Morgunblaðið - 08.12.1987, Síða 58
M'ír. íŒPHsran .p Ptií/.a'jicoM r-ipA.wwtroww
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
Magna Magnúsdóttir nýráðinn
-j^ððvarstjóri Pósts og síma á
Hvammsnga.
Hvammstangi:
Nýr stöðv-
arstjóri
MAGNA Magnúsdóttir hefur verið
ráðin stöðvarstjóri Pósts og síma
á Hvammstanga frá 1. nóvember
sfðastliðnum.
Magna hefur unnið við stofnunina
hér í. 13 ár og hefur oft gengt starfi
stöðvarstjóra í afleysingu. Starfs-
menn á pósthúsinu eru 5, en alls
vinna 10—12 manns á vegum stofn-
unarinnar í héraðinu. Símstöðin er
600 lína, en nú þegar eru 526 línur
í notkun. Stofnunin er allvel búin
tækjum og það nýjasta, Telefax, er
verið að taka í notkun. Með því er
hægt að senda ljósrit í gegnum
símalínu. _ Karl.
NILFISK GS 90 ^QniX
engín venjuleq ryksucja hatúni6a simioi)2442o
NILFISK
DÖNSK GÆÐI
Framtíðarryksugan sem þolir allan samanburð.
Síung og spræk, löngu eftir að aðrar hafa gefist
upp.
Aðeins 6 kg á svifléttum hjólabúnaði. 10 lítra poki
og frábær ryksíun. Nýlegar hollusturannsóknir
leiddu í Ijós, að flestar ryksugur rykmenga loftið, en
ekki Nilfisk. kr. 12.996,-stgr.
Nilfisk er gegnumvönduð og tæknilega ósvikin,
gerð til að vinna sitt verk, fljótt og vel, ár eftir ár,
með lágmarks truflunum og tilkostnaði.
Góðir skilmálar Traust þjónusta
Morgunblaðið/Þorkell
Fulltrúar Alþýðubandalagsins kynna fiskveiðistefnu flokksins á fundi með fréttamönnum. Frá vinstri
eru Bjargey Einarsdóttir ritari flokksins, Svanfríður Jónasdóttir varaformaður, Ólafur Ragnar Grímsson
formaður, Steingrímur Sigfússon formaður þingflokks, Hjörleifur Guttormsson alþingismaður og Skúli
Alexandersson alþingismaður.
Fiskveiðistefna Alþýðubandalagsins:
Fiskveiðikvótinn
verði að mestu bund-
inn við byggðarlög
Flokkurinn leggur fram frumvarp um stjórnun fiskveiða
MIÐSTJÓRN Alþýðubandalags-
ins samþykkti á fundi um helgina
nýja fiskveðistefnu flokksins og
mun flokkurinn leggja fram á
Alþingi frumvarp um stjórnun
fiskveiða byggt á henni. Þar er
gert ráð fyrir að fiskveiðikvóti
sé að mestu leyti bundinn við
byggðarlög en ekki skip og fylgi
ekki skipum við sölu úr byggðar-
lagi. Þá er gert ráð fyrir að 10%
heildaraflans verði úthlutað í því
skyni að trygga aðgang nýrra
rekstraraðila, leiðrétta hag ein-
stakra byggðarlaga og gera
tilraunir með nýjar stjórnunar-
aðferðir.
í frumvarpsdrögunum, sem
kynnt voru fréttamönnum um helg-
ina, er fyrst tekið fram að sjávar-
auðlindir séu sameign þjóðarinnar.
Síðan eru mótaðar reglur um veiði-
heimildir og er þar gert ráð fyrir
að °/2 hlutum þeirra sé úthlutað til
byggðarlaga og skuli fjórðungur
þessa byggðakvóta reiknaður út frá
úthlutuðu afla- og sóknarmarki
skipa í byggðarlögunum, eins og
sú úthlutun var að meðaltali árin
1984-85. 3/4 hlutar séu reiknaðir
út frá úthlutuðu afla- og sóknar-
marki skipa í byggðarlögum árið
1987.
