Morgunblaðið - 31.12.1987, Blaðsíða 24
24 B
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1987
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
ÁriÖ sem er að líÖa
Það er ekki úr vegi að líta
yfir farinn veg, svona á
síðasta degi ársins og athuga
atburði ársins með tilliti til
stjömuspeki,
Spennandi ár
Síðastliðinn janúar var sagt
I þessum dálki að árið kæmi
til með að einkennast af
breytingum og byltingum.
Talað var m.a. um sögulegar
kosningar og í kjölfarið nýja
stjóm og breytingar á flokka-
og stjómkerfi. Sagt var að
árið yrði spennandi.
Sögulegt ár
Þegar litið er til baka verður
ekki annað hægt að segja en
að árið 1987 hafi verið sögu-
legt og spennandi. í fyrsta
lagi féll stjóm Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokks í kjölfar
óvæntra atburða er Sjálf-
stæðisflokkurinn klofnaði og
stofnaður var Borgaraflokk-
ur. Síðan fylgdi eins og
alkunna er stjóm þriggja
flokka sem áður höfðu aldrei
myndað stjóm allir saman.
Óvissa
Ég ætla ekki að rekja hér
atburði sem flestum er í raun
kunnugt um. Það er hins veg-
ar greinilegt að Úranusi, sem
var sterkur á þessu ári, hefur
fylgt óvissa, rótleysi og svipt-
ingar hvað varðar stjómun
landsins, en jafnframt róttæk
uppstokkun á fjármálakerfi
og almennar breytingar á
hugsunarhætti Islendinga og
íslensku þjóðfélagi. Breyting-
ar sem reyndar standa enn
yflr.
Venus
Á árinu voru sterkar afstöður
á Venus, fyrst frá Úranusi
og síðán frá Satúmusi. Venj-
an er sú að Venus er talin
standa fyrir samskipti, ást og
vináttu og einnig fegurðar-
skyn í kortum einstaklinga
og að einhveiju *marki fyrir
gildismat og flármál. í þjóðar-
stjömuspeki er sagt að Venus
sé táknræn fyrir almenn sam-
skipti manna á meðal, en
einnig fyrir listamenn og list-
framleiðslu og síðan fyrir
flármál.
Fjármál
Það sem ég persónulega hef
lært einna mest hvað varðar
yfirstandandi ár er að afstöð-
ur á Venus í íslenska kortinu
höfðu einna mest með fjármál
að gera. { október, þegar
Úranus fór í mótstöðu við
Venus, urðu hér sprengingar
vegna Útvegsbankamálsins
svokallaða, þegar til tals kom
að selja bankann. Á sama
tíma áttu sér stað töluverðar
umræður um breytingar á
innlendum fjármagnsmarkaði
og bankakerflnu almennt.
ListiðnaÖur
Þegar Satúmus fór síðan í
mótstöðu við Venus í lok nóv-
ember og desember fór
dollarinn að falla og byijað
var að tala um fjárhagslegan
samdrátt. Einnig er athygl-
isvert að á þessum tíma var
mikið rætt um samdrátt í
íslenskum fataiðnaði og
reyndar urðu nokkur fyrir-
tæki gjaldþrota um það leyti
og róttæk uppstokkun gerð á
öðrum. Þetta átti sér stað í
þeim geira iðnaðar sem teng-
ist tísku og um leið listrænni
hönnun.
Fjáröflunarkerfi
ríkisins
Að lokum má geta þess að í
desember, þegar Úranus var
bæði í mótstöðu við Venus
og Sól, var gerð ein róttæk-
asta kerfísbreytingin síðan
1961, svo vitnað sé I orð fjár-
málaráðherra.
GRETTIR
ML)HPU,GR.E\T]R,Ae> TIL AÐ VfeRA
6ÖPUR.VBIÐIMAÐUR pARF pOLIN-
/UÆÐI TIL AÐ SITJA KYRR KLUKKÚ-
STUHPUM
X"'/? dStA 7-30
SMÁFÓLK
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það er algengt að menn fylgi
þeirri reglu að spila út flórða
hæsta gegn grandsamningum.
Margir gera það af gömlum
vana, án þess að vita nákvæm-
lega hvers vegna, hvað þá að
menn geri sér grein fyrir því af
hveiju þessi útbreidda venja er
nefnd „ellefu-reglan". En þessi
er ástæðan: Ef félagi útspilarans
dregur tölugildi útspilsins frá
tölunni 11, fær hann út fjölda
þeirra spila fyrir ofan útspilið,
sem eru í blindum, á hans eigin
hendi og hjá sagnhafa. Þannig
getur hann oft reiknað út hvað
sagnhafi er með í viðkomandi lit.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ K92
V85
♦ K643
♦ K765
Vestur
♦43
VA107632
♦ 95
♦ D109
Suður
♦ ÁG5
♦ K4
♦ Á102
♦ ÁG843
Vestur Norður Austur Suður
- -1 grand
Pass 2grönd Pass 3grönd
Pass Pass Pass
Vestur er dyggur fylgisveir.n
11-reglunnar og spilar því úr
hjartasexunni, fjórða hæsta.
Austur lætur gosann og suður
drepur á kónginn. Spilar síðan
laufí á kóng og meira laufi.
Ef austur er vakandi getur
hann reiknað út að sagnhafi á
ekkert bitastætt eftir í hjartanu.
Með því að draga tölugildi út-
spilsins, eða 6, frá 11, kemst
hann að því að 5 spil eru fyrir
ofan sexu á höndunum þremur.
Eitt er í blindum, hann átti sjálf-
ur upphaflega 3 og sagnhafi
hefur sýnt kónginn. Þar með er
ljóst að hjartaliturinn er renn-
andi og óhætt að upplýsa
makker um það með því að kasta
hjartadrottningunni í síðara
laufið!! Vömin ætti þá ekki að
vefjast fyrir honum.
Austur
♦ D10876
¥DG9
♦ DG87
♦ 2
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlega mótinu í Moskvu
í sumar kom þessi staða upp í
skák alþjóðlegu meistaranna Vyz-
manavin, Sovétríkjunum, sem
hafði hvítt og átti leik, og Davi-
es, Englandi.
Hvítur hefur fómað drottning-
unni og báðir eru með hættuleg
fripeð. Sovétmanninum tókst nú
að finna þvingaða vinningsleið.
35. Ra7+! - Kb8, 36. Hd8+! -
Kxa7, 37. Hxe8 — De6 (Svartur
gat ekki komið í veg fyrir hvítur
fengið nýja drottningu) 38. Ha8+
- Kxa8, 39. Hd8+ - Ka7, 40.
e8=D - Dh6, 41. Ha8+ - Kb6,
42. a5+ - Kc7, 43. Hc8+ -
Kd6, 44. Hd8+ og svartur gafst
upp, því hann er mát í næsta leik.