Morgunblaðið - 08.12.1987, Page 1
96 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
279. tbl. 75. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
EB-ríkin:
Flugfargjöld
sögð lækka
með vorinu
Briissel, Reuter.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagsins (EB) samþykkti í
gær nýjar reglur um loftferðir
innan og milli rikja bandalagsins
og er talið að þær muni hafa í
för með sér verulega lækkun
flugfargjalda þegar sumaráætl-
un flugfélaga gengur í gildi
næsta vor.
Með hinum nýju loftferðareglum
verður opnað fyrir samkeppni á
flugleiðum, sem ríkisflugfélög við-
komandi ríkja hafa hingað til
einokað. Yfirvöld einstakra ríkja
munu ekki lengur hafa sama vald
og áður á sviði loftferða og ráðstöf-
unar flugleiða. Flugfélög munu fá
að ráða fargjöldum sínum sjálf og
verður meðal annars heimilað að
bjóða allt að 45% afslátt á fargjöld-
um á öðru farrými.
Hinar nýju reglur munu gera
litlum flugfélögum kleyft að keppa
við stóru rótgrónu félögin á fjöl-
förnustu leiðunum. Geta þær
meðal annars haft í för með sér
stóraukna þjónustu félaganna og
nýjar flugleiðir milli lítilla flugvalla
og stórra innan EB.
Framkvæmdastjórn EB hefur
lengi barizt gegn því, sem kallað
hefur verið einokun fárra stórra
áætlunarflugfélaga á flugleiðum
innan Evrópu. Samkomulag hefur
legið á borðinu frá í júní sl. en
ákvörðun tafizt vegna deilu Breta
og Spánverja um flugvöllinn á
Gíbraltar. Jöfnuðu þeir ágreining
sinn síðastliðinn fimmtudag.
Talsmaður samtaka evrópskra
áætlunarfélaga (AEA) fagnaði
ákvörðun framkvæmdastjórnar-
innar í gær og spáði fargjalda-
lækkun frá og með 1. apríl á næsta
ári. Talsmenn EB sögðu nýju loft-
ferðareglurnar aðeins vera fyrsta
skrefið í átt til enn meiri sam-
keppni í flugi innan Evrópu í
framtíðinni.
Reuter
Míkhail Gorbatsjov, Sovétleiðtogi, veifar við komuna til Andrews-herflugvallarins í gær. George Shultz, utanríkisráðherra, (t.v.) tók á
móti Gorbatsjov við komuna til Bandaríkjanna. Milli þeirra á myndinni er frú Helena Shultz.
Fundur leiðtoga risaveldanna hefst í Washington í dag:
Bæði ríkm fús að
fállast á tilslakanir
Fyrsti afvopnunarsáttmáli atómaldar undirritaður eftir hádegi
Washin^ton, frá Ásgeiri Sverrissyni og Agnesi Bragadóttur, blaðamönnum Morgunbladsins.
MÍKHAIL S. Gorbatsjov, aðalrit- I til Washington í gær. Flugvél I
ari sovéska kommúnistaf lokksins, þeirra lenti á Andrews-herflug-
og eigpnkona hans, Raísa, komu I vellinum skammt frá Washington I
Fjöldamótmæli í Washington:
Berst fyrir systkini mín
- segir andófsmaðurinn þekkti, Natan Scharansky
Washington, frá Agnesi Bragadóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
HLJÓÐLÁT mótmæli gyðinga
hvaðanæva úr Bandaríkjunum og
öðrum hlutum heimsins settu svip
sinn á borgarlífið hér í Washing-
ton á sunnudag.
Liðlega 200.000 gyðingar hvað-
anæva að, og fólk af öðrum trúar-
brögðum söfnuðust saman fyrir
framan Hvíta húsið og gengu í þög-
ulli mótmælagöngu til bandaríska
þinghússins. Andófsmaðurinn Natan
Scharansky vakti mesta athygli og
var mál manna að aðrir hefðu fallið
í skugga hans.
