Morgunblaðið - 08.12.1987, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESBMBER 1987
^ Skáldsaga eftir Sjón
Ódgr og góð leikföng
Púsluspil frá 79,- til 195,- Tónlistar bóndabœr 726,- Ferðabfll 357
Dúkkur frá 494,- til 1.582,- Köttur 1.023,- Kubbahanl
Kerra m. kubbum 714,- Segulkubbar 1.495,- Dúkka í kerru
KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT.
Xr
m
mmm
•• v-
■
V
STÁLNÓTT heitir skáldsaga eft-
ir Sjón sem bókaforlag Máls og
menningar hefur gefið út.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Þetta er fyrsta skáldsaga höfund-
arins, óvenjuleg og sterk eins og
við mátti búast. Hún er í anda
vísindaskáldsagna, framtíðarsýn
þar sem notaðir eru þættir úr ævin-
týrabókum og hryilingssögum í
bland við bíómyndir samtímans.
Fjórmenningarnir Finnurinn, Ann-
an, Jonninn og Dísan birtast hér í
nýju ljósi og eiga í ýmsum næturæv-
intýrum. En nóttin er ekki mjúkur
hjúpur sem umvefur bömin — hún
er stálnótt."
Stálnótt er 104 bls. að stærð,
prentuð í Prentsmiðjunni Odda.
Hrafnkell Sigurðsson sá um útlit
bókarinnar og hönnun kápu en ljós-
mynd á kápu tók Guðmundur
Ingólfsson.
Sjón
Skáldsaga eftir Álf-
rúnu Guimlaugsdóttur
MÁL og menning hefur gefið út
skáldsöguna Hringsól eftir Álf-
rúnu Gunnlaugsdóttur.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Álfrún rekur í þessari bók örlaga-
sögu íslenskrar konu. Sagan hefst
í litlu þorpi við sjó á öndverðum
fjórða áratuginum þegar söguhetj-
an leggur upp í sína ævireisu. Leiðin
liggur til Reykjavíkur og síðar tii
meginlands Evrópu, en ferðinni lýk-
ur þar sem hún hófst — fimm
áratugum síðar. Sérstæður frá-
sagnarstíll Álfrúnar gerir það að
verkum að sagan líkist einna helst
mósaíkmynd sem fullkomnast ekki
fyrr en síðasta brotinu er komið
fyrir.“
Hringsól er 308 bls. að stærð,
prentuð í Prentstofu G. Benedikts-
sonar. Teikn sá um hönnun kápu. Álfrún Gunnlaugsdóttir
SVORTU AUGUN
Erik Nerlöe
Hin svörtu augu unga sígaun-
ans vöktu þrá hennar efttr
frelsi — frelsi sem hún hafði
lítið kynnst áður. Og Ijúfir
tónar fiðlu hans ollu því, að
hún ákvað að flýja burtu með
honum. En vissi hún hvert
hún var að flýja? Nei, hún var
of ung og reynslulítil til að
vita það. Hún skildi ekki að
blind ást hennar leiddi hana
aðeins út í ófyrirsjáanlegar
hættur.
TINA
Eva Steen
Hún er ung og fögur og hefur
kynnst manni sem hún elskar.
Framtíðin blasir við þeim,
en örlögin verða til þess að
skilja þau. Hún sér sig
nauðbeygða til að hverfa úr
lífi hans. Með fegurð sinni og
miklum hæfileikum sínum
á listskautum nær hún langu
en þegar best gengur upp-
götvast að hún ér haldin
banvænum sjúkdómi. Einmitt
þá kemur maðurinn sem hún
elskar aftur inn í líf hennar.
GOÐI HIRÐIRINN
Else-Marie Nohr
Hún hvarf og ekkert fréttist af
henni. Loks var hún talin af
og álitin dáin. Dag einn birtist
hún í sendiráði í Thailandi,
aðframkomin og þungt haldin
af hitasótt, og mundi ekki
hvað hún hét. Með góðri
læknishjálp nær hún sér fljótt,
og nokkru seinna er hún á
leið heim. Hún er full af lífs-
þrótti og hlakkar til að sjá
aftur manninn, sem hún
elskar og hún hafði gifst stuttu
áður en hún varð fyrir áfall-
inu. En fjögur ár eru langur
tími, og maður hennar hafði
fyrir löngu talið hana af.
SKVGGSJÁ - BOKABVÐ OLIVERS STEINS ST
ANGELA
Theresa Charles
Angela Smith sækir um
læknisstarf í bænum Whey-
stone. Þar ætlar hún einnig að
reyna að jafna sig eftir slys,
sem hún lenti í, í hreinu
sveitalofti og kyrrlátu um-
hverfi. Hún fær starfið, en
henni er vantreyst sem lækni
og litin hornauga sem persóna
í fyrstu. En smátt og smátt
vinnur hún traust og álit
fólks. Angela missti mann
sinn og dóttur í bílslysi og líf
hennar hefur verið tómlegt
síðan slysið varð. En er hún
kynnist Mikael Traymond, ró-
legum og yfirveguðum lækni,
vakna tilfinningar hennar á
ný.
AST OG HAMINGJA
Barbara Cartland
Aðeins tvær persónur bjargast
í land, þegar skipið brotnar í
klettunum við strönd Ferrara,
ævintýramaðurinn Sir Harvey
Drake og hin fagra Paolina
Mansfield. Þau voru bæði á
leið til Feneyja og faðir
Paolinu fórst með skipinu. Sir
Harvey Drake stingur upp á
því við hana, að hún ferðist
nteð honum sem systir hans
áfram til Feneyja. Þar segist
hann auðveldlega ntunu geta
fundið ríkan eiginmann
handa henni — og um leið
ætlar hann að tryggja sína
eigin franttíð. Paolina fellst á
hugmyndina, og framundan
er ævintýralegt og viðburða-
ríkt ferðalag.