Morgunblaðið - 31.03.1988, Qupperneq 45
100 ára afmæli:
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
45
Ásg'eir Torfason
Ásgeir Torfason, sem fæddist að
Eyjum í Kaldrananeshreppi,
Strandasýslu, verður 100 ára nk.
laugardag, 2. apríl. Hann fæddist
þann dag 1888. Foreldrar hans
voru hjónin Anna Bjarnadóttir og
Torfi Bjömsson.
Ásgeir fór ungur að stunda sjó-
inn, reri sem drengur á opnum bát-
um og fór m.a. 12 ára gamall í
hákarlalegu. Hann hóf sjómennsku
16 ára á árabátum og litlum vélbát-
um við Isafjarðardjúp, tók stýri-
mannapróf á Akureyri 1923 og
öðlaðist skipstjómarréttindi 1925/
Ásgeir var stýrimaður á vélbátum
frá Akureyri til ársloka 1925. Flutt-
ist hann þá til Reykjavíkur og var
m.a. á togaranum Austra frá Við-
ey, Draupni og Barða frá Reykjavík
og um tíma á flutningaskipi frá
Færeyjum.
Eftir að Ásgeir hætti sjómennsku
vann hann lengst af við uppskipun
hjá Eimskip, eða um 30 ár, þar til
hann 1968, áttræður að aldri, hætti
störfum.
Ásgeir varð félagi í Sjómannafé-
lagi Reykjavíkur árið 1925 og starf-
aði þar að félagsmálum ötullega í
fjöldamörg ár. Hann átti sæti í full-
trúaráði Sjómannasambandsins í
mörg ár. Hann var sæmdur heiðurs-
merki Sjómannafélags Reykjavíkur
árið 1980.
Ásgeir á þijú systkini á lífi: Ey-
mund f. 1897, Torfhildi f. 1904 og
Guðbjörgu f. 1906, öll búsett á
ísafirði.
Eiginkona Ásgeirs var Þorbjörg
Einarsdóttir, ættuð undan Eyjafjöll-
um, en hún lést árið 1962.
Ásgeir býr í hárri elli sinni á
heimili fósturdóttur sinnar, Gyðu
Jónsdóttur, og manns hennar, Sig-
urðar Jónssonar yfirvélstjóra og
soná þeirra, Ásgeirs og Jóns Við-
ars, á Hávallagötu 15.
N.N.
Tökum að okkur að annast fermingar og brúðkaups-
veislur, árshátíðir, þorrablót og hvers kyns annan
mannfagnað.
Utvegum vistlega og skemmtilega sali eða sendum í
heimahús,.eftir því sem óskað er.
VEITINQAtíÚSIÐ
FUJI FILMUR
lækka um
26%
í nýlegri verðkönnun Verðlagsstofnunar kom í Ijós, að
FUJI filmur höfðu lækkað mest allra filma, eða um 26%.
Fuji filmur hafa því lækkað um meira en 3% meira en
tollalækkanir gáfu tilefni til. Ástæðan eru hagstæðari
magninnkaup okkar á filmum, — beint frá FUJI í Japan.
í gæðakönnunum bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, hafa
FUJI filmur (t.d. FUJI SHR 100) sannað frábær filmugæði
og verið í fyrsta sæti fyrir litgæði og skerpu.
Okkar takmark hefur alltaf verið:
BETRI MYNDIR fyrir MINNI PENING
DYRAVÖRÐURINN
SEM ALDREI
SEFUR ÁVERÐINUM
Þú þarft ekki lengur að taka úr þér hrollinn þegar heim
kemur eftir að Stanley bílskúrshurðaropnarinn er kom-
inn í þjónustu þína. Þú ýtir á senditækið, það kviknar Ijós,
bílskúrshurðin opnast og þú ekur inn í ylinn og stígur þurr-
um fótum út úr heitum bílnum þínum.
ÞÚ FERÐ BETUR MEÐ BÍLINN ÞINN
Á morgnana losnar þú við að skafa ísinn af rúðunum, eða
þurrka snjóinn af og bíllinn fer strax í gang. Þetta er ekki
sagt út í bláinn því að reynslan sýnir að það eru ótrúlega
margir sem nenna ekki að láta bílinn inn í bílskúr ef mikið
er fyrir því haft.
Opnarinn er samþykktur af Rafmagnseftirliti Ríkisins og
Radíóeftirliti Landsímans.
Stanley bílskúrshurðaropnarar fást í öllum helstu bygg-
ingarvöruverslunum.
1. Sterk og örugg færslubraut.
2^Við uppsetningu er óþarfi að fjarlægja mótorhlífina því
að það er hægt að stilla búnaðinn utanfrá.
3. Ö.ryggisljós kviknar í hvert sinn er hurðin opnast og
lokast, - logar í 3'h. mínútu - slokknar sjálfkrafa.
L<onica
U-BIX
UÓSRITUNARVÉLAR
ALLAR STANLEY VÖRUR ERU
VIÐURKENNDAR FYRIR GÆÐI
STANLEY
osarfsiA