Morgunblaðið - 25.09.1987, Side 54

Morgunblaðið - 25.09.1987, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987 © 1985 Universal Press Syndicate A-'U „ pet ta. „ 'Atappab ±S 35 ", er 5krifoub me^ kúLu penrvx." Með morgunkaffinu Það fyndnasta í bíóinu var þegar maðurinn sem sat fyrir aftan okkur sagði mömmu að stein- þegja ... Selastofninn er of stór Heiðraði Velvakandi. Jón Eiríksson er heldur betur gamansaniur í Velvakanda þann 18. september en tekur einnig á alvarlegu máli. Hvað sem öllu málþófi líður um rétt okkar íslendinga til að veiða hval er það frekleg ágengni og hreint kemur engum öðrum við en okkur íslendingum hvemig við hög- um nýtingu okkar auðlinda þegar það er innan okkar lögsögu og öll varúð höfð á að stofna ekki í hættu hæfilegri stofnstærð fisks og hvala. Selastofninn er of stór og mun gera mikinn skaða á næstu árum ef ekki verður fækkað verulega. Hann er ágengur við lax og silung og mun höggva skarð í hafgöngu- stofna fiskeldisstöðvum hérlendis. Þetta sannaðist nú fyrir skömmu þegar selaganga til Noregsstrandar lagði í auðn fiskimið þar og að sel- ur drepur og fælir fisk af miðum sjómanna. Þorleifur Kr. Guðlaugsson Hvað amar að Borgaraflokknum? Til Velvakanda. í sjónvarpsfréttum ríkissjón- varpsins 22. september var formað- ur Borgaraflokksins dreginn fram í dagsljósið sem fréttaefni. Senni- lega er fréttastjóri ríkissjónvarpsins enn þeirrar skoðunar, að formaður Borgaraflokksins hafi það frétta- gildi, að á horfendur sitji stjarfir fyrir framan skjáinn, þegar for- svarsmaður „litla mannsins" birtist þeim. En hvað um það. Formaðurinn var kominn á skjáinn. Og hvað hafði hann að segja: Jú, umræðu- efnið var Sjálfstæðisflokkurinn, enn og aftur. Menn höfðu fengið hótan- ir, sagði formaðurinn. Frá hverjum? spurði fréttamaður. „Frá Sjálfstæð- isflokknum," sagði formaðurinn, svona eins og í framhjáhlaupi og mælti í barm sér, nokkuð lágt. „Stuðningsyfirlýsingu við flokk- inn?! sagði formaður Borgara- flokksins, og átti þá við Sjálfstæðis- flokkinn — að meim hefðu fyrir kosningar gefið „stuðningsyfirlýs- ingu“ við Sjálfstaeðisflokkinn?!! Hver heftir gefið „stuðningsyfir- lýsingu" við einhvem flokk skrif- lega? Auðvitað enginn. Það er ekki skrifað undir stuðningsyfirlýsingar fyrir kosningar af einum eða öðrum, nema þegar menn skrifa undir stuðning við frambjóðendur, sem em að fara í framboð. Það á ekk- ert skylt við það sem formaður Borgaraflokksins var að ýja að. „Fyrirgreiðslumissir", var annað orð, sem formaður Borgaraflokks- ins dró upp úr pússi sínu. Hvað er það nú? Hvemig ætti Sjálfstæðis- flokkurinn að geta hótað einhveiju sem nefnt er „fyrirgreiðslumissir"? Þetta orð, „fyrirgreiðsla" eða „fyrir- greiðsla til litla mannsins" em hugtök, sem notuð em af formanni Borgarafloksins í tíma og ótíma, en heyrast sjaldan hjá öðmm. Það er sennilega ekki nokkur kjósandi, sem gerir sér neina rellu út af „fyrirgreiðslu". Þetta er löngu úrelt fyrirbæri og þar með orðtak. Heyrir aðeins til hinum gömlu pólitíkusum, sem vom sífellt að vasast í útréttingum fyrir einhveija ótiltekna „litla menn“ og tóku svo sjálfir þóknun fyrir. En hvemig er það með formann Borgaraflokksins, er hann ekki án- ægður með sinn flokk — sjö þingmenn? Einhver væri ánægður með minna, af nýstofnuðum flokki að vera. Þeir í Flokki mannsins hefðu orðið ánægðir. í svo samhentum flokki, sem Borgaraflokkurinn er, ætti ekki að heyrast ein óánægjurödd. En það er eins og allt í þeim flokki snúist um