Morgunblaðið - 10.04.1988, Blaðsíða 56
88ex JlJNA .01 flUOAaUHMUg .aiOAJflVlUOflOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
SV.-EÐISSTJÓRN MALEFNA FATLAÐRA
NORÐL'RLANDI EVSTRA
Stórholti 1
600 AKUREYRI
Svæðisstjórn
málefna fatlaðra á
Norðurlandi eystra
Svæðisstjórn rekur ýmsar þjónustustofnanir
fyrir fatlaða sem gegnir mikilsverðu hlutverki
á því sviði. Við auglýsum eftir starfsfólki með
þekkingu og reynslu og áhuga á að taka þátt
í faglegu samstarfi og mótun þeirrar þjón-
ustu sem veitt er.
Vistheimilið Sólborg.
2 stöður deildarstjóra. Deildarstjórar annast
verkstjórn á íbúðardeildum þar sem fjöldi
íbúa er yfirleitt 6-8. Deildarstjórar skulu hafa
menntun þroskaþjálfa eða aðra sambærilega
menntun. Deildarstjórar vinna yfirleitt dag-
vaktir.
5 stöður deildarþroskaþjálfa. Deildarþroska-
þjálfar eru nánustu samstarfsmenn deildar-
stjóra og skulu vera leiðandi faglega í því
starfi sem fram fer. Vaktavinna eða reglu-
bundinn vinnutími.
Ein staða yfirsjúkraþjálfara. Sjúkraþjálfari
skal annast og skipuleggja sjúkraþjálfun. Til
greina kemur að ráða sjúkraþjálfara sameig-
inlega að fleiri stofnunum s. s. að Sumarbúð-
um að Botni þar sem rekin er sumardvöl
fyrir þroskahefta og við Greiningar- og ráð-
gjafardeild Svæðisstjórnar.
Upplýsingar um stöður þessar veitir for-
stöðumaður Sólborgar í síma 96-21755.
Iðjulundur verndaður vinnustaður.
Ein staða deildarstjóra. Deildarstjóri skal
skipuleggja starf dagvistardeildar fyrir
þroskahefta sem rekin verður sem hluti af
starfsemi vinnustaðarins. Þroskaþjálfa-
menntun eða hliðstæð menntun áskilin.
Upplýsingar veitir forstöðumaður vinnustað-
arins í síma 96-25836.
Sumarbúðirað Botni.
Ein staða forstöðumanns. Forstöðumaður
skipuleggur og stjórnar starfi sumarbúð-
anna. Starfstími júní-ágúst. Fjöldi dvalar-
gesta er 10-12 á hverju 3-5 vikna tímabili.
Forstöðumaður skal hafa menntun á uppeld-
issviði og gjarnan reynslu af stjórnun.
12 stöður vaktavinnufólks við sumarbúðirnar.
Uppl. um stöður þessar veitir framkvæmda-
stjóri Svæðisstjórnar í síma 96-26960.
Sambýli fyrir geðsjúka.
Ein staða deildarstjóra. Sambýlið er ný
rekstrareining sem gert er ráð fyrir að taki
til starfa um mitt þetta ár. Sambýlið verður
rekið í nánu faglegu samstarfi við geðdeild
FSA. Deildarstjóri ber ábyrgð á daglegu
starfi innan sambýlisins. Æskilegt er að
umsækjandi hafi menntun sem félagsráð-
gjafi, kennari, sálfræðingur eða þroskaþjálfi.
Reynsla af stjórnun er jafnframt æskileg.
Uppl. veitir framkvæmdastjóri Svæðisstjórn-
ar í síma 96-26960 og yfirlæknir geðdeildar
FSA í síma 96-22100.
Forstöðumaður sambýla
Ein staða forstöðumanns sambýla. Þroska-
þjálfi óskast til að veita forstöðu sambýlum
fyrir þroskahefta sem svæðisstjórn rekur á
Akureyri. Staðan veitist í 1 ár frá 1. júní. nk.
Forstöðumaður hefur yfirumsjón með starf-
semi og rekstri sambýlanna.
Þroskaþjálfastöður eru jafnframt lausar til
umsóknar við sambýlin.
Upplýsingar veitir forstöðumaður sambýl-
anna og framkvæmdastjóri Svæðisstjórnar í
síma 96-26960.
Umóknir um allar þessar stöður skulu vera
skriflegar og sendast í pósthólf 557, 602
Akureyri. Umsóknarfrestur er til 25. apríl
næstkomandi.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Norðurlandi
eystra.
„Au-pair“ til
Svíþjóðar
Stúlka óskast sem fyrst til sænskrar fjöl-
skyldu í Gautaborg til að gæta tveggja
drengja og til heimilisstarfa.
Upplýsingar á íslensku í síma 90-45-
31876553, eða skrifið til (á íslensku eða
skandinavísku) R. Alfreðsdóttir, AX gatan
121, 43140, Mölndal, Sverige.
