Morgunblaðið - 25.09.1987, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 25.09.1987, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987 Átaksverkefni á Seyðis- firði og Egilsstöðum eftir Axel A. Beck Hvemig hefur okkur vegnað und- anfarinn áratug? Hver eru tækifæri okkar í dag? Hvemig lífí viljum við lifa næstu tuttugu ár? Hvemig nálgumst við það markmið? Þannig hljóma nokkrar þeirra spuminga sem spurt verður í tengslum við djarfa og krefjandi tilraun sem tvö nágrannasveitarfé- lög á Austfjörðum, SeyðisQörður og Egilsstaðir, ætla að hrinda í framkvæmd í haust og á að standa yfír í tvö ár. Tilraunin hefur hlotið nafnið átaksverkefni og markið er sett hátt: að stórbæta hæfni byggðanna til að búa íbúum sínum lífvænleg kjör og betra mannlíf í víðasta skiíningi. Það teljum við best gert með því að virkja íbúa staðanna til athafna. Þeir þekkja best takmarkanir staðarins sem geta t.d. verið einhæft atvinnulíf, slæmar samgöngur, léleg þjónusta, fátæklegt framboð á tómstundaiðju eða skort á félagslegri aðstoð. Átaksverkefnið hefur það hlutverk að bæta úr þessum ágöllum. Hvað er átaksverkefni? Til þess að svara þessari spum- ingu höfum við leitað aðstoðar og upplýsinga frá Norðmönnum sem hafa beitt átaksverkefnum mikið í viðleitni sinni til að efla byggðaþró- un undanfarin 7—8 ár. A sl. vori bauð IðnþróunarfTag Austurlands Jan Roger Iversen frá Senter for næringsutvikling í Tromsfylki í heimsókn og með aðstoð hans höf- um við náð það langt að við teljum okkur geta ráðist í verkefnið. AIPÁM UOSAPERUR LOGA LENGUR FINNSK FRAMLEIÐSLA HeikJsölubirgðir SpÞÝSK-ÍSLENSKAHF. ■ ■ Lynghálsi 10-110 Reykjavtk - Simi: 82677 Átaksverkefni eru nú einn af homsteinum norskrar byggða- stefnu. Á undanfömum 8 árum hafa átaksverkefni af einhveiju tagi verið skipulögð í yfír 70% norskra byggðarlaga í því skjmi að styrkja byggðimar. Aðferðimar hafa verið afar mismunandi en öll hafa verk- efnin haft þá meginforsendu að það verði að byggja á því sem fyrir er í hverri byggð. Markmið flestra verkefnanna hefur verið að setja ný fyrirtæki á laggimar. Þetta viðhorf er gerólíkt hefð- bundnum aðferðum við byggðaþró- un sem oftast eru fólgnar í því að gera þróunaráætlun fyrir byggðar- lögin, veita þeim hagstæð lán eða hreina styrki til að bæta samgöng- ur, auka þjónustu eða koma á fót stómm fyrirtækjum sem gætu orðið homsteinn atvinnuþróunar. Þessi aðstoð hefur í flestum tilvikum ver- ið bráðnauðsynleg en samt ekki dugað til að stöðva flóttann frá stijálli byggðum til þéttbýlisins. Þess vegna hafa menn reynt að koma sér upp nýjum þróunarað- ferðum sem í æ ríkari mæli taka mið af þeim veruleika sem byggð- imar þurfa að kljást við. Meginforsenda átaksverkefn- anna er því með öðrum orðum sú að engir aðrir en íbúar byggðarlag- anna séu færir um að leysa vanda þeirra. Utanaðkomandi geta að- stoðað og lagt til hugmyndir en þegar málið snýst um að ákveða markmiðin og hrinda verkefnum í framkvæmd verður að láta heima- menn eina um það. Skipulag átaks- verkefna Hvemig setur maður svo átaks- verkefni í gang? Að flestu leyti verður að móta það eftir aðstæðum á hveijum stað en almennt má segja að verkefnið skiptist í þijá þætti: 1. Áróður og hvatning. 2. Virkjun þátttakenda. 