Morgunblaðið - 31.03.1988, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
IJC UEIMI EVIEMyNEANNA
Dennis Quaid í „D.O.A.“
Sérkennileg
morðsaga
Ungur maður kemur örvinglaður inná lögregiustöð og vill
tilkynna um morð. Morð á hverjum, er hann spurður. Sjálfum
mér, er svarið.
Þetta er byrjunin á nýjustu spennumynd Dennis Quaids,
sem heitir D.O.A. og er frjálsleg endurgerð á Edmond O’Brian-
mynd frá 1949 um mann sem er byrlað haegdrepandi eitur
og hann hefur minna en 48 stundir til að komast að því hver
gerði það.
Quaid leikur fórnarlambið Dexter Cornell, sem er bókmenn-
takennari og rithöfundur í erfiðleikum með að skrifa, og hann
hefur aðeins 24 stundir á þessum miskunnarlausu tímum til
að finna vaentanlegan morðingja og hvers vegna hann byrlaði
honum eitur.
Leikstjórar myndarinnar eru Rocky Morton og Annabel Jan-
kel, hinir frumlegu fiöfundar tölvuhaussins Max Headrooms.
Eins og við mátti búast er það ekki fyrr en dauðinn nálgast
að Cornell fer að dýrka lífið til fulls. „Ég hef verið dauður i
fjögur ár,“.segir hann vinkonu sinni. „Ég gleymdi áður að
meta líf mitt að verðleikum.”
Aðrir leikarar sem fara með hlutverk í myndinni eru Daniel
Stern, sem leikur besta vin Cornells, og Charlotte Rampling
(aukahlutverkin hrúgast á hana), sem leikur auðuga óþokkadís.
Og loks leikur Meg Ryan stelpu sem verður skotin í Cornell.
Ástríður undir fullu tungli
Cher og Nicolas Cage leika
aðalhlutverkin í nýjustu Norman
Jewison-myndinni sem heitir
„Moonstruck” og verður sýnd í
Bíóhöllinni á næstunni.
Myndin, sem hefur notið mik-
illa vinsælda í Bandaríkjunum og
verið lofuð í hástert, er rómantísk
kómedía um ástir, afbrýðisemi
og erfiðleika sem krauma innan
ítalsk-amerískrar fjölskyldu í Bro-
oklyn. „Persónurnar halda að
þær hafi fullkomna stjórn á sínu
lífi þar til tunglið lýsir upp New
York og nýjar ástríður kvikna á
meðal þeirra," segir handrits-
höfundurinn John Patrick Shan-
ley.
Cher leikur Lorettu Castroini
sem er ekkja og vonar að hún
geti bætt eitthvað kuldalegt sam-
bandið á milli kærasta síns og
eina bróður hans með því að
bjóða bróðurnum, sem heitir
Ronny Cammareri (Nicolas
Cage) og er ör og ástríðufullur
bakari, í brúðkaupið þeirra. En
þá verður Loretta ástfangin af
Ronny.
Og það er ekki eina ástin sem
kviknar undir New York-tunglinu.
Pabbi Lorettu (Vincent Garden'-
ia), sem heldur því fram að hann
geti ekki sofnað af því „það líkist
svo dauðanum", heldur pínulítið
framhjá. Mamma Lorettu
(Olympia Dukakis, frænka for-
setaframbjóðandans) fer út að
borða með prófessor (John Ma-
honey), sem helst reynir ekki við
aðra en sætustu nemendurna
sína. „Ég er of gömul fyrir þig,“
segir mamman við hann og hann
svarar með hinu eilífa svari karl-
mannsins: „Ég er of gamall fyrir
mig.“
Bakarinn Ronny lætur yfirleitt
ekki ástina sem slíka trufla sig
sérstaklega. „Við erum hér til að
leggja líf okkar í rúst og lenda í
ástarsorg og elska rangt fólk og
deyja," segir hann við Lorettu,
sem hann er að taka frá bróður
sínum. „Og núna vil ég að þú
komir upp með mér og farir með
mér í rúmið."
Eins og fram hefur komið er
Norman Jewison leikstjóri mynd-
arinnar og einnig framleiðandi
ásamt Patrick Palmer, en „Mo-
onstruck" er 14. myndin sem
þeir gera saman. Kvikmynda-
tökumaður er David Watkin
(hlaut Óskarinn fyrir Jörð í Afríku)
og búningahönnuður er Theoni
Aldredge (Óskar fyrir Gatsby).
Líklega hafa állir þeir sem fara
reglulega í bíó séð einhverjar
myndir Jewisons, sem fengist
hefur við jöfnum höndum söng-
leiki, gamanmyndir og dramatísk
verk. Sem dæmi um myndir hans
má nefna Fiðlarann á þakinu, „A
Soldier’s Story" og Agnes barn
guðs.
