Morgunblaðið - 31.12.1987, Blaðsíða 26
26 B
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1987
]
Hvað segja stjörnur
2l,mars-19,apríl
Hrúturinn er metnaðargjam og viljasterkur, en upp á síðkas-
tið hefur hann verið í nokkrum vafa um, hvaða leið skuli valin,
eða hvort eigi að halda sér við það sem er. En hrúturinn er
uppáfínndingasamur og snjall og ákveði hann að beina orku sinni
inn á framandlegar brautir, bendir margt til að honum lánist
að koma því fram sem hugurinn stendur til.Hrútar vita fátt verra
en hjakka í sama farinu og því er áreiðanlega hollt þeim mörgum
að íhuga nú sinn gang.
Svo virðist sem íjármálin verði í góðu horfí, og væri þá ráð
að reyna að leggja eitthvað til hliðar til magurri ára. Skynsamleg-
ar fjárfestingar eru ráðlagðar, en hrútar ættu samt að leita til
sér færari manna, þar eð reiða og skipulag á peningamálum eru
ekki þeirra sterka hlið.
Vonbrigði eða breytingar í ástamálum hjá mörgum hrútum
hafa orðið því þungbærar síðustu mánuði. En úr tilfínningakrögg-
unum verður að brjótast og væntanlega er það best gert með
einmitt því sem var íað að í byijun ; að leita að nýjum farvegi
fyrir hæfíleika sína. Hrútar ættu að forðast að steypa sér út í
tilfinningasambönd, fyrr en þeir hafa komist sæmilega frá því
sem lokið er.
Aftur á móti geta ýmsir hrútar, sem fínnst þeir hafa verið í
hálfgerðri lægð á árinu, kynnst aðilum, sem þeir tengjast sterk-
ari böndum en áður. Maí er hagstæður til ráðagerða sem varða
framtíðarsambúð.
Hrúturinn hefur ekki sýnt þá sinnu og hugulsemi á árinu, sem
er honum þó eiginleg. Hér er átt bæði við fjölskyldu 0g starfs-
félaga. Úr því ætti að bæta.
Sköpunarþrá hrútsins er lífleg á árinu og geta hans til að tjá
sig .' Með þeirri hugarfarsbreytingu og sjálfsendurmati sem
minnst hefur verið á, lítur út fyrir, að gott ár fari í hönd hjá
hrútnum.
20.apríl-20.maí
Fastheldni og tryggð nautsins gera það að verkum að því reyn-
ist ekki auðvelt að segja skilið við fortíðina. En geti nautið það
má vænta þess að árið verði uppfullt af skemmtilegum uppákom-
um og það er engu líkara en mörg naut gangi í endumýjun
lífdaga. Ákefð og ævintýraþrá koma þá upp á yfírborðið, að ekki
sé nú talað um að rómantíkin er ekki langt undan.
Ef um óbundið naut er að ræða gæti það kynnst ástipni sinni
og úr orðið hjónaband. Naut í hjónabandi upplifa á ný góðar og
gamlar kenndir, sem eitt sinn gáfu hjónabandinu líf og lit, en
hafa verið að mást út með árunum.
Eftir fyrstu þijá mánuði ársins eru teikn á lofti um spenn-
andi ferðalög, sem tengjast námi eða starfí viðkomandi nauts.
Er þá um að gera að njóta þess til fullnustu.
Hvað varðar starfíð getur þar brugðið til beggja vona. Sum
naut eru forkunnargóðir starfsmenn og samviskusemi nautsins
er við brugðið. En þetta er þó ekki algilt og því gætu þeir sem
eru fæddir fyrst í nautsmerki og svo síðast, lent í nokkrum vanda
á vinnustað. Þeim finnst sennilega á rétt sinn gengið eða þeir
ekki metnir að verðleikum og bregðast hinir verstu við. Þetta
mál getur leyst farsællega svo framarlega að nautin hemji erfiða
lund sína.
Með næsta hausti verða einhvers konar skil. Nautið þarf þá
að endurmeta sjálft sig með tilliti til þeirra breytinga. Þó að
nautið sé jarðbundið og í eðli sínu íhaldssamt hefur það nægi-
lega greind til fást við það með góðum árangri.
