Morgunblaðið - 10.04.1988, Side 1
96 SIÐUR B
nmiíwMalnili
STOFNAÐ 1913
81,tbl. 76. árg.
SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Noregur
sæki um
EB-aðild
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara
Morgunblaðsins.
SAMBAND norskra fiskeldis-
stöðva telur, að Noregur verði
að sækja um aðild að Evrópu-
bandalaginu. „Án EB-aðildar
mun norskt fiskeldi lenda í erfið-
leikum," segir Sveinung Havre-
vold, nýkjörinn formaður sam-
bandsins.
Sambandsstjómin stendur ein-
huga að kröfunni um EB-aðild
vegna sívaxandi verslunarhafta
bandalagsins á þessum áratug.
Frakkland, Vestur-Þýskaland og
Spánn eru nú orðin aðalmarkaðs-
lönd norsks fiskeldis. Lækkandi
gengi dollarsins hefur dregið úr
aðdráttarafli Bandaríkjamarkaðar-
ins, og fara um 70% af þessum
útflutningi til Evrópu eins og stend-
ur.
Norskir fískeldismenn óttast enn
fremur að EB muni enn auka höft-
in á þessum vettvangi í því skyni
að vemda eigin framleiðslu, en hún
er nú 25.000 tonn á ári og eykst
með svipuðum hraða og hjá Norð-
mönnum.
Fiskeldi í Noregi jókst aðeins um
4% á árinu 1987, en gott heims-
markaðsverð olli því, að veltan jókst
úr 1,7 milljörðum norskra króna
(ríflega 10 milljörðum ísl. kr.) f 2,1
milljarð n. kr. (tæplega 13 milljarða
ísl. kr.). Markmiðið er, að veltan
fari yfir þijá milljarða á þessu ári.
Norðmenn hafa styrkt stöðu sína á
heimsmarkaðnum, og eins og málin
standa nú koma um 70% af heildar-
framleiðslunni á eldislaxi og -sil-
ungi frá Noregi.
Mikillar bjartsýni gætir enn inn-
an þessarar atvinnugreinar, en
síðustu árin hefur þeim fyrirtækjum
farið fjölgandi, sem orðið hafa að
þola stórfellt tap. A það einkum við
um fyrirtæki í Mið- og Norður-
Noregi, en flestum eldisstöðvanna
í Vest.ur-Noregi hefur vegnað mjög
vel. í fyrra töpuðu norskir bankar
allt að 180 milljónum n. kr. (ríflega
milljarði ísl. kr.) á viðskiptum við
flskeldisfyrirtæki. Stærsti bankinn
í Noregi, Den norske Creditbank,
tapaði t.d. milli 60 og 70 millj. n.
kr. á viðskiptunum við tvö þessara
fyrirtækja, Einvikfisk og Mariteck.
r« >' ’ .•
..
*
I Landmannalaugum
Morgunbladið/Ámi Sæberg
Hóta frekari morðum
fái þeir ekki eldsneyti
Larnaka, Kýpur. Reuter.
RÆNINGJAR kuwaísku far-
þegaþotunnar myrtu f gær her-
mann, sem var farþegi í þot-
unni, þegar ekki var orðið við
kröfum þeirra um að fá elds-
neyti á þotuna. Hótuðu þeir að
færa flugvallaryfirvöldum fleiri
„gjafir af þessu tagi“ ef þeir
fengju ekki eldsneyti til þess að
halda ferð sinni áfram. Skömmu
síðar nálguðust tveir opinberir
embættismenn á Kýpur, ásamt
fulltrúa PLO, flugvélina. Að
sögn sjónarvotta gekk fulltrúi
PLO upp landganginn og ræddi
við einhvern inni f vélinni í dyr-
unum. Því næst benti hann fylgd-
armönnum sfnum að koma til sfii
og taka þátt f samtalinu. Þegar
blaðið fór í prentun eftir hádegi
í gær var þotan enn á flugvellin-
um f Larnaka á Kýpur.
„Þið hafíð dregið úr hömlu að
láta okkur hafa eldsneyti. Komið
með sjúkrabíl og lfkkistu. Ef þið
fyllið ekki þotuna fáið þið fleiri gjaf-
ir af þessu tagi,“ sagði einn hryðju-
verkamannanna. Fréttamenn gátu
hlerað fjarskipti þotunnar og flug-
Fimm dagar kvíða og angistar
Nikósíu, Reuter
Martröðin, sem nú hefur staðið f fimm daga f flugvélinni frá Kuwait,
hófst í 10 km hæð yfir Arabíska hafinu þegar maður vopnaður skamm-
byssu hrópaði að vélinni hefði verið rænt. í stuttu máli hefur at-
burðarásin verið á þennan veg:
Þriðjudagur 5. apríl.
