Morgunblaðið - 31.03.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
Morgunblaðið/Júlíus
Tvær akreinar notaðar fyrir vinstri beygju, þar sem aðeins er
heimilt að nota eina.
Ökumenn brotlegir í beygju
Besta hafbeitarsvæðið
á vestanverðu landinu
Sveiflur í laxveiðum vegna umhverfisaðstæðna minnstar þar,
samkvæmt útreikningum Guðna Guðbergssonar fiskifræðings
SVEIFLUR í laxveiði vegna umhverfisaðstæðna eru minnstar á vest-
anverðu landinu en mestar á norðausturlandi. Bendir það til þess
að öruggast sé að stunda hafbeit á vestanverðu landinu, en óörugg-
ast á norðausturlandi. Guðni Guðbergsson fiskifræðingur hjá Veiði-
málastofnun hefur reiknað út breytileikastuðul landshlutanna sam-
kvæmt laxveiði i ám á viðkomandi svæði á árunum 1974—86 vegna
erindis sem hann flytur á ráðstefnu um hafbeit sem haldin verður
á Hótel Loftleiðum dagana 7.-9. apríl næstkomandi.
Því þyrfti að finna leiðir til að nýta
meira af þeim hér innanlands. Hann
sagði að þar væri hafbeitin álitleg
því hún væri ódýrust af þeim leiðum
sem til greina kæmu. Sem dæmi
um þetta nefndi hann að það kost-
aði 600 milljónir að setja 10 milljón
seiði í hafbeit en rekstrarkostnaður
ÖKUMENN virðast oft ekki
geta sætt sig við settar reglur
og freistast til að bijóta þær.
Þannig virðist mörgum öku-
manni farið, sem ekur yfir gat-
namót Grensásvegar og Miklu-
brautar.
Þegar ekið er suður Grensásveg
og beygt til vinstri inn á Miklu-
braut eiga ökumenn að aka eftir
þeirri akrein, sem iengst er til
vinstri á Grensásvegi. í nýjum
umferðarlögum, 15. grein. er ein-
mitt kveðið á um þetta. Þar segir
að ökumaður, sem nálgast vega-
mót á akbraut með tvær eða fleiri
akreinar I akstursstefnu sína,
skuli í tæka tíð færa ökutæki sitt
á þá akrein, sem lengst er til
vinstri, ef hann ætlar að beygja
til vinstri, eða lengst til hægri ef
hann ætlar að beygja til hægri.
Eins og meðfylgjandi mjmd
sýnir, hafa ökumenn tekið upp
hjá sjálfum sér að breyta þessu
og nota tvær akreinar fýrir vinstri
beygju. Þetta er hins vegar ekki
leyfilegt og fyrir skömmu var lög-
reglan á ferli við gatnamótin og
sektaði þá sem svo brutu af sér.
Er það von lögreglunnar að öku-
menn láti af þessum ósið sínum.
Eftir því sem breytileikastuðuil-
inn fer hækkandi er óstöðugleiki
umhvefisaðstæðna meiri og því
meiri líkur á afföllum og lélegri
endurheimtum í hafbeit. Breyti-
leikastuðullinn er lægstur á vestan-
verðu Iandinu, 19,2%. Þá kemur
norðvesturland með 28,6% og sunn-
anvert landið með 31,3%. Mikill
munur er á þessum svæðum og
þeim sem koma lakast út, en það
eru Vestfírðir (frá Homi að Bjarg-
töngum) með 44,3%, miðhluti Norð-
urlands með 46,8% og norðaustur-
land með 54,1%.
Allar helstu hafbeitarstöðvar
landsins eru við Faxaflóa og Breiða-
VEÐUR
v
ÍDAGkl. 12.00:
V
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 31.3.88
VFIRLIT f gær: Lægð fyrir austan land en s(ðan fer hæðarhryggur
á leið austur um landiö en lægð að brýna klærnar ó vestanveröu
Grænlandshafi.
SPÁ: f dag veröur norðaustlæg átt með éljum norðanlands, slydda
með austurströndinni en rigning eða skúrir með suðurströndinni.
