Morgunblaðið - 10.04.1988, Side 4

Morgunblaðið - 10.04.1988, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988 Sjávarútvegs- ráðherra: Óeðlilegt að skýrsl- an sé birt „ÉG VIL fá tækifæri til að ræða efni skreiðarskýrslunnar við hðf- unda hennar. Eg tel óeðlilegt að hún skyldi hafa verið birt áður en ríkisstjómin var búin að fjalla betur um hana,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð- herra, í samtali við Morgunblað- ið. Ríkisstjómin ^allaði um skreið- arskýrsluna á fundi sínum á fímmtudag. Halldór fór þá fram á það , að ráðherrar hittu nefndar- menn. „Við höfum ekki hitt þá enn. Ég hef tekið þá afstöðu, að tjá mig ekki um skýrsluna fyrr en eftir fund með þeim,“ sagði Halldór. Mjólkurstöðin í Þórshöfn: Urniið að endurbót- um næstu mánuði Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Lið Kjalnesinga Guðni Jóhannesson Garðabæ, Anna Kristín Jóns- dóttir Seltjamamesi og Gylfi Pálsson Mosfellsbæ. Lið Árnesinga Hreinn Ragnarsson Laugarvatni, Jóhannes Sigmundsson Hruna- mannahreppi og Sveinn Helgason Selfossi. Hvað heldurðu: Heilsugæslulæknirinn í Þórs- höfn, Sigurður Gunnarsson, rit- aði Hollustuvemd rikisins bréf fyrir nokkru, þar sem hann krafðist þess, að mjólkurstöð Kaupfélags Langnesinga yrði lokað, á meðan nauðsynlegar úr- bætur færu fram. Kaupfélagið hefur nú ákveðið að vinna að endurbótum i stöðinni á næstu fjórum mánuðum. Vegna þeirrar ákvörðunar hefur heilbrigðis- Rífandi stemmmnsf á Flúðum SelfoMÍ. 4—7 RÍFANDI stemmning og gif urleg spenna var í loftinu allan timann á meðan þáttur rikissjónvarpsins Hvað heldurðu var tekinn upp á Flúðum í Hrunamannahreppi. Húsfyllir var og áhorfendur sem og þátttakendur og gestir voru vel með á nótunum frá upphafi til enda. Þeir sem áttust við voru Áraesingar og Kjalnesingar og Bandarísk samgönguyfirvöld: Fallið frá hækk- un á símgjöldum Látið undan þrýstingi samtaka Islendinga í Bandaríkjunum Laugarhóli, Bjarnarfirði. SAMTÖK íslendinga í Banda- ríkjunum hafa komið því til leið- ar að þarlend samgönguyfirvöld hafa fallist á að ísland verði undanþegið hækkunum á simgjöldum milli landanna, en breytingar þar að lútandi tóku nýlega gildi þar vestra. Breyting- ar þessar fólust meðal annars í því, að ódýrasti símatíminn á milli viðkomandi landa var stytt- ur, og var ísland upphaflega i hópi þessara landa. Vepia þrýst- ings frá samtökum Islendinga vestan hafs- hefur hins vegar verið ákveðið að taka ísland út úr þessum hækkunarlista. íslendingafélagið í Washington, undir forystu formannsíns Guðrún- ar Martyny, var í fararbroddi í þessu hagsmunamáli og mótmælti þessum hækkunum við samgöngu- ráðuneyti Bandaríkjanna, jafíiframt {iví sem fréttabréf var sent öðrum slendingafélögum, sem þegar tóku undir þessi mótmæli. Íslendingafé- lagið í Washington hefur ennfremur beitt sér fyrir stofnun nýrra sam- taka „Friends of Iceland", en innan vébanda þess eru jafnt íslendingar sem Bandaríkjamenn og er tilgang- ur félagsins að gæta hagsmuna íslands S Bandaríkjunum. Simamál- ið er fyrsta málið sem „Friends of Iceland" lætur til sfn taka á þessu sviði. Bandaríska símafélagið AT & T, sem hefiir haft með þessar hækkan- ir vestan hafs að gera, hefur boðað stjóm íslendingafélaganna í Was- hington og New York á sinn fund hinn 15. apríl næstkomandi til umræðu um hvemig leysa megi símgjáldamálið báðum í hag. S.H.