Morgunblaðið - 08.12.1987, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
13
Metsölutímaritið MANNLIF
komið út
íslenskir hommar hafa á síðustu
árum stigið fram fyrir skjöldu og
komið „úrfelum", eins og sagt er.
En hvað um íslenskar lesbíur? í ítar-
legri úttekt Mannlífs á stöðu
íslenskra lesbía og hlutskipti lesbía
gegnum tíðina kemur fram, að
meirihluti lesbía hérlendis er ífel-
um, því enn eiga þær yfir höfði sér
fordæmingu og félagslega kúgun.
í samtölum við Mannlíf bjóða þó
sjö þeirra umhverfinu byrginn og
koma úrfelum.
í streituþjáðu velferðarþjóðfélagi
leita æ fleiri til nuddsins til að fá
hvíld og lækningu ýmissa likamlegra
kvilla. Rafn Geirdal, nuddfræðingur,
skrifar forvitnilega grein um gildi
nuddsins fyrir okkur.
Ástin spyr ekki um aldur.
Mannlíf ræðir við þrenn pör
sem eiga það sameiginlegt að
hafa orðið ástfangin á efri
árum, -jafnvel ítrássi við
almenningsálitið.
Jafnréttissinnar hafa stund-
um kvartað yfir því, að konur
væru notaðar í auglýsingum
sem kyntákn til að selja vör-
ur. En í vaxandi mæli eru
karlmenn ekki síður kyntákn
sem selja. Mannlíf ræðir við
þrjá karlmenn, sem vakið
hafa athygli fyrir framkomu
ísjónvarpsauglýsingum, en
er þar fyrir utan margt til
lista lagt.
ISLEWSKAR LESBÍUR
- á leið úr felum
munuð nuddsins
AST [ ELLINNI
KARLMENN - KYNTÁKN SEM SEUA
Einkaviðtöl MannlífS'
Anker Jörgensen, fyrrum
leiðtogi danskra jafnaðar-
manna og forsætisráðherra
um árabil, er einn af helstu
stjórnmálaleiðtogum Norð-
urlanda á síðari tímum.
í skemmtilegu einkaviðtali
við Mannlíf segir Anker frá
sjálfum sér, sigrum og
ósigrum, og kynnum af ís-
landi og íslenskum stjórn-
málamönnum, eins og Ólafi
Jóhannessyni, Jóni Baldvin
Hannibalssyni og Gylfa Þ.
Gfslasyni, sem hann hefur
staðið í nánum bréfasam-
bandi við um langt skeið.
Breska rokkhljóm-
sveitin JethroTull
ereinhverfræg-
asta sveit rokk-
sögunnar.
Höfuðpaur henn-
ar, flautuleikarinn
og söngvarinn lan
Anderson, ræðir
um músík og að-
aláhugamál sitt
og atvinnugrein -
fiskeldið-íeinka-
viðtali við Mannlíf.
í Berchtesgaden í Þýskalandi
er afar fagurt, en þar var einnig
miðstoð voðaverka nazista í
heimstyrjöldinni síðari. Þarvar
ArnarhreiðurHitlers. Mannlíf
heimsótti þennan sögufræga
stað og segir frá því í máli og
myndum.
Meðal fjölmargs annars efnis:
STÓRHÖFÐINGINN: Inga Huld Hákonardóttir skrifar
skemmtilegan prófíl af Oskari J. Sigurðssyni, vitaverði
á syðsta vita landsins og heimsmethafa í
lundamerkingum.
SYSTUR í ANDANUM: Mannlíf ræðir við nokkrar nunn-
ur St. Jósefsreglunnar um líf í helgum steini.
BLÁBJÁNINN I HERDEILDINNI: Ólafur Gunnarsson,
rithöfundur, skrifar fróðlega grein um Jaroslav Hasek,
hinn makalausa höfund Góða dátans Sveik, sem nú
er sýndur í sjónvarpsformi hérlendis.
Frjálstframtak
Ármúla 18
Sími 82300
FRELSITIL AÐ VERA í FRIÐI: Vernharður Linnet
dregur uppfróðlega mynd afTryggva Ólafssyni, list-
málara í Kaupmannahöfn, sem nú sýnir verk sín á
íslandi,
jafnframt því sem út er að koma bók um list hans.
ÞINGMAÐUR BAK VIÐ BÚÐARBORÐ:
Kolbrún Jónsdóttir.
ENSKUR TÓNLISTARFRÖMUÐUR FYRIR AUSTAN
FJALL: Robert Darling.
ÍSLENSKT SAKAMÁLALEIKRIT EFTIR FRANSKAN
RITHÖFUND: Mannlíf ræðir við Michel Chaillou.
STÁLMÚSIN: Hvað varð um Skúla Óskarsson?
Desemberblað MANNLÍFS er 180 bls. að stærð.