Morgunblaðið - 31.03.1988, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
31
Morgunblaðið/Christine Langensiepen
Mótettukór Hallgrímskirkju á tónleikum.
Mótettukór Hallgrímskirkju:
Oratóría Þorkels Sigur-
björnssonar frumflutt
ÓRATÓRÍAN „Upprisan“ eftir
Þorkel Sigurbjörnsson verður
frumflutt laugardagskvöldið fyr-
ir páska, þann 2. apríl nk. kl. 21.
Verkið var skrifað fyrir Mótettu-
kór Hallgrímskirkju að tilhlutan
Listvinafélags Hallgrímskirkju
vegna vígslu kirkjunnar fyrir
hálfu öðru ári. Það byggir á frá-
sögnum allra guðspjallanna af
upprisunni.
Textinn er ýmist sunginn eða
lesinn með undirleik hljóðfæra, en
hljómsveitin samanstendur af
strengjum, trompetum, slagverki
og orgeli. Einsöngvarar eru úr röð-
um kórsins, í stærsta hlutverkinu
er Rósa Kristín Baldursdóttir sópr-
an, en' hún syngur m.a. hlutverk
Maríu Magdalenu.
Páskafrásögnin er römmuð inn í
útsetningar á páskasekvensíunni
„Páskalamb vér heilagt höfum" úr
Grallara Guðbrandar Þorlákssonar
frá 1589, en þeir þættir munu að
þessu sinni einnig hljóma í guðs-
þjónustunum á páskadagsmorgun
kl. 8 og 11.
Framlag Mótettukórs og List-
vinafélags Hallgrímskirkju til nýrr-
ar íslenskrar kirkjutónlistar um
bænadagana á þessu ári er mikið.
Á föstudaginn langa verður flutt í
útvarpi og sjónvarpi fyrsta íslenska
passían, „Hallgrímspassía“ Atla
Heimis Sveinssonar og á laugar-
dagskvöldið er frumflutningur á
fyrstu páskaóratóríunni „Upprisu"
Þorkels Sigurbjörnssonar.
Þorkell hefur áður skrifað fyrir
Mótettukór Hallgrímskirkju og er
skemmst að minnast útsetninga,
sem hann gerði á sálmum
Hallgríms, sem sungnir voru við
vígslu Hallgrímskirkju, en þá tónlist
gaf hann kirkjunni í vígslugjöf.
Aðgangur að flutningi „Uppris-
unnar“ á laugardagskvöld er ókeyp-
is og öllum heimill, en verkið teur
um eina klukkustund í flutningi.
(Fréttatilkynning)
Lions Quest:
Undirritaður samning’-
ur um kennsluefni
Hvannatúni í Andakíl.
Á sameiginlegum fundi fjög-
urra Lionsklúbba í Borgarnesi
undirritaði fjölumdæmisstjóri
Lions á Islandi samning um
kennsluefni, kennslutilhögun og
útgáfuréttindi Lions Quest á ís-
landi.
Fjórir Lionsklúbbar á Vesturlandi
efndu til sameiginlegs fundar
þriðjudaginn 22. mars um málefni
Lions Quest á fslandi, kennsluefnis
til fíkniefnavarna. Fjölumdæmis-
stjóri Lions, Ingi Ingimundarson,
er félagi í Lionsklúbbi Borgarness
og undirritaði hann á fundinum
fjórhliða samning við Alþjóðahreyf-
ingu Lions, Quest International,
menntamálaráðuneytið og Lions á
íslandi.
Þessi samningur tryggir öll rétt-
indi hér á landi til næstu 5 ára um
útgáfu og notkun Lions Quest
kennsluefnisins. Námsefnið er til
notkunar í grunnskólum og hefur
hlotið heitið Að ná tökum á tilver-
unni. Lionshreyfmgin leggur til öll
réttindi, kostar þýðingu á nemenda-
lesbók, nemendahandbók og kenn-
arahandbók.
Frummælendur á fundinum voru
Arthur Farestveit, formaður fíkni-
efnavamanefndar Lions, og Aldís
Ingvadóttir, námsstjóri vímuefna-
vama í menntamálaráðuneytinu.
