Morgunblaðið - 08.12.1987, Síða 25

Morgunblaðið - 08.12.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987 25 1967 og varði doktorsritgerð um erlend samtímayrkisefni í íslenskri ljóðagerð 1750—1930 við Lund- únaháskóla 1977. Eysteinn vann að útgáfumálum og upplýsinga- miðlun hjá SÍS 1967—86, en starfar nú við Tímann og annast m.a. að mestu leyti bókmennta- skrif blaðsins. Hann hefur áður gefið út tvær bækur, Samvinnu- hreyfinguna á íslandi (1978) og Um skáldsögur Guðmundar Daníelssonar (1981). Þá hefur Eysteinn skrifað fjöldann allan af greinum í blöð og timarit. Bólu-Hjálmar er 313 blaðsíður að stærð, og er bókin skreytt all- mörgum myndum. Að lokum eru skrár yfir mannanöfn og kvæði og önnur skáldverk. Ritið er unn- ið í Prentsmiðju Hafnarfjarðar, en kápu gerði Sigurður Öm Brynj- Ólfsson. (Fréttatilkynning) Spor í rétta átt - Unglingasaga eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur ÍSAFOLD hefur gefið út ungi- ingabókina Spor í rétta átt eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur. I kynningu frá útgefanda seg- ir: „Bókin fjallar um Marí sem upplifir spennu sambandsins við Ragga og sinnir engu ráðlegg- ingum ættingja og vina. Hún ætlar að lifa lífinu eins og henni sjálfri sýnist, hvað sem aðrir segja, en þá . . . Áhyggjuleysi æskunnar er skyndilega að baki og veruleikinn blasir við. Hvemig bregst Marí við? Stígur hún spor í rétta átt?“ Spor í rétta átt er ætluð ungl- ingum 12-16 ára og er þetta þriðja bók höfundarins, áður hef- ur Gunnhildur skrifað verðlauna- söguna Undir regnboganum og í fyrra gaf ísafold út bókina Vil, vil ekki. Spor í rétta átt er innbundin 115 bls. Gunnhildur Hrólfsdóttir SÍÐUMÚLA 11,108 REYKJAVÍK, SÍMI91-84866 ÖRN OG ÖRLYGUR Ævisaga Jonasar Kristjánssonar læknis er skráð af Benedikt Gíslasyni frá Hofteigi. Jónas Kristjánsson var óumdeilanlegur brautryðjandi náttúru- lækningastefnunnar á íslandi. Hann var héraðslæknir í tveimur erfiðum og víðlendum héruðum norðanlands og austan. í ævisögu Jónasar greinir frá uppvexti hans og ævintýrum í æsku, skólaárum, ferðum og starfi. Kenningum Jónasar eru gerð góð skil í bókinni. Vetrarperlur er hljómplata með jóla- söngvum frá 16. og 17. öld. Ragnheiður Guðmundsdóttir syngur, Þórarinn Sigurbergsson leikur með á gítar og Jóhannes Georgsson á kontrabassa. Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson útsetti. Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup samdi af þessu tilefni ljóð við þrjá aðventu- söngva með hliðsjón af upprunalegum þýskum textum. Flutningurinn er hrífandi og hátíðlegur í einfaldleik sínum og látleysi. , A BENLDIKT GfSUSON FRÁ HOFTFJf.il ÆVISAGA LÆKNIS 220 gómsætir ávaxta- og ábætisréttir er þriðja í röðinni af hinum vinsælu matreiðslubókum Arnar og Örlygs. Bókin, sem skrifuð er af Kristínu Gestsdóttur, hefur að geyma uppskriftir og leiðbeiningar um matreiðslu á ábætisréttum, kökum, drykkjum, krapréttum, saft og sultu úr ávöxtum og berjum. Bækurnar þrjár eru fáanlegar hjá útgáfunni í skemmtilegri öskju. 220 OÓMS\ .V\U ofetoifwéwte-. Eg ætla að syngja, er bamalagaplata Magnúsar Þórs Sigmundssonar. Á henni eru gömul og ný lög við þekktar þulur og bamatexta. Flytjendur auk Magnúsar eru Pálmi Gunnarsson, Jón Ólafsson og tíu stúlkur úr kór Verslunarskólans. Böm og fóstrur voru fengin til aðstoðar við að velja lögin. Þar má nefna Fingraþulu, Bíum, bíum bamba, Ein sit ég og sauma og Mamma borgar. Plötunni fylgir textablað með gítargripum. A Fleiri kvistir hefur að geyma satntals- þætti Áma Johnsen blaðamanns við fólk úr ýmsum áttum. Hann er löngu landskunnur fyrir skemmtileg og hispurslaus viðtöl sín en fyrri bók Árna í sama dúr, Kvistir í lífstrénu, vakti mikla athygli. Árni hefur einstakt lag á því að laða fram í fólki persónuleika þess og skila efninu þannig að viðmælandinn nýtur sín til fulls. í bókinni eru m.a. viðtöl við Veturliða listmálara, Matthías Bjarnason alþingismann, Ása í Bæ, Þorstein Jónsson flugstjóra og Lása kokk, - menn sem vanir eru að fara á kostum. Og síðast en ekki síst hina 103ja ára gömlu heiðurskonu Aldísi á Stokkahlöð- um, sem fylgist vel með öllu og hefur skoðanir á flestum málum. A Vetrarperlur jóU«ðni;v4r fro )b. oji 17. «4*1 m
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.