Svo virðist sem nautsforeldrar sýni börnum sínum á stundum
ekki nóga athygli og yfírborðsmennska sem í flestu öðru er naut-
inu ógeðfelld, setji stundum svip á sambúð nauts og bama þess.
Þetta mætti hafa í huga.
21.maí-20.júní
Á árinu 1988 ætti tvíburinn að hægja á sér, skyggnast um
og íhuga með sjálfum sér, hvort frelsi og sjálfstæði er endilega
það sem gildir. Tvíburinn þarf á meiri kyrrð að halda, öryggi
og hlýju eftir töluverðar sviptingar á síðasta ári.
Samt skyldi tvíburinn ekki örvænta þótt hann hafí á tilfínning-
unni, að hann ráði ekki fram úr öllu í einum hvelli. Tvíbura
hættir til að taka allt of alvarlega og oft skortir á að hann sjái
björtu hliðamar, að ekki sé nú talað um þær bráðskemmtilegu.
Einhver stöðnun hefur fylgt í kjölfar átaka og sviptinga síðasta
árs og það væri æskilegt að losna úr því ástandi.
Stjömumar gefa til kynna, að fjárhagsvandræði geri vart við
sig í febrúar, en þau eru ekki jafn slæm og lítur út fyrir í fyrstu.
Með góðu skipulagi er unnt að kippa því í lag.
Fólk í þessu merki skiptist af eðlilegum ástæðum í ólíka hópa,
en ekki nóg með það; í hveijum tvíbura er margslungnari og
flóknari manneskja en í öðrum merkjum, kannski að fískum
undanskildum.
Verðmætamat og ákveðin lífsþægindagræðgi mega aldrei verða
ráðandi hjá tvíbura, því að öfgamar verða of miklar til að hann
hafí þá vald á sjálfum sér og ýmsu í umhverfinu.
Tvíburi hefur oft nokkuð skakka sjálfsmynd - og er raunar
ekki einn um það - og fínnst sem aðrir kunni ekki að meta kosti
hans. Úr þessu getur orðið hálfhvimleitt píslarvætti eða beiskja,
sem gera síðan ekki samskiptin við aðra auðveldari. Tvíburi
skyldi gefa gaum að þessu.
Ef allt fer að líkum gæti rómantíkin blómstrað hjá þeim sem
eru óbundnir og það lítur út fyrir að mars, ágúst og desember
verði einkar gleðilegir hvað þetta varðar.
Ef tvíburi þarf að takast á herðar einhveijar íjárhagsskuld-
bindingar, ætti að bíða með það fram á vorið.
Fjölskyldumál tvíbura era undir því komin, að hann sýni meiri
vinsemd og hlýrra viðmót. Þá gæti tvíburinn einnig uppskorið
ríkulega.
Krabbinn
21.júní-22.júlí
Krabbinn er í essinu sínu á komandi ári. Hann losar um höml-
ur og ákveður að færa út sitt landakort. Hann sýnir áræðni og
dirfsku, og það verður honum til góðs og gagns. Hann kemst
að þeirri niðurstöðu, að endalaus tillitssemi við ákveðna aðila er
yfírdrifín og er heldur ekki alltaf til hins betra. Krabbanum
hættir til að verða of háður öðram, en það er sem sagt útlit fyrir
að hann reyni að sýna sjálfsstæði og snerpu, sem kemur ýmsum
á óvart.
Ferðalög virðast vera á dagskránni á árinu og gætu orðið
krabbanum hin ánægjulegustu, fyrir utan að hann gæti komist
í kynni við fólk sem ávinningur væri fyrir hann að umgangast
og þroskandi fyrir hann sem manneskju.
Ástamálin era í biðstöðu í upphafí ársins. En það gæti farið
að færast fjör í leikinn, þegar kemur fram i mars. Krabbinn
kynnist nýjum aðila, en gamalt ástarævintýri sem ætti að vera
Iöngu úr sögunni gæti raskað ró hans. Þá reynir á að krabbinn
sýni dómgreind og raunsæi.
Vegna áhrifa Júpiters fyrri hluta ársins getur krabbinn búist
við velgengni í starfí og það gætu boðist möguleikar, sem væri
ekki rétt að hafna. Að minnsta kosti ekki fyrr en að yfirveguðu
máli.
