Morgunblaðið - 31.12.1987, Blaðsíða 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1987
Jólablað
SÁÁ
komið út
JÓLABLAÐ SÁÁ er komið út.
Blaðið er 24 siður að stærð og
er dreift í stóru upplagi til félaga
í SÁÁ og til kynningar á starfi
samtakanna.
Aðalefni blaðsins að þessu sinni
er konur og alkóhólismi en um það
efni hefur lítið verið fjallað hér á
landi. Auk þess eru í blaðinu fréttir
og greinar er varða starfsemi SAA,
segir í frétt frá SÁÁ.
Styrktarfélag Vogs sér um út-
gáfu blaðsins og ritstjóri er Óttar
Guðmundsson læknir.
Bkðberar
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Lindargata 39-63 o.fl.
Skipholt 1 -38
Skipholt 40-50
Stigahlíð 37-97
Síðumúli
Ármúli
Óðinsgata
UTHVERFI
Njörvasund
Kambsvegur
VESTURBÆR
Fornaströnd
Bauganes
Nýlendugata
Einarsnes
Látraströnd
KOPAVOGUR
Nýbýlavegur 5-36
Laufabrekka o.fl.
Kársnesbraut 77-139
MIÐBÆR
Grettisgata 37-63 o.fl.
Hverfisgata 4-62
Barónsstígur 4-33 o.fl.
Laugavegur 32-80 o.fl.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Fjáröflunarnefnd slysavarnadeildanna ásamt fulltrúum þeirra sem tilkynntu framlög til kaupa á
björgunarbátnum. Talið frá vinstri: Sigurður Þorláksson, formaður styrktarnefndar Kiwanisklúbbs-
ins Bása, Lára Helgadóttir hjá Olíufélagi útvegsmanna, Halldór Sveinn Hauksson og Skúli Skúlason
úr fjáröflunarnefnd slysavarnadeildanna, Högni Þórðarson, útibússtjóri Útvegsbanka íslands, og
Jóhann G. Ólafsson úr fjáröflunarnefnd slysavarnadeildanna.
Nýr björgrmarbátur fyrir Vestfirði:
Osökkvandi bátur sem
tekur allt að 50 manns
ísafirði.
Björgunarsveitin Skutull á
Isafirði og Björgunarsveitin
Tindar í Hnífsdal hyggjast
festa kaup á 13 metra björgun-
arbát, sem hefur verið hannað-
ur í Noregi að hluta til eftir
fyrirsögn ísfirsku björgunar-
sveitarmannanna. Báturinn
verður smíðaður úr áli og fyllt-
ur með uretan, þannig að hann
getur ekki sokkið, og réttir sig
sjálfkrafa ef honum hvolfir. I
bátnum verða tvær 300 hestafla
díselvélar tengdar vatnþrýsti-
drifum (waterjett). Venjulegur
ganghraði verður um 30 mílur
en hámark 35 mílur. Báturinn
verður búinn vönduðum stað-
setningar- og fjárskiptatækjum
auk kraftmikilla dælna og leit-
arljósa. I bátnum verður rúm
fyrir 7 menn og sjúkrabörur
við erfiðustu aðstæður, en
koma má á bátinn 40—50 mönn-
um ef veðurskilyrði eru góð.
Er þá haft í huga að báturinn
nýtist sem björgunarskip við
Isafjarðarflugvöll.
Kaupverð bátsins er um 11
milljónir króna og telja slysa-
vamamenn að þeir hafi nú í
höndum loforð fyrir fjárframlög-
um frá fyrirtækjum og opinbemm
aðilum sem nemi helmingnum af
andvirði skipsins. Almenn fjár-
söfnun er nú að fara í gang og á
fundi með fréttamönnum síðast-
liðinn miðvikudag var tilkynnt að
opnaður hefði verið reikningur í
Utvegsbankanum á ísafirði til að
taka á móti framlögum. Högni
Þórðarson, útibússtjóri bankans á
ísafirði, aflienti 100 þúsund krón-
ur frá bankanum sem fyrstu
greiðslu inn á reikninginn. Þá
bárst á fundinn 500 þúsund króna
ávísun frá Olíufélagi útvegs-
manna á Isafirði með góðum
óskum og félagar úr Kiwanis-
klúbbnum Básum á ísafirði til-
kynntu að þeir hyggðust leggja
málinu lið með einnar milljónar
króna framlagi á næstu sjö árum.
Kaupsamningur verður vænt-
anlega formlega undirritaður í
janúar og báturinn afhentur í Ála-
sundi í Noregi um mánaðamót
apríl/maí á næsta ári. Hyggjast
björgunarsveitarmenn sigla hon-
um heim til ísafjarðar enda er
báturinn byggður samkvæmt
ströngustu kröfum norskra og
íslenskra siglingamálastofnana.
- Úlfar
Alusafe 1300 RESCUE er teiknaður af Kvikstad Bruk a/s í Noregi. Skrokkurinn er af þraut-
reyndri gerð, en yfirbygging og búnaður er hannað eftir umsögn björgunarsveitarmannanna á
ísafirði. Engar óvarðar skrúfur eru undir bátnum og getur hann því athafnað sig án hættu fyrir fólk
í sjó, auk þess sem keyra má hann upp í fjöru án þess að valda skaða á vélbúnaði. Báturinn er
13,15 metra iangur og 4,3 metra breiður og djúprista er 0,75 metrar. í bátnum eru tveir 500 lítra
eldsneytisgeymar sem duga til 300 sjómílna ferðalags. Vélar eru tvær, hvor um sig 300 hestöfl, en
með þeim næst 30—35 mílna gangur. Bátnum er ætlað að þjóna fiskiskipaflotanum fyrir Vest-
fjörðum og fsafjarðarflugvelli allt árið og ferðamannasvæðunum á Hornströndum yfir sumarið,
en útkallsvakt verður við bátinn allan sólarhringinn allt árið.
flr 'i 1 c PIOIM 3JÓNVÖRP EE R