Morgunblaðið - 08.12.1987, Qupperneq 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
Stjörnu
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri Gunnlaugur. Mig
langar að fræðast svolítið
um stöðu tungla og hvemig
starf myndi henta mér best
o.fl. Ég er Tvíburi, fædd 18.
júní 1965 um 2.30 að degi
til á Kambanesi við Stöðvar-
fjörð. Kærar þakkir."
Svar:
Þú hefur S61 og Júpíter í
Tvíbura, Tungl í Vatnsbera,
Merkúr, Venus og Miðhimin
( Krabba, Mars ( Meyju og
Vog Rísandi.
Venus
Tvennt vekur strax athygli
við kort þitt. Það er að þrír
aðalþættimir, Sól, Tungl og
Rísandi, eru allir í loftmerkj-
um og að Venus er á
Miðhimni.
Félagsmál
Venus á Miðhimni getur
táknað tvennt. Anhars veg-
ar störf að listum og
fegrunarmálum og hins veg-
ar félagsmálaþörf. Þar sem
þinn Venus er í Krabba má
einnig bæta við að þessi
störf þurfa að vera hagnýt,
þ.e. tengjast undirstöðuat-
vinnuvegum, því að fæða,
klæða, hýsa og ala önn fyr-
ir fólki, að hjálpa öðrum.
Fjölbreytileiki
Loftmerkin, Tvíburi, Vog og
Vatnsberi aftur á móti, hafa
með félagsstörf að gera, em
merki miðlunar og sam-
vinnu. Það er því Ijóst,
vegna þessara tveggja þátta
að þér feltur best að vinna
þar sem margt fólk er (
umhverfinu og þar sem þú
ert Tvfburi við fjölbreytileg
og hreyfanleg störf. Ef þessi
störf gætu siðan tengst
fegrunarmálum á einhvem
hátt, þeim mun betra.
Hótelstörf
Þar sem Sól þín er f 9. húsi
ferðalaga þá dettur mér i
hug að störf að ferðamálum
og þá sérstaklega hótelmál-
um gætu átt ágætlega við
Þ«-
Duglegog
vingjarnleg
Vog Rísandi táknar að þú
hefur ljúfa og þægilega
framkomu, ert vingjamleg
og friðsöm ( garð fólks, og
ágætur diplómat. Mars f
Meyju táknar að þú ert dug-
leg og jarðbundin í athöfn-
um, ert samviskusöm og
nákvæm i vinnu.
Feimin
Það sem þú þyrftir helst að
yfirvinna er hugsanleg
feimni f Krabbanum. Venus
f Krabba á til ( sér ákveðna
hlédrægni sem gæti hugs-
anlega lokað á hin merkin
og þýtt að þú nærð ekki
eins góðu sambandi við ann-
að fólk og þú hefðir kosið
og þarft á að halda.
Tungumálanám gæti t.d.
verið gefandi fyrir þig.
Listir
Auk framangreinds gæti
listnám átt ágætlega við þig
svo framarlega sem það er
ekki félagslega einangrandi.
Ár breytinga
Úranus er núna þessa daga
og á næsta ári í mótstöðu
við Sól þína. Það táknar að
nú eiga sér stað miklar
breytingar í lífí þínu og að
næsta ár verður spennandi
og mun einkennast af
óvæntum atburðum..
eirTHMB Hefc/R KOavÐ
KÓV 'A VÖHB/HU OHKAR-
A7HU6A&U HAiHVMA, .
rGEITUNGUR..
GerrvNGuR. 1
FORINGh r
\sjA£x/Hvað j
1 ÖS FANN/
\P/UE£.L? \ \
í SN OAPUR \ ,
' t-ssr far&j '
AIlBHAHN ]
' AF7U& NAwhH'
1 skipa, /vurr.
\AÐ HLVDA, '
/rtuauneNNi
GARPUR
BS tcANNAST EKKt VtO GB/7U/JG, EK/
PE.TTA ee C2EJMSJC/DF/ZA HÖ/SKUHEí/H/t
HVAÐ V/LL HARfXTAXL HINN /LU ;'FO/e~
Ti'D/KIN/ ?
