Morgunblaðið - 27.10.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
Bfldudalur:
Krafa hrepps-
nefndarinnar
rædd á ríkis-
stjórnarfundi
KRAFA hreppsnefndar Bfldudals-
hrepps um rannsókn vegna
ummæla yfirdýralseknis verður
lögð fram á fundi rfldsstjómarinn-
ar f dag.
Hreppsnefnd Bfldudalshrepps
sendi Þorsteini Páissyni forsætisráð-
herra í síðustu víku kröfu um að
ríkisstjómin láti fara fram opinbera
rannsókn á ummælum Sigurðar Sig-
urðarsonar, setts yfírdýralæknis um
Bfldudal. Að sögn forsætisráðherra
verður krafan lögð fram á fundi ríkis-
stjómarinnar í dag.
Sjá bls. 4: Amfirðingar slátra
á Patreksfirði
Háhyrn-
ingamirí
síldarþró
HÁHYRNINGARNIR fjórir,
sem leyft hafði verið að veiða,
hafa nú allir náðst, og eru þeir
geymdir f gamalli sfldarþró f
Seyðisfirði.
Háhymingamir vom veiddir í
Seyðisfírði í lok sfðustu viku, og
gekk vel að ná þeim. Þeir vora
teknir í land á bryggjunni á Seyð-
isfirði, og fluttir með bfl í gamla
sfldarbræðsluþró utar f fírðinum,
sem hefur verið gerð sérstaklega
upp til að geyma háhyminga. Um
er að ræða tvö karldýr og tvö
kvendýr, og era þau á að giska
2-4 ára gömul. Dýrin era við góða
heilsu, að sögn eftirlitsmanna við
kvfna, og eru byijuð að taka við
sfld sem hent er til þeirra.
Hvalavinafélag íslands hefur
sent sjávarútvegsráðherra ýmsar
skriflegar fyrirspumir um há-
hymingsveiðamar og sagði
talsmaður þess, Magnús Skarp-
héðinsson, f samtali við Morgun-
blaðið í gær, að það færi eftir
svöram ráðherra, hvað félagið
gerði frekar.
í dag
MjXfeTKÚUAUKINSMASYMHa/* <2
BLAO B
Morgunblaðið/Sverrir
Bifreið valt í hörðum árekstri á gatnamótum Freyjugötu og Baldursgötu f gærkvöldi.
Árekstur olli rafmagnsleysi
HARÐUR árekstur varð á
gatnamótum Freyjugötu og
Baldursgötu á tíunda tfmanum
f gærkvöldi.
Þar skullu saman tvær fólks-
bifreiðar og lenti önnur á tengi-
kassa Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur með þeim afleiðingu að
rafmagnslaust varð um tfma f
nokkrum húsum í nágrenninu.
Bifreiðin hafiiaði loks í kjallar-
atröppum hjá nærliggjandi húsi.
Báðir ökumenn voru fluttir til
rannsóknar á slysavarðstofunna
en reyndust ekki mikið slasaðir.
Útgerðarfélag
Akureyringa:
Keypti Dag-
stjömuna frá
Keflavík
Akureyri.
Útgerðarfélag Akureyringa
hefur keypt Dagstjömuna af
Stjöraunni hf. f Keflavfk og var
kaupsamningur undirritaður sl.
laugardag. Skipið er 743 brúttó-
rúmlestir að stærð og er kaupverð
þess 180 mifljónir króna. Skipið
verður afhent nýjum eigendum
þann 29. október næstkomandi.
Vilhelm Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA, sagðist í samtali
við Morgunblaðið reikna með að skip-
ið færi á ísfiskveiðar eftir nokkrar
endurbætur sem gera þyrfti á þvf.
Hann gat ekki sagt til um hvenær
það gæti hafíð veiðar, en kvóti skips-
ins næmi rúmlega 2000 tonnum.