Þ. verður viðureign þeirra send út i ríkissjónvarpinu f kvöld. „Ég held þetta verði bara einn besti þátturinn til þessa," sagði Ómar Ragnarsson í lok upptökunn- ar. Viðureign Ámesinga og Kjál- nesinga er í undanúrslitum keppn- innar og mun það lið sem sigrar í kvöld keppa til úrslita við iið Reyk- víkinga eða ísfírðinga sem einnig eigast við í undanúrslitum. Keppni ísfírðinga og Reyk- víkinga verður tekin upp á Bolung- arvík 15. aprfl og send út þann 17. Úrslitakeppnin verður send út 24. aprfl og að sögn Ómars Ragnars- sonar verður sú keppni á hlutlaus- um velli. Ekki er búið að ákveða þann völl en til greina koma staðir í nágrenni Reykjavíkur og Ames- sýslu. Þátturinn sem tekinn var upp á Flúðum var sá 21. í röðinni en alls verða þættimir 23 talsins. í lokin er gælt við að velja hag- yrðing þáttanna og líka eftirminni- legustu vísuna. Þá benda sumir á að líka megi útnefna óvæntustu uppákomuna eða frískasta bjöllu- takið. Sig. Jóns. nefnd staðarins hætt við að loka stöðinni, en Hollustuvernd rikis- ins mun hins vegar taka afstöðu til þess, hvort undanþága verður veitt frá þeirri reglu að hafa fastráðinn mjólkurfræðing við stöðina. í bréfí Sigurðar Gunnarssonar kom fram, að þremur atriðum væri ábótavant í mjólkurstöðinni. Sírita vantar til að fylgjast með hitastigi mjólkur, skolkerfí stöðvarinnar er bilað og pökkunarvélin sömuleiðis. Vegna þessa ráðlagði heilsugæslu- læknirinn fólki frá því að drekka mjólkina, þar sem hún væri gölluð. Eftir að aðfínnslur læknisins komu fram, ákvað Kaupfélagið að vinna að lagfæringum á stöðinni og er áætlað að þær taki fjóra mánuði. Heilbrigðisnefnd staðarins ákvað að taka tillit til þessa og var stöðinni því ekki lokað. Halldór Runólfsson, deildardýra- læknir hjá Hollustuvemd ríkisins, sagði að stofnunin hefði nú fengið öll gögn um málið frá heilbrigðis- nefnd og heilbrigðisfulltrúa staðar- ins. „Endurbótaáætlun Kaupfélags- ins gerir ráð fyrir að mjólkurfræð- ingur frá nærliggjandi stöð hafi eft- irlit með þessum endurbótum og daglegri framleiðslu," sagði Halldór. „Hollustuvemd ríkisins þarf að sam- þykkja þessa tilhögun, þar sem skylt er að hafa fastráðinn mjólkurfræð- ing á staðnum. Sýni af framleiðslu stöðvarinnar undanfama daga sýrta að hún fer batnandi, en sem stendur er málið í biðstöðu hjá okkur." Leiðrétting í inngangi og undirfyrirsögn fréttar á íþróttasiðum blaðsins í gær var Þorbjörn Jensson hand- knattleiksþjálfari tvivegis sagð- ur Guðmundsson. Beðist er vel- virðingar á þessum mistökum. íslenskt prestsembætti í Svíþjóð: Alþingi taki ákvörðun - segir Bernharður Guðmundsson, fréttafulltrúi Þjóðkirkjunnar „EKKI hefur borist formleg beiðni frá Svíþjóð varðandi áframhaldandi prestþjónustu við íslendinga i þar i landi en þegar hún berst verður hún tekin til meðferðar i Kirkjuráði," sagði Bemharður Guðmundsson, fréttafuUtrúi Þjóðkirkjunnar, en 1. júli n.k. rennur út starfstimi islensks prests f hálfu starfi i Svfþjóð þar sem Svfar vifja ekki lengur kosta starfsemina. Bern- harður sagði að íslendingar i Svíþjóð óskuðu eftir að prestur Leiðrétting í FRÉTT af áskorun rúmlega 300 starfsmanna f verksmiðjum Sam- bandsins á Akureyri, sem birtist f blaðinu i gær, er Bogi