Morgunblaðið - 08.12.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
Hækkun til kvikmyndasjóðs
Það verður að vera rúm
fyrir íslenzka tungn
— segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
„ÍSLENSK kvikmyndagerð hefur hlutverki að gegna, myndmálið
verður æ umfangsmeira í menningarlífinu og það verður að vera
rúm fyrir islenska tungu,“ sagði Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, í samtali við Morgunblaðið um 20 millj. kr. hækkun á
framlagi til kvikmyndasjóðs, en framlagið verður þá 60 milijónir
króna. Samkomulag um þetta náðist í ríkisstjórninni um helgina.
Þorsteinn stóð fyrir því sem fjármálaráðherra á síðasta ári að
hækka framlagið til Kvikmyndasjóðs og fullnægja þannig laga-
skyldu um sjóðinn.
„Það fer ekkert á milli mála,"
sagði Þorsteinn, „að það var mjög
þýðingarmikið að ná því fram á
síðasta ári við afgreiðslu íjárlaga
þessa árs, að standa við lögin um
Kvikmyndasjóð. Mér þykir mjög
vænt um það að samstaða skyldi
nást um að bijóta ekki niður það
sem unnist hefur í þessu efni.“
Guðbrandur Gíslason fram-
kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs
Islands sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þetta væru mikil fagnað-
artíðindi fyrir stjóm sjóðsins.
Sagði hann að þetta breytti
miklu fyrir sjóðinn. Sjóðurinn þarf
að styrkja leiknar kvikmyndir,
heimildarmyndir, styttri leiknar
myndir, teiknimyndir og kynningu
á íslenskum kvikmyndum erlendis.
Ef aðeins hefðu fengist 40 milljón-
ir króna hefði einungis verið hægt
að styrkja eina leikna kvikmynd í
fullri lengd, en nú er fyrirsjáanlegt
að hægt verður að styrkja þrjár.
„Á þessum miklu niðurskurð-
artímum fínnst mér alveg sérstak-
lega ánægjulegt að ráðamenn
skuli gera sér grein fyrir því hve
mikilvægt það er að styrkja
íslenska kvikmyndagerð. Nú hel-
list yfir okkur erlent myndefni og
við verðum að skapa okkar eigið,
einfaldlega til að viðhalda íslenskri
menningu. Ungt fólk horfír mikið
á kvikmyndir og sjónvarpsefni og
rannsóknir sýna að það hefur mik-
il uppeldisáhrif. Hér verðum við
að spoma við. Hækkunin kemur
vegna þess að ráðamenn virðast
gera sér grein fyrir þessu," sagði
Guðbrandur.
' Sjá ummæli forsætisráðherra
á bls. 45.
Líkan af hitaveitugeymunum og veitingastaðnum ofan á. Á minni myndinni er þverskurðarteikning,
sem sýnir frá hlið, hvemig þetta verður.
Veitingahúsið á hitaveitugeymum:
Kostnaður áætlaður
508 milljónír króna
Framkvæmdir hefjast fijótlega eftir áramótin
Tillögur iðnrekenda
hjuggu á hnútinn
- segir Jón Baldvin Hannibalsson
fjármállaráðherra
TILLÖGUR fulltrúa Félags
íslenskra iðnrekenda áttu vem-
legan þátt í að samkomulag
náðist milli stjórnarflokkanna
um tekjuhlið fjárlagafmmyarps-
ins sl. föstudag. í samtali við Jón
Baldvin Hannibalsson fjármála-
ráðherra kom fram að við borð
lá að ekki næðist samkomulag
um þetta í ríkisstjórninni.
Jón Baldvin sagði að fulltrúum
atvinnulífins hafi verið gefinn kost-
ur á að vera með í ráðum um ýmis
atriði varðandi breytingar á lögum
um tolla, vörugjald og söluskatt og
hefðu þeir komið með ýmsar tillög-
ur og ábendingar. Jón Baldvin sagði
að margar af tillögiinum sem full-
trúar iðnrekenda komu á framfæri
hefðu átt verulegan þátt í að koma
málinu í þann búning að samkomu-
lag gæti tekist, og auk þess hefðu
ýmsir úr röðum iðnrekenda átt þátt
í að skapa samstöðu innan þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins um
málið.