Vilhelm sagði ljóst vera að nafni
skipsins yrði breytt, en ekki væri
ákveðið hvert nafnið yrði. Útgerðar-
félag Akureyringa átti fimm togara
fyrir og er Dagstjaman nú næst-
minnst þeirra. Hrímbakur er minnst-
ur, 488 tonn. Sléttbakur er elstur
togaranna, byggður 1968, en nú er
verið að endurbyggja hann hjá Slipp-
stöð Akureyrar og er búist við að
hann verði tilbúinn í byijun nóvem-
ber.
Endurskoðun lífeyrissjóðakerfisins:
Samtök opinberra starfsmanna
deila um túlkun frumvarpsins
Forystu BSRB hafa orðið á mikil mistök, segir framkvæmdastj óri BHMR
FORY STUMENN Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja efndu
til blaðamannafundar í gær til
að andæfa meintri rangtúlkun
forystu Bandalags háskóla-
menntaðra rfkisstarfsmanna og
Kennarasambandsins á frum-
varpi til laga um starfsemi
lífeyrissjóða. Birgir Björn Sigur-
jónsson, framkvæmdastjóri
BHMR, segir að forystu BSRB
hafi orðið á mikil mistök þegar
hún studdi frumvarpsdrögin. í
þeim sé aðeins tryggt að áunnin
lifeyrisréttindi haldist, en ekki
að réttindin verði óbreytt eftir
að lögin taki gildi eins og stjóm
BSRB heldur fram.
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, segir að í bráðabirgða-
ákvæði frumvarpsins séu ríkis-
starfsmönnum tryggð sömu
lífeyrisréttindi og áður. „Allir þætt-
ir í lífeyrisréttindum opinberra
starfsmanna í dag verða metnir til
iðgjalda og ríki og sveitarfélög
skuldbinda sig til að leggja fram
það fé sem nauðsynlegt er til að
halda óbreyttu ástandi. Þeir sem
lesa eitthvað annað út úr frum-
varpinu fara villur vegar," sagði
hann á blaðamannafundinum í gær.
Birgir Bjöm Siguijónsson segir
að foiysta BSRB geri sér ekki grein
fyrir að með nýju lögunum sé rétt-
indum ríkisstarfsmanna varpað
fyrir róða. Það sé samdóma álit
lögfræðinga sem skoðað hafí frum-
varpsdrögin.
Agreiningurinn stendur í raun
um eitt orð í þriðja kafla bráða-
birgðaákvæðis frumvarpsins. Þar
sem segir að „ákvæði laga þessara
raska ekki áunnum lífeyrisréttind-
um opinberra starfsmanna," (letur-
breyting Morgunblaðsins). Birgir
Bjöm segir að „áunnin réttindi"
hljóti að merkja þau réttindi sem
félagar lífeyrissjóðsins öðlist áður
en lögin taka gildi. Formælendur
BSRB telja rétt sinn skýlaust
tryggðan; f bráðabirgðaákvæðinu
sé margítrekað að opinberir starfs-
menn eigi að halda sínum réttindum
óskertum.
„Til hvers er verið að samþykkja
rammalöggjöf ef hún er samtímis
brotin með bráðabirgðaákvæði.
Hefði ekki verið einfaldast að und-
anskilja opinbera starfsmenn frá
þessum reglum þar sem við höfum
kerfisbundið verið á lægri launum
en aðrir hópar," spurði Birgir Bjöm.
„Annaðhvort kippa menn þessum
gömlu lögmálum úr gildi, setjast
niður og reikna kjör opinberra
starfsmanna út í hörgul eða undan-
skilja okkur við þessa lagasetn-
ingu.“
Sauðárkrókur:
Skemmdarverk
uimín á leikskóla
Sauðárkróki.
ÞAÐ var blaut og köld aðkoma
sem starfsfólk á leikskólanum f
Furukoti átti í gærmorgun. Þeg-
ar komið var að hurð f aðalinn-
gangi hússins var ljóst að um
helgina höfðu verið þar óboðnir
gestir á ferð. Var rúða f hurð-
inni brotin þannig að hægt var
að seilast til læsingar og komast
inn f húsið.
