Morgunblaðið - 27.10.1987, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
Gestir qjóta veitinga.
Framhaldsnám á
Hvanneyri í 40 ár
Nýtt rannsóknarhús Bændaskólans vígt
Frá hátfðardagskránni i nýja rannsóknarhúsinu.
Hvannatúni i Andakíl.
40 ÁR voru liðin frá stofnun
framhaldsdeildar i búvísind-
um við Bændaskólann á
Hvanneyri mánudaginn 19.
október. Á þessiun tímamótum
vigði landbúnaðarráðherra
nýtt rannsóknarhús á Hvann-
eyri og tilkynnti ákvörðun
landbúnaðarráðuneytisins um
að veita fé til nýrrar kennara-
stöðu.
Guðmundur Jónsson fyrrver-
andi skólastjori gerði í ræðu grein
fyrir byijunarerfíðleikum. Fram-
haldsdeildin studdist í upphafí
ekki við lög en naut stuðnings
ríkisstjómarinnarj sem þá var við
völd með Bjama Asgeirsson land-
búnaðarráðherra sem aðalstuðn-
ingsmann. Átta nemendur hófu
nám 19. október 1947 en kennar-
ar vom að mestu þeir sömu og
við Bændaskóiann auk eins sér-
ráðins.
Upphaflega var námið 2 vetur
en nú undir nýju nafni, Búvísinda-
deild, getur það orðið 4 vetur auk
undirbúningsnáms. Af 159 nem-
endum, sem deildin hefur útskrif-
að frá upphafí, em nú um Vs
starfandi sem ráðunautar eða
kennarar, svipaður fjöldi em
bændur og um 40% vinna við
rannsóknarstörf.
Bændaskólinn bauð prófessor
Folke Rasmussen, fyrrverandi
rektor við Konunglega dýra- og
landbúnaðarháskólann í Kaup-
mannahöfn, til íslands og hélt
hann hátíðarræðu við þetta tæki-
færi, þar sem hann ijallaði um
kennslu, rannsóknir og þróun
landbúnaðar. Landbúnaðarráð-
herra vígði síðan rannsóknarhúsið
og er þá tveimur langþráðum
áföngum í uppbyggingu Búvís-
indadeildar náð, því fyrr á þessu
ári var lokið við nemendagarða
fyrir nemendur deildarinnar.
Starfsemin í rannsóknarhúsinu
skiptist í 3 þætti. Kennslurými
er þar fyrir efnafræðikennslu og
aðrar skyldar greinar. Þar er að-
staða fyrir rannsóknir ýmsar, t.d.
í líftækni og þar munu verða efna-
greind hey- og jarðvegssýni fyrir
bændur á Vesturlandi.
í kaffísamsæti fluttu margir
frammámenn í landbúnaðarstofn-
unum deildinni ámaðaróskir. Jón
Helgason ráðherra tilkynnti við
það tækifæri, að landbúnaðar-
ráðuneytið hefði ákveðið að veita
fé til nýrrar kennarastöðu, sem á
fyrst og fremst að nýtast til end-
urmenntunar starfsmanna í
landbúnaði.
Bændaskólinn var settur 4.
október og stunda 72 nemendur
nám við Bændaskólann í vetur
og 9 í Búvísindadeild.
- DJ
Nemendur úr 1. framhaldsdeild, tahð frá vinstn: Aðalbjöra Benediktsson, Egill Bjarnason, Guðmnndur
Jónsson fyrrverandi skólastjóri, Skafti Benediktsson og Bjarai Arason.
Viðskiptaferð til Auslurianda?
- Arnarflug og KLM - besti kosturinn.