Morgunblaðið - 08.12.1987, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
63
Hollenskur sóðaskapur
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Flodder (The Flodders). Sýnd í
Bióborginni. Stjörnugjöf: '/2
Hollensk. Leikstjóri, handrits-
höfundur, annar framleiðandi og
höfundur tónlistar: Dick Maas.
Ef hollensk fyndni er almennt eitt-
hvað í líkingu við þau ósköp sem
Hollendingnum Dick Maas fínnst
fyndið þá eru Hollendingar hreinlega
vanþróaðir.
Dick Maas er ófyndnasti grínari
sem til er. Stfllir.n hans, ef marka
má myndina Flodders, sem sýnd er
í Bíóborginni, byggist á sóðalegum,
og oft sjúklegum hugmyndum en það
er ekki til snefill af fyndni í þeim.
Maas er eins og þriggja ára krakki
sem er nýbúinn að fatta að kúkur
og piss eru orð sem ljótt er að söngla
en fínnst það fyndið af því hann veit
ekki betur.
Að hveiju maðúr á yfirleitt að
hlæja í þessari „gamanmynd“ er
manni gersamlega hulið. A maður
að hlæja þegar afi gamli festir sig í
hjólastólnum á lestarsporum og svo
kemur lest á harðaspani og drepur
hann? Á maður að hlæja að því þeg-
ar systkynin í Flodder-fjölskyldunni
eru alltaf að gera það? Hvað er fynd-
ið við þessa gamanmynd? Ekki er það
ódýrt klámið, ekki viðbjóðslegt Flodd-
er-hyskið þótt Dick Maas sé sjálfsagt
enn að dást að því hvað hann hafí
verið hugmyndaríkur og sniðugur
þegar hann dró upp hina sóðalegu
mynd af því.
Það er ekki hægt að ímynda sér
að nokkur annar geri það.
Hún er „döbbuð" á ensku.
Flodder-hyskið; sóðalegt og ófyndið.
Martin Kove illskeyttur í hlut-
verki John Steele i myndinni
Réttur hins sterka.
GAMLA
SAGAN
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Réttur hins sterka (Steele Justice).
Sýnd í Regnboganum. Stjömugjöf:
★ .
Bandarísk. Leikstjóri og handrits-
höfundur: Robert Boris. Aðalhlut-
verk: Martin Kove.
John Steele (Martin Kove) er svona
hetja úr Víetnamstríðinu sem hefði
getað unnið það sjálfur með svolítilli
heppni. En þegar stríðinu likur leggst
hann í eymd og volæði vegna þess
að hann getur ekki lagað sig að hvers-
dagsleikanum heima í Bandaríkjun-
um. Það er ekki fyrr en hann lendir
í n.k. eftirmála stríðsins í baráttu við
illskeytta mafíu Víetnama í Los
Angeles að hann hristir af sér slenið,
lifnar við og kemst í gamla stríðsham-
inn.
Það er varla til sú B-mynda hetja
nú til dags sem ekki var í Víetnamst-
ríðinu á einum eða öðrum tíma. Allar
eiga þær glæsta fortíð í stríðinu en
flestum líður þeim illa í nútímanum
af því þær hafa ekki lagað sig að
friðsamlegu lífemi. Þessi örlög em
notuð aftur og aftur og aftur í bæði
ódýmm og illa gerðum og rándýmm
og vel gerðum hasarmyndum.
Martin Kove er nýjasti liðsmaður
hetjuhersins. Hann leikur John Steele
í hasarmyndinni Réttur hins sterka
(Steele Justice), sem sýnd er í Regn-
boganum, en það er einmitt ein af
þessum ósigrandi-víetnamhetjan-
ber-á-bófunum myndgerð af litlu viti
en með miklum látum. Ofbeldi,
skothríð og sprengingar vantar ekki
en það er aftur lítið eða ekkert af
einhveiju sem hugsanlega væri hægt
að kalla spennu. Og eins og við mátti
búast fetar leikstjórinn, Robert Boris,
margtroðnar lendur meðalmennsk-
unnar. Einasta tilraun hans til að
breyta útaf vananum verður að hal-
lærislegu og algerlega tilefnislausu
söng- og dansatriði í miðri myndinni.
Martin Kove hefur helst unnið sér
það til frægðar að leika aukahlutverk
í lögguþáttunum „Cagney og Lacey"
og er þá spaugsamur glaumgosi með
breiða vöðva og enn breiðara bros.
Hann er nákvæmlega eins í mynd-
inni. Og verður líklega nákvæmlega
eins í sinni næstu.
Ronnie Cox er í aukahlutverki lög-
regluforingja (hvenær er hann það
ekki) og gerir gott úr sínu.
EIGIN
-V. - ■-
ST1LL
ÞINN EIGIN STÍLL er
handbók þeirra kvenna,
sem vilja klæðast að vild
sinni í takt yið tímann
hverju sinni, en kjósa
samt að vera óháðar
duttluntjum einstakra
tískusveiflna. Bókin er
aetluð konunni sem vill
fræðast meira um
klæðnað, klæðstíla,
förðun og fleira.
Ás d í s Loftsdóttir
fatahönnuður þýddi og
staðfærði.
GJÖF SEM GAGN ER AÐ
Fiölsýn Forlag
bsara rvemp: „tsoKin nerur Kosti tu ao
bera sem geta gert hana aö vini
hverrar konu, semvflrsKapaser
sjairstæban stn.
unnur /\rngrimsaottir: „nver Karn
getur gööa heildarmynd ar hverjum
stíl 1-yrir sig. Sértu óviss meö þinn
eigin stil Dá er þessi bök tuvaiin rynr
rvristjana ueirsaottir: „i-raoær dok.
I'ilvalin tyrir Konur a óllum aldri.
TTmaEæ^-aS-Tslenskar konur fái
slikan valkost*"TSSOSM
sit oigrusaottir: „petta er dok ryrir
alla aldurshópa. Kostur hennar er
fyrst og tremst sá að hann getur
hugmyndatluginu byr undir Daöa
vængi.