Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
47
Sljórn fiskveiða 1988-1991:
Ðraga verður úr þorskafla 1988
indastofnun Háskólans, Þjóðhags-
stofnun og viðskiptadeild Háskólans,
sem verið hafi samfelldur lofsöngur
um fiskveiðistefnu sjávarútvegsráð-
herra. Þessar álitsgerðir hafi hinsveg-
ar ekki tíundað vankanta fiskveiði-
stefnunnar. Þingmaðurinn bar á hinn
bóginn lof á upplýsingagjöf Hafrann-
- sagði sjávarútvegsráðherra
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra mælti í gær í efri deild
Alþingis fyrir frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða 1988- 1991.
Fyrstu umræðu lauk ekki. Gert er ráð fyrir því að sjávarútvegsnefnd-
ir beggja þingdeilda fjalli sameiginlega um frumvarpið, sem stefnt
er að að afgreiða fyrir starfshlé Alþingis yfir jól og áramót, og hefji
störf árdegis í dag.
Auk ráðherra töluðu í gær talsmenn Samtaka um Kvennalista
(Danfriður Skarphéðinsdóttir) og Alþýðubandalags (Skúli Alexanders-
son), en talsmenn annarra þingflokka tala væntanlega í framhaldsum-
ræðu í dag.
Smá forleikur um þingsköp átti
Forleikur um þingsköp
Skúli Alexandersson (Abl/Vl)
kvaddi sér hljóðs um þingsköp þegar
kom að dagskrárliðnum „Stjóm fisk-
veiða“ í efri deild Alþingis í gær.
Taldi hann nauðsynlegt að fjalla um
frumvarpið, sem fram var lagt síðast
liðinn föstudag, í þingflokkum, áður
en fyrsta umræða um það færi fram
í þingdeildinni. Mæltist hann til þess
að umræðunni yrði frestað. Júlíus
Sólnes (B/Rn) tók undir það sjónar-
mið, enda hefðu þingmenn, sem
famir vóm í helgarfrí á föstudegi,
ekki séð frumvarpið fyrr en í dag.
Eiður Guðnason (A/VI) sagði
langt síðan fmmvarpsdrög vóm send
þingmönnum sem og hagsmunaaðil-
um. Fá mál hafi fengið meiri skoðun,
umfjöllun og umræðu. Þannig hafi
Alþýðubandalag efnt til sérstaks
blaðamannafundar af af því tilefni
að flokkurinn hefði, að eigin sögn,
fullmótað fískveiðistefnu sína. Til-
mæli Skúla væm því út í hött. Karl
Steinar Guðnason, forseti efri
deildar, sagði samkomulag hafa ver-
ið gert milli forseta og formanna
þingflokka um að hefja fyrstu um-
ræðu um fmmvarpið í dag en ljúka
henni ekki samdægurs. Sjávarútvegs-
nefndir þingdeilda muni og taka
málið fyrir í fyrramálið (þriðjudag).
Veiðisókn umfram
veiðiþol
Halldór Asgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, sagði langt síðan að
fmmvarpsdrög vóm send þingmönn-
um. Fmmvarpið væri byggt á þeirri
reynslu, sem fyrir hendi væri um
stjómun fiskveiða, til að samræma
veiðisókn fiskveiðiflotans að veiðiþoli
nytjastofna, einkum þorsksins. Mikil
umræða hafi þegar farið fram um
efnisatriði fmmvarpsins út í þjóð-
félaginu og flest hagsmunasamtök
hafi um það íjallað.
Árið 1984 vóm samþykkt heimild-
arlög (rammalöggjöf) til að stjórna
fiskveiðum með öðmm hætti en áður
hafði verið gert. Sambærileg lög vóm
samþykkt fyrir árið 1985. Síðan verð-
ur breyting á. Fyrir árin 1986 og-
1987 vóm sett lög þar sem meginat-
riði fiskveiðistefnunnar vóm tekin inn
í löggjöf. Fmmvarp það, sem hér ligg-
ur fyrir, byggir á stðari löggjöfinni,
þó margvíslegar breytingar komi og
til.
Það virðist um það víðtæk sam-
staða, sagði ráðherra, að það þurfi
að stjóma fiskveiðunum. Núverandi
fískveiðifloti hefur aflagetu langt
umfram afrakstursgetu fiskistofn-
anna, en samt er ásókn bæði í fjölgun
skipa og stækkun skipa. Ljóst er að
aðstæður kalla á tvenns konar tak-
mark'anir. Annarsvegar varðandi
stækkun fiskiskipaflotans. Hinsvegar
takmörkun.á veiðisókn þess flota sem
fyrir er.
