Morgunblaðið - 31.03.1988, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
fil
Festi í Grindavík.
Morgunblaðið/Júlíus
Vordagar Bókasafns Grindavíkur;
Fastur menningarviðburð-
ur yfir páskadagana
Gríndavik.
VORDAGAR Bókasafns Grinda-
víkur eru orðnir að föstum árleg-
um menningarviðburði yfir
páskadagana í Grindavík þar
sem boðið er upp á málverkasýn-
ingu, Ijóðaupplestur og söng í
Félagsheimilinu Festi.
Vordagar hefjast að þessu sinni
fimmtudaginn 31. mars, skírdag,
með málverkasýningu Sigríðar Rós-
inkransdóttur, en hún hefur stund-
að myndlistamám í Baðstofunni í
Keflavík síðan 1974, lengst af und-
ir haldleiðslu Eiríks Smith. Þetta
er önnur einkasýning hennar en
áður hefur hún tekið þátt í nokkrum
samsýningum í Keflavík, Sandgerði
og í Hjörring í Danmörku. Sigríður
sýnir bæði vatnslitamyndir og olíu-
málverk en efniviðinn sækir^hún
aðallega til Suðumesja. Sýningin,
sem er sölusýning, verður opnuð
klukkan 17.00 á skírdag og verður
síðan opin frá kl. 14.00 til 22.00
fram á páskadag, 3. apríl.
Annar gestur Vordaganna verður
Bergþóra Ámadóttir vísnasöng-
kona sem mun troða upp með söng
og eigið undirspil laugardaginn 2.
apríl fyrir páska klukkan 15.00.
Bergþóru er óþarfi að kynna því
hún er vel þekkt af hljómplötum,
tónleikum og sjónvarpsþáttum sem
hún hefir komið fram í.
Á Vordögum í Grindavík hefur
verið boðið upp á upplestur skálds
á eigin verkum. Að þessu sinni mun
ung stúlka, Birgitta Jónsdóttir, lesa
úr eigin ljóðum. Birgitta hefur vak-
ið athygli á samkomum undanfarið
þar sem hún hefur lesið ljóð sín.
Ljóð eftir hana hafa meðal annars
birst í Lesbók Morgunblaðsins. Þess
má geta að Birgitta er dóttir Berg-
þóm Ámadóttur og mun hún koma
fram með móður sinni á laugardeg-
inum.
Að vanda verður boðið upp á
kaffi og veitingar á Vordögum
Bókasafns Grindavíkur.
Kr.Ben.
Jens Krist-
leifsson sýn-
ir á Kjarv-
alsstöðum
MÁLVERKASÝNING með verk-
um Jens Kristleifssonar verður
opnuð á vesturgangi Kjarvals-
staða laugardaginn 2. apríl næst-
komandi.
Jens Kristleifsson er fæddur í
Reykjavík árið 1940. Hann lauk
námi frá Myndlista- og handíðaskó-
lanum 1961 og var á Listaháskólan-
um í Kaupmannahöfn veturinn
1966-’67. Jens sýndi í fyrsta sinn
opinberlega með öðmm á „Vorsýn-
ingunni á Charlottenborg" að lok-
inni námsdvöl ytra. Síðan hefur
hann haldið fjölmargar sýningar,
einkum á dúkristum. A þessari sýn-
ingu em landslagsmálverk. Sýningu
Jens Kristleifssonar lýkur 17. apríl.
■
e .Góðar. e
íermmgargiafir
í UÓSI LÍÐANDI
STUNDAR
— saga Pólýfónkórsins í 30 ár.
Messias eflir Hándel
á geisladiskum og plötum
í flutningi Pólýfónkórsins.
Fæst í hljómplötuverslunum.
PÓLÝFÓNKÓRINN
Jens Kristleifsson
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Sunnubraut - sjávarlóð
Til sölu er einbhús á sjávarlóð við Sunnubraut í Kópa-
vogi. Húsið er á einni hæð um 230 fm auk bílsk. og 36
fm kjallara. Mjög vandlega endurn. Einkasala.
Opið á þriðjudag.
Einar Sigurðsson hrl.
Laugavegi 66, sími 16767.