Morgunblaðið - 07.02.1988, Side 1
96 SIÐUR B
31. tbl. 76. árg.
SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tungtíð tyltírsérá Skálafell
Morgnblaðið/Karl T. Sæmundsson
Aukin harka að færast
í lqaradeilur á Bretlandi
London, Reuter.
Noriega-málið:
Herstjórnin
við öllu búin
Panamaborg. Reuter.
Herforingjastjórnin í Panama
hefur vísað á bug ásökunum í
Bandaríkjunum á hendur Maunel
Noriega leiðtoga landsins og boð-
að harkaleg viðbrögð. Segja
talsmenn hennar að þolinmæði
þeirra sé á þrotum.
Að sögn erlendra stjómarerind-
reka í Panama hafa íbúar landsins
miklar áhyggjur af því hvað muni
gerast næst í málinu. Utanríkis-
ráðuneytið gaf út harðorða yfírlýs-
ingu á föstudag og fordæmdi
fíkniefnasmygl og vísaði ákærum á
hendur Noriega alfarið á bug.
Ýmis teikn hafa verið á lofti um
að herstjómin sé í viðbragðsstöðu
ef kemur til mótmælaaðgerða í
landinu í kjölfar ákæmnnar á hend-
ur Noriega. Þjóðin „hefur aldrei
orðið vitni að öðm eins“, sagði
sendimaður erlends ríkis sem ekki
vill láta nafns síns getið.
Bandaríkin:
Fylgi mælt
í frárennsli
Emmetsburg, Iowa, Reuter.
SAMKVÆMT ailsérstæðri skoð-
anakönnun sem gerð var í Iowa
í Bandaríkjunum á föstudag eiga
forsetaframbjóðendurnir Micha-
el Dukakis demókrati og Robert
Dole repúblikani mesta mögu-
leika í forvalinu í fylkinu á
mánudaginn.
Könnunin fór þannig fram að
útvarpsstöðin KEMB bað hlustend-
ur að sturta niður í salemisskálum
sínum þegar nöfn frambjóðandans
sem þeir styddu væri lesið. Dukak-
is fékk mest viðbrögð kjósenda af
frambjóðendum demókrata eða
5.110 lítra samkvæmt mælingum
vatnsveitu Emmetsburg. Robert
Dole bar af félögum sínum í Repú-
blikanaflokknum með 4.090 lítra
frárennslisvatns.
Fyrir fjórum ámm spáði stöðin
því réttilega að Walter Mondale
næði útnefningu demókrata.
VERKFALL rúmlega 30.000
starfsmanna Ford-fyrirtækisins
á Bretlandi hefst á miðnætti í
kvöld en undanfarna viku hafa
hin ýmsu hagsmunasamtök boð-
að til verkfalla. Gífurleg ólga er
nú á breska vinnumarkaðinum
og segja stjórnmálaskýrendur að
þetta séu alvarlegustu vinnudeil-
ur þar í landi á þessum áratug.
Verkamenn í verksmiðjum Ford-
fyrirtækisins boðuðu til verkfalls á
miðnætti í kvöld eftir stuttan samn-
ingafund sem reyndist með öllu
árangurslaus. Tæplega 2.000
verkamenn lögðu þegar niður störf
en öll framleiðsla í verksmiðjunum
mun stöðvast. Þetta er í fyrsta
skipti í tíu ár sem starfsmenn Ford
á Bretlandi leggja niður vinnu
vegna kjaradeilna. Tap fyrirtækis-
ins mun nema um rúmum milljarði
íslenskra króna á degi hverjum auk
þess sem framleiðslan á meginlandi
Evrópu kann að riðlast af þessum
sökum.
Vinnudeilumar á Bretlandi eru
taldar hinar alvarlegustu á þessum
áratug og þykir sýnt að mjög muni
reyna á Margaret Thatcher, forsæt-
isráðherra Bretlands, á næstunni.
Stjómmálaskýrendur segja óvenju
mikla hörku hafa hlaupið í kjara-
deilumar og erfitt muni reynast að
stilla til friðar á vinnumarkaðnum.