En hvers konar fískveiðistjóm? Það
er einkum rætt um tvo kosti. { fyrsta
lagi almennar sóknartakmarkanir
(heildarkvóta i veiðum/ „skrapdaga-
kerfí"). í annan stað sérstakar veiði-
heimildir til einstakra aðila
(núverandi kvótakerfi). Hvomgur
kosturinn er gallalaus. Spumingin
stendur hinsvegar um það, hvor leið-
in er líklegri til að ná þeim markmið-
um sem stefnt er að: 1) nauðsynlegri
takmörkun á heildarafla, 2) hag-
kvæmri sókn flotans, 3) æskilegri
aflameðferð til að ná fram sem mest-
um verðmætum sjávarvöm.
Það er enginn vafi á því, sagði
ráðherra, að seinni leiðjn hefur meiri
kosti. Öll úttekt á málinu styður það.
Ég nefni úttektir sem fram hafa far-
ið á vegum Háskólans, Þjóðhags-
sér stað fyrir umræðuna.
stofnunar og annarra aðila. Það er
álit úttektaraðila að þessi leið sé áber-
andi hagkvæmari. Það er því enginn
vafí á því að við höfum stefnt í rétta
átt. Það er nauðsynlegt að byggja á
þessum gmnni áfram.
Það hefur verið reynt víða í heimin-
um að ná fram nauðsynlegum afla-
samdrætti með því að takmarka
heildarsóknina en láta stækkun físki-
skipastóls óáreitta. Frægasta dæmi
slíks skipulags er lúðuveiðar í Al-
aska. Það endaði í því að nú er
heimilað að veiða lúðu einn dag í
mánuði. Ekki þarf að eyða orðum að
áhrifum slíks skipulags á hagkvæmni
veiðanna eða þjónustuna við markað-
inn. Ég minni jafnframt á þau
vandamál sem Evrópubandalagið
stendur frammi fyrir. Fjölmiðlar
skýra frá þeirri ólgu sem nú er í
Danmörku, en þar er miðað við heild-
arkvóta, sem löngu er fylltur, með
tilheyrandi vanda fyrir danskan físk-
iðnað.
Fiskistofnar sameign
þjóðarinnar
Ráðherra vék síðan að frumvarp-
inu um stjóm fiskveiða 1988- 1991
og gerði grein fyrir efnisatriðum, sem
fengið hafa nokkra fréttameðferð.
Fyrsta grein frumvarpsins kveður
á um að „fiskistofnar á íslandsmiðum
eru sameign íslenzku þjóðarinnar"
og að markmið laganna eru að
„stuðla að verndun og hagkvæmri
nýtingu þeirra og tryggja með því
trausta atvinnu og byggð í landinu".
Afli þorsks árið 1981 var um 460
þúsund lestir, sagði ráðherrann, en á
árinu 1983, var afli kominn niður
fyrir 300 þúsund tonn. í ár var miðað
við 350 þúsund tonna afla, en svo
virðist vera sem hann fari yfír 380
þúsund lestir. Miðað við það að sterk-
ustu árgangamir eru tiltölulega
ungur fískur þá er mikilvægt að
draga úr afla á næsta ári, þannig að
ungfískurinn nái meiri þyngd. Þetta
þýðir að tekjur bæði sjávarútvegsins
og samfélagsins í heild minnka á
næsta ári.
Fiskifræðilegar staðreyndir standa
til aflasamdráttar. Það er hinsvegar
ekki hægt að ákveða, hve mikill hann
verður fyrr en fyrir liggur, hvaða
heimildir verða til staðar til veiði-
stjómunar. Ég hefí nefnt tölur eins
og 10% samdrátt í þorskveiðinni.
Finnst mörgum að það sé lágmarks-
samdráttur. Hitt er annað mál að við
verðum að meta jafnframt, hvað við
getum lagt á sjávarútvegsaðila, fólk-
ið sem starfar í sjávarútvegsgreinun-
um og þjóðfélagið í heild.