Gerðu þau góð skil umfangsmiklu
undirbúningsstarfi þessara aðila,
reynslu sem fengist hefur og hvað
framundan er. í erindum þeirra og
umræðum komu fram óhugnanleg-
ar lýsingar á áhrifum fíkniefna en
einnig dæmi, þar sem nemandi
hafði tekið áberandi breytingum til
hins betra eftir nokkra tíma í til-
raunakennslu námsefnisins.
Af hálfu Lions Quest er þess
krafist að kennarar sæki sérstakt
námskeið um námsefnið. Það fyrsta
var haldið í nóvember sl. og það
næsta er fyrirhugað næsta sumar.
- D.J.
Hallgrímskirkja:
Allir Passíu-
sálmamir lesn-
ir upp á f östu-
daginn langa
ALLIR Passíusálmarnir 50 verða
lesnir upp í Hallgrímskirkju á
föstudaginn langa og hefst lest-
urinn klukkan 13.30. Sálmarnir
hafa að öllum líkindum ekki ver-
ið lesnir upp í einu lagi áður, að
sögn séra Ragnars Fjalars Lárus-
sonar.
Eyvindur Erlendsson, leikari, les
Passíusálmana upp og Hörður
Áskelsson, organisti Hallgríms-
kirkju, leikur á orgel kirkjunnar á
milli sálmanna. Kirkjugestir geta
komið og farið að vild meðan á
upplestrinum stendur en hann tekur
4 til 6 klukkustundir, að sögn séra
Ragnars Fjalars.
Astandið fyrir botni Miðjarðarhafs:
Ihlutun utanaðkomandi
ríkja leysir engan vanda
- segir dr. David A. Lewis
DR. David A. Lewis er bandarískur fræðimaður, sem staddur
er hér á landi í boði Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu. Hann
er einkum kunnur fyrir þekkingu sína á málefnum Mið-Austur-
landa, og er einn af forystumönuum bandariskra samtaka, sem
vinna að auknum skilningi milli gyðinga og kristinna manna.
Hann á að baki yfir fjörutíu ferðir til landanna fyrir botni
Miðjarðarhafs og hefur meðal annars verið ráðgjafi utanríkis-
málanefndar Bandaríkjaþings um friðarsamninga í Mið-Aust-
urlöndum. Morgunblaðið hafði tal af dr. Lewis og fékk hann
til þess að lýsa skoðunum sínum á ástandi mála fyrir botni
Miðjarðarhafs óg átökum Palestínuaraba og ísraelsmanna.
„Heimildarmenn mínir, bæði
meðal Palestínuaraba og íraels-
manna, segja mér að viðræður
hafí verið hafnar bak við tjöldin
milli stjórnar Shamirs í Ísraels
og manna Husseins Jórdaníukon-
ungs,“ sagði Lewis. „Um skeið
voru menn afar vongóðir um að
friðarsamkomulag væri að nást
milli ríkjanna og að Palestínu-
menn myndu njóta góðs af samn-
ingupum. Þessi von brast hins
vegar er óeirðir hófust á Gaza-
svæðinu og á Vesturbakka Jórd-
anár. í þessu sambandi er auð-
velt að setja fram samsæriskenn-
ingu um að Frelsissamtök Pal-
estínu, PLO, hafi komið óeirðun-
um af stað, vegna þess að þau
hafi talið væntanlegt friðarsam-
komulag ógna stöðu sinni; hefðu
Israel og Jórdanía samið um
framtíð Palestínuaraba, hefði
PLO þar engu hlutverki haft að
gegna," sagði Lewis.
Lewis sagði að staðreyndimar
töluðu þó öðru máli, óeirðirnar
hefðu hafist fyrir slysni er ísra-
elskur herjeppi skaut á farartæki
araba, og nokkrir menn féllu.