Frostlaust við suðurströndina en 2—6 stiga frost norðanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAQINN LANGA: Hvöss norðaustanátt og frost
um allt land, víðast 2—6 stig. Él norðanlands en bjart veður syðra.,_
HORFUR Á LAUQARDAG: Fremur hæg breytileg átt, þurrt og víða
bjart veöur á landinu. Hiti um og undir frostmarki.
1 g HHastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
~ Þoka
= Þokumóða
» , ’ Súld
OO Mistur
-J- Skafrenningur
Þiumuveður
TAKN:
Heiðskirt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / » Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
# # #
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 i gær að ísl. tíma hlti veöur Akureyri +2 alskýjað Reykjavík +1 léttskýjað
Bergen 7 skýjað
Helsinki 2 skýjað
Jan Mayen +1 snjókoma
Kaupmannah. 8 þokumóða
Narssarssuaq 0 snjóél
Nuuk +6 skafrenningur
Oaló 2 slydda
Stokkhólmur 2 slydda
Þór8hðfn 6 skýjaö
Algarve 17 láttskýjað
Amsterdam 9 skúr
Aþena vantar
Barcelona 14 skýjað
Berlín 12 skýjað
Chicago 0 heiðsklrt
Feneyjar 10 rigning
Frankfurt 11 skýjað
Glasgow 8 skýjað
Hamborg 11 skýjað
Laa Palmas vantar
London 8 skýjað
Los Angeles 14 heiðskírt
Lúxemborg 8 skýjað
Madríd 12 léttskýjað
Malaga 18 heiðsklrt
MaHorca 14 sk^að
Montreal 3 alskýjað
New York 6 heiðsklrt
Parls 6 rigning
Róm 14 rigning
Vín 13 skýjað
Washington vantar
Winnipeg vantar
Valencia vantar
flörð og eru því á besta hafbeitar-
svæðinu. Á öðrum svæðum hafa
verið gerðar tilraunir með hafbeit,
með misjöfnum árangri, og bendir
þessi niðurstaða Guðna Guðbergs-
sonar til að á þeim svæðum verði
meiri sveiflur í endurheimtum en á
vestanverðu landinu.
Veiðimálastofnun boðar til haf-
beitarráðstefnunnar, í samvinnu við
Landssamband fiskeldis- og haf-
beitarstöðva og stjómendur haf-
beitarstöðvanna. Þar verður fjallað
um alla helstu þætti hafbeitar.
Valdimar Gunnarsson sjávarút-
vegsfræðingur í fiskeldisdeild
Veiðimálastofnunar segir að fram-
leiðsla íslensku seiðastöðvanna sé
áætluð 15—20 milljónir seiða á ári
en ekki markaður fyrir nema lítinn
hluta þeirra innanlands. Þau lönd
sem við seldum seiði til stefndu að
því að loka fyrir allan innflutning.
við áframeldi sama fjölda seiða
væri 4,5 milljarðar. Stofnkostnað-
urinn væri einnig gífurlegur í
áframeldinu en óverulegur í haf-
beitinni.
Friðrik Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Landssambands haf-
beitar- og fiskeldisstöðva sagði að
jákvætt væri að boða til þessarar
ráðstefnu til að menn gætu betur
áttað sig á hversu góður kostur
hafbeitin í raun væri til eldis á laxi.
„Okkar aðstæður eru ótvírætt mjög
góðar miðað við önnur lönd, og má
þar nefna möguleika á framleiðslu
ódýrra seiða og bann við laxveiðum
f sjó,“ sagði Friðrik. Hann sagði að
á ráðstefnunni miðluðu opinberar
stofnanir þekkingu til fískeldis-
manna og þar skýrðu líka stjórn-
endur helstu stöðvanna öðmm frá
reynslu sinni og hlyti það að vera
gagnlegt fyrir alla.
