Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
51
næstkomandi. Niðurstaðan hjá
Korchnoi var mjög viðunandi, en
taflmennskan var gloppótt. Hann
teflir stíft til vinnings í hverri ein-
ustu skák og leggur alltof mikið á
stöðurnar, fer t.d. í sókn í stöðum
sem aðrir tefla til jafnteflis.
Sovétmaðurinn Artur Jusupov
er mikill erfíðisvinnumaður við
taflborðið og teflir næstum hveija
skák til þrautar. Vegna þrautseigju
sinnar er hann af mörgum talinn
efni í mikinn einvígisjaxl og er
spáð veigengni í áskorendakeppn-
inni. Árangur hans í Tilburg veldur
því vonbrigðum.
Svíinn Ulf Andersson var um
tíma gerður útlægur frá Tilburg,
ásamt þeim Kavalek og Spassky,
fyrir að gera mörg jafntefli. Nú
fékk hann tækifæri til að reka af
sér slyðruorðið, en þótt vinningam-
ir hafí orðið 6V2, er það samt
ömurlegur árangur að vinna ekki
eina einustu skák. Það kunna þvi
að líða nokkur ár þangað til And-
ersson kemst aftur í náðina hjá
Interpolismönnum.
Sovétmaðurinn Juri Sokolov
hefur ekki borið sitt barr síðan
Anatoly Karpov gersigraði hann í
einvígi um hvor þeirra skyldi skora
á Kasparov. Hann á sæti í næstu
áskorendakeppni, en verður að
taka sig mikið á, ef hann ætlar
að komast hjá því að falla niður
fyrir hóp öflugustu stórmeistar-
anna.
Það er engin meðalmennska til
hjá Ljubojevic, hann er ýmist á
toppnum eða botninum. Hann virð-
ist ekki hafa náð sér eftir áfallið
á millisvæðamótinu í Szirak, er
honum tókst ekki að komast
áfram.
Prá Tilburg héldu þeir Timman,
Nikolic, Korchnoi og Ijubojevic til
Belgrad þar sem þeir tefla nú á
stórmóti. Þegar þetta er ritað er
Jóhann Hjartarson efstur á því
móti, það bendir til þess að móts-
haldaramir í Tilburg og víðar ættu
að fara að hugsa sinn gang og lfta
ekki aðeins á reynslu og skákstig
þegar boðsbréfín eru send.
Eftirfarandi skák var af mörg-
um talin sú bezta á Tilburg-mótinu:
Hvítt: Artur Jusupov
Svart: Viktor Korchnoi
Drottningarbragð
1. d4 — Rf6 2. c4 — e6 3. Rf3 —
d5 4. Rc3 - Be7 5. Bf4
Nokkuð einkennilegt val á af-
brigði, því Korchnoi gjörþekkir það
eftir tvö heimsmeistaraeinvígi við
Karpov.
5. — 0-0 6. e3 — c5 7. dxc5 —
Bxc5 8. Dc2 - Rc6 9. Hdl -
Da5 10. a3 - Be7 11. Rd2 - e5
12. Bg5 - d4 13. Rb3 - Dd8 14.
Be2 a5 15. Ra4
Hér hefur Korchnoi sjálfur jafn-
an leikið 15. exd4, t.d. í einvígjum
við Karpov og Hiibner, enda hefur
hann svar á reiðum höndum:
15. - Rg4! 16. Bxe7 - Dxe7 17.
exd4
Jusupov virðist ekki hafa mikla
trú á fræðikenningum Anatoly
Karpovs, fyrrum heimsmeistara,
því í glænýrri útgáfu alfræðibókar-
innar um skákbyijanir, D bindi,
gefur Karpov upp 17. h3 — Rh6
18. exd4 — exd4 19. 0-0 — Dg5
20. f4! og hvítur stendur betur.
Ég held að Korchnoi hefði svarað
17. h3 með 17. - Dh4 18. g3? -
Rxe3! eða 18. 0-0 - Rf6.