„Þótt ótrúlegt megi virðast, var
þetta atvik upphafið að öllum lát-
unum, og nú hafa bæði PLO og
öfgamenn í ísrael nýtt ástandið
í pólitískum tilgangi, sér til fram-
dráttar,“ sagði Lewis. „Ástandið
er sannarlega engum í hag,
hvorki ísraelsmönnum né pa-
lestínsku þjóðinni, og á því verður
að finnast lausn sem allra fyrst.“
Alþjóðleg ráðstefna ekki
lausnin
Dr. Lewis sagðist þó ekki telja
alþjóðlega friðarráðstefnu, sem
mikið hefur verið rætt um, lausn
vandans. Þar hefði hann sérstak-
lega í huga kröfur Sovétmanna
um að fá að taka þátt í slíkri
ráðstefnu. „Að bjóða Sovétmönn-
um á ráðstefnu um frið í Mið-
Austurlöndum væri eins og að
hella olíu á eld, vegna þess að
Sovétmenn hafa alls ekki hag af
þvi að friður ríki í þessum heims-
hluta, þeir hagnast fyrst og
fremst á óróanum þar,“ sagði
Lewis. „Ég vona hins vegar að
Israelsmenn geti rætt við ná-
grannaríki sín um lausn vandans,
og þar tel ég Jórdaníu, Saudi-
Arabíu og Súdan viljugust til
samstarfs."
Lewis sagðist telja að vænleg-
asti kosturinn fyrir Bandaríkin
og önnur vestræn ríki væri að
hætta við hugmyndina um al-
þjóðlega friðarráðstefnu með
þátttöku stórveldanna og láta
Israel og arabaríkin ein um að
finna lausn vandans, á svipaðan
hátt og er ísraelsmenn og Egypt-
ar sömdu um frið sín á milli.
Hann telur einnig að Sameinuðu
þjóðirnar eigi ekki að blanda sér
um of í málið. „Samþykktir SÞ
hafa verið mjög neikvæðar í garð
Ísraelsríkis og ég held því að Isra-
elsmenn séu mjög á móti því að
samtökin hafí yfirumsjón með
slíkum viðræðum. Ég sé hins veg-
ar ekki fram á að Shultz, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, falli
frá tillögum sínum um alþjóðlega
ráðstefnu. Ég sé heldur ekki fram
á að stjóm Shamirs samþykki
slíka ráðstefnu eða niðurstöðu
hennar. Þar er þó einn möguleiki
fyrir hendi, sem er sá að Verka-
mannaflokkurinn styðji ráðstefn-
una, en Likud-bandalag Shamirs
setji sig upp á móti henni og til
kosninga komi. Þá er málið í
höndum ísraelskra kjósenda."
Guð einn veit
„Raunar er allt þetta mál afar
flókið," sagði Lewis og þótt ég
sé afar áhugasamur áhorfandi að
ástandinu í Mið-Austurlöndum,
þá er ég enginn sérfræðingur -
stundum held ég að eini sérfræð-
ingurinn um málefni Mið-Austur-
landa sé Guð almáttugur, og hann
hefur ekki haft samband við mig
nýlega til að segja mér hvað gera
skuli."
Lewis sagði að raunar hefðu
palestínsku flóttamennirnir í
arabaríkjunum nokkra sérstöðu
miðað við til dæmis þær milljónir
flóttamanna, sem voru í Evrópu
eftir seinni heimsstyijöld. „Það
verður að segjast aíveg blákalt,
að flestir þeirra, sem hröktust frá
heimilum sínum eftir stríðið í
Evrópu, sneru ekki þangað aft-
ur,“ sagði Lewis. „Þetta fólk hef-
ur aðlagast nýjum aðstæðum.
Það sama er að segja um þúsund-
ir kúbanskra flóttamanna í
Flórída, þeir hafa samlagast
Bandaríkjamönnum, fengið
bandarískan ríkisborgararétt og
senda böm sín í bandaríska skóla.
Flestir eru þeir hættir að hugsa
um að snúa aftur til Kúbu. Pa-
lestínumenn eru hins vegar enn
geymdir í flóttamannabúðum víðs
vegar um arabalöndin, og það
eykur enn á vanda þeirra. Það
hefur heldur ekki bætt úr skák,
að þeir, sem vilja Israelsríki feigt,
vilja alls ekki að vandamál pal-
estínsku þjóðarinnar verði leyst,
heldur nota það sem vopn gegn
gyðingum.“
Bitbein um aldaraðir
Lewis sagði að raunar væri
aldalöng hefð fyrir því að utanað-
komandi þjóðir sæktust eftir völd-
um fyrir botni Miðjarðarhafs.