Ný fiskveiðistefna
Kvennalistans
Danfríður Skarphéðinsdóttir
(Kvl/Vl) hóf mál sitt með því að
gagnrýna fjölmiða, einkum rikisfjöl-
miðla, fyrir það, hve lítt þeir hafí
sagt frá stefnu Samtaka um kvenna-
lista í þessum málaflokki. Hún bar
saman fréttaflutning rikisfjölmiðl-
anna, hljóðvarps og sjónvarps,
annarsvegar þegar Alþýðubandalagið
hafi greint frá sinni fískveiðistefnu,
sem fengið hafí mikið fréttarúm,
hinsvegar þegar Kvennalistinn
AIMHGI
greindi frá sinni stefnu, sem í litlu
hafí verið sinnt. Það virðist jafn erf-
itt og að komast yfír Berlínarmúrinn
að koma sjónarmiðum Kvennalistans
á framfæri, sagði þingmaðurinn.
Þingmaðurinn sagði nauðsynlegt,
þegar framtíðarstefna væri mótuð,
að líta til þess, hvemig núgildandi
stefna hefur reynzt. Hvemig hefur
tekizt að ná þeim markmiðum, sem
að var stefnt? Markmiðin hafí einkum
verið þessi: Vemdun fiskistofna og
hindmn ofveiði, aukin hagkvæmni
veiðanna, bætt meðferð sjávarafla,
hámarksnýtings sjávarfangs, bætt
kjör þeirra sem starfa í sjávarútvegi
og sanngjöm dreifíng atvinnu og arðs
eftir aðstæðum.
Langt er frá því að afli hafí verið
innan settra marka. Samanlagður
umframafli í þorski síðastliðin 4 ár
nemur meir en 360 þúsund tonnum,
eða sem svarar afla heils árs. Hag-
k'væmnimarkmiðið hefur náðst að
hluta til, en lægra olíuverð kemur
þar jafnframt við sögu. Meiri ásókn
í sóknarmark hefur hinsvegar dregið
úr hagkvæmni og hvatt til stækkunar
fískiskipastólsins. Meðferð aflans
hefur batnað með aukinni þekkingu.
Miklum verðmætum er þó kastað á
glæ (lifur o.fl.). Mikið skortir og á
að kjör fólks í fískvinnslu séu orðin
viðunandi. í skjóli kvótakerfis hafa
útgerðaraðilar selt kvóta og skip með
kvóta milli byggðarlaga og hagnast
um stórar íjárhæðir. Fiskveiðistjóm-
unin hefur því alls ekki skilað tilætl-
uðum árangri.
Þingmaðurinn sagði að Kvennalist-
inn hafí stutt núverandi kvótakerfí,
þá upp var tekið. En í ljósi reynslunn-
ar hafí stefna hans verið tekin til
uppstokkunar. Vitnaði hún til greinar
Kristínar Halldórsdóttur, þingmanns,
í Morgunblaðinu 17. nóvember, þar
sem ný stefnumörkun Kvennalistans
er tíunduð.
Meginatriði hinnar nýju stefnu séu:
1) Árlegur heildarafli verði áfram
ákveðinn af sjávarútvegsráðherra, að
fengnum tillögum Hafrannsókna-
stofnunar, 2) Svigrúm verði til að
hækka eða lækka aflamarkið innan
ársins, ef aðstæður krefjast slíks, 3)
80% heildarafla verði skipt milli
byggðarlaga eða útgerðarstaða, með
hliðsjón af lönduðum afla síðustu 5
ár, 4) Vilji viðkomandi byggðarlag
halda sínum hlut, miðað við fyrri ár,
ber því að greiða fyrir það sem á
vantar, 5) gjald byggðarlaga fyrir
fískveiðikvóta miðast við ákveðið
hlutfall af meðalverði á afla upp úr
sjó og renni í sjóð í vörzlu ríkisins,
sem varið verði til ákveðinna verk-
efna (fræðslu, sem nýtist sjávarút-
vegi, fiskvinnsluskóla, símenntunar
fískvinnslufólks, sjómannaskóla og
öryggisfræðslu sjómanna, rannsókna
í þágu sjávarútvegs o.fl.)
Skipamark —
byggðarmark
Skúli Alexandersson (Abl/Vl)
sagði Samtök um kvennalista hafa
verið eina stjómarandstöðuflokkinn
sem studdi núverandi fiskveiðistefnu
þegar hún var mörkuð. Ný stefnu-
mörkun Kvennalistans gangi og þvert
á fískveiðistefnu Alþýðubandalags-
ins. Mér fínnst hugmyndir Kvenna-
listans, sagði Skúli, um að selja
veiðikvóta fráleitar, enda fela þær í
sér þegar grannt er gáð beina skatt-
lagningu á landsbyggðina og á þá
aðila veiða og vinnslu, sem standa
undir tilurð sjávarvörunnar, megin-
uppistöðu útflutningstekna þjóðar-
búsins.
