Morgunblaðið - 27.10.1987, Page 52

Morgunblaðið - 27.10.1987, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 Rebekka Guðmunds- dóttír — Minning Fædd6. maí 1911 Dáin 18. október 1987 Mennimir álykta, en Guð einn ræður. Fyrir það megum við vera þakklát. Það var bjartur október- morgunn eins og hann best getur orðið. Rebekka, tengdamóðir mín, kom á laugardegi í heimsókn og hugðist dvelja hjá dóttur sinni og fjölskyldu hennar í mánaðartíma, eins og hún hafði gert mörg undan- farin haust. Á sunnudagskvöldi eftir þennan sólskinsdag og glað- værar umræður vildi hún ganga óvenju snemma til náða, sagðist vera þreytt í höfði. Látlu síðar kall- aði hún til dóttur sinnar og bað hana að finna sig. Örstuttu síðar kom ég inn til þeirra. Mæðgumar sátu saman á rúminu, dóttirin hélt utan um móður sína, strauk vang- ann og spurði hvort henni liði illa. „Nei,“ var svarið, „mér líður vel,“ og bros lék um varimar. Örfáum mínutum síðar var hún látin. Þann- ig sátu mæðgumar þegar læknirinn kom. Þá var allt um garð gengið. Þetta var mikil lífsreynsla, sem mun seint úr minni líða. En þessi dauðdagi átti við þessa höfðinglegu konu. Það var birta yfir, ef hægt er að tala um slíkt, þegar dauðinn er annars vegar. Rebekka var fasdd 6. maí 1911 að Sólvangi í Vestmannaeyjum. Foreldrar hennar voru Guðmundur Bjamason frá Tjamarhúsum á Sel- tjamamesi og Ingibjörg Ólafsdóttir frá Landamótum í Seyðisfirði. Fárra vikna gömul fór hún með foreldrum sínum til Seyðisijarðar, en þar bjuggu þau öll sín búskapar- ár. Bam að aldri fór Rebekka til Vestmannaeyja, til ömmu sinnar sem einnig hét Rebekka, og dvald- ist hjá henni í nokkur ár. Þegar Rebekka var orðin upp- komin stúlka fór hún til Akureyrar í atvinnuleit. Þar kynntist hún Brynjólfí Eiríkssyni, sem síðar varð maður hennar, en þau gengu í hjónaband 1932. Þau eignuðust tvær dætur, Ólöfu, konu þess er þessar línur ritar, og Ragnheiði sem er gift Engilbert Engilbertssyni skipstjóra. Rebekka og Brynjólfur slitu samvistir, en hann lést 1972. Sambýlismaður Rebekku varð síðar Jóhann Þorsteinsson málarameist- ari. Sambúð þeirra var farsæl í þijá áratugi, eða þar til hann lést 1979. Jóhann var traustur og góður drengur. Þau eignuðust eina dótt- ur, sem fæddist andvana. Rebekka var mikil höfðingskona, heilsteypt og greind. Eins og áður er getið dvaldist hún á Heiði hjá okkur hjónunum nokkum tíma á hveiju hausti. Svo var líka fyrir tveimur ámm. Þá var móðir mín einnig hér með henni. Sá tími var lærdómsríkur. Þær vom báðar Ijár- sjóðir af fróðleik. Móðir mín var þá hress og kát, og það vom þær báð- ar. Þær vom ljóðelskar, þó sér í lagi móðir mín. Þær rifluðu upp ógrynni af vísum, fóm með sálma, dáðust að textanum og laginu og sungu saman hvem sálminn á fæt- ur öðmm. Allt var þetta svo fádæma skemmtilegt að ógleyman- legt er. Slíkar konur sem þessar em persónur sem hver og einn get- ur verið stoltur af. Ég bar alla tíð virðingu fyrir Rebekku, glæsileik hennar og allri persónu. Já, enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Það er merkilegt að fyrir átta ámm dvaldist móðir Reb- ekku, Ingibjörg, hér sem oftar á Heiði. Einmitt í október að kveldi 18. október varð hún helsjúk og lést skömmu síðar. Sú kona er mér enn í fersku minni sem virðuleg og góð kona. Ég minnist þessara þriggja kvenna með mikilli þökk og virð- ingu. Þakka fyrir að hafa fengið að njóta leiðsagnar og gæsku þeirra. Síðari ár bjó Rebekka í sama húsi og Ragnheiður dóttir hennar og tengdasonur. Hafí þau bestu þökk fyrir umönnun Rebekku. Þessi bjarti sunnudagur í októ- bermánuði fannst okkur hjónunum enda æði dimmur, en þó dimmt sé þá er birtan sú að hafa fengið sem fullorðinn maður að ávarpa tengda- móður og mömmu, jú og sagt orðið pabbi fram yfir miðjan aldur. Hugs- um