Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
243. tbl. 75. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
Prentemiðja Morgunblaðsins
Annar „svartur mánudagur“:
Verðhnm í Hong
Kong gefur tóninn
London, Washington, Reuter.
VERÐ hlutabréfa féll enn í gær
í Evrópu og Asíu og gerði það
vonir manna um að verðbréfa-
markaðurinn hefði náð sér eftir
niðursveifluna í síðustu viku að
engu. Mest varð verðfallið í
Hong Kong en þar minnkaði
verðgildi hlutabréfa um þriðj-
ung á einum degi. Víða í Evrópu
féllu verðbréf um 5-7% og þeg-
ar kauphöUinni í WaU Street var
lokað var Ijóst að næst mesta
hrun á einum degi í sögu kaup-
haUarinnar hafði átt sér stað.
Verðbréfamarkaðurinn í Hong
Kong var opnaður í gær eftir fjög-
urra daga lokun. Beðið hafði verið
eftir því að öldumar lægði á fjár-
málamörkuðum heims. En allt
kom fyrir ekki og mesta hmn í
sögu verðbréfaviðskipta í bresku
nýlendunni leit dagsins ljós. „Þetta
er krossfesting," sagði einn hinna
ógæfusömu kaupsýslumanna í
Hong Kong.
Þegar Ijóst var hvert stefndi í
Hong Kong gerði taugaveiklun
vart við sig á stærsta verðbréfa-
markaði heims, í Tókýó. Þar féllu
verðbréf um 4,7% í gær. í London
lækkuðu verðbréf í verði um 6,2%.
Þar nemur lækkunin á einni viku
220 milljörðum Bandaríkjadala. í
París féllu verðbréf um rúm 7%
þrátt fyrir fregnir af minna at-
vinnuleysi í Frakklandi og bættum
efnahag. Vestur-Þjóðverjar fóru
ekki varhluta af verðfallinu. í
Frankfurt lækkuðu verðbréf um
nærri 6%.
Fregnir af hmninu í Hong Kong
og víðar auk spádóma hagfræð-
inga um að verðhmnið á mánudag
í síðustu viku kynni að hafa slæm
áhrif á bandarískt efnahagslíf ollu
mikilli verðlækkun á hlutabréfa-
markaði í Wall Street í gær.
Markaðnum I Wall Street var lok-
að klukkan 14:00 að staðartíma
til að gefa viðskiptamönnum kost
á að greiða úr flækjunni sem skap-
aðist við verðfallið í síðustu viku.
Engu að síður nam verðlækkun
hlutabréfa í Wall Street 8% í gær
eða 156 stigum samkvæmt Dow
Jones-vísitölunni. Við lokun var
vísitalan einungis 100 stigum
hærri en þegar hún var lægst á
mánudag í síðustu viku en þá var
hún 1.738 stig. Hagfræðingar
telja eina ástæðu fyrir verðfallinu
í gær vera þá að menn sem illa
urðu úti í síðustu viku til að hafi
viljað koma hlutabréfum sínum í
verð áður en þau lækkuðu enn
frekar.
Bandaríkjadalur hélst nokkuð
stöðugur í gær en gull hækkaði í
verði.
Byssumaður réðst inn í kaup-
höll í Miami í gær og myrti
kauphallarstjórann og særði kaup-
sýslumann áður en hann svipti sig
lífí. Að sögn lögréglu hafði maður-
inn sem hét Arthur Kane tapað
hundruðum þúsunda dala í verð-
hruninu á mánudag í síðustu viku.
50 manns voru staddir í kauphöll-
inni í úthverfí Miami þegar Kane
gekk berserksgang. Kane hleypti
af fjórum til fimm sinnum að sögn
vitna og þusti fólk skelfingu lostið
út úr kauphöllinni.
Reuter
Kauphallarmenn i Paris skrifa hjá sér nýjustu tölur og hrópa skipan-
ir um sölu. Fregnir af batnandi efnahag i Frakklandi megnuðu ekki
að koma i veg fyrir að taugatitringurinn á verðbréfamörkuðum
heims gerði vart við sig i borginni við Signu.
Tíbet:
Munkar í
endur-
hæfingu
Peking, Rcuter.
KÍNVERJAR hafa hleypt af
stokkunum endurhæfingarnám-
skeiðum fyrir tíbetska andófs-
menn að sögn vestrænna
heimildarmanna i Tíbet. Kin-
verskir lögregluþjónar og
embættismenn hafa skipulagt
námskeiðin sem ætluð eru munk-
um og verkamönnum i Tibet sem
svar við óeirðum i landinu undan-
farið.
