Morgunblaðið - 08.12.1987, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
71
SAMANBUROUR Á PÁTTTÖKU ATVINNULÍFSINS í FJÁRMÖGNUN
OG FRAMKV£MD RANNSÓKNA INNAN OECD ÁRIO 1983
BANDARIKIN
BRETLAND
FRAKKLAND
JAPAN
V-ÞYSKALAND
HOLLAND
KANADA
DANMORK
FINNLAND
NOREGUR
SVIÞJOÐ
ISLAND
FJARMOGNUN (_____L.
1 1
l l I
H| FRAMKV4EMO
0 10 20 30 40 30 60 70 80 90 100%
HIUTFALL
í haginn fyrir þjóðmenningu okkar
íslendinga að hún blómgist og
dafni. Lífskjör eru ekki einungis
efnaleg afkoma. Lífskjör eru einnig
menningarlíf, vísindi og menntir.
Tilkall okkar íslendinga til sjálf-
stæðis byggðist öðru fremur á
tungu okkar og bókmenntaafrek-
um. En hver eru tilvistarrök þjóðar-
innar ef hún hættir að skapa
menningarleg verðmæti? Gullöld
íslendinga er að sönnu glæst, en
þjóðin lifir ekki á fomri frægð einni
saman.
Okkur íslendingum er anrit um
stöðu okkar meðal þjóðanna. Við
viljum ekki vera þiggjendur á öllum
sviðum heldur einnig veitendur í
þeim efnum sem við höfum sérstak-
ar aðstæður til. í menningu og
vísindum þekkjast engin landa-
mæri. Kröfur á því sviði eru al-
þjóðlegar. íslensk menning er okkur
bakhjarl vegna þess að hún rís upp
úr. Sama á að gilda um vísindin.
íslensk vísindi standa ekki undir
nafni nema í þeim felist framlag
til alþjóðlegrar þekkingar. Er það
ofætlan að íslendingum takist að
leggja sitt af mörkum í samfélagi
þjóðanna á sviði vísinda, lista og
mennta? Þjóðlegur metnaður kallar
á að við sækjum fram, sköpum og
gerum okkur gildandi. Það er
lífsnauðsyn að slíkri starfsemi verði
búin sem best skilyrði í landi okk-
ar, enda blasir við stöðnun að öðrum
kosti. Fyrir utan þá sem starfa hér
heima eigum við íslendingar afreks-
menn á sviði vísinda og mennta sem
starfa í öðrum löndum. Allir vinna
þeir þjóð sinni, en ákjósanlegt væri
að sem flestir hefðu skilyrði til að
starfa hér á landi og að því verður
að vinna.“
Þessi fyrirheit lofa einnig góðu.
Það er hverri þjóð nauðsynlegt að
eiga sér stjómvöld sem endurspegla
vilja hennar. Ekki er síður mikil-
vægt að þjóðin veiti stjórnvöldum
sínum aðhald.
Það er okkar hlutverk að sjá til
þess að staðið verði við gefín loforð
og fyrirætlanirT
Vísindamenn hafa verið alltof
hógværir og lágværir. Þeir hafa
einnig haft of lítil tengsl bæði við
stjómvöld og almenning. Þeim ber
skylda til að láta meira í sér heyra.
Heimildir:
1) Skýrsla til Alþingia um rannsóknir og
þróunarstarfsemi á íslandi. Menntamála-
ráðuneytið. Febrúar 1987.
2) Efnahags- og framfarastofnunin.
Menntamálanefnd: Skýrsla um mennta-
stefnu á íslandi. Menntamálaráðuneytið
1987.
3) Efnahags- og framfarastofnunin. Fund-
ur ráðherranefndar um mótum stefnu á
sviði vísinda og tœkni.
a) Framlag visinda og tœkni til hagvaxtar
og félagslegrar þróunar. Umrœðuskjal okt.
1987.
b) Yfirlitsgrein. Stefna í málefnum vísinda
og tœkni, horfur 1987.
Höfundur er þingkona. Kvennalist-
ans.
Selfoss:
Nú geta allir
slípað gólf
SelfOBSÍ.
VERSLUNIN G.Á. Böðvarsson
á Selfossi býður Sunnlending-
um upp á það að leigja sér vél
og lagfæra hjá sér á hagstæðan
hátt trégólf sem farin eru að
láta á sjá.
Vélin sem leigð er ber heitið
„Woodboy" eða viðarstrákur og
fylgir henni allt sem til þarf, fylli-
efni, bón og lakk. Vélin er mjög
auðveld í notkun og leikur einn
fyrir hvern sem er eins og Bárður
Guðmundsson framkvæmdastjóri
sagði þegar hann kynnti vélina í
versluninni á föstudag.
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Bárður Guðmundsson og Andre-
as Bergmann umboðsmaður með
viðarstrákinn á kynningardag-
inn.
Hafnarfjörður:
Apótekin taka
við gömlu
lyfjunum
til eyðingar
APÓTEKIN í Hafnarfirði taka nú
við fyrndum lyfjum og lyfjum sem
hætt er að nota af einhveijum
ástæðum og safnast því upp á
heimilum.
í fréttatilkynningu frá Heilsu-
gæslu Hafnarfjarðar segir að lyf sem
liggja ónotuð geti bæði valdið rangri
lyfjatöku og slysum.
í tilkynnmgunni segir einnig:
„Átak þetta er gert að frumkvæði
Heilsugæslu Hafnarfjarðar og er
tekið við lyfjum til förgunar í Hafn-
arfjarðar Apóteki og Apóteki
Norðurbæjar. Nokkur önnur heilsu-
gæsluumdæmi gera samskonar átak
nú á aðventu þ.á m. í Garðabæ og
á Seltjamamesi.
Að lokum skal undirstrikað að
eyðing lyfja þarf að fara fram með
faglegum hætti með brennslu en
ekki með því að henda þeim í sorpi
eða skola niður í vöskum eða salem-
um. Hér er því einnig um umhverfis-
vemdarátak að ræða.“
EPSON
■ ■
TOLVUR I SERFLOKKI
Vönduö gæöasmíði einkennir EPSON PC tölvurnar innst sem yst,
enda hvergi slakaö á þeim gæðakröfum sem einkenna japana.
Auk frábærs útlits hafa þær afl á viö margar plássfrekari tölvur.
EPSON PC vélarnar eru fáanlegar í þremur stæröaflokkum og
veröiö með því hagstæðara sem gerist.
Kynntu þér PC tölvurnar frá EPSON - þú sérö ekki eftir því.
ARMULA 11 SÍMI: 681500