Morgunblaðið - 27.10.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
49
Morgunblaðid/Sigurdur Jónsson
Sigríður Jensdóttir formaður bæjarráðs tekur við fána Sameinuðu þjóðanna úr hendi Gunnars B Gunn-
arssonar formanns Lionsklúbbs Selfoss.
Selfoss:
Lionsmenn gáfu kaupstaðn-
um fána Sameinuðu þjóðanna
Selfossi.
Selfosskaupstaður fékk á
fimmtudag, í upphafi fundar
bæjarráðs, afhentan fána Sam-
einuðu þjóðanna að gjöf frá
Lionsklúbbi Selfoss.
Með þessari gjöf vilja Lionsfélag-
ar vekja athygli á starfsemi
Sameinuðu þjóðanna en fyrsta
markmið Lionsklúbba er að vekja
og efla anda skilnings meðal þjóða
heims.
„Stofnandi Lionshreyfingarinn-
ar, Melvin Jones og fyrrverandi
alþjóðaforsetar D.A. Skeen og Fred
Smith, voru meðal þeirra sem unnu
að samþykktum Sameinuðu þjóð-
anna á árinu 1945 og í 40 ár hefur
Lions Club Intemational verið ráð-
gefandi Sameinuðu þjóðanna í
mannúðarmálum. Samvinna Lions-
klúbba og einstakra deilda Samein-
uðu þjóðanna að líknarstarfi er
löngu viðurkennd, og til að vekja
athygli á og minnast þeirra mann-
úðarstarfa sem unnin eru á vegum
Sameinuðu Þjóðanna hefur Lions-
hreyfingin hvatt til þess að haldið
sé upp á dag Sameinuðu þjóðanna,
þann 24. október, til dæmis með
því að Lionsklúbbar hafí forgöngu
um það að fánar Sameinuðu þjóð-
anna séu dregnir að húni þann
dag,“ sagði Gunnar B. Gunnarsson
formaður Lionsklúbbs Selfoss þegar
hann afhenti fánann.
í Lionsklúbbi Selfoss em starf-
andi 38 félagar. Klúbburinn var
stofnaður 13. apríl 1965. Auk
Gunnars B Gunnarssonar formanns
em í stjóm Þórir Guðmundsson rit-
ari og Sigurður Grímsson gjaldkeri.
— Sig. Jóns.
Hvassahraun:
Fimm hús
til viðbótar
rifin niður
Vogum.
ÞAÐ HEFUR verið ákveðið að
rífa 5 hús niður í Hvassahrauni
til viðbótar þeim 10 húsum sem
nýlega voru rifin niður, að sögn
Vilhjálms Grímssonar sveitar-
stjóra í Vatnsleysustrandar-
hreppi.
Eins og Morgunblaðið greindi frá
nýlega vom 10 hús rifín niður í
Hvassahrauni vegna þess að þau
vom í mjög slæmu ástandi, og upp-
fylltu engan veginn kröfur bygg-
ingareglugerðar. Nú hefur verið
ákveðið að halda þessu starfi áfram
og verða 5 hús sem ekki uppfylla
kröfur byggingarreglugerðarinnar
rifin niður. Er hér átt við sumarbú-
staði og flárhús. Þá verður einnig
rifíð niður hús í landi Stóra-Knarr-
amess sem sértrúarsöfnuður hóf
byggingu á fyrir all mörgum ámm
en byggingu hússins lauk aldrei og
hefur húsið staðið opið í mörg ár.
- EG
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Fjárhús í Hvassahrauni sem stendur til að rifa niður.
KÚLULOKAR
úr krómuðu messing og ryðfríu stáli, til í
miklu úrvali. Fullt gegnumstreymi.
Henta fyrir loft, olíu, vatn, gas og sterk
efni. Fást bæði 2ja og 3ja stúta.
Hagstætt verð. Heildsala — Smásala.
Framtíð v/Skeifuna, Faxaleni 10, Reykjavík,
68 69 25
Ráðstefna
Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga
Laugardaginn 31. október kl. 8.30 verður haldin ráð-
stefna á Hótel Sögu á vegum fræðslunefndar Félags
háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga. Ráðstefnan fjall-
arum:
Hugmyndafræði hjúkrunar.
Markmið hennar eru að örva umræðu um hugmynda-
fræði hjúkrunar og gildi rannsókna í hjúkrun. Auk þess
að varpa Ijósi á tengsl hjúkrunarkenninga við dagleg
hjúkrunarstörf.
Ráðstefnugjald er kr. 3.500.-, hádegisverður er innifal-
inn. Tilkynna þarf þáttöku í síma 82090 eða 82112 fyrir
kl. 17.00 fimmtudaginn 29. október.
Fræðslunefnd F.H.H.
Með 10% hreinum
epiasafa
Sanitas