Lítið hefur verið um fréttaflutn-
ing frá Tíbet upp á síðkastið vegna
þess að vestrænum fréttamönnum
hefur verið vísað úr landi. Þó barst
bréf frá vestrænum manni sem býr
í landinu til Peking í gær. í því
segir að munkum í hinu fomfræga
Sera-klaustri hafí verið gert að sitja
dagleg endurhæfíngamámskeið á
vegum kínverskra yfírvalda. Munk-
unum var sagt að Kína hefði
stjómað Tíbet öldum saman og
samskipti landanna væru vinsam-
leg. í bréfinu segir að margir
munkanna i þeim klaustrum, sem
námskeiðin hafa verið haldin, hafí
neitað að taka þátt í þeim.
Bandaríkín:
Reagan bannar allan
innflutníng frá Iran
Washington, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti tilkynnti í gærkvöldi að
bann við innflutningi frá íran
Reuter
Fjársjóðir úr Titanic
Á myndinni sést leikarinn góðkunni, Telly Savalas, styðja hönd-
um á tvo peningaskápa úr flaki Titanic sem sökk þann 15. aprU
árið 1912. Frakkar vinna nú að björgun verðmæta úr flakinu. Á
morgun er fyrirhugað að opna skápana í beinni sjónvarpsútsend-
ingu við hátiðlega athöfn með hjálp frægra sjónvarpsstjama í
Frakklandi.
tæki gildi eins fljótt og unnt
væri. Utflutningur til íran yrði
dreginn saman smátt og smátt.
Hann sagði að innflutningsbann-
ið myndi gilda á meðan íranir
héldu áfram að „misvirða grund-
vallarreglur í alþjóðasamskipt-
um“. Banninu er einkum ætlað
að draga úr innflutningi á
íranskri olfu til Bandaríkjanna.
Á síðasta ári fluttu Bandaríkja-
menn inn olíu frá íran að verðmæti
600 milljarða Bandaríkjadala. Að
sögn talsmanna Hvíta hússins verð-
ur í fyrstu tekið fyrir útflutning til
írans á vamingi sem kemur að
notum í hemaði.
Viðræður um leiðir til að minnka
fjárlagahalla Bandaríkjanna milli
fulltrúa bandarískra þingmanna og
stjómvalda hófust í gær. Robert
Michel, leiðtogi repúblikana í full-
trúadeildinni, sagði eftir fund með
Reagan Bandaríkjaforseta að for-
setinn hefði gengið til viðræðnanna
án þess að útiloka skattahækkanir.
Robert Byrd, leiðtogi demókrata
í Öldungadeildinni, sagði eftir við-
ræðumar að allir væm ákveðnir í
að komast sem fyrst að samkomu-
lagi um minni fjárlagahalla. Hann
sagði ennfremur að nú væri leitað
að varanlegum lausnum. í dag verð-
ur rætt nánar um hvaða leiðir á
að fara að settu marki en margir
vilja kenna fjárlagahallanum f
Bandaríkjunum um ástandið á verð-
bréfamörkuðum heims.
E1 Salvador:
Stj ómarandstæðing-
ur skotinn tíl bana
San S&lvador, Reuter.
FORMAÐUR Mannréttindaráðs
E1 Salvador var skotinn til bana
í gær er hann ók börnum sfnum
til skóla f höfuðborginni San
Salvador. Talsmaður ráðsins sak-
ar stjómvöld f landinu um að
standa að baki morðinu.
Tveir borgaralega klæddir menn
myrtu Herber Emesto Anay með
byssum með hljóðdeyfí og flýðu
síðan í sendiferðabifreið. „Þama var
dauðasveit á ferð. Við vitum að
slíkar dauðasveitir em skipulagðar
af hemum. Við lýsum ábyrgð á
hendur stjómvöldum," sagði í til-
kynningu frá Mannréttindaráðinu
sem löngum hefur gagnrýnt stjóm
Jose Napoleon Duartes í landinu.
Mörg ár em síðan svo áhrifamik-
ill gagnrýnandi stjómvalda hefur
fallið fyrir morðsveitarmönnum í
E1 Salvador. Anaya var sleppt úr
haldi í febrúar á þessu ári eftir að
hann hafði setið átta mánuði í fang-
elsi sakaður um undirróðursstarf-
semi. Á föstudag sagði hann á
blaðamannafundi að kúganir stjóm-
valda hefðu aukist síðan stjómin
undirritaði friðarsamkomulagið í
Mið-Ameríku í ágúst. Anaya sagði
ennfremur að Mannréttindaráðinu
hefðu borist morðhótanir símleiðis
að undanfömu.