Gert er ráð fyrir að ‘/3 hluta
veiðiheimilda verði úthlutað á skip
með sama hætti og ákveðið var í
reglugerð 1987. Eftir að byggðak-
vóti hefur verið reiknaður út skal
honum deilt á milli þeirra skipa sem
fá kvóta úthlutað í viðkomandi
byggðarlagi í hlutfalli við veiðiheim-
ildir þeirra. Við sölu skipa úr
byggðarlagi fylgi þeim einungis sá
hluti aflakvóta sem úthlutað var til
útgerðar.
Tekið er fram í frumvarpsdrög-
unum að kerfið þurfi að vera opið
og sveigjanlegt í stað lokaðrar mið-
stýringar. Nýir rekstraraðilar verði
að geta haslað sér völl við útgerð
og fiskvinnslu, kerfíð þurfí að taka
mið af breyttum aðstæðum í hinum
ýmsu byggðarlögum og búa yfir
getu til að leiðrétta hlut þeirra
byggðarlaga sem eigi undir högg
að sækja í atkvinnumálum. Einnig
sé nauðsynlegt að opna á næstu
árum fyrir tilraunir með nýjar að-
ferðir til að ákveða veiðiheimildir
og stýra sókn í fiskistofna. Til að
tryggja þennan sveigjanleika skuli
undirbúið að heimila í framtíðinni
úthlutun á allt að 10% heildaraflans
til að ná fram þessum markmiðum.
í drögunum er gert ráð fyrir að
veiðiheimildir smábáta verði með
svipuðu sniði og verið hefur en
fjölgun smábáta verði stöðvuð.
Akveðið verði útflutningsgjald á
óunninn fisk sem komi að einhverju
eða öllu leyti í stað þeirra skerðing-
arákvæða sem í gildi hafa verið.
Þá sé stefnt að því að innan fárra
ári verði hægt að veiða 400-450
þúsund tonn af þorski á ári.
Ólafur Ragnar Grímsson formað-
ur Alþýðubandalagsins sagði að
með þessu væri flokkurinn að setja
fram annan valkost við frumvarp
sjávarútvegsráðherra, sem tryggði
eðlilega þróun og sveigjanleik aum
leið og þessar hugmyndir væru ein-
faldar í undirbúningi og fram-
kvæmd.
Gönguskórnir frá Scarpa eru
bæöi traustir og þægilegir.
Fyrir stuttar sem langar göngu-
ferðir, á jafnsléttu sem um fjöll
og firnindi. Hjá Skátabúðinni
færðu aðstoð við val á þeim
skóm er hentá þínum þörfum.
Ráöleggingar okkar eru byggð-
ar á reynslu.
Skátabúðin — skarar framúr.
Snorrabraut 60 sími 12045
vaka-híuuhu
Bók eftir
Victoríu Holt
VAKA-HELGAFELL hefur sent
frá sér nýja skáldsögu, Arfur
fortíðar, eftir Victoríu Holt.
_ í kynningu útgefanda segir m.a.:
„í Arfi fortíðar er sögð saga Kar-
ólínu Tressidor sem er ung stúlka
af góðum ættum, fögur og rík með
gulltryggða framtíð. Allt í einu
flækist hún óafvitandi inn í leyndar-
dómsfulla atburði sem gjörbreyta
lífí hennar. Til að komast að hinu
sanna verður Karólína að setja sig
upp á móti ströngum siðavenjum
og því lífi sem henni var ætlað að
lifa. Loks hittir hún unga mann,
Paul Landower, sem virðist vera
lykillinn að sannleikanum. En fortíð
hans er öllum hulin og í ljós kemur
að ekki er allt með felldu."
Arfur fortíðar er 356 bls., prent-
uð í Prentstofu G. Benediktssonar
og bundin í Bókfelli hf.