Skúli gagnrýndi hingaðkomu próf-
essors frá Noregi, Rögnvaldar
Hannessonar, til að hafa áhrif á
skoðanamyndun hér, eins og þing-
maðurinn komst að orði. Hann
gagnrýndi og álitsgerðir frá Raunvís-
sóknastofnunar.
Skúli sagði tillögur Hafrannsókna-
stofnunar hafa staðið til 300.000
tonna þorskafla 1987. Sjávarútvegs-
ráðuneytið hafí sett aflamark ársins
við 330.000 tonn. Ljóst er sagði þing-
maðurinn, að aflinn stefnir upp undir
400.000 tonn. Aflinn 1987 verður því
70-100.000 tonn umfram það sem
að var stefnt. Þetta sýnir að kvóta-
kerfíð og veiðistýringin hefur
brugðizt. Þegar ráðherra talar um
að skerða þurfí þorskafla um 10%
milli ára er hann að viðurkenna þetta.
Skúli vitnaði til orða Jakobs Jak-
obssonar, fiskifræðings, á Fiskiþing}.
Hann hafí sagt að aflinn 1988 verði
130 milljónir þorska. Þessar 130
milljónir físka, sem sóttar verði í sjáv-
ardjúp í ár, vegi 380 þúsund tonn.
Jafnmargir þorskar, veiddir við upp-
haf kvótakerfisins, hafí vegið 538
þúsund tonn. Svo mjög hefur fískur-
inn smækkað. Meðalþyngdin er
komin niður í eitt og hálft kíló. Þetta
er hrikaleg mynd, sagði þingmaður-
inn, og sýnir, hve illa fískveiðstjórn-
unin hefur farist okkar.
Loks gerði Skúli grein fyrir breyt-
ingartillögum Alþýðubandalagsins.
Meginefni þeirra er að veiðiheimildir
þorsks verði að Vs úthlutað til útgerð-
ar (á skip, skipamark) en að 2/3 til
byggðarlaga (byggðarmark). Skipa-
hlutinn skal reiknaður út með sama
hætti og reglugerð ákveður nú.
Byggðahlutinn skal reiknaður að V4
út frá úthlutuðu afla- og sóknar-
marki skipa í byggðarlögum eins og
sú úthlutun var að meðaltali árin
1984-86 og að 3/4 út frá úthlutuðu
afla og sóknarmarki skipa í byggðar-
lögunum í árslok 1987.
Skúli kvatti Alþingi til þess að
gefa sér nægan tíma til umfjöllunar
svo mikilvægs máls og vitnaði til
nýlegrar forystugreinar Morgun-
blaðsins í því sambandi.
Umræðunni lauk ekki og framhald
hennar fer væntanlega fram í dag.
Salome Þorkelsdóttir um vegamál á höfuðborgarsvæðinu:
Verkefnið er skilgreint
og drög að framkvæmda-
áætlun liggja fyrir
BENEDIKT Bogason (B.-Rvk.) mælti i sameinuðu þingi á fimmtudag
fynr þingsályktunartillögu um gerð framkvæmdaáætlunar um þjóð-
vegi á höfuðborgarsvæðinu. Salome Þorkelsdóttir sagði þetta verkefni
þegar hafa verið skilgreint og drög að framkvæmdaáætlun liggja
fyrir. Gott væri þó að vita af stuðningi Benedikts þegar fjárútvegun
í þessu skyni yrði tekin fyrir á Alþingi.
Tillaga Benedikts, sem hann flytur
ásamt flórum öðrum þingmönnum
Borgaraflokksins, er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjóm-
inni að láta gera fímm ára fram-
kvæmdaáætlun um stofnbrautir og
þjóðvegi í þéttbýli á höfuðborgar-
svæðinu í samráði við sveitarfélögin
þar. Jafnframt verði gerðar ákveðnar
tillögur um íjármögnun framkvæmd-
anna. Á árinu 1988 verði varið 360
m.kr. í þetta verkefni.
Benedikt sagði þau ánægjulegu
tíðindi hafa gerst, síðan þessi tillaga
hefði verið lögð fram, að samgöngu-
ráðherra hefði sýnt snörp viðbrögð
og birt áfangaskýrslu 2 frá nefnd sem
hefði þessi mál með höndum og kom-
ið með tillögu í ríkisstjóm um að
auka fé í vegasjóð um 300 m.kr.