3. Starf að verkefnum. í fyrsta þætti þarf að upplýsa almenning og atvinnulífíð rækilega um verkefnið með aðstoð fjölmiðla og umræðna meðal fólks. Markmið- ið með þessum þætti er að sannfæra sem flesta um að þeir geti breytt aðstæðum sínum og haft áhrif á framtíðina. Þessum þætti lýkur með borgarafundi þar sem íbúunum gefst bæði kostur á að hafa áhrif á gang verkefnisins og veita því nauðsynlegan stuðning. í öðrum þætti er lykilorðið virkj- un. Það fer eftir eðli verkefnisins hveija á að fá til þátttöku, hve marga og hvemig það er best gert. Sum verkefni eru þess eðlis að þau höfða eingöngu til fyrirtækja at- vinnulífsins en önnur veita almenn- ingi tækifæri til þátttöku frá upphafí til enda. AJlar aðferðir við virkjun þátttakenda eiga það þó sammerkt að þátttakendumir ákveða sjálfír hvaða vandamál skal glímt við. Á Seyðisfírði og Egils- stöðum er ætlunin að efna til svonefndrar leitarráðstefnu sem verður lýst hér á eftir. Þessi þáttur stendur yfírleitt í nokkra mánuði. Það liggur þó í augum uppi að ekki er hægt að halda uppi víðtækri þátttöku í mjög Iangan tíma. Til þess að koma í veg fyrir að verkefn- ið renni út í sandinn verður að setja því fastar skorður sem tryggja að stöðugt sé unnið að einhveiju áþreifanlegu. Þriðji þáttur hefst því með því að stofnuð em einhvers konar samtök með tilheyrandi regl- um og skipulagi. Ekki er hægt að segja fyrir um það hvert form sam- takanna verður því það ræðst algerlega af því hvers eðlis verkefn- in em sem fyrirhugað er að ráðast í og hversu mikil þátttakan í þeim er. Leitarráðstefnan Aðferðin sem við hyggjumst beita er fengin frá norskum vinum okkar og nefnist leitarráðstefna. Meðan virkjun þátttakenda stendur yfír verður éfnt til ráðstefnu þar sem leitast verður við að fá þátttak- endur sem geta kallast þverskurður af íbúunum. Þeir munu svo í sam- einingu koma sér niður á verkefni sem nauðsynlegt er að ráðast í til að tryggja byggðinni betri framtíð. Skipulagning ráðstefnunnar verður í höndum undirbúnings- nefndar sem kosin verður á borg- arafundinum. Nefndin fær tvö verkefni. í fyrst lagi á hún að kort- leggja byggðarlagið, íbúa þess og þá þekkingu og auðlindir sem það býr yfír. Þessi kortlagning verður síðan lögð til gmndvallar starfí ráð- stefnunnar. I öðm lagi á nefndin að velja þátttakendur á ráðstefn- una. Starf ráðstefnunnar verður fólgið í hópstarfí og almennum umræðum á víxl. Þess vegna þarf að mynd 5—7 starfshópa, sem telja' má að endurspegli byggðarlagið. I hveijum hópi verða 6 manns að meðaltali þannig að alls munu 30—40 manns sitja ráðstefnuna. Einn hópurinn skal eingöngu vera skipaður konum og annar ein- göngu æskufólki. Þess utan þyrftu hópamir að tengjast ákveðnum starfsgreinum, svo sem fískveiðum, fískvinnslu, öðmm iðnaði, þjónustu, landbúnaði o.s.frv. Hópana þarf að velja þannig að tryggt sé að öll starfandi félagasamtök eigi sér full- trúa á ráðstefnunni. Ekki er nauðsynlegt að þátttakendur séu „tölfræðilegur þverskurður" af byggðarlaginu. Mikilvægara er að veita fólki sem býr yfir hæfni og trú á framtíðina tækifæri til þátt- töku. Fyrri dagiir ráð- stefnunnar Vaninn er að leitarráðstefnur standi yfír í tvo daga. Á fyrsta degi eiga þátttakendur að leysa af hendi þijú verkefni sem hvert fyrir sig verður rætt í hópunum og síðan í almennum umræðum. Fyrsta verkefnið verður að leggja mat á ástandið í byggðarlaginu. Hópamir verða beðnir um að benda á það sem er að gerast á þeirra sviði og