Morgunblaðið - 08.12.1987, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
53
felst ekkert mat á gæðum náms í
arkitektúr og byggingafræðum í
dómi bæjarþings og Hæstaréttar,
sem kunngerður var um daginn.
Dómurinn þýðir hins vegar í raun,
að byggingafræðingar hafa ennþá
sama rétt og arkitektar til þess að
vinna að öllum hönnunarverkefn-
um. En dómstólar hafa heldur ekki
einskorðað réttinn til þess að skila
aðalteikningum til bygginganefnda
við þessa tvo starfshópa. Sömu rétt-
indi hljóta að sönnu að gilda fyrir
þær stéttir, sem þessi réttindi höfðu
fyrir gildistöku byggingarreglu-
gerðarinnar frá 1979, sem sé einnig
verkfræðinga og tæknifræðinga, að
því tilskyldu að viðkomandi hafi
tveggja ára starfsreynslu á því
sviði, sem hann sækir um leyfi hjá
félagsmálaráðherra til að starfa á.
Byggingareglugerðin frá 1979
hafði sem sagt enga breytingu í för
með sér í þessum efnum og orðin
„hver á sínu sviði“ eru opinberlega
dæmd markleysa. Samkvæmt þessu
fengi varla nokkuð stöðvað t.d.
arkitekt að hanna og standa ábyrg-
ur fyrir burðarþols- eða lagnateikn-
ingum, hafí hann starfað við slíka
hönnun á verkfræðistofu eftir arki-
tektúrnám, þó að aðeins lítillega sé
komið inn á þessi mál í arkitekt-
úmáminu. Er þetta eðlilegt? Ljóst
er, að dómsniðurstaðan í máli arki-
tekta leiðir greinilega í ljós mikla
veilu í kerfínu. Ætli menn að við-
halda því löggildingakerfi í hönnun-
armálum sem við höfum búið við
um langt skeið, verður að taka á
þeim vanda, serú felst í starfsmati.
I gildandi kerfí felst ákveðin trygg-
ing fyrir neytendurna; byggjand-
ann, sem leggur fé sitt í
framkvæmdirnar og þá, sem lifa í
því umhverfí, sem hönnuðir eiga
þátt í að móta. Lögfræðingar veita
viðskiptamönnum sínum ákveðna
'tryggingu með því að takmarka
málflutningsréttindi við lögfræði-
menntað fólk með tilskilinn starfs-
aldur, og svipað er um ýmsar aðrar
stéttir að segja, lækna, endurskoð:
endur, trésmiði, múrara o.fl. í
nýútkominni bók sinni telur harð-
skeyttur lögfræðingur bygginga-
fræðinga að Hæstiréttur sé vilhallur
undir ríkisvaldið. í því ljósi getur
ekki talizt nema eðlilegt að Arki-
tektafélagið hafi tapað máli sínu
gegn félagsráðherra. Hinu er ekki
að leyna að mörgum, sem gera
kröfu til réttláts stjómkerfis, urðu
niðurstöður dómsins mikil von-
brigði.
Höfundur er arkitekt og var for-
maður Arkitektafélags íslands
1982-1984.
• • ••
Qm og Orlyg-
ur gefur út
barnaplötu
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örl-
ygur hefur gefið út plötuna Ég
ætla að syngja með Magnúsi
Þór Sigmundssyni.
Flytjendur auk Magnúsar em
Pálmi Gunnarsson, Jón Ólafsson
(Bítlavinafélagið) og tíu stúlkur
úr kór Verslunarskólans. Hljóð-
færaleikarar em Pálmi Gunnars-
son á bassa, Jón Ólafsson á
hljómborð, Rafn Jónsson á tromm-
ur og slagverk, Þorsteinn Magnús-
son og Amar Sigurbjömsson á
gítar, Helgi Guðmundsson á
munnhörpu. Jóhann Helgason að-
stoðaði við raddir. Platan var tekin
upp í Glaðheimum og hljóðblönduð
með stafrænni tækni en unnin að
öðm leyti í Bretlandi.
Lögin á plötunni em: Ein sit ég
og sauma, Ein stutt og ein löng,
Skóarakvæði, Foli fótlipri, Út um
mó, Mamma borgar, Bíum, bíum
bambaló, Úllen dúllen doff, Ég
ætla að syngja, Vatnið, Kökurnar
hennar Gerðu, Kalli átti káta mús
og Fingraþula.