Þó að þessir nefndu möguleikar eða tækifæri verðt varla í
boði fyrr en seinni hluta ársins er greinilegt að umsvifín á öllum
sviðum eru mikil og örvandL
Krabbinn á því skemmtilegan tíma í vonum, en að vísu með
því fororði, að hann standi fast á sínu og dragi ekki í land með
dirfsku og nýjar hugmyndir, sem minnst var á í upphafí.
Ljónið
23.júlí-22.ágúst
Margt bendir til að ýmsum ljónum skili dijúgum áfram á
framabrautinni á nýju ári. Ljónin ættu þó hafa hugfast, að ekk-
ert kemur fyrirhafnarlaust upp í hendumar á þeim og þau verða
að leggja sig fram sjálf. Ljónum hættir til að gleyma að kapp
er best með forsjá og þau verða því að beita sig meiri aga.
Mæti ljón andstöðu hættir því til að vilja hlaupa í felur - ekki
beinlínis af hugleysi - miklu fremur mætti segja að þau kjósi
að forðast örðugleikana. Stundum stafar það beinlínis af leti.
Svo eiga þau til að vinna af slíku offorsi inn á milli, að þau sjást
ekki fyrir og dómgreindin fer þá fyrir lítið.
Einhveijar flækjur í tilfínningalífínu hafa verið að angra sum
ljón en úr þeim fer að greiðast í febrúar, þegar Úranus, Satúm-
us og Mars fara úr fímmta húsi, en það stýrir ástamálunum hjá
ljónum.
Vegna snöggra skapbrigða ljóna lenda þau oft í deilum við
undirmenn, ef þeir era stjómendur og við yfírmenn, ef þau era
venjulegir blýantanagarar. Ljón skyldu athuga, að stundum þarf
að hugsa áður en talað er og jafnvel þurfa ljón, þótt spök og
vís séu, stöku sinnum að ráðfæra sig við aðra, áður en þau taka
ákvarðanir.
Eftir því sem best verður séð er hagstæðasti tími næsta árs
frá því í mars og fram í júlí, en þá er Júpiter að fara um sólar-
hús það, sem stýrir starfsgetu eða starfsframa.
Ljónið hefur alltaf einhver ósköp á pijónunum. Á nýja árinu
bjóðast ýmsir möguleikar -til að gera áform að veraleika. Það
gæti einnig aukið tiltrú annarra á ljóninu. Það er ekki alveg nóg
að hann hafí hana. í einkalífi sínu þarf ljónið að stokka upp
spilin og á það bæði við gift Ijón sem ógefín.
Meyjan
23.ágúst-23.september
Rómantík, ævintýri og aukið olnbogarými virðast setja svip á
komandi ár hjá meyjunni. Til þess þarf meyjan að vísu að beita
sjálfa sig átaki til að losa sig úr viðjum vana, en það gæti verið
þess virði. Og hún ætti að grípa tækifærin sem bjóðast tveim
höndum.
Meyjan er alltaf gagnrýnd fyrir smámunasemi, nöldur og útá-
setningar og ekki alltaf með réttu. En nú lítur út fyrir að meyjan
sé að ganga inn í ákveðið frelsunartimabil og sjaldgæft að ró-
mantíkin skipi svona stóran sess hjá henni og stjömumar segja
að geti verið í vændum 1988.
Þegar Júpiter fer í nautið í febrúar getur meyjan verið í
sterkri aðstöðu til að koma fram ýmsum málum, sem henni era
hugleikin. Þá er átt við heimavígstöðvar jafnt sem í öðra starfi.
Útlit er fyrir að lánið sé með meyjunni fram í júlí, hvað þessu
viðkemur. Þar með er ekki sagt, að allt fari að snúast á ógæfu-
hliðina, fjarri því. Á hinn bóginn verða þá nokkrar breytingar í
umhverfi meyjarinnar, sem gætu valdið henni áhyggjum um
stund.
Nokkurt kæraleysi hefur einkennt gerðir meyjarinnar í sam-
bandi við persónuleg mál, en að þeim skyldi hugað af fullri
einurð og horfst i augu við vanda. Ekki er ástæða til að gera
vandamálin óviðráðanlegri en nauðsynlegt er.
Meyjan er í góðu vinnuskapi á árinu 1988 og skapandi hug-
myndir og fijóar skyldu nýttar til hins ítrasta.