skipta því niður í jákvæða, neikvæða eða hlutlausa þróun. Auk þess eiga hópamir að segja álit sitt á ástandinu og þeim möguleikum sem byggðarlagið og íbúar þess búa yfír. Starf hópanna verður síðan kynnt í almennum umræðum þar sem leyft verður að varpa fram fyrirspumum en ekki að gagnrýna niðurstöður hópanna, Það er ekki markmiðið að allir séu sammála um allt, mikiu frekar að þátttakendur skynji þróunina sem ferli og að fólk hafí ólík viðhorf til þess veruleika sem ákvarðar ferlið, t.d. eftir kyni, aldri og starfssviði. Til þess verður að taka tillit síðarmeir þegar kemur að því að velja framtíðarverkefni. Næsta verkefni hópanna verður að gera grein fyrir framtíðarþróun- inni og þeim vonum sem fólk bindur við hana. Gengið verður út frá því sem fólk telur að muni gerast ef ekkert yrði aðhafst til að stýra þró- uninni. Á það verður svo lagt mat, neikvætt, jákvætt eða hlutlaust. Því næst verður hugað að því hvaða þætti þróunarinnar íbúar byggðar- lagsins geta sjálfir haft áhrif á og hvaða þætti menn verða að sætta sig við. Markmiðið er að ýta undir sem flesta „góða“ þætti og fækka „slæmu“ þáttunum. Lokaverkefni hópanna er svo að lýsa samfélaginu eins og menn óska sér að það yrði eftir 10 ár. Síðasti liður á dagskránni fyrri daginn verður að afmarka þau svæði þar sem átaks er þörf. Hvar er hægt að taka til hendinni í því skyni að tryggja að frámtíðin verði sem næst því sem fólk óskar sér og sem fjærst því sem það vill forð- ast? Þær umræður ráðast vitanlega af því sem fram hefur komið um daginn og ákveðnar tillögur um verkefni mega gjaman fylgja. En það sem er mikilvægast er að forð- ast að almennu umræðumar snúist upp í það að hópamir fari að rífa niður hugmyndir hver annars. Eftir langan og strangan vinnu- dag taka sérfræðingamir sem starfa við ráðstefnuna — leiðbein- endur sem þyrftu að hafa einhveija reynslu af svona verkefnum — við og velja 5—8 þeirra tillagna sem fram hafa komið um verkefni: þær tillögur sem umræður dagsins hafa leitt í ljós að mestur vilji er til að hrinda í framkvæmd og þær sem lífvænlegastar teljast. Síðari dagoir ráð- stefnunnar Starfíð hefst með kynningu á þeim tillögum sem starfsmennirnir telja að rétt sé að vinna áfram að. Vafalaust verður þeim eitthvað breytt og að því loknu þarf að stokka ráðstefnuna upp. Leysa upp hópana og mynda nýja sem skipta sér eftir verkefnum. Þátttakendur velja sjálfír hóp til að starfa með. Hlutverk hópanna verður nú að móta ákveðnar tillögur. Eins og fyrri daginn fá hópamir góðan tíma til að starfa út af fyrir sig og búa sig undir að kynna tillögumar í al- mennu umræðunum. Eftir að hver hópur hefur kynnt sínar tillögur verða þátttakendur beðnir að leggja mat á þær og at- huga hvort hægt sé að samræma þær eða jafnvel slá tveimur eða fleiri tillögum saman. Að lokum þarf að raða tillögunum upp í for- gangsröð út frá tveimur forsendum. Sú fyrri er hvort tillagan er raunsæ og sú síðari hvort hún er æskileg. Þetta er nauðsynlegt til þess að hægt sé að einbeita sér að fáum verkefnum. Best er að byija á auð- veldari verkefnum en geyma þau flóknari. Átaksverkefnið á nefni- lega að leiða til áþreifanlegrar niðurstöðu. Loks ber að velja þau verkefni sem breiðust samstaða er um. Eftir miklar umræður hefur ráð- stefnan komið sér niður á 5—7 verkefni. Enn skal ráðstefnan stokkuð upp og þátttakendur