Torfusamtökin:
Neðanjarðargöng milli
Sætúns og Hringbrautar
STJÓRN Torfusamtakana hefur
sent frá sér ályktiin vegna auk-
ínnar bílaumferðar um gamla
miðbæinn. Er því beint til borg-
aryfirvalda i Reykjavík að þau
veiti aukið fjármagn til að ráða
fram úr vandanum og spurt
hvort ekki sé timabært að tengja
Sætún við Hringbraut með neð-
anjarðargöngum undir Kal-
kofnsveg, Lækjargötu,
Fríkirkjuveg og Sóleyjargötu.
í frétt frá samtökunum segir að
veruleg hætta sé á að bílaumferðin
kaffæri smám saman byggðina í
gamla miðbænum þannig að hún
verði sundurslitin af þungum um-
ferðaræðum með tilheyrandi meng-
un og óhrjálegum stórum bflastæð-
um. Bent er á að víða erlendis í
bæjarfélögum sambærilegum
Reykjavík hafi umferðarvandamál
verið leyst með jarðgöngum til að
bjarga menningarverðmætum. Til
dæmis hyggjast Þórshafnarbúar í
Færeyjum ráðast í að gera jarðgöng
undir höfnina, meðal annars til að
Tinganes, gamla aðsetur stjómsýsl-
unar í Færeyjum, fái haldið svip
sínum. Þá er bent á Montpellier í
Suður-Frakklandi, þar sem allri bif-
reiðaumferð hefur verið komið fyrir
neðanjarðar til að forða gamla mið-
bænum frá eyðileggingu.
Þá segpr enn fremur: „Mikil um-
ræða hefur að undanfömu farið
fram um fyrirhugað ráðhús við
Tjömina. Stjórn Torfusamtakana
hefur áhyggjur af aukinni umferð
við Tjörnina sem leiða mun af bygg-
ingu þess og fleiri stórhýsum á
sömu sióðum. Bygging nýs þinghús
við Kirkjustræti telur stjómin al-
gjörlega misráðið á þeim stað enda
mun hún stuðla að „dauða" mið-
bæjarins og koma í stað gamalla
og virðulegra húsa (einkum Kirkju-
strætis 8 og 10) sem frekar ber að
sýna sóma og gera upp enda eru
þau ómissandi þáttur í sögu Kvosar-
innar og menningaverðmæti sem
ekki má skemma. Borgaryfirvöld
ættu að vera virkari í því að hafa
frumkvæði að því að gera upp göm-
ul hús á réttan hátt og leiðbeina
og aðstoða borgarbúum við hið
sama.“
Sönglistahátíð
Pólýfónkór sins
Nærri uppselt á fyrri tónleikana
Undirbúningur stendur nú sem
hæst að Sönglistahátfð Pólýfón-
kórsins og Sinfónfuhljómsveitar
íslands sem fram fer í Há-
skólabíói dagana 9. og 10. aprfl í
tilefni þess að 30 ár eru liðin frá
því að Pólýfónkórinn kom fyrst
fram á opinberum tónleikum.
Er efnisskráin f senn vönduð og
skemmtileg og auðséð að hljómleik-
arnir velqa mikla athygli. Nú er
nærri uppselt á fyrri tónleikana 9.
apríl. Þeir verða aðeins haldnir tvisv-
ar og verða endurteknir sunnudaginn
10. apríl sfðdegis.
Hópar tónlistarunnenda munu
einnig fjölmenna utan af landsbyggð-
inni, sums staðar fyrir milligöngu
tónlistarfélaganna. Fólk utan af landi
streymir f helgarferðir til Reykjavík-
ur um þessar muridir, þar sem boðið
er upp á lækkað flugfar, ódyra gist-
ingu á hótelum borgarinnar, kvöld-
verð og leikhúsmiða.
Ferðaskrifstofan Útsýn og Flug-
leiðir . bjóða slíka helgarferð til
Reykjavíkur helgina eftir páska, þar
sem aðgöngumiði á Sönglistahátfð
Pólýfónkórsins er innifalinn. Einnig
er tekið við miðapöntunum á skrif-
stofu Sinfóníuhljómsveitar íslands í
Gimli, Lækjargötu.
(Fréttatilkynning)
Sjá bls. 12 og 18.