Morgunblaðið - 10.04.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988
“23
Danski kvikmyndaleikstjórinn Seren Kragh-Jacobsen.
„Á íslandi varir
klukkustundin
IV2 tíma“
„Mér þykir vænt nm ísland. Þad er eini
staðurinn í veröldinni þar sem
klukkustundin varir lv/2 tíma, svo
ríflegan tíma hafa allir aflögu og það þó
allir hafi aukavinnu.“
anski kvikmynda-
■ leikstjórinn Seren
U Kragh-Jacobsen hef-
ur nýlega fengið
styrk tii 10 daga handritsvinnu á
íslandi, þar sem hattn vill gjaman
gera mynd undir heitinu „Hús-
vörðurinn og heimsástandið".
Myndin á að íjalla um húsvörð
sem vinnur niðri í kjallaranum í
Höfða, þar sem leiðtogar Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna hittust
árið 1986. Meðan heimspressan
bíður utan við í ofvæni eftir frétt-
um og getgátur fá fntt spil, heyr-
ir húsvörðurinn allt sem fram fer
í gegnum pípumar og rörin í hús-
inu. En hann er slæmur í ensku,
svo þegar hann loksins nær mein-
ingunni, hvað það er í raun sem
þeir eru að tala um fyrir ofan
hann, er fundinum lokið. „Sirkus-
inn“ hefur pakkað saman.
„Það era svona sögur sem
fanga mig, hvemig stóratvik
spegla sig í lífi þeirra sem minna
mega sín.“
Meö vélbyssu um öxl
Kvimyndir vora annars ekki
það sem átti hug Sorens Kraghs-
Jacobsens þegar hann gaf
menntaskólann upp á bátinn.
Hann komst í læri sem rafeinda-
virki og fékk vinnu hjá Burmeist-
er & Wain-skipasmíðastöðinni í
Kaupmannahöfn. Kvikmyndafrík
hafði hann samt alltaf verið. „En
maður verður jú ekki leikstjóri af
því einu að fara í bíó fjóram sinn-
um í viku.“ Meðan hann var á
samningi skrifaði hann handrit
og tók stuttar 8 mm kvikmyndir
með stóra bróður sinum, Hans,
sem gekk með sömu kvikmynda-
bakteríu. Og eins og oft með
bræður, þá framkvæmdi Hans það
sem Soren Kragh-Jacobsen
dreymdi um, m.a. gekk hann á
kvikmyndaskólann í Prag.
Dag einn hringdi svo stóri bróð-
ir frá Prag. „Komdu hingað
strax," sagði röddin i símanum
og Soren sem gekk um gólf hjá
B&W með drauma um að gera
heimildarmynd um hina vinnandi
stétt, pakkaði niður i tösku og
hoppaði upp í næstu lest. Seren
Kragh-J acobsen hélt Prag út í tvö
ár, „þar sem ég lærði ekki baun
um kvikmyndir, en heilmikið um
sjálfan mig“. Þar upplifði hann
þá alþjóðlegu stemmningu, sem á
þeim tíma ríkti enn í Prag. Borg-
in var full af stúdentum frá Suð-
ur-Ameríku og Afríku, sem blésu
lífí í hið austur-evrópska stúden-
talíf.
„Mér opnuðust nýjar leiðir og
ég upplifði heiminn á nýjan hátt,
því margir af vinum mínum komu
frá Eritreu og höfðu lifað í felum
í fjöllunum með vélbyssu um öxl
frá því þeir vora 15 ára. Það eina
sem ég gat sagt þeim var að ég
hafði einu sinn dottið á hausinn
á skellinöðranni minni. Svo ég
hafði sko ekki neinar sögur að
segja öðram."
Myndir með allar
réttu meiningamar
Það var fyrir tilviljun að Seren
Kragh-Jacobsen byijaði hjá
bama- og unglingadeild danska
sjónvarpsins upp úr 1970. „Þar
var þá möguleiki til að vinna með
efni þar sem maður gat fengið
útrás fyrir bamaskapinn sem býr
í okkur öllum.“ Hann varð fljót-
lega trygging fyrir því að bama-
og unglingadeildin framleiddi
auðþekkjanlega, hlýjaogpersónu-
lega dagskrá. Síðan fylgdu kvik-
myndmar „Viltu sjá sæta naflann
minn?“ „Gúmmí-Tarzan, „ísfugl-
ar“ og nú síðast „Skugginn af
Emmu“. Þær hafa þrykkt inn í
vitund fólks ímyndinni af Soren
Kragh-Jacobsen sem „mannin-
um sem gerir þessar góðu, blíðu
myndir með allar réttu meining-
amar“.
„Samt er enginn vafi á, að á
meðal kvikmyndaleikstjóra er
langtum fínna að gera fullorðins-
myndir, þó að mér við fyrstu sýn
virðist það langtum léttara."
Strandaðir Baunar
Og nú er stefnan tekin til ís-
lands. „Það er bæði fyrir tilviljun
og sökum langvarandi áhuga míns
á landi og þjóð að ég vinn nú að
handriti þar sem ísland er í bak-
granni atburðanna. Sjálf megin-
hugmjmdin, sem mér finnst inni-
halda allt það sem góð kvikmynd
þarf til að bera, er leiðtogafundur-
inn í Reykjavík; það að lítið land
úti í hafsauga verður miðja heims-
ins í nokkra daga. Líkt og þegar
sirkus heimsækir lítinn bæ, dag-
legt líf fer úr skorðum um stund-
arsakir, á meðan framtíð heimsins
er rædd í húsi sem sagt er að sé
draugagangur í.