Og líklega hefur áðurnefndur
hópur einhverntíma séð Cher á
hvíta tjaldinu. Hún hefur verið
útnefnd til Óskarsverðlauna fyrir
leik sinn í „Moonstruck". „Ég
held að Cher snerti taugarnar í
venjulegu fólki," segir Jewison.
„Það finnur sig í henni af því að
það er ekkert tilgerðarlegt við
hana."
Þegar hún las fyrst handritið
að„Moonstruck“ vann hún enn
við myndina Nornirnar í Eastwick
með Jack Nicholson, Susan Sar-
andon og Michelle Pfeiffer. Hún
hafði þegar gert samning um að
leika í næstu mynd Peter Yates,
„Suspect", en henni þotti Jewi-
son-myndin ómótstæðileg og
þegar tökum á „Suspect" var fre-
stað gat hún smeykt sér í gerfi
Lorettu. En hún hafði aðeins sex
vikur til að fara með hlutverkið
svo Jewison og Palmer settu allt
í gang með ótrúlegum hraða.
Frægð Cher hefur varað
a.m.k. í tvo áratugi, en það var
ekki fyrr en á þessum hér níunda
áratug að hún snéri sér að kvik-
myndaleik og á það hinum stór-
góða Robert Altman að þakka.
Hann fékk hana til að leika í upp-
færslu á leikriti Ed Graczyks,
„Come Back to the Five and
Dime, Jimmy Dean, Jimmy Dean“
og hún hélt hlutverkinu í bíómynd
sem Altman gerði eftir stýkkinu
(sýnd í ríkissjónvarpinu fyrir
nokkru). Hún fékk mjög lofsam-
lega dóma og vakti m.a. eftirtekt
. leikstjórans Mike Nichols („The
Graduate") sem fékk hana til að
leika á móti Meryl Streep og
Kurt Russell í „Sijkwood". Cher
var útnefnd til Óskarsverðlaun-
anna fyrir leik sinn.
Þar á eftir kom móðurhlutverk-
ið í myndinni Gríman og ef ein-
hverjar óánægjuraddir höfðu ver-
ið uppi með bíómyndir hennar
hingað til, þögnuðu þær eftir
þessa. Síðan komu „Nornirnar"
og nú „Moonstruck”. Hún hefur
sannarlega vakið eftirtekt sem
leikkona með aðeins örfáum
myndum og þrátt fyrir að ferill
hennar innan kvikmyndanna sé
mjög stuttur og aðeins fáar
myndir séu að baki hefur Cher
tryggt sig í sessi sem ein af at-
hyglisverðustu leikkonum
Bandaríkjanna.
Robert DeNiro
í Moskvu
Þessi mynd var tekin af Robert DeNiro þegar hann sprangaði fyrir utan Rossija-hótelið í Moskvu ásamt
19 ára dóttur sinni, Drínu, 11 ára syni sínum, Raphael (sem Robert átti með leikkonunni Dianne Abbott
en þau eru skilin), og besta vini hans (1. h.). Robert fór til Moskvu til að vera í dómnefnd kvikmyndahá-
tiðar borgarinnar, en einnig til að ræða við þarlenda um nýja mynd sem DeNiro mun leika í. Á innfelldu
myndinni sést Robert DeNiro útskýrir fyrir Wolfgang Wilke hvers vegna hann fór til Moskvu.
Robert DeNiro veitir aldrei
blaðaviðtöl og verndar einkalíf sitt
og fjölskyldunnar betur en nokkur
annar. En þessi mikli leikari gerði
undantekningu þegar hann skrapp
til Moskvu á síðasta ári, til að vera
í dómnefnd 15. kvikmyndahátíðar-
innar þar í borg. Vestur-þýskum
blaðamanni að nafni Wolfgang
Wilke tókst að vinna traust leikar-
ans og hér á eftir fer stutt endur-
sögn úr viðtali þeirra sem upphaf-
lega birtist í þýska blaðinu Tempo.
Wolfgang hitti Robert nokkrum
sinnum á hótelinu og eftir þriggja
daga þrátefli bauð Robert blaða-
manninum, sem þóttist vera aust-
ur-þýskur, til kvöldverðar, þar sem
þeir ræddu saman, og einnig upp
á hótelherberginu.
Robert DeNiro vill heldur leika
mann sem telst illur heldur en
góður því slíkur maður er miklu
nær veruleikanum. „Algóð mann-
eskja er undantekningarlaust leið-
inleg," segir hann. „En vitanlega
ræðst val mitt af handritinu. Góður
handritshöfundur gerir persónurn-
ar ekki einfaldar heldur flóknar.”
