Morgunblaðið - 31.03.1988, Blaðsíða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
ÞYSKALAND
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Hvað sögðu þeir?
Liðsheild, taugar, reynsla
Ásgeiri
hrósaðí
hástert
Ínýjasta tölublaði Bild, sem
kom út í gær, er heilsíðugrein
um velgengni Stuttgart í v-
þýsku úrvalsdeildinni ' knatt-
spymu, en liðið hefur fengið 13
stig af 14 mögulegum í síðustu
7 leikjum. Fyrirsögnin er „Þegar
Asgeir gefur boltann fyrir þá
er Stuttgart í skýjunum."
í þessari grein er fjallað um
velgengi Stuttgart og sagt að
Ásgeir sé maðurinn á bak við
frábæran leik liðsins. „Hefði
Ásgeir leikið alla leikina væri
Stuttgart á toppnum. Styrkur
hans sést best á því að liðið
hefur ekki tapað einum einasta
leik sem hann hefur leikið í vet-
ur.“
„Ásgeir hefur átt við meiðsli að
stríða í vetur og það hefur bitn-
að á leik liðsins. Þegar Ásgeir
meiddist varð Arie Haan að
breyta leikskipulagi liðsins og
Stuttgart fór að tapa. En nú er
Ásgeir kominn aftur og liðið er
á góðri leið með að tryggja sér
sæti í UEFA-keppninni. En ef
Ásgeir hefði verið með allan
tímann hefði liðið náð mun
lengra," segir í greininni.
Stanislaw Modrowski,
þjðlfari Vals
„Enginn getur verið eins ánægður
og ég. Sigurinn og meistaratitillinn
skiptir mig meira máli en nokkurn
annan. Við sigruðum fyrst og
fremst vegna þess
Steinþór að við vorum í jafn-
Guðbjartsson vægi, vorum ekki
skrifar taugaóstyrkir,
ætluðum að gera
okkar besta og hafa gaman af þessu
og höfðum það. Mínir menn léku
allir vel, en Júlli stóð upp úr. Þetta
var mikilvægur áfangi fyrir mig,
en ég veit ekkert um framhald mitt
hjá Val.“
Vlggó Sigurösson, þjálfari FH
„Ég óska Valsmönnum til ham-
ingju, sigur þeirra var sanngjarn.
Við töpuðum og í raun er ekki
hægt að kenna neinu einu um.
Vamarleikur okkar var slakur, við
reyndum ýmis kerfí, en þau gengu
ekki upp. Dómaramir stóðu sig
mjög vel og sýndu að þeir em þeir
bestu, sem við eigum.“
Þorstainn Pálsson,
forsaatisróAherra
„Ég var rólegur, því ég held með
Víkingum, en betra liðið sigraði í
skemmtilegum leik. Valsmenn
höfðu undirtökin allan leikinn og
sigruðu á liðsheildinni — þeir eru
allir góðir drengir."
Bogdan Kowalczyk,
landslidsþjáffari
„Leikurinn var eins og gera mátti
ráð fyrir, úrslitin komu ekki á
óvart, því að mínu mati voru sigur-
möguleikar Valsmanna níu á móti
einum. Þeir eru með mun reyndara
lið og reynslan hefur mikið að segja
í úrslitaleik. Þeir eru með fleiri
stjömur, landsliðsmenn, leikmenn
sem skara fram úr, og þeir stóðu
vel fyrir sínu á sama tíma og að-
eins Oskar Ármannsson stóð upp
úr hjá FH. í raun má segja að ár-
angur FH sé betri en ætlast má til
af jafn reynsiulitlu liði.“
Geir Sveinsson, fyririiói Vals
„Ég hef aldrei verið eins ánægður
eftir leik, þó ég hafi ekki skorað,
aldrei liðið eins vel. Sálfræðilegur
undirbúningur okkar var góður,
hann skilaði sér og þáttur þjálfar-
ans var mikill. Við áttum svar við
sóknarleik FH, vömin var sterk og
Einar góður og á sama tíma gekk
sóknarleikur okkar upp.“
Þorglls Óttar Mathiesen,
fyririlAi FH
„Ég óska Valsmunnum til hamingju
með sigurinn, sem var sanngjarn.
Það er engin skömm að tapa fyrir
þeim, þeir eru með fímm landsliðs-
menn og lið þeirra er mun reynslu-
meira en okkar. Þeir vom einfald-
lega betri en við.“
Júlfus Jónasson, Val
„Um leið og ég gekk inn í húsið
vissi ég að við færum með sigur
af hólmi. Þeir virtust taugaóstyrkir,
en við vorum ákveðnir í að sigra.
Þetta var sigur liðsheildarinnar, allt
gekk upp í vöm og sókn og auk
þess skipti heimavöllurinn miklu
máli.“
Óskar Ármannsson, FH
„Við gerðum okkar besta, en sigur
Valsmanna var sanngjam. Þeir
sigruðu fyrst og fremst á betri varn-
arleik og við náðum ekki hraðaupp-
hlaupum, en næsta ár verður okk-
ar.“
Valdimar Grímsson, Val
„Þetta er stórkostlegt, frábær endir
á góðu keppnistímabili, mikilvæg-
asti leikur, sem ég hef leikið og
úrslitin þau ánægjulegustu. Við
þekkjum vel leikkerfí FH, undir-
bjuggum okkur vel og héldum haus,
þegar á reyndi. Áhorfendur höfðu
mikið að segja, heimavöllurinn
sannaði sig og dómararnir stóðu sig
með prýði.
Jakob SlgurAsson, Val
„Leikreynslan og einbeitingin réðu
baggamuninn. Við hugsuðum ekki
um titil heldur stig, stig, sem voru
nauðsynleg í langri keðju, fengum
þau og lokuðum keðjunni. Þetta var
samvinna utan sem innan vallar,
samvinna, sem skilaði sér í lang-
þráðum titli."
Hilmar Bjömsson,
fyrrv. þjálfari Vals
„Þetta var mjög skemmtilegur leik-
ur. Vamarleikur Valsmanna var
betri, sóknamýting þeirra var góð
og geta þeir fyrst og fremst þakkað
Júlíusi og Valdimar, sem ráku enda-
hnútinn á sóknimar og settu nær
öll mörkin. FH-liðið er gott, en
strákamir eru ungir og reynslulitlir
og slíkt kann ekki góðri lukku að
stýra í úrslitaleik."
- firnafeitur og á leiðinni yfír fjórar milljonir!
Á síðustu tveimur vikum hefur engin röð komið fram með tólf réttum.
Spáðu því vandlega í liðin og spilaðu með af þreföldum krafti,
- núna getur þekkingin fært þér milljónir!
V /
\ ✓
V
ISLENSKAR GETRAUNIR
- eini lukkupotturinn þar sem þekking
margfaidar vinningslíkur.
*
Hægt er að spá í leikina símleiðis og
greiða fyrir með kreditkorti.
Þessi þjónusta er veitt alla
föstudaga frá kl. 9:00-17:00
og laugardaga frá kl. 9:00-13:30.
Síminn er 688 322
Upplýsingar um úrslit í síma 84590.