Eftir að inn var komið höfðu hin-
ir óboðnu gestir gengið berserks-
gang, farið inn á skrifstofu
forstöðumanns, brotið þar ólæst
skrifborð og unnið ýmis spjöll. Á
deildum voru leikföng og búnaður
brotinn og eyðilagður. Ljós brotin
og blómum velt og dreift um öll
gólf, segulbandsspólur raktar sund-
ur og slitnar og að lokum hafði
vatnsflaumur úr branaslöngu verið
notaður til að sópa bókum, blöðum
og leikföngum niður úr hillum. Að
endingu var brunaslangan fest
kirfílega á hurðarhún og vatn látið
renna af fullum krafti yfír það sem
á gólfínu lá.
Þegar komið var að rann vatn
úr húsinu á mörgum stöðum og á
gólfí var um 8 sm vatnslag. Húsið,
sem er nýlegt timburhús frá húsein-
ingum á Siglufirði, er mjög mikið
skemmt. Flísar lausar á gólfum og
Sala fiskveiðiskipa frá Suðurnesjum:
Þrjú skip og 2000 tonna kvóti í burt
^ Keflavík.
Á þrem vikum hafa 8 fiskveiðiskip
verið seld burt af Suðurnesjum,
Þórkatla II úr Grindavfk sem fór
til Hafnar f Hornafirði, Binni f
Grðf sem seldur var til Súðavfkur
frá Keflavík og nú sfðast togarinn
Dagstjarnan KE sem seldur var
til Akureyrar um helgina.
Sigurður Garðarsson fískverkandi
í Vogum og einn talsmaður nýja út-
gerðarfélagsins Eldeyjar hf. sem
verið er að stofna, sagði greinilegt
að menn hefðu haft snör handtök
við að ná skipunum þegar þeir hefðu
frétt um stofnun félagsins. „Furðu-
legt er, að nú era þessi skip komin
með um 2800 tonna kvóta I stað
þeirra 2000 tonna eða þar um bil sem
þessi skip höfðu áður. Mér sýnist að
þessi aukning komi jafnvel til með
að borga skipin upp á nokkrum
árum.“
Sigurður sagði ennfremur að Suð-
umesjamönnum hefði ekki verið
gefínn kostur á að kaupa Dagstjöm-
una KE og ekki einu sinni við þá
rætt. Útvegsbankinn hf. í Reykjavík
og útgerðarmaður skipsins hefðu al-
farið ráðið þar ferðinni.
- BB
allar innréttingar meira og minna
ónýtar. Þá era húsgögn og leiktæki
stórskemmd eða ónýt.
Leikskólinn í Furukoti er sem
fyrr segir mjög nýlegur og hafa
bæjaryfirvöld og starfsfólk lagt
kapp á að búa hann vel og vistlega
og var stofnunin taiin rryög til fyrir-
myndar með starfsemi alla. Að sögn
Lindu Bjömsdóttur forstöðumanns
og Matthíasar Viktorssonar félags-
málastjóra hefur starfsfólkið lagt á
það áherslu að lagfæra það sem
unnt er og stefnt er að því að starf-
semi geti hafist aftur á miðviku-
dagsmorgni.
Hallgrímur Ingólfsson bæjar-
tæknifræðingur sagði ógerlegt á
þessu stigi að meta skemmdimar
en ljóst væri að þær væru gífurlega
miklar. Nokkur tími myndi líða þar
til í ljós kæmi hveijar þær væru á
húsinu sjálfu en allar hurðir og
milliveggir væri mjög iila farið og
liklega ónýtt.
Hjá lögreglunni fengust þær upp-
lýsingar að margar ábendingar um
mannaferðir á leikskólasvæðinu um
helgina hefðu fengist og væri nú
verið að vinna af fullum krafti að
lausn þessa máls.
- BB