Morgunblaðið - 27.10.1987, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 27.10.1987, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 50 ALTr ÁHREINU MEÐ &TDK Látið ELSPED annast vöruflutninga ykkar um Hamborg! ¥ Æ ELSPED annast flutningsmiðlun fyrir vörur f rá Vest- ur-Þýskalandi, Austur-Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Ítalíu, Ungverjalandi og Tékkóslóvakíu. • Viö höfum margra ára reynslu í þjónustu við íslensk fyrirtæki. ■ Viö erum sjálfstæöír og störfum ávallt með hagsmuni viöskiptavina okkar efst í huga. • Viö erum fuilkomlega tölvuvæddir og tengdir viö hafnarskrifstofur og skipa- félög og tryggjum þannig hraöa og örugga þjónustu bæöi hvaö varðar frá- gang skjala og flutninginn sjálfan. • Viö erum meö útibú i Bremen og umboðsmenn I Belgíu, Hollandi, á Stóra- Bretlandi og ftalíu. Höfum lengi unnið fyrir mörg rótgróin íslensk fyrirtæki. Reynið þjónustu okkar! ELSPED Speditions-Gesellschaft m.b.H. Adenauerallee 3-6 D-2000 Hamburg 1 Simi: (040) 2878-6 Telex: 2162108 Telefax: (040) 2878-222/266 Loksins heimasigur á Tilburg- stórmótinu Skák Margeir Pétursson Hinu árlega stórmóti í Til- burg er nú nýlokið og var það hið ellefta f röðinni. Enn sem fyrr er það Interpolis-trygg- ingafyrirtækið sem heldur mótið með miklum glæsibrag. „í Tilburg gerum við allt fyrir keppenduraa," er kjörorð móts- haldaranna og vegna góðra aðstæðna, hárra komuþóknana og verðlauna þekkist varla að stórmeistarar hafni boði á mó- tið. Hollendingurinn Jan Timman er íslendingum að góðu kunnur og hann hefur verið með í öUum eUefu mótunum. Það hafa ávaUt verið bundnar við hann miklar vonir, en hann hef- ur ekki staðið fyUUega undir þeim fyrr en nú að honum tókst loksins að vinna verðskuldaðan sigur. Heimamenn voru kampakátir að mótinu loknu og binda miklar von- ir við að Timman nái langt í áskorendakeppninni sem hefst í janúar. Hann var vel að sigrinum í Tilburg kominn, hann byijaði mjög vel og hlaut fjóra vinninga úr fímm fyrstu skákunum. Ekki tókst honum að auka forskot sitt, en þar sem baráttan í Tilburg er ákaJElega jöfn nægði þetta þjófstart til að vinna mótið. Það er ekki hægt að segja að sigur Timmans í elleftu tilraun hafi komið neitt verulega á óvart, en sama verður ekki sagt um Ro- bert Hiibner sem hreppti annað sætið. Hiibner er merkilegt fyrir- brigði í skákheiminum. Auk þess að vera langbezti skákmaður V- Þjóðveija, er hann mikill tungu- málasérfræðingur og raunar standa fáir honum framar í þeim vísindum að ráða í fomar rúnir, ritaðar á útdauðum málum. Hann er einnig fulltrúi ’68-kynslóðarinn- ar“ í skákheiminum. Ef honum líkar ekki aðstæður á mótum, eða reglur sem mótshaldaramir selja, mætir hann ekki til leiks, eða fer burt í fússi. Eftir að hafa komist í úrsiit áskorendakeppninnar 1980 með ötulli aðstoð Guðmundar Sigur- jónssonar, hefur hann löndum sínum til sárra vonbrigða hundsað tvö millisvæðamót