Péturs- son sagður verksmiðjustjóri en það er ekki rétt, hann er verk- stjóri. sæti áfram en til þess að svo gæti orðið, yrði Alþingi að sam- þykkja stofnun sliks embættis, sem færi inn á fjárlög. Dómkapelláninn í Uppsölum setti starfíð á laggimar fyrir þremur árum í tilraunaskyni. Fór hann fram á það við sænska Kirkjumálaráðu- neytið að þetta tilraunaverkefni verði að föstu starfí eins og þekkt er um kirkjulega þjónustu við fólk af erlendum uppmna en fengið nei- kvætt svar. Taldi Bemharður eðli- legt að sænska kirkjan sinnti ís- lendingum ekki síður en öðmm þjóðum. „íslendingar búsettir erlendis em hvergi eins maigir og í Svíþjóð og þess vegna er það mjög æskilegt að þessi prestþjónusta haldi áfram. Það er mikil ánægja með starf séra Helgu Soffíu og sóknarböm hennar sem flest em námsmenn, em þjóð- kirkjufólk sem vill halda góðum tengslum við arfleifð sína,',,■ sagði Bemharður. Rangárvellir: „Hafi maður gaman af hlutunum ganga þeir vel“ - segja hjónin á Kaldbak sem framleiða bestu mjólk- ina á Suðurlandi SdfoaaL „OKKUR finnst þetta bara eðli- legt. Við höldum kúnum hrein- um og vöndum vel júgurþvott,“ sögðu þjónin Sigríður Heið- mundsdóttir og Viðar Steinars- son á Kaldbak á Rangárvöllum sem fengu þriðja árið f röð fyrstu verðlaun frá Mjólkurbúi Flóamanna fyrir framleiðslu á úrvalsnyólk. Þau eru númer eitt f hópi 70 framleiðenda úrvals- mjólkur sem taldir eru upp i ársskýrslu búsins 1987. Þau hjónin hófu búskap 1980 og em með 440 ærgilda bú, 11 kýr og 150 kindur. Þau sögðu að það hjálpaðist margt að því að mjólkin væri þetta góð. Árangurinn byggð- ist fyrst og fremst á því að þrifnað- ur væri í lagi. Metnaður mjólkur- búsins fyrir góðri mjólk væri smit- andi og einnig hjálpaði það til að dýralæknirinn sem þau hefðu fýlgdist vel með. „Við leggjum mikla vinnu f mjaltimar og við að halda kúnum hreinum, klippa þær, þrífa júgrin og halda öllu hreinu sem nærri þeim kemur. Það er líka nauðsyn- legt að passa upp á alla þætti í mjaitakerfínu og þrífa það allt mjög vel. Það er nú svo einfalt að hafí maður gaman af hlutunum þá ganga þeir vel,“ sagði Sigríður. Hún sagði einnig að það fylgdust Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Hjjónin Viðar Steinarsson og Sigrfður Heiðmundsdóttir á Kald- bak með viðurkenningar siðustu þriggja ára fyrir framleiðslu á úrvalsnýólk. ailir spenntir með gerlafjöldanum í mjólkinni en sýni eru tekin viku- lega og rannsóknarstofa mjólkur- búsins sendir niðurstöðumar með mjólkurbílnum. Viðar sagði að þau gætu fram- leitt 70 þúsund lítra í Qósinu með fullum afköstum en hefðu fullvirð- isrétt fyrir 40 þúsund Htra. Hann lét f ljós þá skoðun að meiri umbun mætti vera til þeirra sem framleiða úrvalsmjólk svo sem með meiri fullvirðisrétti og sfðan aftur hegn- ing fyrir að framleiða slaka mjólk. Þannig næðist upp meiri metnaður hjá fólki. „Það væri gott ef mjólkur- búið hefði einhvem ákveðinn Iftra- fjölda sem það gæti fært á milli eftir gæðum hjá hveijum og einum. Við reynum að sinna verkunum af alúð og látum aldrei fjósverkin f hendumar á neinum öðrum. Við verðum að hugsa um það að við emm að framleiða matvöm," sagði Viöar. Viðurkenningin sem þau hjón fengu er áletruð eftirlfking af mjólkurbrúsa. Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.