Morgunblaðið - 27.10.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 27.10.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 Akranesbær gef- ur út ársskýrslu Akranesi. AKRANESBÆR hefur gefið út ársskýrslu fyrir árið 1986 og hefur henni verið dreift til allra bæjarbúa. Ársskýrslan er vönduð í alla staði og er reynt að gefa glögga mynd af rekstri bæjarfé- ins á árinu 1986. formála fyrir skýrslunni sem ritaður er af fráfarandi bæjarstjóra, Ingimundi Sigurpálssyni, kemur fram að verið sé að leitast við að gera bæjarbúum grein fyrir gangi bæjarmála á árinu 1986. Árs- skýrsla af þessu tagi gefur mynd af meginlínum í rekstri bæjarins, en ítarleg umQöllum um einstaka efnisþætti hafí ekki verið við komið. íbúafjöldi á Akranesi hefur farið úr 2.500 manns í um 5.400 á þeim tæpum ijörutíu og fímm árum sem liðin eru frá því bærinn fékk kaup- réttindi. Atvinnulífíð hefur eflst mikið og byggist nú á traustum grunni, bærinn er meðal stærstu útgerðarstaða landsins. Iðnaður er mikill og vaxandi og sama má segja Sveinn Sævar Valsson og Birna Magnúsdottir ásamt syni þeirra Hafþóri. Ný bón- og þvotta- stöð í Kópavogi NÝLEGA var opnuð ný bón- og þvottastöð í Kópavogi. Nefnist hún Bónþjónustan hf. og er til húsa að Kársnesbraut 100. Það eru hjónin Sveinn Sævar Valsson og Biraa Magnúsdóttir sem reka stöðina og er þetta eina þjónusta þessarar tegundar í Kópavogi. Bónþjónustan hf. er opin alla daga nema sunnudaga frá kl. 9 á morgnanna til kl. 7 á kvöldin. Hjá Bónþjónustunni hf. er boðið upp á bón, þvott, djúphreinsun og há- þrýstiþvott á öllum tegundum fólksbíla, jeppa og sendibfla. Að sögn eigendanna er boðið upp á heimsendingarþjónustu þannig að fólk þarf ekki að hreyfa sig að heim- an til að fá vel þrifín bfl. Frá Akranesi. Morgunblaðið/Jón Gimnlaugsson um þjónustu ýmiss konar. Skóla- starf er öflugt og íþrótta- og æskulýðsmál hafa jafnan skipað verulegan sess í bæjarfélaginu. Ör íbúafjölgun hefur mótað mjög rekstur bæjarfélagsins hin síðari ár, ekki sist vegna þess hve hlutur ungs fólks er stór í íbúatölunni. Helstu framkvæmdir á vegum bæj- arins á undanfömum árum hafa verið á sviði skólamála, íþrótta- og æskulýðsmála, en jafnframt hefur eftir föngum verið unnið að öðrum verkefnum, meðal annars að frá- gangi opinna svæða og lagningu slitlags á götur og gangbrautir. í ársskýrslunni er að fínna grein- argerð um einstaka þætti rekstrar og framkvæmda svo og yfírlit yfír ráðstöfun fjármagns til hinna ýmsu málaflokka. Árskýrslan er mynd- skreytt og í henni eru og upplýsing- ar um skipan einstakra nefnda á vegum bæjarfélagsins. Þá er rakin þróun í íbúafjölda allar götur frá árinu 1942 þegar Akranes varð kaupstaður svo og stutt söguágrip staðarins. Skýrslan er skemmtileg ný- breytni í bæjarlífínu og vonandi verður áframhald á útkomu henn- ar. - JG Póstur og sími: Fallegustu frímerkin valin í SKOÐANAKÖNNUN sem Póst- og símamálastofnunin efndi til var fallegasta islenska frimerkið út- gefið 1986 valið smáörk sem gefin var út á degi frímerkisins, 9. októ- ber, með mynd eftir Auguste Meyer, 20 + 10 krónur að verð- gildi. I öðru sæti var Evrópufrí- merki útgefið 5. maí, Jökulsárg- ljúfur, verðgildi 12 krónur. Þriðja fallegasta merkið yar úr sömu útgáfu, Skaftafell í Öræfum, verð- gildi 10 krónur. Þröstur Magnús- son teiknaði frímerkin. Atkvasðaseðlar könnunarinnar voru sendir þeim sem fá tilkynningar um nýjar útgáfur frá Frfmerkjasölu Póst- og símamálastofnunar og seðlar lágu einnig frammi í öllum póstafgreiðslum landsins. Dreift var rúmlega 30 þúsund seðlum og bár- ust 5 þúsund til baka frá 48 löndum. Flestir seðlar komu frá Danmörku, 929, næst flestir frá fslandi, 700, 695 frá Svíþjóð, 618 frá Vestur- Þýskalandi, 510 frá Noregi, 329 frá Bandaríkjunum, 207 frá Hollandi, og færri frá öðrum löndum. Dregið var úr öllum innsendum seðlum. Verðlaun voru 1 fyrstadags- umslag og 4 óstimpluð merki af öllum útgefnum frímerkjum 1987. 25 nöfn voru dregin út og skiptust þau milli hinna ýmsu landa. Við- staddir útdrátt vinningshafa voru nokkrir yfírmenn Póst- og símamála- stofnunar og fulltrúar frá félögum frímerkjasafnara. Ákveðið hefur ver- ið að hafa skoðanakönnun um frímerki útgefín 1987 með sama sniði. ROKKIÐÍ HÁVEGUM Kvlkmyndir Sæbjörn Valdimarsson Stjömubíó: La Bamba ☆☆☆ Leikstjóri: Luis Valdez. Fram- leiðendur: Taylor Hickford og BiU Borden. Kvikmyndataka: Adam Greenberg. Handrit: Lu- is Valdez. Klipping: Sheldon Kahn og Dan Brochu. Tónlist: Carlos Santana og Mike Good- man. Hljóðupptaka: Joel Still. AðaUeikendur: Lou Diamond PhiUips, Esal Morales, Rosana de Soto, Elizabeth Pena, Dani- eUe Von Zeraeck, Bob Keene, Ted Quillin. Bandarísk. Col- umbia 1987. 