Morgunblaðið - 31.03.1988, Qupperneq 58
5f-
88GÍ SflAM .18 ÍIUOAaiJTMMN .aiGAJHMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
+
Vertu ratvís ísumar
Flug - bíll -
byggingameistari
Ein vika í \ú i í --
Ein vika íjúlí-águst. Verð pr. rnann.
ÞYSKALAND
Ein vika í jú'lí. Verð pr. mann__
,300.
’QZ&kr. 24.200.
kr. 23.600.
FLORIDA
Við mælum með Holiday inn., Orlando, 4 nætur og Coioniál Gatewa
á St. Petérsbtjrg:strönd„ 10 næíur:
Verð rmðað við tvo í gistingu.. .....kr. 47.130.
Hringid eða lítið inn. Veitum persónulega og góða þjónustu.
ímm$
'Ferötr
Ratvís ferðaskrifstofa— Hamraborg 1-3.. Sími: 641522.
Kveðjuorð:
Páll G. Jónsson
Fæddur 12. október 1917
Dáinn 26. marz 1988
Tröllaskagi, krýndur tignarleg-
um fjallgarði, skilur Eyjafjörð og
Skagafjörð, tvö af blómlegri land-
búnaðarhéruðum Norðurlands.
Siglufjörður sker sig frá norðri inn
í skagann miðjan. Siglunes lokar
síðan fjarðarmynninu að hluta til.
Þannig myndaði hönnuður landsins
frábæra lífhöfh við hið yzta haf.
Síðla á öldinni sem leið hófst
norsk-íslenzkt samstarf og framtak
um síldveiðar, sfldarsöltun og
sfldariðnað [bræðslu feitfisks í mél
og lýsi]. Sfldariðnaðurinn var stór-
iðja síns tíma. Malaði mikið gull í
þjóðarbúið fram yfir miðja tuttug-
ustu öldina. Skilar raunar dtjúgum
hlut enn.
Siglufjörður varð höfuðstaður
þessarar stóriðju. Þangað flykktist
fólk víðsvegar að af landinu til
starfs og búsetu, unz sfldarævintýr-
inu lauk sakir ofveiði sfldveiðiflota
margra þjóða. Góð helft Siglfirð-
inga kom úr Skagafirði. Þar liggja
rætur íjölmargra siglfirzkra heim-
ila. Þaðan komu meðal annarra
sæmdarhjónin Pálína Pálsdóttir og
Jón Bjömsson, trésmíðameistari,
sem kennd vóru við Ljótsstaði á
Höfðaströnd. Þau settu um langan
aldur svip sinn á Siglufjörð.
Eitt bama þeirra hjóna, Páll Gísli
Jónsson, byggingameistari, hélt
tryggð við Siglufjörð ævina á enda,
þótt aðstæður breyttust við hrun
sfldarstofnsins og Ijölmargir leituðu
á önnur mið. Hann var hinn dæmi-
gerði Siglfirðingur að trúmennsku
og dugnaði. íbúar Siglufjarðar eru
VANTAR ÞIG
DYNU?
E-HEILSUDYNA
Mýkir, loftræsir og vermir rúmið. Staðlaöar
stærðirogeftirmáli.
Verðfrákr. 2.509.-
LATEXDÝNA
I stöðluðum stærðum og eftir máli.
Verðdæmi: Stærð 75x200x12 kr. 6.750.- *
í mörgum gæöaflokkum og öllum stærðum.
Staðlaöar stærðir til afgreiðslu samdægurs.
Verðdæmi: Stærð 75x200x12
kr. 4.200.-m/veri
SPRINQDÝNAMEÐVERl
í stöðluðum stærðum og eftir máli.
Verðfrá kr. 8.100.-
E7
PÉTUR SNÆLAND HF
SKEIFUNNI8
S: 685588
nú um eða innan við 65% af íbúa-
tölu bæjarins þá hún var hæst.
Páll Gísli Jónsson var fasddur á
Ljótsstöðum á Höfðaströnd 12.
október 1917. Æska hans og upp-
eldi mótaðist annarsvegar af gam-
algrónum, skagfírzkum bænda-
hefðum, hinsvegar af nýjum við-
horfum vaxandi útgerðar- og fisk-
vinnslustaðar, sem hafði náin tengsl
við umheiminn, einkum Noreg,
Svíþjóð og Danmörku, vegna
margskonar samskipta í tengslum
við sfldariðnaðinn.
Páll fetaði í fótspor föður síns í
starfsvali og varð byggingameist-
ari. Hann nam iðn sína bæði hér-
lendis og í Danmörku. Þar kynntist
hann eftirlifandi konu sinni, Eyvor
Jónsson, sem er sænskfædd. Þeim
varð sex bama auðið. Þau eru:
Víóla, gift Kristni Rögnvaldssyni,
byggingameistara í Siglufirði, Maj-
Britt, gift Jóhannesi Blöndal, raf-
virkjameistara frá Siglufirði, búsett
í Reykjavík, Jón Pálmi, bæjarritari,
kvæntur Katrínu Leifsdóttur, Karl
Eskil, kennari, kvæntur Jóhönnu
Ragnarsdóttur, Bjöm Gunnar, sjó-
maður, kvæntur Jóhönnu Sveins-
dóttur, og Erik, nemi. Þá átti Páll
dóttur fyrir, Þórhildi, gifta Kristjáni
Lárentínussyni, skipstjóra í Stykk-
ishólmi.
Páll stundaði sjálfstæðan at-
vinnurekstur í Siglufirði framan af
starfsferli sínum. Prá árinu 1952
og meðan starfsþrek gafst starfaði
hann sem byggingameistari Síldar-
verksmiðja ríkisins. Hann var hagur
maður, eins og hann átti ætt til,
og harðduglegur. Þau verkefni vóru
í góðum höndum, í þeirra ofða beztu
merkingu, sem hann tók að sér.
Páll starfaði einnig að félagsmál-
um í heimabæ sínum. Sá sem þetta
ritar minnist hans einkum í starfí
innan samtaka sjálfstæðisfólks í
Siglufirði. Þar var hann verkfús,
ráðhollur og tillögugóður. Hann var
varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn um árabil. Siglfirzkir sjálf-
stæðismenn, heima og heiman,
þakka honum af heilum hug góða
samfylgd og ánægjulegt samstarf.
Páll var og lengi virkur félagi í
Rotarýklúbbi Siglufjarðar.
Páll á Ljótsstöðum er allur. Siglu-
fjörður hefur misst einn af sínum
trúu sonum og veiunnurum. Páll
verður lagður til hinztu hvfldar
næstkomandi laugardag, 2. apríl, í
firðinum sem átti hug hans. Þar
sem hjarta hans sló glaðast, meðan
sól var enn hátt á himni starfsævi
hans, meðan dagamir vóru langir,
bjartir og litfagrir — og tilhlökkun-
in brú yfír í morgundaginn. Megi
hann ganga farsællega þá gullinbrú
sem liggur yfir í morgundag bak
dauðans.
Ég og fjölskylda mín sendum
Eyvor og öðrum ástvinum Páls á
Ljótsstöðum innilegar samúðar-
kveðjur.
Stefán Friðbjamarson