar sænsku þjóðkirkjunnar og ríkisins gang-a til kirkjuþings að gömlum sið. Á sænska kirkjuþinginu, sem er nýlokið, var framtíð manntalsskrif- stofanna eitt 'af aðalmálum. Samkvæmt aldagamalli hefð, sem enn er við lýði hér í Svíþjóð, hafa þær verið reknar af kirkjunni undir yfírstjórn presta og sóknamefnda í hveiju prestakalli. Þetta fyrirkomu- lag hefur verið rætt í um þijá ^ áratugi þegar spumingin um tengsl rfkis og kirkju hefur borið á góma. Fyrir um 30 árum létu jafnaðar- menn kanna þessi tengsl með það fyrir augum að slíta sambandinu eða aðgreina ríki og kirkju. Þegar til hefur átt að taka hefur verið hætt við að hrófla við ríkiskirkjufyr- irkomulaginu, eða því skotið á frest, eins og þeir segja sem óska aðskiln- aðar. Þar af leiðandi hefur þjóð- skráningin áfram verið í höndum kirlqunnar og menn hafa talið eðli- legt að bíða með að breyta því fyrirkomulagi þar til ríkisfyrir- komulagið yrði aftur tekið til endurskoðunar í heild. Ýmislegt bendir til þess að svo verði í lok ** þessa áratugar og að róttækar breytingar geti orðið í byijun næsta áratugar. En það virðist ekki auð- hlaupið að gera grundvallarbreyt- ingar á kirkjulöggjöf hér í Svíþjóð. Sú heildarlöggjöf sem er í gildi er að stofni til frá 1686. Snúist til varnar Þeir sem vilja halda í sambandið milli ríkis og kirkju eins og það er nú sjá í tillögu stjómarinnar dul- búna aðför að þjóðkirkjufyrirkomu- laginu og beittu sér fyrir því á kirkjuþinginu að kirkjufólk tæki höndum saman í viðnámi gegn áformum stjómarinnar. Könnun hefur leitt f ljós að 85% af sóknar- nefndunum vildu halda í gamla fyrirkomulagið. Það er áberandi að óprestvígt fólk, sem starfar innan kirkjunnar, er yfírleitt mjög ákveðið í andstöðu sinni við stefnu stjómar- innar. En nú virðist stefnubreyting hafa orðið meðal þingmanna og stjómar- innar hvað varðar fyrirkomulag þjóðskráningarinnar sérstaklega, að því leyti að stjómmálamennimir líta ekki á þessi mál sem sam- tengd. Kirkjumálaráðherrann, Bo Holmberg, tilkynnti kirkjuþings- mönnum að þjóðskráin væri verald- legt fyrirbæri og ætti að heyra undir borgaralega stofnun. Fyrir ríkisþinginu liggur stjómarfrum- varp sem fer í þessa átt og virðist stjómin nú tilbúin, með þingmeiri- hluta að baki, og jafnvel stuðningi Fijálslynda þjóðarflokksins, að taka þjóðskrána undan kirkjunni. Með því að láta annað hvort skattyfír- völd eða tryggingastofnunina sjá um þjóðskrána taldi hann að það/ mætti reka hana ódýrar og hag- kvæmar. L Tillitssemi við fríkirkjurnar Fríkirkjumar hafa ætíð gagnrýnt þetta fyrirkomulag, enda verið á móti ríkiskirkjufyrirkomulaginu og talið það óréttlætanlegt í nútíma lýðræðisþjóðfélagi að ein kirkju- deild hafí sérhlunnindi og sérað- stöðu eins og lútherska kirkjan hefur nú. Gömlu fríkirkjumar, þ.e.a.s. þær sem eiga sér uppruna í vakningarhreyfíngunum frá því um og eftir aldamót hafa í seinni tíð dregið nokkuð úr opinberri gagnrýni sinni á þetta fyrirkomu- lag, sennilega vegna þess að nú er umtalsverður minnihluti þjóðkirkju- presta hlynntur því að sambandið verði endurskoðað. Þá má einnig benda á að lútherska kirkjan hefur tekið upp samstarf við fríkirkjumar á ýmsum sviðum. Eitt dæmið um samkirkjulega viðleitni