Hugmyndina fékk ég meðan á
leiðtogafundinum stóð.Ég hugs-
aði með sjálfum mén Hvað nú,
ef til staðar væri manneskja í
þessu húsi sem gæti heyrt allt það
sem fram færi, en ætti í erfíðleik-
um með að skilja það vegna van-
kunnáttu sinnar í ensku? Svo fínn-
ur hún allt í einu út að þessir
tveir á hæðinni fyrir ofan, sem
ræða um framtíð okkar allra, líf
og dauða, hafa sama vandamál
og aðalpersónan sjálf gagnvart
eiginkonu sinni: Að báðir aðilar
vilja gjama, en þeir treysta bara
ekki hvor öðram. Þannig að þetta
kemur til með að vera saga um
hvemig stórir hlutir eiga sínar
hliðstæður í þeim minni."
Þó efnið sé alvarlegt er líklegt
að efnistök verði með húmorfsku
ívafi, án þess þó að verða farsa-
kennd. Hrynjandi myndarinnar og
stílbrögð verða sennilega í anda
„Local Heroes" (Bill Forsyth).
„Auðvitað verður þetta dramatísk
mynd, en hún fjallar þó fyrst og
fremst um aðalpersónuna sjálfa
og hennar eigin litlu veröld. Það
er möguleiki á að það verði Dani,
strandaður Bauni, sem hefur búið
á íslandi í 20 ár. Ég hef hitt
marga slíka, sem kenna í Háskól-
anum eða hafa gifst íslendingi.
Einhvers staðar undir niðri lengir
þá eftir Danmörku, en þegar þeir
hafa verið viku í Kaupmannahöfn
hafa þeir fengið meira en nóg.“
fslenskt kvikmyndafólk
og leikarar
„Ástæðan fyrir því að ég hef
valið að hafa húsvörðinn danskan
er einfaldlega sú að annars er
ekki mögulegt fyrir mig að fá
styrk til myndarinnar frá dönsku
kvikmyndastofnuninni. Það er
möguleiki á að það verði konan
hans sem er dönsk og hann sjálf-
ur íslendingur.
Þetta kemur á engan hátt til
með að vera mynd sem reynir að
draga dár af íslendingum, líkt og
„Whisky Galore" (1949) gaf okk-
ur mynd af Orkneyingum sem
viskíþyrstum og framstæðum sjó-
mönnum norður í Ballarhafi, held-
ur hnyttin mynd um eina persónu
sem flækist inn í framandi at-
burðarás.
Ég vonast til að fá tækifæri til
að nota marga íslenska leikara,
en þetta er allt að sjálfsögðu und-
ir íslenskum yfirvöldum komið.
Það þarf ekki annað til en að ein-
hver lyfti vísifingrinum og segi:
„Hvað haldið þið eiginlega að þið
séuð? Nú voram við miðja al-
heimsins í 5 daga og því skal
ekki hreyfa við.“
Ef allt gengur að óskum verða
það annars vegar danska kvik-
myndastofnunin og hins vegar
Metronome sem koma til með að
framleiða myndina, en Metr-
onome hefur fjármagnað fjórar
af fyrri myndum Serens Kraghs-
Jacobsens, sem allár hafa skilað
sér flárhagslega. Auk þess reikn-
ar Seren Kragh-Jacobsen með að
leggja hluta af sínum eigin laun-
um í myndina. „Ég reikna með
að taka með mér sama hóp og
hefur unnið við síðustu fjórar
myndir mínar. Við jjekkjum hvort
annað inn og út. Utiupptökumar
á íslandi koma til með að taka
u.þ.b. mánuð, en allar inniupptök-
umar fara svo fram hér í Dan-
mörku. Annað er ekki mögulegt
innan þess ramma sem styrkur
dönsku kvikmyndastofnunarinnar
setur okkur. Tímatakmörkin sem
mér era sett við íslandstökumar
era að því leyti jákvæð að þau
gefa möguleika á tæknisamvinnu
milli islenskra og danskra kvik-
myndagerðarmanna. “
Norræn
kvikmyndaframleiðsla er
nauðsyn
„Ég gæti hugsað mér að takast
á við norræna kvikmynd, þar sem
allir tala meira eða minna skand-
inavísku. Margir íslendingar geta
talað og skilið t.d. dönsku, en
þeir vilja- bara ekki viðurkenna
það.“
Saren Kragh-Jacobsen undir-
strikar að samnorræn framleiðsla
á sviði kvikmynda sé sá vettvang-
ur sem norrænir framleiðendur
og leikstjórar ættu að gefa meiri
gaum. „Ég hef hvað eftir annað
rekið mig á það, þegar ég ferðast
á milli kvikmyndahátíða í veröld-
inni með myndimar mínar, að
norrænu löndin era sett undir einn
hatt sem Skandinavía. Þegar
maður sækir um að fá myndina
sína sýnda í einni af hinum mörgu
sérhátíðum, t.d. í Cannes, þá segja
viðkomandi aðilar alltaf: En við
höfum fyrir löngu fengið eina
skandinavíska kvikmynd. Þeir
segja ekki: Við höfum valið eina
danska mynd eða við höfum valið
eina íslenska mynd. Þegar Norð-
urlöndin hafa fengið þessa flokk-
un, þá er alveg eins gott fyrir
okkur að notfæra okkur hana.“
Viðtal: Gísli Friðrik Gíslason
Mynd: Michael Nevin
LOFTSKEYTAMANNATAL
Bókin „Loftskeytamenn og fjarskiptin" er
til sölu á skrifstofu Félags ísl. loftskeyta-
manna í Borgartúni 18, milli kl. 16.00-
18.00 mánudaga-föstudaga.
Símsvari utan skrifstofutíma, sími 13417.
)
ER NÆR OLDUNGIS
RUGLADURDRENGUR
KALLAÐUR