Morgunblaðið - 10.04.1988, Blaðsíða 40
8891 JWIA 01 HU9AQUWÍU3 .ÖIÖAiaHUQÍIOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRIL 1988
40
Morgunblaðið/Bjami
Gill, söngkona Shark Taboo, með bassaleikara sveitarinnar í baksýn.
Samvinna ríkisstjórna Norður-
landa fer fram á vettvangi Nor-
rænu ráðherranefndarinnar.
Samvinnan snertirallflest svið
samfélagsins. Skrifstofan sérjafnt
umundirbúningogframkvæmd
þeirra verkefna sem ráðherra-
nefndin ákveðuraó ráðast skuli í.
Skrifstofan skiptist í fimm sér-
deildir, (fagavdelinger), upplýs-
ingadeild, fjárhags- og stjórn-
sýsludeild ogskrifstofu fram-
kvæmdastjóra.
Tónlistarlíf á Islandi
er ferskara en ytra
Rætt við meðlimi bresku sveitarinnar Shark Taboo
Breska hljómsveitín Shark
Taboo er nú stödd hér á landi
tíl tónleikahalds. Síðasta fimmtu-
dag hélt sveitin tónleika í Lækj-
artungli og annað kvöld eru tón-
leikar í Duus.
Shark Taboo ætti að vera mönn-
um kunn hér á landi, enda hélt
hljómsveitin nokkra tónleika hér í
ágúst á síðasta ári. Blaðamaður
spjallaði stuttlega við hljómsveitar-
meðlimi fyrir skemmstu til að fræð-
ast um hvað á daga hljómsveitar-
innar hefði drifið síðasta hálfa árið.
Draumur um plötu
Við fórum í tónleikaför um Bret-
land í október, fórum þá um land
allt og héldum tónleika í 10 borg-
um. A þessu ári höfum við aftur á
móti verið að semja ný lög sem við
ætlum okkur að setja á væntanlega
plötu. Enn er ekkert ákveðið með
hver gefur út, en við höfum einna
mest talað við Virgin útgáfufyrir-
tækið, enda höfum við áhuga á að
gera samning við fyrirtæki sem á
peninga til að leggja í hljómsveitina
þó peningar séu ekki takmark í
sjálfu sér. Draumurinn er sá að
gera sjálf plötuna og selja síðan
stórfyrirtæki útgfuréttinn.
Nú segist þið hafa verið að
semja lögi hefur tónlistin breyst?
Tónlistin hefur lítið breyst nema
þá að hún hefur kannski mýkra
yfrirbragð nú en áður. Textamir
fjalla, eins og áður, um hluti í um-
hverfi okkar og því hefur hljóm-
sveitin oft verið kölluð pólitísk
sveit. Það er þó ekki rétt að okkar
mati að hægt sé að setja hana á
svo ákveðinn bás.
Þessi heimsókn ykkar til ís-
lands er önnur heimsókn ykkar
á innan við ári. Verður það árleg-
ur viðburður að Shark Taboo
komi tíl íslands.
Við vildum gjaman að svo yrði,
enda þykir okkur gaman að spila á
íslandi. Tónlistarlíf hér er allt fersk-
ara en í Bretlandi, en þar er lifandi
tónlist víðasthvar að víkja fyrir vél-
rænni og kuldalegri diskótónlist.
Þannig tónlist er viðurstyggð í okk-
ar augum, ómanneskjuleg og köld.
Rokktónlist er tilfinningatónlist. Þó
er til góð diskótónlist, t.d. Motow-
ndiskó. Það er þó ekki þar með
sagt að öll rokktónlist sé betri en
diskótónlistin. Gott dæmi um lág-
kúmna í rokktónlist eru hljómsveit-
ir eins og BROS og álíka. Rokktón-
listin sem situr efst á vinsældalist-
um í Bretlandi og víðar er orðin svo
útþynnt að það hlýtur eitthvað að
gerast. Það verður eitthvað að ger-
ast. Þetta sér maður ekki í
Reykjavík, sem betur fer. Hér er
mikil gróska í lifandi tónlist og hér
em margar góðað hljómsveitir eins
og S.h. draumur og auðvitað Sykur-
molamir. Það var einnig gaman að
hljómsveitinni sem lék á undan okk-
ur á fímmtudag, Múzzólíní, þó hún
sé kannski heldur hrá.
Hvað er framundan hjá hljóm-
sveitinni? Dreymir ykkur um að
verða rík og fræg?
Ekki held ég það sé eitthvað eftir-
sóknarvert í sjálfu sér. Draumurinn
er sá að leika þá tónlist sem okkur
langar til að leika og það væri ekki
verra ef það myndi færa okkur
auð. Peningar em aftur á móti ekk-
ert markmið í sjálfu sér. Peningam-
ir eiga ekki að skipta máli, heldur
það hvemig þeim er varið. Það er
tónlistaráhugi sem rekur menn út
í að fást við tónlist, en ekki pen-
ingaáhugi.
I kvöld leikið þið í Duus. Er
eitthvað sérstakt sem þið viljið
segja væntanlegum tónleikagest-
um?
Það eina sem vitum um Duus er
að staðurinn er mjög litill og reynd-
ar er Shark Taboo hljómsveit sem
nær sér best á strik í litlum sal þar
sem gott samband næst við áheyr-
endur. Það heyrðum við þegar við
lékum í Casablanca í ágúst og því
er ekki annað en að benda fólki á
að troðfylla staðinn.
GJAFIR
MEÐ
YARANLEGT
GHDI:
Frægasta verk Hándels, Messías, ætti að vera í plötu-
safninu á hveiju heimili. Þessar nýjustu útgáfur
Pólýfónkórsins eru í sérflokki. Gildi þeirra er varan-
legt og þær verða safngripir er tímar líða.
IIAllEEN BRATmVAUf
iN\\ M. KAlDALÓNS
A1.T0
SlGRlÐlR BJA MACNÍSDÓrnR
TCiOR W
JON'niORSTtlNSSON
IAN PARTWDGE
RASS
FFTER COLEMAN-WUGHT
COMXJCTOR
INGÓUVR ClDBRAWSSOJi
iis líEi m
.... ■ f—raij---nW« ■ -
gfcjfe 'j'j
PÓLÝFÓNKLjMnX /957-1987
Fyrstu geisla-
diskamirmeð
íslenskum og
erlendum
flytjendum
æðri tónlistar
Á hljómplötu
(valdir kaflar):
Pol.0010
Á tveimur
geisladiskum:
Pol. 008-9
Saga
Pólýfónkórsins
í þrjátíu ár
Falleg bók, spennandi lesning
og merk heimild. Saga Pólýfón-
kórsins í 30 ár og umdeilds
stjómanda hans. Hvert var tak-
mark hans, hver voru laun
hans og hefur hann „keypt sér
sess með listamönnum?“
POLYFONKORINN