Rússar hefðu til dæmis allt frá
dögum Péturs mikla sóst eftir
stöðvum við Miðjarðarhafíð og
gerðu enn. „Tilvera ísraelsríkis,
vegna náinna tengsla þess við
Bandar?kin er í raun það eina,
sem hindrar Sovétmenn í því, að
bijótast til Miðjarðarhafsins í
þeim tilgangi að ná á sitt vald
olíulindum, sem eru Vesturlönd-
um mikilvægar," sagði Lewis.
Raunar sagðist Lewis telja alla
íhlutun utanaðkomandi ríkja í
málefni Mið-Austurlanda gera
fremur illt en gott. „Persónulega
tel ég að jafnt stórveldi sem
smærri ríki á borð við Norður-
löndin og ísland ættu að ekki að
skipta sér af,“ sagði hann. „Ef
Palestínumenn, Arabar og ísrael-
ar verða látnir einir um vandamál
sín, munu þeir leysa þau. Það er
eilíf íhlutun stórveldanna, sem
Mo'rgunblaðið/Bjarni
Dr. David A. Lewis. Hann verð-
ur hér yfir páskana á vegum
Hvítasunnusafnaðarins og mun
flytja erindi um atburði líðandi
stundar í Mið-Austurlöndum.
Hann hefur skrifað fjölda bóka
um þau mál og haldið fyrir-
lestra víða um lönd.
skapar þetta vandræðaástand.
Hins vegar er ekki við því að
búast að afstaða þeirra breytist
á næstunni. Bandaríkjamenn telja
að Sovétmenn muni ekki draga
úr sókn sinni til áhrifa, og eiga
því einskis úrkosti nema að halda
áfram að veita ísraelsmönnum
Qárhagslega og hemaðarlega að-
stoð. Mér skilst að utanríkisráð-
herra ykkar hafí reynt að koma
til móts við Yasser Arafat. PLO
og stuðningsmenn þeirra taka
slíku að sjálfsögðu með miklum
fögnuði, og sérhver Islendingur,
sem mótmælir ráðherranum,
hlýtur náð fyrir augum ísraels-
manna og stuðningsmanna
þeirra. Þetta hefur auðvitað viss
sálræn áhrif, og sálræn áhrif
geta stundum, en ekki alltaf,
breytt ástandinu. Ég er þess ekki
umkominn sem útlendingur að
gagnrýna stjóm ykkar eða með-
limi hennar, ég held að íslending-
ar muni leysa það mál án utanað-
kómandi aðstoðar."
Hófsamir leiðtogar eiga
að semja
Lewis sagðist að lokum vilja
leggja áherslu á að þrátt fyrir að
vera mikill vinur Israela, væri
hann einnig vinveittur Palestínu-
mönnum. „Ég hef reynt upp á
mitt eindæmi að koma á viðræð-
um milli ísraelskra embættis-
manna og palestínskra leiðtoga
ákveðinna svæða og borga
Vesturbakka Jórdanár. Ef þessir
síðamefndu væru hvattir til dáða,
gætu þeir komið fram sem hóf-
samir leiðtogar palestínsku þjóð-
arinnar. Hver og einn þeirra hef-
ur sagt við mig að hann vilji ekki
sjá meira af átökum og hryðju
verkum. Við eigum að leyfa þess-
um mönnum að setjast að samn
ingaborði með ísraelsmönnum.
Þar mun eflaust koma fram
beiskja og reiði á báða bóga, en
engu að síður tel ég að hægt sé
að komast að viðundandi niður-
stöðu, án utanaðkomandi áhrifa,
jafnt frá erlendum ríkum sem
hryðjuverkasamtökum á borð við
PLO, sem starfa tvímælalaust
ekki í þökk palestínsku þjóðarinn-
• ar,“ sagði Lewis að lokum.