Morgunblaðið - 10.04.1988, Page 28

Morgunblaðið - 10.04.1988, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988 „ÞETTA er mesta áfall, sem KGB hefur orðið fyrir í Vestur-Þýzkalandi síðan sambandslýðveldið var stofiiað,“ sagði Kurt Rebmann rikissaksóknari þegar hann tilkynnti skðmmu fyrir páska að sex menn hefðu verið handteknir vegna gruns um að þeir hefðu njósnað fyrir Rússa um árabil. Tíu dögum áður hafði Elke Falk, 43 ára ráðuneytisritari og ein af svokölluðum „gráum músum“ í Bonn, verið handtekin af sömu ástæðu. Rebmann neitaði því að nokkurt samband væri þarna á milli, en spáði fleiri handtökum. Sexmenningamir unnu sjálfstætt og mynduðu ekki njósnahring. Þeir höfðu sambönd í heraflanum, landamæralög- reglunni, ríkis- stofhunum og sjúkrahúsum og útve- guðu KGB upplýsingar um hermál, iðnað og tækni. Nokkrir þeirra eru fæddir í Sovétríkjunum, en hafa fengið vestur-þýzkan ríkisborgara- rétt. Þrír þeirra eru verkfræðingar og einn þeirra er með kólombískt vegabréf. Tveir þeirra eru kennarar og sá sjötti er kaupsýslumaður. Enn einn verkfræðingur var handtekinn í Bem í SvÍ8S. Allt að 15 grunsam- legum mönnum var sleppt eftir ítar- legar yfirheyrslur. Mikil leynd hvílir yfir rannsókninni. Tornado Einn verkfræðinganna, Helmut Stefan Kolasch, sem er 44 ára gam- all og fæddur í Vín, er grunaður um að hafa afhent Rússum leyniskjöl frá ýmsum vestur-þýzkum iðnaðarfyrir- tækjum" síðan 1971, m.a. um Evr- ópu-þotu (EFA) Breta, ítala, Spán- veija og Vestur-Þjóðveija, sem verð- ur tekin í notkun á næsta áratug, og Tomado-herflugvélina, þá full- konmnustu sem NATO hefur yfir að ráða. Rússar hafa lagt kapp á að afla upplýsinga um Tomado-þotuna, sem Bretar, Italir og Vestur-Þjóðverjar smíðuðu í sameiningu. Fyrrverandi rannsóknastjóri fyrirtækisins MBH (Messerschmidt-Böíkow-Blöhm), Manfred Rotsch, var dæmdur í átta og hálfs árs fangelsi 1986 fyrir að senda upplýsingar um hana og fleiri áætlanir til Moskvu. Rotsch, sem er fæddur I Austur-Þýzkalandi, viður- kenndi að hafa starfað fyrir KGB í E I N M A N A: með litlum frænda ... fyrir framan Eiffel-turn í Paris ... á skíðum í Austurríki... á Markúsartorgi i Feneyj- um. —„greinargerðir, ljósrit og ljósmynd- ir allt frá 1973“. Elke Falk fékk aðgang að mikil- vægustu stjómarskjölum þegar hún varð ritari Helmuts Schmidts kanzl- ara í október 1974. Embættismaður í Bonn sagði eftir játningu hennar á dögunum: „Við verðum að gera ráð fyrir að henni hafi verið komið fyrir í stjómarráðinu (Kanzleramt) til að taka við hlutverki Guillaum- es.“ Að sögn vikuritsins Der Spiegel riQaðist upp að þrepiur ámm eftir handtöku Guillaumes sögðu austur- þýzkir embættismenn í hálfkæringi við vestur-þýzka gesti: „Það em a.m.k. þrír njósnarar ennþá eftir í stjómarráðinu í Bonn.