17. — Dh4! 18. Bxg4 — Bxg4 19.
Hd2 - exd4 20. 0-0 - Had8 21.
Rac5
21. - d3!
Hin fyrsta af nokkrum óþægi-
legum peðsfómum. Ef 22. Hxd3?
þá 22. — Bf5 og enn lúmskara er
22. Rxd3? - a4 23. Rbc5 - Rd4
24. Dxa4 — Rf3+! o.s.frv.
22. Dc3 - Be2 23. Hel - a4!
24. Rxa4 - Hfe8! 25. h3 - Re5
26. Hdxe2
Vegna hótunarinnar 26. —
Rf3+ fómar Jusupov skiptamun
til að bliðka goðin, en allt kemur
fyrir ekki.
26. - dxe2 27. Rcl - b5! 28.
Rb6 - Hdl
Lokafléttan.
29. Rxe2 — Rf3+ 80. gxfS —
Hxe2! og hvitur gafst upp.
Morgii nhlaðið/Magnúa Gíalason
Ingvar Guðmundsson matreiðslumeistari afhendir þúsundasta matar-
gestinum á kynningunni körfu með ýmsu góðgæti.
verður haldið i Staðarskála 31.
október næstkomandi. Þar verður
Ferðaskristofan Ferðabær með
ferðakynningu. Hljómsveitin Upp-
lyfting leikur og fleira verður til
skemmtunar.
Sá matargestur sem varð númer
eitt þúsund á kynningunni fékk
körfu með sér heim með ýmsu góð-
gæti sem Kjötiðnaðarstöð KEA á
Akureyri hafði lagt til kynningar-
innar, að sjálfsögðu var allt kjötmeti
í körfunni afurð af lambi. Aðalvinn-
ingur fyrir rétta lausn i getrauninni
er farmiði til Amsterdam í Hollandi
og heim aftur.
Óhætt mun vera að fullyrða að
kynning þessi á lambalcjötinu hefur
vakið nokkra athygli, ef til vill
meiri en búist var við. Það virðist
vera nokkuð útbreiddur misskiln-
ingur að allir veitingastaðir með-
fram þjóðveginum hafi aðeins á
boðstólum hamborgara og fran-
skar.
— mg
Farymann
Smádíselvélar
5.4 hö við 3000 SN.
8.5 hö við 3000 SN.
Dísel-rafstöðvar
3.5 KVA
SteiDllsMuiuiur
Vesturgötu 16,
sími 14680.
Paraline ál og stál
panell. Margar
gerðir. Uppsett sýn-
ishorn í sýningasal
okkar.
Loftklæðningar frá
okkur, prýða nú 19
verslanir í Kringl-
unni.
ÍSLENZKA
VERZLUNARFELAGIÐ HF
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
Bíldshöfða 16,
simi 687550.
VESTURÞÝSK
meðölhi
Álstiginn frá Zarges er al-
hliöa lausn - plásslítill, iéttur
og meöfærilegur en gefur
næstum óendanlega mögu-
leika á uppsetningu - Allt frá
lítilli tröppu í góöan vinnupall.
. - Frá Zarges bjóöum viö
einnig ýmsar aðrar geröir
stiga og vinnupalla.
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
A. KARLSSON HF.
HEILDVERSLUN-SÍMI: 27444-PÓSTHÓLF: 167-BRAUTARHOLT28-REYKJAVÍK
ísköld staðreynd
f rá AEG
Getum boðið takmark-
aðar birgðiraf kæli-
skápumfrá AEG
á þessu frábæra verði.
Hæð 160cm.
Breidd 55 cm.
Kælir 198lítra
Frystir 58 lítra
Sjálfvirk afþýðing á kælihólfi
5 færanlegar hillur
AFKÖST
ENDING
GÆÐI
BRÆÐURNIR
OKMSSONHF
Lágmúli 9 >: 8760 128 Reykjavik * 91-38820
i