Morgunblaðið - 31.03.1988, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
-57
Fædd 3. júlí 1914
Dáin 24. mars 1988
Góð vinkona mín og okkar hjóna,
Sigríður Ósk Einarsdóttir, Meðal-
holti 4 í Reykjavík, andaðist í Borg-
arspítalanum að morgni dags
fimmtudaginn 24. mars sl. Sigríður
hafði verið í hressingardvöl á heilsu-
hæli NLFI í Hveragerði þegar hún
fékk aðsvif og var flutt á Borgar-
spítalann þar sem hún andaðist eft-
ir stutta legu án þess að koma til
meðvitundar aftur.
Sigríður var fædd í Reykjavík
og ól hér allan sinn aldur. Eg man
vel eftir föður hennar, Einari Jóns-
syni, hann var lengi starfsmaður
borgarinnar. Sigríður ólst upp hér
í borginni og var þar hennar starfs-
vettvangur. Hún vann algenga
kvennavinnu, stundaði hússtörf og
fiskvinnu og annað sem til féll og
tíðkaðist á þeim árum. Ung að árum
giftist hún æskuvini sínum Jóni H.
Bjamasyni, verkamanni og sjó-
manni, síðar yfirverkstjóra hjá
Reykjavíkurborg. Þau hófu sinn
búskap við erfið skilyrði á dögum
kreppu og atvinnuleysis en þau
voru samhent og hörkudugleg og
náðu fljótlega að reisa sér sitt eigið
húsnæði í Efstasundi í Kleppsholti.
Jón dró efniviðinn að, oft á bakinu,
en upp komst húsið og þar bjuggu
þau mörg og farsæl ár.
Þau Sigríður og Jón eignuðust
fímm böm, þrjá syni og tvær dæt-
ur, þau em: Einar Sigurbjartur,
vélsmiður, kvæntur Ástu Einars-
dóttur, Amalía Jóna, gift Vilhjáimi
Larsen, bílaviðgerðarmanni, Óskar
Harry, hjúkmnarfræðingur, kvænt-
ur Margréti Jónsdóttur, Njörður
Marel, bóndi í Brattholti, Biskups-
tungum, kvæntur Lám Ágústs-
dóttur og Guðbjörg Dagmar, hjúkr-
unarfræðingur, var gift Jömndi
Ákasyni kenanra, en þau slitu sam-
vistum.
Sigríður Ósk var mjög einlæg
trúkona og hafði fastmótaðar skoð-
anir á trúmálum og fékk því ekkert
haggað.
Eg sem þessar línur rita og kona
mín, Guðrún Ámadóttir, hófum
okkar búskap í húsakynnum þeirra
Sigríðar og Jóns og bjuggum þar í
eitt ár í einu herbergi, en húsið var
alls þijú herbergi, eldhús og bað,
en tæplega 50 fermetrar að flatar-
máli, svo ekki hefur mikð pláss
farið í óþarfa lúxus. Síðan á þessum
tíma eða fyrir um fjömtíu ámm
hefur kunningsskapur og vinátta
okkar og Sigríðar varað.
Sigríður var tæplega í meðallagi
i*
N.O.R.D.
FYRIR FULLORÐNA
lt
FremstirmeÖ fax
acohf
SKIPHOLT117
105 REYKJAVlK
SfMI: 91 -2 73 33
ÍHÖFNÁTÍMA
EIMSKIP
Tvö 28 hesta hús eru til sölu.
Upplýsingar verða veittar á skrifstofu
Fáks, Víðidal í síma 672166 frá kl. 15.00
og 18.00daglega.
Hestamannafélagið Fákur.
„Að varan komi á réttum tíma, skiptiröllu máli í mínu tilviki."
Úrsímtali við viðskiptavin.
*
Sigríður Osk Einars-
dóttir - minning
Útför Sigríðar Óskar fer fram frá
Háteigskirkju nk. þriðjudag 5. apríl
kl. 13.30.
Pétur Hannesson
há, nokkuð þybbin á efri ámm, en
snotur í andliti. Hún var mjög glað-
sinna og einlæg, húsleg og snyrtileg
og lagði mikla áherslu á góða um-
gengni um heimili sitt. Eiginmann
sinn, Jón Harry Bjamason, missti
Sigríður um mitt ár 1980, var henni
mikill harmur kveðinn af andláti
hans og saknaði hún hans mjög.
Að lokum kveðjum við hjónin
vinkonu okkar Sigríði Ósk. Við
þökkum henni fyrir áralanga vin-
áttu og biðjum henni Guðsblessun-
ar. Bömum hennar, tengdabörnum
og bamabömum vottum við inni-
lega samúð. Góð kona er gengin,
en minning hennar lifir.