02.30 (að ísl. tíma) — Flugræningjar ná Boeing 747-þotu Kuwait Airways,
Flug KU422, á sitt vald. Vélin var á leið frá Bangkok til Kuwait.
03.40 — Flugvélin sem hefur 97 farþega innanborðs og 15 manna áhöfn
fær lendingarleyfí á Mashad-flugvelli í norðausturhluta Irans eftir að flug-
maðurinn segist eiga lítið eldsneyti eftir.
15.00 — Flugræningjarnir, sem tala arabísku, krefjast þess að 17 strangtrú-
uðum múslímum verði sleppt úr fangelsi í Kuwait.
Miðvikudagur 6. aprfl.
24 konum er sleppt. Nefnd á vegum Kuwaitstjómar flýgur til Mashad til
að reyna að binda enda á flugránið á friðsamlegan hátt. „Skiptir engu
hvaða þrýstingi við erum beittir, við munum ekki láta af kröfum okkar,"
segja ræningjamir.
Fimmtudagur 7. aprfl.
01.00 — Flugræningjamir sleppa 32 gíslum og segja að enn séu 50 um
borð, þar af flestir Kuwaitbúar. Stjóm Kuwait neitar að semja uns öllum
gíslunum hafi verið sleppt. Ræningjamir gefa Kuwaitstjóm frest til kl. 8.30
að svara kröfum þeirra og segja að ella muni þeir fljúga annað.
Föstudagfur 8. aprfl.
10.00 — Starfsmenn flugtumsins segja að heyrst hafí angistaróp inni í
vélinni. Verið sé að misþyrma farþega. Ræningjamir skjóta þremur viðvör-
unarskotum og farþegi er dreginn út á landganginn við vélina.
10.30 — Handsprengju er varpað á flugbrautina. íranir samþykkja loks að
fíarlægja hindranir og láta eldsneyti í té.
11.15 — Flugvélin hefur sig til flugs og stefnir í átt til Beirút.
13.58 — Embættismenn í Beirút sem fengið hafa nóg af flugránum segja
að flugvélinni verði ekki leyft að lenda.
15.48 — Hersveitir Sýrlendinga skjóta viðvörunarskotum að flugvélinni í
þann mund er hún hnitar hringi yfír flugvellinum. Grátandi farþegi um
borð biður um leyfí fyrir hönd ræningjanna til að lenda. „Þið eruð að sóa
tíma ykkar,“ var svarað í flugtuminum.
16.47 — Flugræningjamir hóta að brotlenda á Beirút-flugvelli. Flugvélin
tekur dýfur yfír vellinum. Loks fjarlægist hún Beirút.
18.17 — Flugvélin lendir á Lamaka-flugvelli á Kýpur.
tumsins en eftir líflát öiyggisvarð-
arins féllust ræningjarnir á að
hætta talstöðvarsambandi en láta
tvo fulltrúa stjómarinnar bera
skilaboð á milli.
Ræningjamir gáfu hvem frestinn
af öðmm til að fylla þotuna, en
brást þolinmæðin klukkan 8.30 í
gærmorgun að íslenzkum tíma og
myrtu einn gísla sinna. Vörpuðu
þeir líkinu út um dyr á þotunni í
nærbuxum einum fata. Lá það á
flugstöðvarhlaðinu í 15 mínútur
áður en þeir báðu um að það yrði
hirt upp. Talsmaður stjómvalda á
Kýpur sagði að hermaðurinn hefði
látist af völdum höfuðhöggs en
ekki verið skotinn, eins og ræningj-
amir héldu fram. Vora áverkar á
höfðinu aftanverðu. Læknar sögð-
ust síðar hafa fundið brot úr
byssukúlu í höfði hins látna.
Sagt var að ekki væri hægt að
setja eldsneyti á þotuna þar eð nú
væri frídagur, en Grikkir halda nú
páska. Embættismaður hvatti ræn-
ingjana til þess að láta gísla sína
lausa, en þeir era um 50 talsins,
þar á meðal þijú skyldmenni furst-
ans í Kuwait. Var látið í það skína
að frelsi gíslanna væri skilyrði fyrir
því að eldsneyti yrði sett á þotuna.
Ræningjamir kvörtuðu sáran yfír
því í gær að loftræsting þotunnar
starfaði ekki eðlilega.