105 min. Á American Pie, sögufrægri plötu sinni, söng Don McLean um „daginn sem tónlistin dó“. Þar átti hann við 2. febrúar 1959, þegar ein skærasta stjama rokks- ins, Buddy Holly, fórst í flugslysi og með honum The Big Bopper og sá athyglisverði og upprenn- andi tónlistarmaður Ritchie Valens — sá er myndin fjallar um. Valens verður fyrst og fremst minnst fyrir að bijóta þykkan ísinn, þar sem hann ótrauður og af eindæma hugrekki hóf rokk- tónlist eins niðurlægðasta minni- hlutahópsins vestanhaf, Bandaríkjamanna af mexíkönsk- um ættum (chicanos), til vegs og virðingar. Fólk af þessu kyni er ekki hátt skrifað í dag, en þessir atburðir gerðust á siðari hluta sjötta áratugarins þegar á það var litið nánast sem vinnudýr. Því er sá sigur Valens, að koma þrem af fyrstu (og síðustu) lögum sínum — og það aðeins sautján ára — í toppsætið, enn stórkost- legri og einstæðari árangur. Það er því verið að fást við goðsögn í La Bama. Myndin skipt- ist í tvennt, tónlist og fjöl- skyldudrama. Heldur er dramað klént. Vð fylgjumst með upp- vaxtarárum Valens við kröpp kjör farandverkamanna í Kalifomíu. Móðir hans þreytist ekki á að drífa strákana sína áfram og nær ár- angri með Ritchie, en eldri bróðumum, Bob, er lýst sem ístöðulausum kæruleysingja sem öfundast út af velgengni bróður síns, en nýtur þó nokkurrar sam- úðar áhorfenda. Inn í myndina fléttast líflítið ástarævintýri Ha- vens og Donnunnar frægu. Öllu betur gengur að fanga umhverfí og andrúms'.oft tímabils- ins og öll tónlistaratriðin em óaðfínnanleg, dúndrandi rokkið í Lou Diamond í hlutverki rokk- stjörnunnar Ritchie Valens í La Bamba. flutningi Los Lobos hrífur áhorf- endur og Lou Diamond Phillips skilar söngvaranum sprellifandi. Hljóðupptakan og hljóðið er eins og það best getur verið. Útkoman er ein vandaðasta og best leikna heimildarmynd um rokktónlist og flutningsmenn hennar í níu ár, en þá var einmitt brugðið á tjald- ið hinni eftirminnilegu The Buddy Holly Stoiy. Hlýleg tilviljun. „Þegar tónlistin dó,“ söng McLe- an, en myndir á borð við La Bamba og The Buddy Holly Story vekja hana svo sannarlega aftur til lífsins. Og hið þrumandi, óm- engaða rokk frumheija sjöunda áratugarins virðist svo sannarlega hrífa nýjar kynslóðir engu síður en okkar sem nutum þeirra for- réttinda að alast upp með því. I rökkrinu birtan Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttur Harald Skjönsberg: I det mörke fyset Utg. Gyldendal Norsk forlag 1987 Öystein Wsth er fæddur nokkrum árum eftir að heimsstyijöldinni síðari lauk. Æska hans er hin ánægjulegasta, unz hann rekst tíu ára gamall á bréf frá ungum gyð- ingadreng, sem hafði verið sent úr fangabúðum nazista. Drengurinn Chaim, 14 ára, lýsir vítinu og Öy- stein verður gagntekinn af þeirri reynslu. Og fer jafnframt að gera sér grein fyrir vonzkunni og of- beldinu. Faðir hans hafði unnið í norsku andspymuhreyfíngunni, og einatt sagt drengnum sögur frá þeim tíma. En ekkert jafnast nú lengur á við þjáningar gyðinga- drengsins. Hann kjmnist ungur maður stúlk- unni Mariu Steinberg. Faðir hennar er tékkneskur gyðingur og móðirin norsk. Stúlkan er sér að vísu með- vitandi um gyðinglegan uppruna sinn, en svo virðist sem fas og við- mót Öysteins magni hann upp í . henni. Samband þeirra verður erfitt og sársaukafullt og í þeim lýsingum tekst höfundi vel. Að vera gyðingur nú er auðvitað einstakt. Að bera inn á sér sektina vegna þeirra sex milljóna sem voru myrtir í stríðinu, sektina fyrir höfn- un þjóðanna á gyðingum gegnum aldimar. Og vera samtímis guðs útvalin þjóð. Og eiga ísraelsríki, og gera sér þó grein fyrir að gyðingar leysa ekki sínar eigin flækjur með stofnun þess. Hin sterka vitund gyðingsins, ágengnin, trúin og metnaðurinn og samt nokkuð raun- sæi, þvflík togstreita sem þetta hlýtur að vekja. Harold Skjönsberg dregur upp frábæra mynd af þessari hlið. Ósanngimi og skilningsleysinu á báða bóga, hræðslunni við gyðinga- hatrið sem_ er svo gmnnt á hjá stúlkunni. Ástin dugar ekki ef mað- ur er giftur gyðingi. Svo ótal margt fleira verður að koma til umfram það sem gerist í venjulegum hjóna- böndum. Það er höftindur að segja með þessari sögu . Og hann gerir það vel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.