Hann nefnir dæmi. „Ég get ekki
hugsað mér að leika mann eins
og Rhett Butler í „Gone With the
Wind“ því leikari eins og Gable lék
alltaf sjálfan sig. Ég er hrifnari af
mönnum eins og Walter Huston.
(Faðir Johns heitins Hustons leik-
stjóra.) SJáðu hann í „Fjársjóði
Sierra Madre”, og þá veistu hvað
ég meina.”
Robert vildi sem minnst tala um
mótleikara sína, eins og Mikey
Rourke sem lék í „Angel Heart"
og Kevin Costner í „Hinum vamm-
lausu". Hann talaði þeim mun
meira um undirbúning sinn fyrir
hlutverkin:
Al Capone: „Ég skoðaði aragrúa
af Ijósmyndum, því af þeim er
margt hægt að læra. Síðan horfði
ég á flestar myndirnar sem gerðar
hafa verið um Al Capone og síðan
lék ég hann eins og mér fannst
hann eiga að vera. Hann var feitur
svo ég varð að fitna. í allra allra
síðasta sinn legg ég slíkt erfiði á
mig.“
Jake La Motta: „Eg drakk og át
allan sólarhringinn. Bjór, mjólk,
hvaðeina. Ég varð að fitna um 40
kíió. Enginn getur ímyndað sér
hvílík pína það er.“
DeNiro taldi upp eftirlætis leik-
arana sína: Marlon Brando, James
Dean, Montgomery Clift, Gerald-
ine Page, Kim Stanley, Spencer
Tracey, Walter Huston og ekki síst
Alec Guinnes, sem DeNiro segir
að sé sá allra nákvæmasti. En eftir-
lætis leikkonan hans nú er engin
önnur en Meryl Streep. Þau léku
saman í gamanmyndinni „Falling
in Love“ árið 1984. Og uppáhalds
bíómyndin hans er „The Search-
ers" eftir John Ford með John
Wayne í aðalhlutverki. Hann vildi
aftur á móti ekki segja hver sinna
mynda væri best. „Kannski segi
ég það eftir tíu ár."
Hvernig velur Robert DeNiro
hlutverk sín?
„Fyrst athuga óg handritið, sög-
una, sem verður að höfða til mín.
Þá verð ég að vita hver leikstýrir.
Ég get ekki unnið með hverjum
sem er. Leikstjórinn veröurað vera
trúnaðarvinur minn meðan við
vinnum saman. Ég hef aðeins einu
sinni unnið með leikstjóra sem
ekki gat leikstýrt mér þannig að
mér líkaði samstarfið.” (DeNiro vill
ekki segja hver það er en menn
gera því skóna að það só Francis
Coppola. Coppola á að hafa
hneykslast á barnslegum áhuga
leikarans á bakgrunni persónanna
í Guðföðurnum).
Líður þú fyrir frægðina?
„Fólk þekkir mig ef ég fer út á
götu. Það er í lagi í New York, því
þar er fólk vingjarnlegt, en í Los
Angeles er það hræðilegt, því allir
þykjast vera stórlaxar. Ég fer þang-
að aðeins þegar mér er borgað
fyrir það.“
Hvers vegna komstu hingað til
Moskvu?
„Ég kom hingað til að sjá mynd-
ir sem ég hefði ella aldrei séð.
Mér fannst það líka nauðsynlegt
því spennan milli austurs og vest-
urs er alltof mikil. Við verðum að
bera meiri virðingu hver fyrir öðr-
um. Ég er sannfærður um að kvik-
myndin getur hjálpað." (DeNiro
vildi ekki staðfesta þann orðróm
að hann mundi leika aðalhlutverkið
í viðamikilli mynd sem sennilega
verður gerð í samvinnu Bandaríkja-
manna og Rússa.) „Ég er líka að
nota tækifæriö til að sýna börnun-
um mínum Moskvu, svo þau hafi
ekki alla sína visku úr bandariskum
blöðum. Hér hafa þau séð sitt af
hverju, til dæmis neðanjarðarlest-
irnar."
Frægt fólk er sólgið í viðtöl, en
ekki þú. Ertu á rangri hilli í lífinu?
„Hvers vegna skyldi ég sí og æ
vera að svara heimskulegum
spurningum blaðamanna? Ég vinn
mitt starf eins vel og mér er unnt
og nenni ekki að eyða kröftunum
í innantómt blaður. Fólk ætti að
fara meira í bíó og sjá myndirnar
mínar og hætta að pæla svona
mikið í mér sem manneskju.”