beðn- ir að ákveða hvaða verkefni þeir vilja starfa að. Á þessu stigi gætu starfsmenn ráðstefnunnar sett fram sínar hugmyndir um næstu skref sem yrðu þau að stofna einskonar regnhlífarsamtök um öll verkefnin til að tryggja áframhaldandi starf. Þessum samtökum þarf að skipa stjóm og formann. í stjóminni sitja fulltrúar allra verkefnahópanna en auk þess þurfa að sitja í henni ein- hveijir sem hafa það hlutverk eitt að koma starfí samtakanna af stað. Rétt er að kjósa stjómina strax svo allir viti hveijir bera ábyrgð á því að samtökin starfí. Hlutverk nýju verkefnahópanna verður að semja starfsáætlanir. Helstu lykilorðin í þeim em hvað á að gera, hvenær og hver á að gera hvað, við hvaða aðila utan ráð- Hvernig hefur okkur vegnað undanfarinn áratug? Hver eru tæki- færi okkar í dag? Hvernig lífi viljum við lifa næstu tuttugu ár? Hvernig nálgumst við það markmið? stefnunnar og jafnvel utan ^yíTgðarlagsins skal haft samband við hvaða upplýsinga þarf að afla til að geta haldið starfinu áfram. Að þessu loknu þarf að búa til endanlega forgangsröð. Sum verk- efnin hafa kannski reynst of erfíð eða ekki jafnmikilvæg og talið var í fyrstu og verða því lögð á hilluna. Eftir þessa fínpússun verða valdir endanlegir starfshópar til að starfa að þeim verkefnum sem eftir em á listanum. Ef tími vinnst til væri æskilegt að endurskoða starfsáætl- anir hópanna. Framhaldið Velheppnuð leitarráðstefna skap- ar ekki einasta gmndvöll fyrir aukna virkni og bætt lífskjör í byggðarlaginu. Hún getur einnig lagt gmnninn að frekari fram- kvæmdum í krafti aukinnar vitund- ar og þekkingar íbúanna á eigin aðstæðum. Tilgangur hennar er að virkja lykilpersónur byggðarlagsins og efla með þeim þá hugsun að þeim beri skylda til að starfa að verkefnunum sem valin hafa verið. Eftir ráðstefnuna er biýnt að viðhalda áhuganum. Niðurstöðum hennar þarf að koma á framfæri við aðra íbúa staðarins svo þeim sem áhuga hafa gefíst kostur á að taka þátt í starfínu. Starfshópamir starfa samkvæmt áætlun og sér- fræðingar og stjómarmenn em í nánu sambandi og aðstoða hópana ef nauðsyn krefur. Eftir 2—3 mánuði er svo haldin önnur ráðstefna með þátttöku þeirra sem sátu þá fyrri og þeirra sem bæst hafa í hópinn. Þangað verður einnig boðið öðmm áhrifa- mönnum, svo sem sveitarstjómar- mönnum, alþingismönnum og sérfræðingum sem veitt geta hóp- unum faglega ráðgjöf. Hópamir gera grein fyrir störfum sínum og þeirri reynslu sem fengist hefur, bæði jákvæðri og neikvæðri. Eink- um er brýnt að fram komi hvort þær forsendur sem lagðar vom fram á fyrri ráðstefnunni hafí stað- ist eða hvort nauðsynlegt er að taka einhver verkefni til endurskoðunar eða jafnvel hætta við þau. Eftir stutt erindi nokkurra úr röðum áhrifamanna hefst hópstarf sem gestimir taka þátt í. Hugað verður að möguleikum og takmörk- unum hópanna í framtíðinni og starfsáætlanir yfírfamar og endur- skoðaðar. Þannig endurskoðaðar verða starfsáætlanimar ræddar í almenn- um umræðum og fundinum lýkur með því að næsti fundur er tíma- settur. Þannig getur átaksverkefnið haldið áfram í nokkra mánuði. Smátt og smátt komast verkefnin í framkvæmd og hugsanlega verða til nýir hópar utan um ný verkefni. Niðurstaðan gæti orðið stofnun nýrra fyrirtækja, efling fyrirtækja sem fyrir em með hagnýtingu nýrr- V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.