er sálmabók sem nýlega hefur verið gefín út af þjóðkirkjunni (sem kölluð er ríkis- kirkja hér í Svíþjóð) og helstu vakningahreyfingum og fríkirkjun- um sameiginlega. Tækni og trúar- stofnanir Hins vegar má benda á það að þær fríkirkjur og hópar sem eiga sér upptök í kirkjum innflytjenda hafa tekið þjóðskrármálið upp og talið það brot á trúfrelsi að þurfa að láta skrá sig hjá sænsku þjóð- kirlqunni og leita þangað með vottorð og aðra fyrirgreiðslu, sem þjóðskrárskrifstofur veita. Hér má nefna t.d. kaþólikka og múhameðs- trúarmenn, en af þeim fyrmefndu eru um 400 þúsund í landinu og af hinum síðamefndu nálægt 50 þúsund. Það stendur fyrir dymm að tæknivæða þjóðskrána og láta allar manntalsskrifstofur fá tölvur, sem eiga að vera í miðstýrðu kerfí. Ríkisstjómin vill að þessar breyt- ingar eigi sér stað um leið og skráningin verður færð frá kirkj- unni yfír á borgaralega stofnun, hvort sem það nú verður skattstofa eða almennar tryggingar (försákr- ingskassan). Þessi stefna er aðeins •framhald þeirrar þróunar í kjölfar aukinnar skipulagshyggju og tæknivæðingar, sem fyrir löngu hefur aðgreint hlutverk kirkjunnar frá ýmsum sviðum þjóðfélagsins, svo sem Iandbúnaðarmálum, menntamálum, sveitarstjóm o.s.frv. Hvort kirkjan setur niður sem trú- arstofnun er aftur annað mál. Líklegt er að prestar geti engu að síður gegnt hlutverki sínu sem sálu- sorgarar þótt þeir sjái ekki lengur um skráningu sóknarbama sinna. Pétur Péturssoa erfréttamaður Morgunblaðsins ÍLundi ÍSviþjóð. ________Brids___________ Arnór Ragnarsson Bridsfélag- kvenna Eftir tvö kvöld í hausttvímenn- ingskeppni félagsins er staða efstu para orðin þessi: Stig: Guðrún Halldórsson — Sigrún Straumland 356 Halla Ólafsdóttir — Ólína Kj artansdóttir 353 Steinunn Snorradóttir — Þorgerður Þórarinsdóttir 343 Guðbjörg Þórðardóttir — Guðrún Þórðardóttir 340 Kristín Karlsdóttir — Svafa Ásgeirsdóttir 337 Guðmunda Þorsteinsdóttir — Ólöf Ketilsdóttir 335 Ásgerður Einarsdóttir — Rósa Þorsteinsdóttir 332 VÉLA-TENGI Allar gerðir Öxull — í — öxul. Öxull — í — flans. Flans — í — flans. Tengið aldrei stál — í — stál, hafið eitthvað mjúkt á milli, ekki skekkju og titring milli tækja. Allar stærðir fastar og frá- tengjanlegar Jæ ! @3. Vesturgötu 16, sími 13280 Guðrún Jörgensen — Sigrún Pétursdóttir 331 Alls tóku 28 pör þátt í haustmót- inu að þessu sinni. Formaður félagsins er Aldís Schram en auk hennar eru að þessu sinni í stjóm félagsins: Véný Viðarsdóttir, Margrét Margeirsdóttir, Júlíana Isebam og Hertha Þorsteinsdóttir. Haustbrids Brids- sambandsins Aðeins var spilað í einum riðli í Haustbrids, Opnu húsi á þriðjudög- um í Sigtúni 9, sl. þriðjudag. Úrslit urðu þessi: Stig: Lárus Hermannsson — Kristinn Sölvason 185 Jóhann Ólafsson — Ragnar Þorvaldsson 176 Páll Halldórsson - Sæmundur Bjömsson 169 Rósa Þorsteinsdóttir — Sigrún Pétursdóttir 166 Guðmundur Kr. Sigurðsson — Gunnar Þorkelsson 163 Friðjón Margeirsson — Valdimar Sveinsson 163 Opið hús verður á þriðjudaginn næsta og opnar húsið kl. 18. Ef þátttaka verður hin sama þá verður það síðasta kvöldið í Opnu húsi að sinni. Bridsfélag Reyðar- fjarðar/Eskifjarðar Félagið hóf hauststarfsemi sína 15. september sl. með eins kvöld tvímenningskeppni. 