Sjálfstæðisflokkinn og mál á þeim bæ! Ætlar Borgaraflokkurinn að lifa á andstöðu við Sjálfstæðis- flokkinn? Ef það er eina baráttumál Borgaraflokksins verður þess ekki langt að bíða, að Borgaraflokkurinn leysist upp vegna málefnafátæktar. Og það er sennilega það sem hijáir Borgaraflokkinn mest, málefnafá- tækt og innbyrðis illindi og valda- barátta. Já, það er seint séð, að betra hefði verið að vera innan síns gamla flokks! En flokkur með „framtíð", eins og Borgaraflokkurinn, virðist nú flokka mest þurfa á fyrir- greiðslu að halda og ætlar að höfða mál á hendur fjármálaráðherra til að ná út tveimur milljónum fyrir- fram fyrir góðmennsku flármála- ráðherra. Og svo talar formaður Borgaraflokksins um „fyrir- greiðslu" Vitið þér enn eða hvat? Áhorfandi HÖGNIHREKKVÍSI Víkverji skrifar Stórar auglýsingar birtust frá fyrirtækinu Vífílfelli um síðustu helgi þar sem hækkað verð, tom- bólu- og lukkumiðar var sagt í boði fyrir tóm kókgler. Ungum vini Víkveija fannst þetta meiri háttar — eins og krakkamir orða það. Hann lét greipar sópa í geymslu foreldra sinna og hafði upp úr krafsinu á annan tug gleija. Er hann kom að afgreiðslu kókmanna þurfti hann að bíða í biðröð og komst loks að skömmu fyrir lokun. Var þá svo komið hjá afgreiðslu- mönnum að þeir þurftu að fara í eigin vasa til að geta borgað glerin, happaþrennumar vom allar búnar og tombólumiðamir, sem hann fékk í staðinn, voru allir með áletruninni „nitte". Þó hafði fyrirtækið auglýst að engin núll væm. Fannst strák þetta súrt í broti og var óspar á hnjóðsyrðin þegar heim var komið. XXX Tony Knapp fyrrum landsliðs- þjálfari á Islandi var í eina ttð daglegur gestur á íþróttasíðum dagblaða hérlendis. Trúlega hefur þetta einnig verið svo í Noregi, en þar hefur Englendingurinn starfað við knattspymuþjálfun undanfarin ár. Nú er hins vegar útlit fyrir að endir verði þar á. Á dögunum lét Knapp þær fregnir berast til norskra bláða að hann væri orðinn valtur i sessi og stjóm félagsins Brann í Bergen hygðist reka sig. Við þetta kannaðist stjóm félagsins ekki þegar hún sá tíðindin í blöðum og reyndi að rekja fréttina. Leik- menn vom kallaðir á teppið hver af öðmm, en málið upplýstist ekki fyrr en norskur blaðamaður greindi frá því að Knapp hefði sjálfur kom- ið fréttunum um brottrekstur sinn á framfæri. Þjálfarinn var rekinn degi síðar og vinnubrögð Tony Knapps em að sjálfsögðu fyrir neðan allar hell- ur. Gamlir íþróttafréttamenn leiða hugann að samskiptunum við Knapp hérlendis fyrir rúmum ára- tug. XXX Víkveiji veltir þó ekki síður fyr- ir sér vinnubrögðum blaða- mannsins, sem greinir frá heimildarmanni sínum. Það er ein- falt að spyija hvað blaðamaður eigi að gera þegar hann stendur heim- ildarmann sinn að því að ljúga vísvitandi. Gerir hann ekki lesend- um sínum og aðilum málsins greiða með því að segja frá skúrknum í málinu. Hvað þá með siðareglur blaða- manna og samskipti við heimildar- menn og bar blaðamanninum ekki að kanna fréttina nánar áður en hann hljóp með hana á síður blaðs síns. I siðareglum íslenzkra blaða- manna segir að blaðamaður virði nauðsynlegan trúnað við heimildar- menn sína. Hvað er nauðsynlegur trúnaður? í prentlögum frá árinu 1936 seg- ir svo: „Sá, er ber ábyrgð á innihaldi prentaðs rits eða blaðs að lögum, má ekki skýra frá því fyrir dómi, hver sé höfundur að riti, grein eða frásögn, sem í riti eða blaði hefur birzt, án þess að höfundur væri nægilega nafngreindur."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.