SMÁFÓLK
„Vortónleikar smá-
krakka" ... mér er mein-
illa við að vera kölluð
„smákrakki"!
Þarna kemur stjórnand-
inn... sá er illilegur,
fiimst þér það ekki?
Jú, satt er það. Hann Htur
næstum út fyrir að vera
reiður.
PETER ANP THE U)0LF
ARE 60IN6T0
6ET IT TOPAY!
Pétur og úlfurinn fá ær-
lega á baukinn í dag.
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Spennandi leikur í bikar-
keppni Reykjavíkur fór fram
síastliðinn sunnudag milli sveita
Verðbréfamarkaðs Iðnaðar-
bankans (Öm Amþórsson) og
Polaris (Karl Sigurhjartarson).
Spilaðar vom fjórar 10 spila lot-
ur og átti Polaris 21 IMPa til
góða þegar menn tóku til við
síðustu tíu spilin. Öm og félagar
söxuðu forskotið niður um 14
IMPa strax í öðm spili lotunnar:
Austur gefur; NS á hættu.
Vestur
♦ 107543
VÁ74
♦ 3
♦ G1072
Norður
♦ G2
♦ D10632
♦ 1065
♦ 985
Austur
♦ -
♦ KG98
♦ G984
♦ ÁD643
Suður
♦ ÁKD986
♦ 5
♦ ÁKD76
♦ K
I opna salnum sátu Simon
Símonarson og Guðm. Páll Am-
arson í sveit Polaris í NS, en
Öm og Guðlaugur R. Jóhanns-
son í AV. Sagnir tóku fljótt af,
Guðlaugur í austur vakti á ein-
um tígli, Guðmundur í suður
stökk f fjóra spaða sem Öm
doblaði. Og allir pass.
Öm fann ágætt útspil, hjarta-
ás. Guðlaugur kallaði með níunni
og Öm spilaði hjartasjöunni í
næsta slag. Lítið úr blindum,
átta frá Guðlaugi og trompað.
Eftir þessa byrjun var orðið dag-
ljóst að austur hafði byijað með
KG98 í hjarta. Og þar sem opn-
un hans var greinilega punktar-
ýr, hlaut skiptingin að vera þeim
mun meiri. Auk þess var dobl
vesturs varla réttlætanlegt nema
á fimmlit i trompi. Því svínaði
dálkahöfundur spaðaniunni í
næsta slag. Tók svo spaðagosa,
og fór heim á tigulás til að taka
trompin.
Austur var nú upptalinn með
skiptinguna 0-4-4-5, svo undir-
ritaður sætti sig við að fara
hljóðlega einn niður. Var ekki
nógu vakandi fyrir vandræðum
austurs í spilinu. Guðlaugur
hafði nefnilega kosið að halda
eftir ÁD í laufi ásamt tíglunum.
Og með því að spila laufkóng í
lokastöðunni fengi Guðlaugur
þar tvo slagi, en yrði síðan að
spila frá tígulgosanum. Hjartað
var nú orðið fritt í blindum, svo
ekki var heldur hægt að veijast
með því að spila gosanum og
setja tappa í tígullitinn.
Á hinu borðinu spilaði Ás-
mundur Pálsson einnig fjóra
spaða doblaða. Sævar Þor-
bjömsson í austur doblaði á einu
eðlilegu laufí, Ásmundur doblaði
og Karl sagði spaða á tíuna
fimmtu! Jón Ásbjömsson í norð-
ur passaði, Sævar breytti í tvö
lauf, og Ásmundur stökk í fjóra
spaða. Karl spilaði út laufgosa,
sem Sævar taldi að væri frá
tvíspili, svo hann dúkkaði til að
halda samgangnum opnum. Þar
með fékk Ásmundur bæði slag
og tempó, svo spilið vannst.
Þrátt fyrir þetta spil hélLPol-
aris fengnum hlut að mestu, og
vann leikinn með 14 IMPa mun.
V^terkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!