Sjá ummæli fjármálaráðherra
á bls. 45.
FRAMKVÆMDIR hafa tafist við
byggingu veitingahúss á milli og
ofan á hitaveitugeymunum í
Öskjuhlíð en þær munu hefjast
fljótlega eftir áramótin að sögn
Jóhannesar Zoega hitaveitu-
stjóra. Upphafleg kostnaðar-
áætlun sem gerð var fyrir
tveimur árum var rúmar 300
milljónir en er nú 430 milljónir
miðað við verðlag og 508 milljón-
ir miðað við áætlað verðlag á
fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar fyrir næsta ár.
Að sögn Jóhannesar verður
væntanlegur veitingastaður með
stærstu húsum í Reykjavík eða
milli 20.000 til 30.000 rúmmetrar.
Veitingasalurinn mun rúma 200 til
300 manns og verður yfir honum
hvolfþak úr gleri auk þess sem að-
liggjandi veggir verða einnig úr
gleri. „Glerveggir og þak er miklu
dýrara en venjulegir veggir og
hleypir því kostnaðinum upp, en
glerið gefur einmitt þessi sérstöku
áhrif, sem arkitektarnir vilja ná,“
sagði Jóhannes. „Þama ætti að
vera hægt að taka á móti heilu
skemmtiferðaskipi að ógleymdum
Reykvíkingum og öðrum ferða-
mönnum sem eiga eftir að flykkjast
að og fá sér hressingu á góðviðris-
dögurn."
Leiðtogafundurinn í Reykjavík:
Ljósritunarvél
til staðar í Höfða
„ÞAÐ var ljósritunarvél í Höfða
á meðan á Ieiðtogafundinum stóð
og hún var í stanslausri notkun
svo að segja allan tímann," sagði
Bjarki Elíasson, yfirlögreglu-
þjónn, er hann var spurður hvort
enginn slík vél hefði verið þar
til staðar, eins og gefið var i
Fílharmóníuhljómsveitin í Stokkhólmi:
Flytur orgelkon-
sert eftir Jón Leifs
Sáttatillaga
um Þjóðar-
bókhlöðuna
JÓN Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra hefur lagt
fram tillögu til lausnar á deilu
vegna framlags á fjárlögum
til Þjóðarbókhlöðu. Segist
hann gera sér góðar vonir um
að menntamálaráðherra
gangi að þeirri tillögu.
Á fjárlögum er gert ráð fyrir
50 milljóna króna framlagi til
byggingar Þjóðarbókhlöðu, en
innheimta af sérstökum eignar-
skatti, sem renna átti óskiptur
til byggingarinnar, er áætlaður
177 milljónir. Samkvæmt fjár-
lagafrumvarpinu mun mismun-
urinn liggja í ríkissjóði i árslok
1988 en lögmæti þeirrar ráð-
stöfunar hefur verið dregið í efa.
Tillaga fjármálaráðherra felst
í því að frá og með árinu 1989
verði framlög til byggingar
Þjóðarbókhlöðunnar aukin veru-
lega og byggingunni verði lokið
á árinu 1991.
KONSERT fyrlr orgel og hljóm-
sveit eftir Jón Leifs verður meðal
þeirra verka sem Fílharmóníu-
hljómsveitin í Stokkhólmi flytur
á tónleikum sínum dagana 20.
og 21. janúar næstkomandi. Þessi
orgelkonsert hefur aldrei verið
fluttur á íslandi og var hann
síðast fluttur í Berlín þann 10.
mars 1941.
Það er fyrir tilstilli Hjálmars H.
Ragnarssonar tónskálds og Carls-
Gunnars Ahléns, tónlistargagnrýn-
anda Sænska Dagblaðsins, að
Fílharmoníusveitin tekur þetta verk
til flutnings, en Hjálmar hefur ver-
ið mikill áhugamaður um verk Jóns
Leifs og skrifaði meistaraprófsrit-
gerð sína frá Comell-háskóla árið
1980 um Jón og verk hans.