Ríkisspítalar
- starfsmannahald
Landspítalinn, blóðskilunardeild
(gervinýra)
Hjúkrunarfræðingur óskast á blóðskilunar-
deild Landspítala sem fyrst. 10 klst. vaktir
(8-18) 4 daga í viku.
Spennandi starf í örri þróun. Aðlögunartími,
mikil fræðsla.
Nánari upplýsingar gefur Sigríður Snæ-
björnsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
sími 29000-485.
Reykjavík, 10. apríl 1988.
Smiðir - bygginga-
verkamenn
Óskum að ráða smiði og menn vana bygg-
ingavinnu á Vatnsleysuströnd. Fæði og hugs-
anlega húsnæði á staðnum. Mikil vinna.
Upplýsingar í síma 92-46745 á staðnum og
í símum 92-14272 og 92-13035 á kvöldin.
Húsanes sf.,
Iðavöllum 13A,
Keflavík.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJÁVÍKURBORGAR
Droplaugarstaðir
heimili aldraðra, Snorrabraut 56
Starfsfólk óskast til sumarafleysinga:
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á hjúkr-
unardeild heimilisins.
Starfsfólk á vistdeild og í eldhús, ræstingu,
þvottahús o.fl.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
25811 milli kl. 9 og 12 f.h. virka dag.
Viltu vinna
í Hafnarbúðum?
í Hafnarbúðum við Tryggvagötu er starfrækt
hjúkrunardeild og dagdeild fyrir aldraða.
Okkur vantar starfsfólk í eftirtalin störf:
Hjúkrunarfræðingar óskast nú þegar til
starfa á næturvaktir á hjúkrunardeild. Einnig
vantar hjúkrunarfræðinga til sumarafleys-
inga.
Sjúkraliðar óskast til sumarafleysinga á
hjúkrunardeild og dagdeild.
Ritari óskast til starfa í júlí og ágúst.
Starfsfólk í ræstingar óskast til sumaraf-
leysinga.
Starfsfólk í býtibúr óskast til sumarafleys-
inga.
Starfsfólk í eldhús óskast nú þegar og til
sumarafleysinga.
Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara óskast til
sumarafleysinga.
Aðrar upplýsingar veittar í síma 14182 kl.
08.00-14.00 virka daga.
Verslunarstörf
Viljum ráða starfsfólk í eftirtalin störf:
Kringlan
1. Afgreiðsla í barnadeild.
2. Afgreiðsla í sportvörudeild.
3. Afgreiðsla á kassa.
4. Afgreiðsla í bakaríi.
5. Afgreiðsla í afgreiðsluborðum.
Skeifan 15
1. Afgreiðsla í bakaríi.
2. Afgreiðsla í kjötborði.
3. Verðmerkingar á sérvörulager.
4. Lagerstörf á matvörulager.
Kjörgarður
1. Afgreiðsla á kassa eftir hádegi.
2. Afgreiðsla á grænmetistorgi.
3. Afgreiðsla í kjötdeild.
Aðallega er um að ræða heilsdagsstörf en
hlutastörf koma einnig til greina.
Nánari upplýsingar hjá starfsmannahaldi
(ekki í síma) mánudag og þriðjudag kl. 15.00-
18.00. Umsóknareyðublöð hjá starfsmanna-
haldi.
HAGKAUP
Skeifunni 15.— Starfsmannahald.
Hlutastarf!
Okkur vantar fólk á skrá til starfa hálfan
daginn, fyrir og eftir hádegi.
1. Verslunarstörf.
2. Skrifstofustörf.
3. Ýmislegt fleira.
Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 9-16.
^UTVETTVANGUR
^ STARFSMIÐLUN
Skólavörðustíg 12, sími 623088. '
Ríkisspftalar
- starfsmannahald
Landspítalinn, svæfingadeild
Aðstoðarmaður óskast í 80% starf frá 1.
maí nk.
Starfið er fólgið í hreinsun og frágangi á tækj-
um. Góð vinnuaðstaða og aðlögunartími.
Nánari upplýsingar gefur Bergdís Kristjáns-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími
29000-508.
Umsóknir sendist skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra Landspítalans.
Reykjavík, 10. apríl 1988.
félagsmAlastofnun reykjavIkurborgar
Vonarstræti 4 — Sími 25500
Unglingaathvarf
Flúðaseli 61
Auglýst er eftir starfskrafti í 46% kvöldstarf.
Hér er um að ræða mjög fjölbreytt og gef-
andi starf með unglingum á aldrinum 13-16
ára. í athvarfinu eru 6-8 unglingar á hverjum
tíma og eru ástæður þess að þau leita stuðn-
ings okkar mjög mismunandi. Starfshópurinn
er lítill og samheldinn og samstarfsandi er
góður.
Æskilegt er að umsækjendur hafi háskóla-
jnenntun á sviði uppeldis-, félags-, kennslu-
og/eða sálarfræði, eða sambærilega menntun.
Umsóknareyðublöð fást á staðnum eða hjá
Starfsmannahaldi Reykjavíkurborgar, Póst-
hússtræti 9.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í
sima 75595 eftir hádegi virka daga.