Morgunblaðið - 31.12.1987, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1987
B 11
Krísuvíkurskóli.
Morxunblaðið/Kristinn Benediktsson
Snorri Welding starfsmaður framkvæmdastjórnar er þriðji frá vinstri. Með honum
á myndinni eru nokkrir úr framkvæmdastjóm og aðalstjórn Krísuvíkursamtak-
anna, talið frá vinstri: sr. Guðmundur Orn Ragnarsson, Bragi Þórarinsson, Snorri
Welding, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Eiríkur Ragnarsson, Ásta Lámsdóttir og sr.
Birgir Asgeirsson.
Kapella vígð
í Krísu-
víkurskóla
Miklar endurbætur hafa
verið gerðar á skólahúsinu
Gríndavík.
SETTUR biskup yfir íslandi,
herra Sigurður Guðmundsson,
vígði nýlega kapellu í Krísuvík-
urskóla sem Krísuvíkursamtök-
in eiga og vinna nú að hörðum
höndum að fullgera. Athöfnin
fór fram að viðstöddum for-
ráðamönnum samtakanna auk
gesta en prestar við vígsluna
vom sr. Birgir Asgeirsson, sr.
Guðmundur Örn Ragnarsson
og sr. Örn Bárður Jónsson
sóknarprestur í Grindavíkur-
prestakalli.
Að lokinni vígslunni var altaris-
ganga og síðan var gestum boðið
til kaffisamsætis. Þar var
Krísuvíkursamtökunum færð
áheit frá fyrirtækinu Tomma-
hamborgarar í Reykjavík í tilefni
þessara tímamóta. Sr. Bárður
sagðist sjá fyrir sér að hér mætti
virkja unglinga til sjálfboðavinnu
við margvísleg störf og ætlaði
hann að hrinda slíku í framkvæmd
í vor.
„Mikið starf unnið í
sjálfboðavinnu“
I stuttu viðtali við fréttaritara
Morgunblaðsins sagði Snorri
Welding starfsmaður fram-
kvæmdastjómar Krísuvíkursam-
takanna að nú þegar væri búið
að vinna gífurlega mikið starf í
húsinu eftir að samtökin eignuð-
Helgi Jónasson fræðslufulltrúi
Reykjanesumdæmis.
ust það. „Erfitt er að meta
kostnaðinn þar sem mikið starf
hefur verið unnið í sjálfboðavinnu.
Þá hafa samtökunum borist góðar
gjafir og má þar nefna m.a. raf-
stöð og olíukyndistöð. Undan-
fama mánuði hefur verið unnið
við að gleija, gera við þak og
koma ofnum í húsið. Þá hefur og
verið unnið við rafmagnið og byij-
að að mála. Liður í þessari vinnu
var svo vígsla kapellunnar og
blessun hússins. Nú liggur fyrir
fjárveitinganefnd Alþingis beiðni
um 2,2 milljónir króna til að virkja
heitavatnsborholu sem við eigum
Settur biskup yfir íslandi, herra Sigurður Guðmundsson vígði
kapelluna i Krisuvíkurskóla.
hér fyrir ofan húsið og koma inn
heitu vatni. Einnig er unnið áð
því að fá viðurkenningu og stuðn-
ing ríkisvaldsins til að hér verði
rekinn einkaskóli með heimavist
fyrir þá sem ánetjast hafa fíkni-
efnum,“ sagði Snorri.
„Líst vel á rekstur
einkaskóla hér“
Helgi Jónasson fræðslustjóri
Reykjanesumdæmis hefur mælt
með umsókn samtakanna varð-
andi rekstur einkaskóla. „Mér
finnst skynsamlega staðið að því
hvemig samtökin hugsa sér að
reka hér einkaskóla og líst vel á
að slíkur skóli sé rekinn hér. Ríkið
á að mínu mati að styrkja slíka
starfsemi með því að leggja fram
fjármuni til að greiða kennara-
laun. Ég hef mælt með því að hér
verði greidd laun þriggja kennara
í vetur og fleiri þegar starfsemin
verður komin betur í gang. Einnig
er nauðsynlegt að fræðsluyfirvöld
aðstoði samtökin við skipulagn-
ingu og uppbyggingu kennslu-
starfsins sem hér á að fara fram,“
sagði Helgi Jónasson að lokum.
— Kr.Ben.
Grindavík;
Nýr Skúmur GK 22 kominn heim
Gríndavík.
EIGENDUR Fiskaness hf. í
Grindavík tóku á móti nýju og
glæsilegu 240 tonna fiskiskipi
síðastliðinn sunnudag er Skúmur
GK 22 kom til 'heimahafnar i
fyrsta skipti.
Nýja skipið sem kemur í stað
gamla Skúms sem strandaði í inn-
siglingunni til Grindavíkur síðastlið-
inn vetur, var smíðað í skipasmíða-
stöðinni Lundevarv í Svíþjóð og er
fyrsta skipið frá þeirri verksmiðju
sem er smíðað fyrir íslendinga.
Að sögn Björgvins Gunnarssonar
útgerðarstjóra eins af eigendunum
er skipið eingöngu útbúið til tog-
veiða, bæði á rækju og botnfisk,
með laus- og hraðfrystitæki auk
þriggja frystilesta. Hér er því í
rauninni lítð verksmiðjuskip á ferð-
inni. Öll vinnuaðstaða á millidekki
er mjög rúmgóð og má koma þar
fyrir tveim vinnslurásum.
„Nýja skipið er búið öllum fuh-
komnustu tækjum sem til eru í
dag,“ sagði Björgvin. Aðalvélin er
990 hestöfl af Bergendieselgerð,
tvær ljósavélar af Scania Vabisgerð
og stýrið frá Becker, en utan um
skrúfuna, sem er hæggeng 185
snúninga, er toghringur.
Fiskileitartæki, radarar og gervi-
tunglamóttakari eru frá Furuno,
vindur frá Rapp og dekkkranar frá
TICO.
Allur aðbúnaður fyrir mannskap-
inn er til fyrirmyndar og hreinlætis-
aðstaða eins og best verður á kosið.
í áhöfn verða um 12 manns en íbúð-
ir eru fyrir fjórtán manns,“ sagði
Björgvin og bætti við að samvinnan
við Svíana hefði verið hin ánægju-
legasta og gengið þægilega fyrir
sig.
Skúmur GK á að fara til rækju-
veiða í byrjun nýja ársins enda
nánast tilbúinn til veiða. Skipstjóri
verður Smári Karlsson, en hann var
með þann gamla, 1. vélstjóri verður
Erling Sæmundsson og 1. stýrimað-
ur Ævar Asgeirsson.
Kr.Ben
Yfirmenn skipsins þeir Smári Karlsson skipstjóri, Erling Sæmunds-
son 1. vélstjóri og Ævar Ásgeirsson 1. stýrimaður lofuðu allan
aðbúnað um borð en hér eru þeir staddir við vinnslulínuna á milli-
dekkinu.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Skúmur GK 22 kemur til Grindavíkur í fyrsta skipti.
Eigendur Skúms þeir Dagbjartur Einarsson, Björgvin Gunnarsson,
Willard Óiason og Kristján Finnbogason í brúnni á nýja skipinu.