Plötunni fylgir textablað og em
á því gítargrip.
Máimsmíði í gnmnskóla
- Bækur______________________
Bjarni Ólafsson
Höfundur: Gunnar Ó. Jónsson.
Teikningar eftir Búa Kristjáns-
son. Ljósmyndir eftir Árna
Árnason. Utgefandi: Náms-
gagnastofnun, 1987.
Það hlýtur að vekja ánægju þeim
er vilja smíða, þegar bók kemur út
á því sviði. Fáir smiðir skrifa bækur.
Sennilega mun liggja eðlileg rót
að baki því. Þeir sem vinna í hörð
efni, tjá hug sinn og sköpunarverk
í málma, tré eða önnur viðlíka efni,
fást sjaldnar við að skrifa. Kennsla
á þeim sviðum fer öðmvísi fram en
t.d. kennsla í málnotkun, stærð-
fræði eða bókmenntum. Þannig
hefur þetta verið frá örófi alda og
ég sé ekki ávinning við að breyta
því.
Hinu ber að fagna að bók um
smíðar kemur út, því samhliða verk-
legri kennslu er gott að hafa bækur
um efni og aðgerðir. Ég óska höf-
undinum til hamingju með bókina.
í stuttum formála fylgir höfund-
ur bókinni úr hlaði og segir þar
meðal annars: „Með útgáfu á þessu
hefti er ætlunin að afmarka helstu
verkþætti í málmsmíði þannig að
bæði nemendur og kennarar geti
flett upp ákveðnum verkþáttum sér
til glöggvunar. Reynt er að forðast
smáatriði en fjallað um aðalatriði
hveiju sinni.“ Hér drepur höfundur
vissulega niður á aðalatriði í
kennslu og rituðu máli. Mér finnst
mál bókarinnar stundum stytt
fullmikið svo að full not verði af
því sem verið er að útskýra. Það
kann að stafa af því að höfundur
hafí fyrst og fremst ætlað bókina
til notkunar fyrir kennara, sem
kunna aðferðir og verkþætti sem
um er fjallað, en lesendahópur bók-
Höfundur er smiðakennari.
arinnar mundi stækka að mun, ef
verkkennslan væri nákvæmari og
meiri. Tökum t.d. 1. VÍR, um helstu
vinnuaðferðir, þar sem sagt er að
vír skuli beygður og fonnaður í
myndir, en hvemig? Sama er að
segja um keðjur og hringi, þar tel
ég vanta fyllri útskýringu en þá sem
kemur í skýringarmyndunum og
þáttunum þar um. Svona má lesa
bókina áfram. Að hluta til má fella
þennan þátt, sem ég geri hér að
umræðuefni undir áherslumun f
kennslu. Vona ég þó að þetta verði
Iagað t.d. í næstu útgáfu svona
bókar. Skýringarteikningar mættu
einnig vera fleiri og stöku sinnum
má sjá að teiknarinn gerir sér tæp-
_ast grein fyrir hvað þarf að koma
fram, en það hefði stundum mátt
laga með fyllri rituðum skýringum.
í heild er bókin áferðargóð og
vona ég að henni verði það vel tek-
ið, að framhald geti orðið á útgáfu
slíkra bóka.
Mekkanó er þroskandi leikfang, sem reynir á huga og
hönd. Það ýtir undir hugmyndaflug og sköpunargáfu og
er þvi kjörið fyrir börn á öllum aldri.
Mekkanó ertil I mörgum stærðum og gerðum. Verð frá
kr. 630.-. Póstsendum.
Verölaunabókin
LEÐURJAKKAR
OG SPARISKÓR
• — bráösmellin og
spennandi saga.
Bókin sem hlaut hæstu
rölaun sem veitt hafa
verið í samkeppni um
barna- og
unglingaskáldsögur
hérlendis.
an snýst um daglegt
amstur og ástarskot
nemenda í 8. H —
glettin og gáskafull —
þangað til aö Sindbað
sæfari kemur til
sögunnar. — Þá æsist
j leikurinn heldur betur
og ótrúlegur háski vofir
yfir aöalsöguhetjunni....
ÆSKAN
Sími 1 73 36
CtNTHC RCOI