Salome Þorkelsdóttir (S.-Rn.)
sagði þessa tillögu fjalla um þarft
málefni og brýnt. Varðandi fyrra at-
riðið sem hún íjallar um væri þess
að geta að undanfarið hefði mikið
verið unnið í áætlanagerð um vega-
kerfí höfuðborgarsvæðisins og þessi
vinna hefði verið í höndum Vegagerð-
ar ríkisins, sveitarfélaga á svæðinu
og samtaka þeirra. Uttektir hefðu
verið gerðar og settar fram spár um
þróun byggðar, ítjúafjölda, bílaeignar
og umferðar. Nú síðast hefði vinnu-
hópur sem Vegagerðin kom á fyrir
nokkrum árum með þátttöku borgar-
verkfræðingsins í Reykjavík og
bæjarverkfræðingsins í Kópavogi,
sent frá sér Áfangaskýrslu 2. Þar
væri að finna drög að framkvæmdaá-
ætlun fyrir þjóðvegi og þjóðvegi í
þéttbýli á höfiiðborgarsvaeðinu fyrir
næstu fímm ár eða til ársins 1992.
Skýrslan hefði verið send öllum
þingmönnum ásamt sérstöku hefti
Vegamála, fréttabréfí Vegagerðar
ríkisins, sem helgað væri vegum og
umferð á höfuðborgarsvæðinu, svo
og erindi Matthíasar Á. Mathiesen,
samgöngumálaráðherra, um þessi
mál sem hann hélt á aðalfundi Sam-
taka sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu 14. nóv. sl. Það mætti því
segja að það hefðu verið nokkuð fljót-
virk og snögg viðbrögð af hálfu
ráðherrans ef framlagning hans á
öllum þessum gögnum, ræðan, 14.
nóv. og uppsetning á sýningunni í
Kringlunni væri allt tilkomið vegna
flutnings þessarar tillögu. Salome
sagði að menn ættu frekar að hafa
það sem sannara reynist og segj i að
þetta hafi verið skemmtilegtilviljv.n.
Að því er varðar siðara atriði tillög-
unnar, þ.e. flármögnun framkvæmla,
sagði Salome að í vegaáætlun fyrir
árið 1988 væru um 70 milljónir til
þjóðvega á höfuðborgarsvæðinu og
um 80 milljónir til þjóðvega í þétt-
býli. Svipað fjármagn færi til þessara
verkefna 1989 og 1990 og væri þetta
haft til hliðsjónar vantaði um 80 millj-
ónir króna til þjóðvega á ári og um
160 milljónir kr. til þjóðvega f þétt-
býli til að ljúka þeim verkefnum sem
vinnuhópurinn teldi nauðsynleg. Hér
væri um mikið fjármagn að ræða,
en vegna þess hve verkefnið væri
brýnt yrði að leggja áherslu á að fjár-
mögnun þess yrði leyst f tengslum
við endurskoðun vegaáætlunar vetur-
inn 1988-1989.
Samgönguráðherra hefði lagt til í
ríkisstjóminni, án þess að þingsálykt-
unartillagan hafí verið komin fram,
að auka ráðstöfunarfé Vegasjóðs
1988 um 300 milljónir, með það í
huga að fé þessu yrði m.a. varið ti!
vegagerðar á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta fjármagn yrði fengið með því
að fullnýta markaða tekjustofna til
vegagerðar 1987 og 1988 og kæmi
til skiptingar á Alþingi eins og annað
fjármagn til vegagerðar. Þetta hlyti
að teljast eðlileg leið til að auka fjár-
magn til vegagerðar árið 1988, þar
á meðal til að taka fyrsta skrefið í
átaki til úrbóta á höfuðborgarsvæð-
inu.
Salome sagði að af því sem hér
hefði verið rakið væri ljóst að verkef-
nið hefði verið skilgreint f stórum
þáttum og að drög að framkvæmdaá-
ætlun lægju fyrir. Verkefnið væri
stórt og kostaði mikið fé. Fjárútvegun
f þessu skyni yrði verkefni Alþingis
á næstunni og það hlyti að vera styrk-
ur að vita af áhuga flutningsmanns
á þessu málefni.
Sjá einnig umfjöllun um þing-
mál á bls. 50.