Scharansky sagði í samtali við
Morgunblaðið eftir ræðuhaldið: „Ég
veit að við tókum skref fram á við
í dag. Ég er hér til þess að berjast
fyrir frelsi bræðra minna og systra
í Sovétríkjunum."
Reuter
Sjá nánar á miðopnu.
Þessir voru í fylkingarbijésti göngumanna í gær: Natan Scharan-
sky, sem varð að dúsa í sovéskum þrælkunarbúðum í sjö ár,
Vladimir Slepak og Elie Weisel, handhafi friðarverðlauna Nóbels.
kl. 16.33 að staðartíma. Fyrsti
fundur þeirra Gorbatsjovs og
Ronalds Reagan Bandaríkjafor-
seta hefst klukkan 10.30 í dag og
klukkan 13.45 munu leiðtogarnir
undirrita samkomulag um upp-
rætingu meðal- og skammdrægra
kjarnorkuflauga við hátíðlega at-
höfn í Hvíta húsinu.
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, tók á móti Gor-
batsjov-hjónunum. Við komu sína
sagði Gorbatsjov: „Við erum reiðu-
búnir til að ræða um skjótar lausnir
á öllum helstu deilumálum ríkjanna
og um ágreining stórveldanna varð-
andi fækkun langdrægra kjamorku-
vopna.“ Að loknu stuttu ávarpi
sovéska leiðtogans og friðaróskum
hans til Bandaríkjamanna sagði
Shultz: „Þetta var góð byijun." Og
Gorbatsjov svaraði: „Heimsóknin er
hafin. Vonum hið besta. Megi Guð
hjálpa okkur."
Því næst hélt bílalestin frá her-
flugvellinum til sovéska sendiráðsins
í Washington þar sem Shultz og eig-
inkona hans spjölluðu stuttlega við
Gorbatsjov-hjónin, áður en Gor-
batsjov hélt til fundar með sam-
starfsmönnum sínum.
Gríðarlega ströng öryggisgæsla
var í nágrenni sendiráðsins og Hvíta
hússins en alls munu um 10.000
bandarískir og sovéskir öryggisverð-
ir vera hér í Washington. Götum í
nágrenninu hefur verið lokað og
verður svo þar til leiðtogafundinum
lýkur á fimmtudag.
í dag klukkan 10 verður opinber
móttökuathöfn í Hvíta húsinu og að
henni lokinni hefst fyrsti fundur leið-
toganna. Áformað er að þeir eigi
fimm fundi áður en Gorbatsjov held-
ur aftur til Sovétríkjanna á fimmtu-
dagskvöld. Talsmenn risaveldanna,
þeir Gennadíj Gerasímov og Marlin
Fitzwater, sögðu á fundi með blaða-
mönnum á laugardag að ekki yrði
skýrt frá gangi viðræðna leiðtog-
anna fyrr en að fundunum loknum.
Líklegt er talið að verulega muni
miða í samkomulagsátt um helm-
ingsfækkun langdrægra kjarnorku-
vopna og hefur mátt lesa út úr
ummælum bæði bandarískra og sov-
éskra embættismanna að bæði ríkin
séu reiðubúin til að fallast á þýðing-
armiklar tilslakanir til að ná fram
slíku samkomulagi. Svo virðist sem
ríkin hafi orðið sammála um að ýta
deilum um túlkun ABM-sáttmálans
um takmarkanir gagneldflaugakerfa
og geimvamaráætlun Bandaríkja-
stjómar til hliðar. Líklegt er að
leiðtogarnir nái samkomulagi um að
fela samningamönnum risaveldanna
í Genf það verkefni að vinna að drög-
um að samkomulagi um helmings-
fækkun langdrægra kjarnorku-
vopna.
Sjá frekar um leiðtogafundinn
á miðopnu og bls. 38 og 39.