„Að mínum dómi er hér _um að
ræða stórviðburð fyrir okkur Islend-
inga og auk þess okkur þörf lexía,
því að á íslandi hefur Jón Leifs leg-
ið skammarlega lengi óbættur hjá
garði,“ sagði Hjálmar í samtali við
Morgunblaðið. „Einleikari á þessum
tónleikum verður einn efnilegasti
orgelsnillingur heims, Gunnar Id-
enstam og hljómsveitin er án efa
hæstskrifaða hljómsveit á Norður-
löndum og er af mörgum talin ein
besta sinfóníuhljómsveit heims.“
Hjálmar sagði að þessi orgelkon-
sert hefði verið fluttur í Wiesbaden
árið 1935, og hefði orgelleikarinn
þá verið Kurt Unz, einn þekktasti
orgelleikari Þjóðveija á þeim tíma.
Hann hefði einnig leikið á orgelið
í síðasta flutningi verksins í Sing-
akademie í Berlín 1941 og þá hefði
Jón sjálfur stjómað hljómsveitinni.
„Þessi flutningur verksins varð
mjög sögulegur því að Jón var á
bannlista hjá nasistum þar sem
kona hans var gyðingur. Mér hefur
ekki tekist að komast að því hvers
vegna flutningur á þessu verki Jóns
var leyfður á þessum tíma og það
í Berlín. Raunin varð líka sú, að
áhorfendur, sem flestir voru Þjóð-
verjar, sýndu andúð sína með því
að yfirgefa salinn meðan á flutn-
ingnum stóð, og vom það háttsettir
nasistaforingjar sem höfðu for-
skyn í heimildarmynd um leið-
togafundinn, sem sýnd var í
sjónvarpinu á sunnudagskvöld.
„Þeir hafa sjálfsagt lagfært
sannleikann hvað þetta varðar
til að koma að atriðinu með so-
véska kalkipappírinn," sagði
Bjarki.
Annað atriði í myndinni, sem
vakti athygli áhorfenda, var þegar
bandaríska sendinefndin fór inn í
einangraðan stálklefa til skrafs og
ráðagerða. Bjarki sagði að enginn
slíkur klefl hefði verið til staðar í
Höfða og kvaðst hann ekki vita til
að svo véeri í bandaríska sendiráð-
inu í Reykjavík. Ekki fékkst stað-
festing á því er Morgunblaðið leitaði
upplýsinga þar að lútandi í sendi-
ráðinu, en samkvæmt heimildum
blaðsins eru hljóðeinangmð her-
bergi ekki óalgeng í sendiráðum
Bandaríkjanna víða um heim, og
raunar einnig í sendiráðum fleiri
ríkja.
Jón Leifs, tónskáld.
göngu um að fólk yfirgaf salinn.
Að því er Kristján Albertsson, góð-
vinur Jóns, sagði vom aðeins
tuttugu manns eftir í salnum þegar
flutningnum lauk og þeir sem eftir
vom fögnuðu ákaft, en Kristján var
einmitt viðstaddur þennan sögulega
flutning," sagði Hjálmar.
í dag
lyft
Fjögur
heimsmet
Omarí
uppskurð
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
Lífleg j afnteflisskák
- stoít iiðbönd á cÁla og i i
- verðurfró(6'/ikur *
21. einvígisskák Kasparovs og
Karpovs í SeviIIa á Spáni lauk í
gærkvöldi með jafntefli. Staðan
er því enn jöfn, báðir hafa hlotið
tíu og hálfan vinning.
Þegar Kasparov bauð jafntefli í
28. leik, hugsaði Karpov sig um í
tíu mínútur áður en hann þáði boð-
ið. Eftir skákina skoðuðu meistar-
amir stöðuna í u.þ.b. fimm mínútur
og bendir það til þess að þeir hafi
lagt úlfúð sína til hliðar í bili. 22.
einvígisskákina á að tefla á morgun.