í röð, fyrst 1985 og aftur í sumar. Hubner þykir ekki mikið til Campomanesar koma, frekar en mörgum öðmm öflugum stórmeisturum. Honum nægir þó ekki að nöldra, heldur sýnir hann hug sinn í verki og mun hafa tekið þá ákvörðun að vera ekki með í neinu FIDE-móti fyrr en skákmaður er kominn til valda þar. Fyrir þessa einörðu og óeigin- gjömu afstöðu hefur Hiibner aflað sér virðingu margra skákmanna, en ekki verið aufúsugestur á stór- mótum, mótshaldarar eru hræddir við duttlunga hans. Hubner hefur því lítið teflt að undanfömu en náði samt að sýna fram á gífurlegan styrkleika sinn í Tilburg. Það sem gerði gæfumun- inn var tvöfaldur sigur hans á Viktor Korchnoi. Hinn 27 ára gamli Júgóslavi, Predrag Nikolic, er nýliði á þessum slóðum en stóð sig þó mjög vel. Hann hefur unnið marga góða sigra undanfarið, svo sem á opna Reykjavíkurskákmótinu 1986 og á framtíðina fyrir sér. í sumar olli það löndum hans miklum vonbrigð- um að hann tapaði í síðustu umferð millisvæðamótsins í Zagreb og komst því ekki í áskorendakeppn- ina. Að venju tefldi Viktor Korchnoi allra manna skemmtilegast, enda var hann sá sem flestar skákimar vann. Það er víst að það verður enginn svikinn af því að fylgjast með áskorendaeinvígi hans og Jó- hanns Hjartarsonar í janúar STIG i Z 3 4 5* 6 7 8 VINN. K'ÓB i J. TIMMMCUoli*uti) 263 0 •A ‘A 'A rA i'A 'tlz 'A 'A iO 'A 1 2'A z R. UU&NER ('/-kjtka!) 2 6IO A A && ÍlO i i ii 'A 'A /z 'A A 1 'A 9 2-3. 3 p. tíikouccjútásivu) 262.0 •A it A i m i 0 'A i 'A 'A 'A 'A 'A /z e 2-3. I/ K0RCHÚ0I CSviss) 2630 0 % 00 O i 'A i •A i 1 'A 'Ai 7 'A i. 5 P>. JÚSUP0V (Sovíir) 2 6,35" Oit 'A’/z •A 0 'AO '/z /z i'A i i 3— 5". (o U. PWDERSSOti(Sr'l>iii) 2COO •A A •A / 'U /z 'AO •A /z /z/ 'AZ 6A t>. ? A. SOKOLOVCSov'ílr.) líiT 0 i •A 'A /z /z O'A O'A '/ /z 'A /z G 7. 8 L. LJUGOJEVlCCTújísÍ) 2ÍZS- •AO O'A ‘A /z 'A 0 OO Zi'/ Zz'/z HA 8. INNRÖMMUN Alhliða innrömmun, smellu- rammar, tilbúnir álrammar. Nilsen állistar nýjar gerðir og litir Sérverslun með innrömmunarvörur 25 stærðir - álrammar 17 stærðir - smellurammar RAMMA MIÐSTOÐIN Sigtúni 10,105 Reykjavík, sími 25054. Næg bílastæði v/dyrnar. 0PIÐ LAUGARDAGA KL.9-16 Plaköt og myndir Fjölbreytt úrval Lamba- kjöts- kynning- unni í Staðar- skála lokið Stað i Hrútafirði. LAMBAKJÖTIÐ hefur veríð mikið í umræðu meðal fólks und- anfaríð og margir sem hafa þessa vöru á boðstólum hafa aug- lýst hana á ýmsa vegu. í Staðar- skála í Hrútafirði lauk nú nýlega kynningu á lambakjötsréttum, hafði hún þá staðið í hálfan mán- uð. Allir matargestir sem komu til að borða í Staðarskála þennan hálfa mánuð sem kynningin á íslenska lambinu stóð fengu tækifæri til að taka þátt í getraun sem Staðar- skáli efndi til í samvinnu við Ferðaskrifstofuna Ferðabæ í Reykjavík. Gestir svöruðu nokkrum spumingum, dregið verður úr rétt- um lausnum á skemmtikvöldi sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.