Morgunblaðið - 31.03.1988, Síða 54

Morgunblaðið - 31.03.1988, Síða 54
:54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988-- Halldór Jörgensson Akranesi Fæddur 24. júní 1911 Dáinn 25. mars 1988 Nk. laugardag 2. apríl verður ástkær afi minn, Halldór B. Jörg- ensson, borinn til grafar á Akranesi. Við fráfall hans leita margar endurminningar á hugann, ber þar hæst endurminningin um það hve góður maður hann var. Það sem einna helst einkenndi alla þá um- ræðu sem afí tók þátt í var hið sanngjama og umburðarlynda sjón- armið hans. Oft ræddi ég við hann um viðkvæm mál, ávallt kunni hann góð ráð og í hverju máli benti afí á björtu hliðina hið jákvæða. Og þegar á móti blés var auðvelt og velkomið að snúa sér til afa og ömmu sem settu sig inn í kringum- stæðumar, tóku þátt í sársaukanum og gáfu von. Afí var oftast mjög hress og bar sig vel og sló oft á létta strengi. Avallt var gott að koma á heimili hans og ömmu, móttökur þeirra hafa alltaf verið hlýjar, því á Sól- bakkanum vorum við alltaf velkom- — Minning in. Elsku amma, Guð styrki þig og styðji, og blessi minningu afa. „Fyrst hljótt er vindsins vængjablak „og vökusljaman skín“ ég kveð í friði kvelds og húms eitt kveðjuljóð til þín, - ei harmi þyngt, en hlýtt og traust af hinni gömlu trú. — Það ætti að vera létt og Ijóst, eins létt og bjart og þú.“ (Guðmundur Böðvarsson) Harpa Hallgrímsdóttir Laugardaginn 2. apríl nk. verður jarðsunginn frá Akraneskirkju stjúpi minn, Halldór Benjamín Jörg- ensson, tæplega 77 ára að aldri. Halldór var borinn og barnfæddur Akumesingur. Hann var fæddur 24. júní 1911. Ég ætla reyndar ekki að fara að rekja æviferil Hall- dórs í smáatriðum, tel aðra betur til þess fallna. Mig langar til að þakka fyrir þau ár sem við urðum samferða. Það var fyrir réttum tuttugu og t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÁSGEIR SIGURÐSSON, Grundargötu 6, ísafirði, lóst 26. mars, útför hans ferfram á ísafirði miðvikudaginn 6. apríl. Anna Hermannsdóttir, Hermann Jón Ásgeirsson, Guðfinna Gunnþórsdóttir, Sigríður B. Ásgeirsdóttir, Ólafur Þórarinsson, Anna Kristín Asgeirsdóttir, Gísli Jón Hjaltason og barnabörn. t Eiginmaður minn, HALLDÓR JÖRGENSSON, Akursbraut 17, Akranesi, sem andaðist 25. mars veröur jarðsunginn frá Akraneskirkju laug- ardaginn 2. april kl. 11.30. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið eða Hjartavernd. Ragnheiður Guðbjartsdóttir. t Elskuleg systir og fóstursystir, JÓHANNA Þ. EINARSDÓTTIR frá Rúfeyjum, verður jarðsett frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 6. apríl kl. 13.30. Jarðsett verður i Fossvogskirkjugaröi. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlega bent á Kristniboðsfélagiö. Kristfn Einarsdóttir, Sigurður Einarsson, Hverfisgötu 16, og fóstursystkini. t Útför móður okkar, tendgdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR ÓSK EINARSDÓTTUR, Meðalholti 4, Reykjavík, fer fram frá Háteigskirkju, þriðjudaginn 5. apríl, kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag íslands. Einar Sigurbjartur Jónsson, Amalfa Jóna Jónsdóttir, Óskar Harry Jónsson, Njörður Marel Jónsson, Guðbjörg Dagmar Jónsdóttir, bamabörn og barnabarnabörn. Ásta Hjördfs Einarsdóttir, Vilhjálmur Larssen, Margrét Jónsdóttir, Lára Ágústsdóttir, t Hjartkær faöir minn og afi okkar, HILMAR NORÐFJÖRÐ veröur jarðsunginn frá Oómkirkjunni miðvikudaginn 6. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeir sem vilja minnast hans láti líknarfélög njóta þess. Steinunn Norðfjörð, Stella Marfa Guðmundsdóttir, Hilmar Þór Guðmundsson. fjórum árum sem þau giftust, móð- ir mín, Ragnheiður Guðbjartsdóttir, og hann en þau höfðu bæði misst maka sína fáum árum áður. Ég tel það núna hafa verið mikla gæfu fyrir þau að hafa hist, þó ég hafí því miður ekki gert mér grein fyrir því þá eins og oft vill verða með unglinga í sömu tilvikum. Halldór gekk okkur systkinunum í föður- stað, einkum okkur yngri systkin- unum en eldri systir mín var þegar farin að heiman og kom því minna við sögu. Halldór reyndist okkur afar vel þó ekki hafí kannski þakk- lætinu alltaf verið fyrir að fara fyrstu árin. Halldór var mjög róleg- ur og dagfarsprúður maður en hafði þó mjög ákveðnar skoðanir og stóð á sínu. Það leið því ekki langur tími þar til ég fór að meta hann og ekki hvað síst eftir að ég sjálfur stofn- aði fjölskyldu og fór að líta öðrum augum á lífíð^Núna lít ég með sökn- uði til baka og vildi að ég hefði stundum breytt öðruvísi. En það verður víst ekki aftur tekið sem lið- ið er. Við systkinin söknum sárt góðs föður og bömin okkar sjá eft- ir góðum afa. Það verður stórt skarð eftir hjá mömmu því þau vom mjög samtaka og samrýnd og vildu eyða sem mestum tíma sínum saman. Ég og fjölskylda mín viljum þakka Halldóri fyrir ótal margar ógleym- anlegar ánægjustundir og sendum mömmu og ailri fjölskyldunni, ekki síst bömum hans og fjölskyldum þeirra, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Missir bama hans er mik- ill, því Halldór lét sér mjög annt um bömin og hafði alltaf mjög gott samband við þau. Hafí hann innilegustu þakkir fyrir allt gott. Vonandi eigum við eftir að hittast fyrir handan. Hjálmur Geir Halldór Jörgensson, einn okkar besti heimilisvinur, er dáinn. Eftir situr söknuðurinn og kærar minn- ingar. Ég ætla ekki að rekja æviferil hans, aðeins rifja upp nokkrar minningar varðandi okkar kynni. Við þekktumst ekki persónulega fyrr en íjólskylda mín fluttist til Akraness 1954 og ekki náið fyrr en hann kvæntist frænku minni, Ragnheiði Guðbjartsdóttur frá Hjarðarfelli 4. apríl 1964, sem varð hans seinni kona. Að vísu höfðum við verið félagar í st. Akurblóm í nokkur ár, ásamt fyrri konu hans, Steinunni Ingimarsdóttur, en lítið kynnst. En eftir að hjónaband þeirra Ragnheiðar hófst, urðu þau strax í hópi okkar bestu vina og þeim mun nánari sem árin urðu fleiri. Það er því skarð fyrir skildi. Reyndar átti Halldór ákveðinn og glæstan sess í mínum huga, allt frá því er ég var nemandi í Laugar- vatnsskóla 1934—36. Ég, eins og flestir á þeim árum, vildi ná sem bestum árangri í náminu þessa vetr- artíma, því á kreppuárunum var það ekki sjálfgefið að komast í skóla umfram skylduna, hvað þá lengra nám. Besta mælikvarðann á árang- ur töldum við nemendur góðar ein- kunnir. Ég komst fljótt að því að hæstar einkunnir til þessa hafði hiotið Halldór Jörgensson frá Akra- nesi, 9,70, sem var meðaltal ein- kunna úr bóknámi, smíðum og t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGEIR VALUR EINARSSON veggfóðrarameistari, Langholtsvegi 143, veröur jarðsunginn frá Langholtskirkju þriðjudaginn 5. apríl kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda, Sigrfður Beinteinsdóttir, Beinteinn Ásgeirsson, Svava Markúsdóttir, Einar Gunnar Ásgeirsson, Sigrún Hjaltested, Ólafur Már Ásgeirsson, Camilla Hallgrfmsson, Valgeir Ásgeirsson. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, HAFSTEINN JÓNSSON, áður til heimilis að Snæfellsási 9, Hellissandi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 6. april kl. 15.00. Ingveldur Sigurðardóttir, Sigurður Vignir Hafsteinsson, Vordfs Hafsteinsdóttir, Kristinn Hafsteinson, Hafsteinn Hafsteinsson. Eiginmaður minn og faðir okkar, PÁLL G. JÓNSSON byggingameistari, Siglufirði, verður jarðsunginn frá Siglufjaröarkirkju laugardaginn 2. apríl kl. 14.00. Þórhildur Pálsdóttír, Viola Pálsdóttir, Maj-Britt Pálsdóttir, Jón Pálmi Pálsson, Karl E. Pálsson, Bjöm G. Pálsson, Erik Pálsson Elvor Jónsson, Kristján Lárentínusson, Kristinn Rögnvaldsson, Jóhannes Blöndal, Katrfn Leifsdóttir, Jóhanna Ragnarsdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir, og barnabörn. íþróttum. Ekki komst ég