“ Sjáifur sagði Guillaume drýgindalega í viðtali við tímaritið Bunte 1981: „Ég get ábyrgzt það að einn af okkar mönn- um er þama ennþá og er býsna handgenginn æðstu mönnum." Ef til vilt átti Guillaume við Elke Falk, sem var auðveld bráð austur- þýzku leyniþjónustunnar. Hún er ógift og á enga nána vini að sögn nágranna hennar í þorpinu Alfter nálægt Bonn. Hún hugsar mikið um útíit sitt og hefur oft réynt að grenna sig. Móðir hennar og systir létust úr krabbameini. Hún hefur hugsað vel um 79 ára gamlan föður sinn, Gerhard, og dekrað við sex ára gamlan systurson sinn, Christian. Árið 1973 varð Elke Falk ást- fangin af austur-þýzkum útsendara, sem kallaði sig „Gerhard Thieme" og sagðist vera bóksali. Kynni þeirra hófust þegar hún svaraði auglýsingu hans í „einkamáladálki" og þau fóm saman í sumarleyfi. Seinna sagðist hann vilja fá hana með sér til Berlín- ar, en hún kvaðst ekki vilja fara frá fjölskyldu sinni. Um skeið bjuggu þau saman í íbúð hennar í Alften, en siðan hvarf hann aftur til Aust- ur-Þýzkalands. Hún njósnaði fyrir hann af ást á hveiju sem dundi. Ráðuneytísleki Annan maí 1977 hóf Elke Falk ritarastörf í „forherbergi" Hans- JUrgens Wischnewskis, helzta að- stoðarmanns Helmuts Schmidts þáv. kanzlara. Sama dag var ákveðið að Wischnewski yrði aðalsamninga- maður Bonn-stjómarinnar í fyrir- HA'NDTAKAN: „Líf mitt er í rúst...' 30 ár. Hann var afhentur Austur- Þjóðveijum þegar skipzt var á njósn- umm í fyrra, en kom aftur til Miinc- hen í vetur. Annar kennarinn úr hópi sex- menninganna er ísraelsmaður fædd- ur í Rús8landi, Shimon Or i Aachen á landamæmm Belgíu. Hinn kennar- inn, Eduard Neufert, er einnig fædd- ur í Sovétríkjunum, en fluttist til Vestur-Þýzkalands fyrir 11 ámm. Hann kenndi rússnesku í tungumála- skóla ríkisins skammt frá Köln og notaði aðstöðu sina til að afla upplýs- inga um embættismenn, sem þar vom við nám. Die Welt segir að all- ir sexmenningamir hafi notið kennslu þar. Blaðið hélt því lika fram að einn hinna handteknu hefði staðið í sam- bandi við hópa sýrlenzkra og aust- ur-þýzkra njósnara, sem ynnu að verkefnum meðfram landamæmm Frakklands, Belgíu, Hoilands og Lúxemborgar. Maður þessi er nefnd- ur „Anir Hossein D.“, sagður 61 árs læknir frá íran og mun hafa búið ( Vestur-Þýzkalandi ámm saman, siðast í Aachen. Sonur hans sagði við blaðið Bild: „Handtaka hans er misskilningur og hann kemur bráð- um heirn." Að sögn Die Welt hafa vestrænar leyniþjónustustofnanir komizt að raun um að austur-þýzkir leyniþjón- ustumenn í Damaskus kenni Sýr- Arftaki Guillaumes Fréttir um að sexmenningamir hafi verið handteknir vegna upp- Ijóstrana Elke Falk hafa heldur ekki verið staðfestar. Þegar tilkynnt var 18. marz að hún hefði verið tekin föst og játað var sagt að eins alvar- legt njósnamál hefði ekki komið upp í Bonn siðan 1974, þegar GÚnter Guillaume, aðstoðarmaður Willy Brandts þáv. kanzlara, var hand- tekinn fyrir njósnir ( þágu Austur- Þjóðverja, með þeim afleiðingum að Brandt varð að segja af sér. Að sögn embættismanna hefur Elke Falk útvegaö Austur-Þjóðveijum þýðing- armiklar upplýsingar í 15 ár R E B M A N N ríkissaksóknari: „Mesta áfall KGB síðan 1949.“ lendingum og írönum að stunda neðanjarðarstarfsemi í Vestur- Þýzkalandi og fleiri Vestur-Evrópu- löndum. Þeir fái m.a. þau verkefni að vera sendiboðar og lauma útsend- urum inn í vestur-þýzk landamæra- héruð í „sérstökum tilfellum". Þess- ar fréttir blaðsins hafa ekki fengizt staðfestar og em taldar ýkjur eða hugarburður. ELKEFALK: „njósnaði af ást.“ MYSNAR ■ NN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.