til þeirra sem fá jafnvel aldrei að segja þau orð. Hafði Rebekka þökk fyrir gjöfina sem hún gaf mér og samverustund- i imar allar. Blessuð sé minning hennar. Sigurður Þorsteinsson t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, GUNNARGUÐMUNDSSON frá Hofi, Dýrafirði, lóst föstudaginn 23. október. Hann verður jarðsunginn frá Þingeyrarkirkju, laugardaginn 31. október kl. 14.00. Jón Gunnarsson, Guðmunda S. Gunnarsdóttir, Gunnar R. Gunnarsson, Aðalsteinn Gunnarsson, Björgvin H. Gunnarsson, Marsibil G. A. Gunnarsdóttir, Katrfn Gunnarsdóttir, Kristján Gunnarsson, Guðmunda Jóna Jónsdóttir, Kristfn Þorleifsdóttir, Ólöf S. Sylverfusdóttir, Guðlaug Vagnsdóttir, Borghildur H. Flórentsdóttir, Davíð H. Kristjánsson, Alda S. Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÓLÖF LYDÍA BRIDDE, Kjalarlandi 9, lóst 23. október. Ólafur Ólafsson, Þórdfs G. Bridde, Ólafur Alexander Ólafsson, Ellen Marfa Frederiksen, Andrós Ellert Ólafsson, Anna Margrót Halldórsdóttir, Þórdfs Ólafsdóttlr, Gyða Ólafsdóttir, Dfana Ósk Ólafsdóttir. t Eiginkona mín og móðir okkar, GUÐMUNDÍNA MARGRÉT SVEINBJÖRNSDÓTTIR frá Suðureyri, Súgandafirði, lóst föstudaginn 23. október á Hrafnistu í Reykjavík. Kveðjuathöfn verður í Fossvogskirkju fimmtudaginn 29. október kl. 10.30. Jarösett verður frá Suöureyrarkirkju, Súgandafirði, laugardaginn 31. október kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er sérstaklega bent á Suðureyrar- kirkju og Hrafnistu í Reykjavík. Þórður Marfasson og börn. Aðalheiður Ama- dóttir — Minning Fædd 7. janúar 1913 Dáin 20. október 1987 Mig langar til að minnast í ör- fáum línum, og kveðja Aðalheiði Ámadóttur, sem ég kynntist sem bam, þegar hún ásamt eiginmanni sínum, Ágúst Bjamasyni, flutti í blokkina á Kaplaslq'ólsveginum, þar sem við bjuggum fyrir. Mig minnir að það hafí ekki tek- ið þau og foreldra mína langan tíma að kynnast ágætlega, en þó held ég að vinskapurinn hafi styrkst enn þegar flölskylda þeirra Öllu og Gústa þurfti að flýja Vestmannaeyj- ar veturinn 1973, og sumt fólkið þeirra flutti á Kaplaskjólsveginn um tfma. Að minnsta kosti horfði það þannig við mér og systkinum mínum sálugu, Solveigu og Þórði. Allt í einu fylltist húsið af krökkum á okkar aldri og við fengum að leika okkur á ganginum eins og við vild- um. En þegar krakkamir fóm vom afinn og amman áfram til staðar og við notfærðum okkur það, enda viðtökumar ekld letjandi. Þó langt sé síðan við fluttum öll af Kaplaskjólsveginum hefur mikil vinátta haldist milli fjölskyldnanna. Síðustu árin hitti ég öllu ekki, en hafði stundum fregnir af þeim Gústa gegnum síma og oft gegnum foreldra mína. Ég man það vel þeg- ar ég hitti öllu síðast, það var í brúðkaupinu mínu og ég hafði gam- an af að kynna nýorðinn eiginmann minn, Karl Roth, fyrir þeim Gústa. Þremur ámm síðar, daginn sem við héldum upp á brúðkaupsaf- mælið okkar, hvarf Alla frá okkur. Við sjáum hana ekki framar í þessu lífí, en minningin um góða konu lifír. Ég vil votta Gústa, bömum þeirra beggja, bamabömum og öðmm aðstandendum samúð mfna. Lára Magnúsardóttir í dag verður kvödd hinstu kyeðju mín kæra vinkona Aðalheiður Áma- dóttir. Hún var fædd í V estmannaeyjum 7. janúar 1913. Foreldrar hennar vom Ami Oddsson frá Oddstöðum í Vestmannaeyjum og Sigurbjörg Sigurðardóttir frá Stuðlum í Norð- firði. Hún átti sjö systkini og em sex þeirra enn á lífi. Aðalheiður heitin giftist Sigurði Siguijónssyni ung að ámm og átti með honum 3 böm. Þau Kára Birgi, útgerðarmann og vélstjóra, kvænt- ur Jónu Sigríði Kristjánsdóttur, þau eiga 3 böm, írisi Sigurbjörgu, hús- móður, gifta Hafsteini Agústssyni, þau eignuðust 6 böm og Áma, en hann fórst í slysi bam að aldri. Þau Aðalheiður og Sigurður skildu, en árið 1944 gekk hún að eiga Ágúst Bjamason frá Svalbarði í Vestmannaeyjum, son Bjama t Móðir okkar, JÓRUNN STEINUNN JÓNSDÓTTIR, Hagamel21, Reykjavfk, lést í Landspítalanum laugardaginn 24. október. Jarðarförin verður auglýst síöar. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnar Sverrisson, Anna Theódóra Rögnvaldsdðttir, Ólafur Rögnvaldsson. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HJÁLMTÝR EINARSSON, andaöist í Borgarspitalanum 19. október 1987. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Baldur Hjálmtýsson, Jóhanna Guðjónsdóttlr, Lofthlldur Hjálmtýsdóttir, Erling Theódórsson, Jóna G. Hjélmtýsdóttir, Guðmundur Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Kveðja frá bamabörnum Þú, Guð, sem stýrir stjama her og stjómar veröldinni, í straumi lífeins stýr þú mér með sterkri hendi þinni. Stýr mfnu hjarta’að hugsa gott og hyggja að vilja þínum, og má þú hvem þann blett í brott, er býr í huga mínum. Stýr minni tungu’að tala gott og tignar þinnar minnast, lát aldrei baktal, agg né spott í oiðum mínum finnast. Stýr minni hönd að gjöra gott, að gleði’ ég öðmm veiti, svo breytni mín þess beri vott, að bam þitt gott ég heiti. Stýr mínum fæti’á friðar veg svo fótspor þín ég reki og sátt og eining semji ég en sundmng aldrei veki. Stýr mínum hag til heilla mér og hjálpar öðmm mönnum, en helst og fremst til heiðurs þér í heilagleika sönnum. Stýr mínu fari heilu heim í höfn á friðarlandi, þar mig í þinni gæslu geym, ó, Guð minn allsvaldandi. (Vald. Briem.) Jónssonar og Önnu Tómasdóttur. Ágúst átti frá fyrra hjónabandi son, Hörð, sem nú er verkstjóri í álverk- smiðjunni og kvæntur Margréti Guðjónsdóttur. Milli þeirra Aðal- heiðar hafa ávallt verið miklir kærleikar, enda reyndist hún hon- um sem besta móðir. Eftirlifandi afkomendur þeirra Aðalheiðar og Ágústs eru nú orðnir 36, en tveir hafa látið lífíð á unga aldri. Aðalheiður var virk í félagsmál- um, hún starfaði í kvenfélaginu, Oddfellow-stúku og að ýmsum líknar- og mannúðarmálum, jafn- framt því sem hún hélt myndarlegt heimili að Sólvangi. Þau hjónin ráku einnig verslun á árunum 1956—1966 að þau fluttu frá Vest- mannaeyjum á Kambsveg í Reykjavík. Svo var það í júlí árið 1972 að hringt var á dyrabjöllunni hjá mér og fyrir utan stóð Ágúst Bjamason. Hann bað um upplýsingar um húsið okkar, því hann var búinn að kaupa íbúð á 3. hæðinni. Þegar við kvödd- umst eftir kaffisopa og upplýsingar á báða bóga sagði Ágúst: „Þið skul- uð bara bíða þangað til þið hittið hana Öllu mína, þar kynnist þið góðri konu.“ Það voru orð að sönnu og þetta var upphafið að þeirri vináttu milli Qölskyldnanna sem aldrei hefur borið skugga á. Aðalheiður Ámadóttir var glæsi- leg kona, hávaxin, grönn og ljós yfirlitum. Hún var glaðlynd og skemmtileg. Þau hjónin vora ein- staklega samrýnd og það vora margar stundimar sem við áttum með þeim og nutum gestrisni þeirra og hjartahlýju. Einstakt var hve góð þau vora við bömin okkar, aldrei virtust þau þreyta þau. Oftar en ekki var minnst á Vest- mannaeyjar þegar við sátum saman og röbbuðum og frásagnimar vora svo lifandi og skemmtilegar að mér finnst ég þekkja orðið til þar þó ég hafí aldrei komið þangað. Við bjuggum í sama húsi í 9 ár og þó að við flyttum hvor hjónin í sína áttina, þá héldum við áfram að hittast og eyddum oftast saman áramótunum þar til fyrir tveimur áram að heilsa Öllu leyfði það ekki. Hún lést á Vífilsstaðaspítala 20. október síðastliðinn eftir mikil veik- indi. Hún dáði mjög og var afar þakklát því fólki sem annaðist hana á sjúkrahúsinu í veikindum hennar og veitti henni ómetanlegan stuðn- ing. Við hjónin viljum þakka Aðal- heiði samfylgdina og sendum Ágústi og allri flölskyldunni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ragnheiður Þórðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.