16 pör mættu til leiks. Urslit urðu þessi: Stig: Ásgeir Metúsalemsson — Friðjón Vigfússon 243 Hafsteinn Larsen — Jóhann Þorsteinsson 240 Aðalsteinn Jónsson — Sölvi Sigurðsson 236 Þriðjudaginn 22. september hófst svo fímm kvölda úrtökukeppni fyrir Austurlandsmótið í tvímenningi en félagið á rétt á 7 pörum í þá keppni. Eftir fyrsta kvöldið er staða efstu para þessi: Stig: Aðalsteinn Jónsson — Sölvi Sigurðsson Búi Birgisson — 196 Guðjón Bjömsson 176 Svala Vignisdóttir — Ingileif Jónsdóttir 173 Einar Sigurðsson — Sigurður F'reysson 162 Bemhard Bogason — Pétur Sigurðsson 160 Félagið á von á Homfírðingum í heimsókn í byijun október. Einnig er vakin athygli á því að dregið verður í Firmakeppni Austurlands 10. október nk. Skráð er í þá keppni hjá stjómum félaganna á Austur- landi svo og hjá stjóm svæðasam- bandsins. Bridsfélag Akureyrar Sl. þriðjudag, 22. september, hófst Qög^urra kvölda tvímennings- mót, svonefnt Bautamót, hjá Bridsfélagi Akureyrar. Alls taka 26 pör þátt í mótinu, sem er með Mitchell-fyrirkomulagi. Bautinn á Akureyri gefur verðlaun í mótið, en í anddyri Bautans er auk þess geymdur veglegur verðlaunabikar með nöfnum sigurvegara. Eftir fyrsta kvöldið er staða efstu para þessi: Stig: Hörður Steinbergsson — Öm Einarsson 414 Þormóður Einarsson —■ Símon I. Gunnarsson 400 Grettir Frímannsson — Stefán Ragnarsson 400 Frímann Frímannsson — Pétur Guðjónsson 372 Pétur Jósefsson — Haukur Jónsson 363 Ármann Helgason — Alfreð Pálsson 350 Gissur Jónasson — Ragnhildur Gunnarsdóttir 340 Anton Haraldsson — Æ var Ármannsson 318 Sigfús Hreiðarsson — Ragnar Gunnarsson 318 Keppnisstjóri er Albert Sigurðs- son en tölvuútreikning annast Margrét Þórðardóttir. Athygli er vakin á því að Norður- landsmótið í tvímenningi verður spilað á Siglufírði laugardaginn 3. október og lýkur skráningu 1. októ- ber. Jón Sigurbjömsson á Siglufirði °g Tryggvi Gunnarsson á Akureyri annast skráningu. Norðurlandsmót 1987 — tvímenningur Laugardaginn 3. október nk. verður Norðurlandsmót í tvímenn- ingi haldið á Siglufírði. Öllum spilurum sem lögheimili eiga á Norðurlandi er heimil þátttaka og eru spilarar beðnir að tilkynna þátt- töku fyrir 1. október. Mótið hefst kl. 10.00 f.h. og verða spiluð 64 spil (Mitchell 2x32). Keppnisgjald verður kr. 1.600 pr. par. Uppihald er ekki innifalið í þessu gjaldi. Tilkynna þarf þátttöku til eftir- talinna aðila eigi síðar en 1. október og veita þeir allar nánarí upplýsing- an Jón Sigurbjömsson, Siglufírði, heimasími 71411, vinnusími 71166, Sigurður Hafliðason, Siglufírði, heimasími 71650, vinnusími 71305, og Tryggvi Gunnarsson, Akureyri, heimasími 22089, vinnusími 25939. Núverandi Norðurlandsmeistarar eru Jón Sigurbjömsson og Valtýr Jónasson frá Siglufirði. Skráning í íslandsmót kvenna og yngri spilara í tvímenningi íslandsmót kvenna og yngri spil- ara, sem spilað verður helgina 10.—11. október nk., er í hættu vegna ónógrar þátttöku. Er þessar línur eru ritaðar eru aðeins Qögur kvennapör skráð til leiks, en ekkert unglingapar. Skráningu lýkur mánudaginn 5. október og þá verð- ur ljóst hvort af keppni verður. Skráð er á skrifstofu BSÍ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.