Morgunblaðið - 25.09.1987, Side 42

Morgunblaðið - 25.09.1987, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987 . riskmalet kaf Rarantcrcr Tor. at Mc-rrild Knffo < r samnu'nsat (’miíi ' nnosto kvaliU'takaffor fra Mrasili< n. tralainonka <>k Colnmbia. Drnw vaou'.m n ikl xaranUTorkaffonsfuldoari" ••> \a't ‘i .ULiSJl 'MTViMÍ. i all . ... . . . ........................• / Heildarmagn brennisteinssam- banda var langt innan við leyfíleg mörk, sem sett eru af gosdrykkja- framleiðendum, og er þetta staðfest m.a. með efnagreiningum frá Há- skóla íslands og efnagreiningarstöð Coke Company í Belgiu. Fyrsti farmur eftir verslunarmannahelgi innihélt COS-gas, sem gerði kolsýr- una óhæfa í gosdrykki vegna hveralyktar sem gasið framkallar og fínnst ef þefað er af gosdrykkn- um. Unnið er að lagfæringu tækja svo tryggt sé að óhapp sem þetta gerist ekki aftur. 2. Sól hf. hóf viðskipti við Sjó- efnavinnsluna 5. maí sl., en COS-gas fannst í kolsýrunni 4. ágúst sl. Öll kolsýra fyrir þann tíma var fyrsta flokks, enda notuð bæði í gos og soda-stream-drykki. 3. Sanitas hf. innkallaði vörur sínar í tíma. Óverulegt magn hafði verið selt. Eftirfarandi fullyrðingar sem fram hafa komið í dagblöðum eru rangar: — Allt tal um að Pepsí hafí verið framleitt í heilan mánuð með gallaðri kolsýru er út í hött. — Allt tal um að kolsýra Sjóefna- vinnslunnar hafí ekki verið nógu frísk gildir ekki um tímabilið 1. janúar 1987—4. ágúst 1987. — Bragð Sol Cola-drykksins sem framleiddur var fyrir sl. verslun- armannahelgi hefur ekkert með kolsýru Sjóefnavinnslunnar að gera. Hönnun drykkjarins virðist ekki hafa tekist sem skyldi, því nú er boðið upp á nýja blöndu. Hér er ekki verið að gera lítið úr því óhappi sem félögin þijú lentu í 4. ágúst 1987 og Sjóefnavinnslan er ekki að skjóta sér undan þeirri ábyrgð sem hún kann að bera. Hins vegar eru gerðar þær kröfur til manna að halda því fram sem sann- ara reynist. Magnús Magnússon framkvæmdastjóri Sjóefnavinnslunnar hf. • • Olfusvegur: Bundið slit- lag lagt fyr- ir viðhaldsfé Unnið samkvæmt áætlun frá í janúar Selfoasi. LOKIÐ er við að leggja bundið slitlag á 4,2 kílómetra af Ölfus- vegi, frá Suðurlandsvegi að Nupum og frá Þrengslavegi að eystri Hraunsafleggjara. Fé til framkvæmdanna var tekið af viðhaldsfé og unnið samkvæmt viðhalds- og klæðningaráætlun Vegagerðarinnar frá því í janúar á þessu ári. Sá háttur að nota viðhaldsfé í bundið slitlag er hafður á þar sem umferð er mikil og það ekki talið hagkvæmt að setja malarlag ofan á vegina. Þetta var einnig gert við veginn frá Múla að Gullfossi þar sem einnig er mikil umferð. Gert er ráð fyrir að hægt verði með sama hætti að leggja bundið slitlag á 4 kílómetra á Olfusveg til viðbótar á næsta ári og á síðustu 2,7 kílómetrana þegar fé fæst á vegaáætlun. Sig. Jóns. Nýlistasafnið: Sýningxi Rögnu að ljúka SÝNINGU Rögnu Hermanns- dóttur í Nýlistasafninu lýkur nú um helgina. Síðasti dagur sýningarinnar er sunnudaginn 27. september. Ragna sýnir f Nýlistasafninu bækur, grafík, málverk og klippi- myndir. Athugasemdir við um- mæli Davíðs Scheving Davíð Scheving Thorsteinsson hefur í nýlegum viðtölum við DV, Morgunblaðið og nú síðast Helgar- póstinn reynt að koma mistökum sínum á markaðsfærslu á Sol Cola- drykknum yfír á kolsýru Sjóefna- vinnslunnar og nýtir sér það að fyrsti kolsýrufarmur Sjóefnavinnsl- unnar eftir verslunarmannahelgi var hættulaus en óhæfur til notkun- ar í gosdrykki. í janúar sl. hóf Sjóefnavinnslan framleiðslu og sölu á kolsýru. Kol- sýrunni er dreift til fjölda viðskipta- vina og hefur hún líkað vel. Engar efasemdir hafa verið um gæði kol- sýrunnar frá upphafí að síðastlið- inni verslunarmannahelgi. Fyrsti kolsýrufarmurinn eftir verslunar- mannahelgi sem afhentur var 4. ágúst 1987 innihélt karbonylsulfíð (COS)gas. Gasið, þótt hættulaust sé, gerði kolsýruna óhæfa til notk- unar í gosdrykki og stöðvaði Sjóefnavinnslan strax alla sölu til gosdrykkjaframleiðenda þegar það upplýstist. Farmurinn skiptist milli tveggja aðila, Sól hf. og Sanitas hf. COS-gas er erfítt að greina og fór það framhjá gæðaeftirliti Sjó- efnavinnslunnar og áðumefndra fyrirtækja. Sanitas innkallaði strax sínar vörur sem framleiddar voru í fyrstu viku eftir sl. verslunamanna- helgi, breytti um kolsýru og kom fljótt með vöru sem uppfyllti þeirra gæðakröfur. Okkur var tjáð hjá forráðamönnum Sól hf. að um 80.000 dósir hefðu verið framleidd- ar úr umræddum farmi og óverulegt magn hefði farið út úr fyrirtækinu, og það yrði strax innkallað. Staðreyndir málsins eru þessar: 1. Sjóefnavinnslan framleiddi fyrsta flokks kolsýru frá upphafi fram að sl. verslunarmannahelgi. LANDSINS MÝKSTA KAFFIDÓS Það er góð hugmynd, að geyma kaffið 1 Merrild-pokanum, þvl að hluti af angan og bragði kaffisins tapast, ef þú hellir því úr pokanum í kaffidós. Ef þér finnst best að geyma kaffið i sérstakri kaffidós, þá settu Merrild-pokann í dósina og á þann hátt, tryggir þú að kaffið haldi ilm sínum og bragði betur. Merrild-gæðakaffi, sem bragð er af, enda framleitt úr bestu fáanlegum kaffibaunum frá Brasilíu, Kólumbíu og Mið-Ameríku. MewuM setur brag á sérhvern dag. MELLEMRISTET

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.