Verð hlutabréfa í breskum iðnfyrir-
tækjum hefur farið lækkandi á
fjármálamarkaðnum í London.
Á fimmtudag lögðu ferjustarfs-
menn niður vinnu og hafa þeir
hundsað fyrirskipanir forystu-
manna verkalýðsfélags þeirra um
að hefja störf á ný. Ferjusamgöng-
ur liggja því niðri og fara flutningar
yfir til meginlandsins fram með
frönskum og belgískum fetjum.
Miklar tafír hafa orðið af þessum
sökum og hefur skapast vandræða-
ástand víða í Ermarsundshöfnum.
Hjúkrunarkonur boðuðu til eins
dags verkfalls á miðvikudag og
hafa talsmenn þeirra sagt að búast
megi við frekari aðgerðum um helg-
ina. Hjúkrunarkonumar telja að
ástand breska heilbrigðiskerfísins
sé óviðunandi auk þess sem þær
hafa andmælt fækkun starfsfólks í
heilbrigðisstéttum.
Stjómmálaskýrendur greinir á
um hvort verkföllin lýsi almennri
óánægju launafólks með kjör sín.
Alan Budd, prófessor við London
School of Economics, sagði í viðtali
á dögunum að rekja mætti kjara-
deilumar til hagvaxtar á undan-
fömu ári og að launafólk teldi að
það ætti rétt á að njóta góðærisins.
Sri Lanka:
Liðsauki
frá Indlandi
Colombo. Reuter.
STJÓRN Indlands hefur ákveðið
að efla her sinn á Sri Lanka með
15.000 mönnum til að bijóta and-
stöðu skæruliða tamíla á bak
aftur, að því er háttsettir emb-
ættismenn i stjórn Sri Lanka
sögðu í gær.
„Varaliðið á að afgreiða hryðju-
verkamennina eins skjótt og auðið
er,“ sagði talsmaður vamarmála-
ráðuneytis Sri Lanka í gær.
Tígramir, skæruliðahreyfmg
tamíla, hafa hreiðrað um sig í
Batticaloa á austurhluta eyjunnar
eftir að þeir urðu að láta borgina
Jaffna af hendi síðastliðið haust.
Kína:
Neyðarástand vegna
lifrarbólgu-faraldurs
Shangfhai, Hong Kong. Reuter.
YFIRVÖLD heilbrigðismála í
Kína og Hong Kong hafa vax-
andi áhyggjur af því hversu
lifrarbólga hefur breiðst hratt
út að undanförnu. Óstaðfestar
fréttir berast af því að fjöldi
lifrarbólgutilfella í vesturhér-
uðum Kina nálgist 40.000.
Talsmaður heilbrigðisskrifstof-
unnar í Shanghai sagði í gær að
yfir 15.000 manns .væru sýktir
af lifrarbólgu (hepatitis) í borg-
inni. Sagði hann að sjúku fólki
hefði verið komið fyrir í sam-
komuhúsum og skólum vegna
þess að sjúkrahús í borginni væru
yfírfull. Þeir sem ekki 'eru taldir
alvarlega sjúkir eru sendir heim.
Búist er við að flestir þeirra sem
hafa verið lagðir inn í sjúkrahús
þurfi að dvelja þar í um mánaðar-
tíma.
í Hong Kong hafa nú þegar
verið skráð 483 tilfelli af lifrar-
bólgu á árinu, en það er um
þriðjungur allra skráðra tilfella á
síðasta ári. Hafa stjómvöld miklar
áhyggjur af fólki sem væntanlega
mun fara til Kína í tengslum við
nýársfagnaðinn 17. febrúar.
Venjulega hefur um hálf milljón
manna farið frá Hong Kong yfir
landamærin til Kína til þess að
fagna nýju ári.
Bandaríski ræðismaðurinn í
Hong Kong hefur beðið ferða-
menn að gera ráðstafanir vegna
hættu á lifrarbólgusmiti. Hafa
ferðamenn verið varaðir við því
að drekka ósoðið vatn og að borða
hráan mat.