með tæm- ar þar sem hann hafði hælana og var ég þó vel ánægður með mínar einkunnir er námi lauk. Ég efast um að einkunnamet Halldórs hafí verið slegið meðan þessi háttur var á hafður um einkunnagjöf. Mér var því forvitni í huga er ég kynntist Halldóri 20 árum síðar. Skyldi hann halda þeim sessi er ég hafði sett þennan frábæra náms- mann í? Ég hafði þó gert mér grein fyrir að einkunnir i skóla voru ekki einhlítur mælikvarði á manngildið. En ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Hjá Halldóri fóru saman gáfur og gjörvileiki — ásamt hógværð og hjartans lítillæti, sem jafnan ein- kennir vitra menn. Hann var af þeirri gerðinni sem vill lifa í sátt við sjálfa sig og umhverfí, fremur en trana sér fram til mannvirðinga og áhrifa, þótt hvorki skorti hann vitsmuni né hæfni til þess að vera í forystu. En víða lagði hann góðum málum lið á félagssviðinu og mun ég ekki upp telja en minni aðeins á frábært starf hans í safnaðarmál- um og þátttöku í kirkjukór í nærri hálfa öld. Það var alltaf bæði fræðandi og skemmtilegt að fá Halldór og Ragn- heiði í heimsókn eða koma á fallega heimilið þeirra að Sólbakka. Þar var raett baeði um menn og málefni. Ég komst fljótt að því að við Halld- ór höfðum mjög svipuð viðhorf til málefna á flestum sviðum og treysti það okkar vináttu. Um ættir manna og persónusögu var hann með af- brigðum fróður, enda minnið trútt og áhuginn á þessu sviði. Hann hafði ótrúlega yfírsýn yfír hvemig ýmsir eðlisþættir og hæfileikar komu fram og þróuðust í þessari eða hinni ættinni. Mikil skemmtun var að heyra hann segja frá sér- stæðu fólki og háttemi þess. Þar naut frásagnarhæfni hans sín vel. Kfmnigáfa hans var rík og græsku- laus. Ég hafði oft orð á því við hann að gaman og nauðsynlegt væri að færa þessar frásagnir hans á blað, svo og annað úr héraðssögu Borgarfjarðar og þróunarsögu Akraness, en ég hygg að fáir eða engir á hans aldri hér hafí verið til þess færari eða búið yfír staðbetri þekkingu á þessu sviði. Hann eyddi því jafnan og taldi sína frásögn ekki merkilega. Úr þessu verður ekki bætt, því þótt sérmenntaðir sagnfræðingar vinni úr ýmsum heimildum, verða frásagnir þeirra með öðmm blæ en þeirra, sem upp- lifðu söguna. Fjölskyldu minni verða ógleym- anlegar margar samverustundir með Halldóri og Ragnheiði. Ekki aðeins hér heima á Akranesi heldur og á ferðalögum víða um landið. Halldór bjó yfír mikilli þekkingu á ýmsum stöðum, mönnum og sögu- legum atburðum. Oft kryddaði hann frásögnina með lausavísum og jafn- vel heilum kvæðabálkum. Sjálfur var hann afbragðs góður hagyrð- ingur og lét oft fjúka í kviðlingum í góðra vina hópi og var fljótur til. Mér er sérstaklega minnisstæð sú hæfni hans í ferðalagi til Noregs 1971 með félagi skólastjóra og yfír- kennara, en Hans bróðir Halldórs var leiðtogi í þeirri ferð. í 10 daga rútuferð um Vestur-Noreg var mik- ið ort á longum leiðum milli staða en í 46 manna hópi virtist annar hver maður hagyrðingur. Þar var Halldór þó drýgstur og oftast snjall- astur að færa kátleg atvik í meitlað form ferskeytlunnar. Við erum varla búin að átta okk- ur á því að hann Halldór sé horfínn af sviðinu. Gagnkvæmar heimsókn- ir voru svo fastur liður í lífí okkar að ef liðu margir dagar á milli mjmdaðist einhvers konar tómleika- eða ófullnægjutilfinning. Úr því var auðvelt að bætá, skreppa niður að Sólbakka. Móttökumar þar voru alltaf eins og við værum að koma þangað I fyrsta sinn. Alltaf sama gestrisnin, alúðin og hlýjan, aldrei tómahljóð í samræðum, allt áhuga- vert, fræðandi og skemmtilegt. Við vitum að áfram verður indælt að koma að Sólbakka til elskulegrar frænku og vinkonu, en sæti Hall- dórs verður autt. En minningamar lifa. Þær em margar og góðar. Okkur er því þakklæti í huga. Þorgils Stefánsson og fjölskylda. 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.