Morgunblaðið - 31.03.1988, Side 29
yfirtöku og reksturs útibúa á
Bíldudal, Tálknafirði og í Örlygs-
höfn, en rekstur þessara útibúa
skilaði eingöngu tapi að sögn þeirra.
Þá segja þau að bygging verslunar-
húss á Krossholtum á Barðaströnd
og í Örlygshöfn í Rauðasandshreppi
hafi verið dýrar og tap á rekstri
þeirra.
I þessu sambandi má geta um
sölu KVB á sláturhúsinu til Mat-
vælavinnslunnar hf., sem var í eigu
kaupfélagsins, Hraðfrystihúss Pat-
reksfjarðar hf., forsvarsmanna
þessara fyrirtækja og nokkurra
annarra einstakíinga. Matvæla-
vinnslan greiddi sláturhúsið með
yfirtöku skulda og skuldabréfi að
fjárhæð um 12 milljónir kr. Mat-
vælavinnslan greiddi aldrei af þessu
skuldabréfi og eftir að sláturhúsið
var selt á nauðungaruppboði ákvað
stjóm kaupfélagsins að afskrifa
þessa eign sína þar sem hún var
talin glötuð. Hlutafé kaupfélagsins
í Matvælavinnslunni er einnig talið
glatað, enda á Matvælavinnslan hf.
litlar eða engar eignir en skuldar
verulegar fjárhæðir. Forsvarsmenn
Matvælavinnslunnar hf. hafa óskað
eftir að hlutafélagið verði tekið til
gjalþrotameðferðar en úrskurður
um gjaldþrotaskipti hefur ekki verið
kveðinn upp.
Til viðbótar skýringum forsvars-
manna fyrirtækisins segir bústjór-
inn: „Því má svo bæta við, að stjórn
hins gjaldþrota félags eða a.m.k.
stjórn á hinum daglega rekstri þess,
virðist hafa verið í miklum ólestri.
Kaupfélagsstjóri var jafnframt
framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Patreksfjarðar hf., sem er stærsta
atvinnufýrirtækið á Patreksfirði
með um 80 starfsmenn. Það hluta-
félag hefur átt í verulegum fjár-
hagsörðugleikum þannig að ætla
má að kraftar stjórnanda þess og
framkvæmdastjóra hafi verið
búndnar við úrlausn þeirra vanda-
mála. Fyrrverandi kaupfélagsstjóri
upplýsti í skýrslu sinni fyrir skipta-
rétti að hann hefði ekki getað sinnt
■tarfi sínu sem kaupfélagsstjóri
neð fullnægjandi hætti og að rekst-
ir verslana félagsins hafí ekki ver-
5 eins markviss og skyldi fyrir þær
akir.“
Bústjórinn tekur þó fram að ekki
é ástæða til að ætla að refsiverð
áttsemi hafi verið viðhöfð í tengsl-
,m við rekstur hins gjaldþrota fé-
igs. Þó bendir hann á að vanskil
. iðgjöldum starfsmanna til lífeyris-
jóða og opinber gjöld, sem dregin
löfðu verið af starfsfólki en var
■kki búið að skila til innheimtu-
nanna. Telur hann að þetta. geti
>akað fyrirsvarsmönnum kaupfé-
agsins refsingu.
Nokkur riftunarmál höfðuð
áhendur SÍS ^
Að tillögu bústjóra samþykkti
ikiptafundurinn að rifta ýmsum
•áðstöfunum eigna á síðustu miss-
•rum fyrir gjaldþrot. Mun hann
íöfða sérstök riftunarmál vegna
>eirra. Stærstu málin eru vegna
eðsetningar og sölu eigna til SÍS
árinu 1986, sem að því er virðist
nefur verið gert í þeim tilgangi að
minnka skuld kaupfélagsins við SÍS
og tryggja sem mest af eftirstöðv-
unum. Þau eru: Veðsetning á all-
mörgfum fasteignum til tryggingar
á eldri skuldum SÍS. Veðsetningar
hlutabréfa í Hraðfrystihúsi Patreks-
fjarðar hf. Veðsetning hlutabréfa í
Loga hf. Sala hlutabréfa í Fisk-
vinnslunni á Bfldudal hf., en kaup-
verð þeirra var greitt með lækkun
viðskiptaskuldar við SÍS. Og sala á
hlutabréfum í Hraðfrystihúsi Pat-
reksfjarðar hf., en kaupverðið var
greitt með lækkun viðskiptaskulda
að íjárhæð 15 milljónir kr.
Viðar Már Matthíasson hrl., sem
skipaður hafði verið bústjóri til
bráðabirgða, var á fyrsta skipta-
fundi kosinn skiptastjóri. Næsti
skiptafundur hefur verið boðaður á
Patreksfirði 7. apríl. Þá verður
gengpð endanlega frá kröfulýsinga-
skrá og úrskurðað í ýmsum ágrein-
ingsefnum.
- HBj.
L
8861 SHAM .18 HUOAaUTMMI'i .aiGAJHHUOHOM 8S
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988 29
Páskavaka í Laugarneskirkju
PÁSKAVAKA verður haldin í
Laugarneskirkju laugardaginn
2. apríl. Þessi guðsþjónusta á sér
langa hefð að baki í kaþólsku
kirkjunni og hefur einnig á
seinni árum rutt sér til rúms
meðal mótmælenda.
Á fyrstu öldum kristninnar vöktu
menn alla páskanóttina við lestur
og bænagjörð, en þeir hlutir eru enn
miðlægir í páskavökunni í dag.
Lesnir eru textar bæði úr Nýja og
Gamla testamentinu og tengjast
þeir hinum fyrstu páskum, er ísr-
aelsmenn voru leiddir úr Egypta-
landi gegnum Rauðahafíð, en í
kirkjulegri hefð er sá atburður tákn-
mynd um skírnina. Skírnarinnar er
einmitt minnst á sérstakan hátt í
páskavökunni með endumýjun
skírnarheitanna.
Á þessari páskavöku gefst okkur
tækifæri til að sýna samstöðu með
kristnum mönnum víða um heim,
sem á sama hátt á sama tíma minn-
ast upprisu Krists á lifandi og tákn-
rænan hátt með því að þiggja ljós
af páskaljósinu og sýna þannig
hvemig ljós upprisunnar hefur
breiðst út.
Páskavakan hefst kl. 23.00 á
laugardag og er hún í umsjón
áhugahóps um klassíska messu,
tíðagjörð og kyrrðardaga í sam-
vinnu við Laugamessöfnuð. Við
guðsþjónustuna þjóna sr. Hjalti
Hugason og sr. Guðmundur Guð-
mundsson sem jafnframt prédikar.
(Fréttatilkynning)
PARÍS
lxíviku
5 FLUGLEIDIR
é -fyrirþig-
PÁSKAR
Á TOMMASTÖÐUNUM!
HAMBORGARI OG FRANSKAR Á 219.- KR.
Viö höfum opiö skírdag 31. mars,
laugardaginn 2. apríl og annan í
páskum 4. apríl.
TOMMA
HAMBORGARAR
BESTI BITINN f BÆNUM
Grensásvegi 7 • Hólmaseli 4 • Lækjartorgi • Laugavegi 26 • Reykjavikurvegi 68.