Morgunblaðið - 25.09.1987, Page 55

Morgunblaðið - 25.09.1987, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987 55 Þessir hringdu .. Nokkur hluti ökumanna huns- ar umferðarlög Okumaður hringdi: „Að undanfömu hefur fjöldi ökumanna verið tekinn fyrir of hraðan akstur og hafa ökumenn verið kærðir fyrir aka á allt að 160 kilómetra hraða á klukku- stund. Það sér hver heilvita maður að við svo búið má ekki standa. Ég fagna þeirri nýbreytni að lög- reglan ætlar nú að hefja hraða- mælingar á ómerktum bílum því það skilar áreiðanlega meiri ár- angri. Ég held að mikill meirihluti ökumanna fari eftir umferðarlög- um í meginatriðum en víst er um að nokkur hluti ökumanna hunsar umferðalög og skortir ábyrgðar- tilfínningu. Það er þessi minni- hluti sem þarf að ná til og fá þetta fólk til að bretrumbæta sig, láta það taka bflpróf uppá nýtt eða taka af því ökuskírteinin ef allt um þiýtur. Gera verður átak í þessum málum nú þegar ökuskil- yrði fara versnandi og slysahætta eykst." Svart veski Svart veski tapaðist í Bíóborg föstudaginn 18. september. Finnandi er vinsamlegast beðinn að skila því til lögreglunnar. Taska Grá Adidastaska með rauðum stöfum varð eftir í biðskýli í Ár- bæjarhverfi fyrir nokkru. Finnadi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 672769. Stjórnvöld skammta lesefnið Til Velvakanda. Það var sagt frá því í útvarpinu að sandinistamir í Nicaragua hefðu gert stórátak og gert fleiri þúsund manns læsa, og er það framför. En það gleymdist að segja frá því að þeir afnumdu um leið ritfrelsi og þar með tóku þeir aftur það sem þeir höfðu gefið með annarri hendinni, því hvers virði er það að kunna að lesa þegar stjómvöld skammta lesef- nið. Þetta er eins og þegar skáldin og menningarvitamir hældu Stalín sem mest. Stalín lét taka nóbelsskáld- ið Maxim Gorkí af lífi en önnur skáld fóru í fangabúðir eða hættu hreinlega að skrifa, því þau gátu ekki skrifað eftir jólakökuuppskriftinni hans. Á þessum árum var það í sögutíma hjá Ólafí Hanssyni, að hann var að telja upp þær þjóðir sem sagðar voru læs- ar þá sleppti hann Rússum. Þá reis upp einn nemandi og sagði, að Stalín hefði fyrirskipað að allir Rússar skyldu taka stúdentspróf. Þá stóð Ólafur Hansson á gati í fyrsta skipti á ævinni. 0348-3940 Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur Iesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 13 og 14, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma þvi ekki við að skrifa. Með- al efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttar- ins, þé að höfundur óski nafn- leyndar. Busavígslur: Hvar var ofbeldi fram- ið og hver sá það? Kæri Velvakandi Hér með viljum við svara bréfi Huldu sem birtist í Velvakanda laugardaginn 19. september. Hulda Frábærir íþrótta- þættir á Stöð 2 talar um ofbeldi. Hvar var ofbeldi framið og hver sá það? Við undirrit- aðar viljum meina að ekkert ofbeldi hafi verið framið í busavígslu Menntaskólans við Sund og höfum við sem eldri nemendur og svokall- aðir „böðlar" vitneskju um að svo var ekki. Umfjöllun fjölmiðla hefur gefið ranga mynd af busavígslunni. Áður en sjálf vígslan fer fram er hátíðleg athöfn inni í sal skólans sem öllum ber saman um að sé mjög áhrifarík og skemmtileg. Að henni lokinni fer „hin hrottalega busavígsla" (að annarra áliti) fram. Við viljum taka skýrt og greinilega fram að áður en vígsludagur rennur upp er ný- nemum greint skilmerkilega frá hvernig vígslan er og þau beðin að mæta í gömlum og ónýtum fötum vegna hættu á að fötin skemmist. Það er að segja ef þau kæra sig um að mæta því enginn er neyddur til að koma í vígsluna. Það er mik- ill misskilningur að nýnemar séu dregnir út úr kennslustund og dembt í vígsluna. Vígsludagurinn er ákveðinn lögnu fyrirfram. Við skiljum ekki hvers vegna eins góð sjónvarpsstöð og Stöð 2 var með svo neikvæða umfjöllun um þennan gamla og góða sið sem busavígslan er. Við hefðum ekki viljað missa af þessari vígslu og vitum að ný- nemar eru á sama máli. Þrír eldri nemendur við Menntaskólann við Sund Til Velvakanda Mig langar til að þakka Stöð 2 fyrir frábæra íþróttaþætti. Þeir eiga sérstakt hrós skilið fyrir að sýna frá keilukeppninni þann 15. septem- ber. Þetta er það sem allir aðdáend- ur keiluíþróttarinnar hafa beðið eftir enda er mikil gróska í keilunni í heiminum í dag (keila verður ólympíuíþrótt 1988). Ég vona að Heimir og Ama láti nú ekki hér við sitja, heldur sýni reglulega frá deildakeppninni í vetur. Það leikur enginn vafi á því hvor stöðin hefur yfirhöndina í sam- keppninni um íþróttaáhorfendur. Sportidjót HEILRÆÐI Það haustar. Dagurinn styttist. Nóttin lengist. Allra veðra er von. Látum ekki árstíðina svæfa okkur. Höldum vökunni. Vörumst slysin. Af heilum hug þakka ég dœtrum mínum, _ tengdasyni, barnabörnum, systkinum, frœnd- fólki, vinum og samstarfsmönnum þann hlýhug og vináttu, sem mér var sýnd á sjötugsafmœli L mínu 29. ágúst s/. Sá dagur veróur mér ógleymanlegur. LifiÓ heil. Gróa B. Pétursdóttir, Hæöargarði 16, Reykjavík. R.E.M. — Documents á plötu, kassettu og geislaplötu. sfatifmrNF AUSTURSTRÆTI, GLÆSIBÆ, RAUÐARÁRSTÍG, STRANDGÖTU. Póstkröfusimi 11620 og 28316 (simsvari). R.E.M. erekki lengur neitt einkamá Fréttin hefur lekið út og nú eru R.E.I á hraðri siglingu með lagið: „The on listann og Rásarlistann. Rokkunnendur. T ryggið ykkur eintak af „Documents" og gefið gaum að fyrri plöt- um R.E.M.: Murmur, Reckoning, Fables Of Reconstruction, Life’s Rich Pageand ogDeadLetter Office.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.