Morgunblaðið - 10.04.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988
37
Próf. Jón Sigtryggs-
son - Afmæliskveðja
Fyrir hartnær hálfri öld byijuðu
nokkrir læknar og aðrir ágætir
menn að veiða lax á stöng í Laxá
í Þingeyjarsýslu. Laxamýrarbænd-
ur tóku upp gildrumar, og bændur
við ána gáfu stangveiðimönnum
kost á að stunda laxveiði, njóta
útiverunnar og náttúrunnar við feg-
urstu veiðiá í heimi. Jón Sigtryggs-
son slóst fljótlega í hópinn, og hann
hefur veitt í Laxá í rúmlega 40 ár.
Prófessor Jón er áttræður í dag,
fæddur 10. apríl 1908. Foreldrar
hans voru Sigtryggur Benediktsson
veitingamaður á Akureyri og
Margrét Jónsdóttir, en þær Sigríður
móðuramma mín voru systkinadæt-
ur og góðar vinkonur. Jón var af-
burða náms- og fræðimaður. Hann
lauk cand. med. prófí frá Háskóla
íslands árið 1937 og tveimur árum
síðar brautskráðist hann frá Tann-
læknaháskólanum í Kaupmanna-
höfn. Hann var læknir bæði í Dan-
mörku og hér heima, en 1944 var
hann skipaður dósent í tannlækn-
ingum við læknadeild Háskóla ís-
lands og prófessor 1950. Hann átti
stærstan hlut að máli þegar tann-
læknanám var skipulagt og festi
deildina í sessi með dugnaði sínum
og árvekni í hvívetna. Háskóli ís-
lands sæmdi hann doktorsnafnbót
í heiðursskyni árið 1987 fyrir störf
hans og rannsóknir.
Jón kvæntist 22. júní 1937 Jór-
unni Tynes, dóttur Ole Tynes út-
gerðarmanns og sfldarsaltanda á
Siglufírði og Indíönu fögru Tynes.
Jórunn lézt árið 1978, aðeins 65
ára að aldri. Foreldrar mínir minn-
ast gleðistunda á heimili Ole og
Indíönu, en þau voru með afbrigð-
um gestrisin, og Ole glaðvær og
skemmtilegur og þau hjón bæði. Jón
og Jórunn eignuðust fímm böm,
elztur er Jón Öm, aðstoðarráðu-
neytisstjóri í Saskatchewan, þá
Ingvi Hrafn, fréttastjóri íslenzka
sjónvarpsins, Óli Tynes, upplýs-
ingafulltrúi hjá Arnarflugi, Sig-
tryggur, skrifstofustjóri hjá Elling-
sen, og Margrét, skrifstofumaður
hjá_ Securitas.
Eg man fyrst eftir Jóni norður á
Siglufírði á sfldarárunum, en þar
áttu þau Jómnn sumarbústaðinn
Sólvang og komu þangað ár hvert
með krakkana. Jón ók á „stóra
bflnum", sem við kölluðum svo,
enda var hann stór! Hann fylgdist
grannt með sfldarvinnslunni, sem
þá var aðaltekjulind þjóðarinnar.
Við strákamir klifruðum hins vegar
bara í löndunargálgunum á
Rauðkubryggjum og höfðum ekki
hugmynd um efnahagslegan þátt
þessarar vinnslu.
Það var gott að heimsækja Jón
og Jómnni á heimili þeirra við
Miklubraut 48. Þar var alltaf gest-
kvæmt, enda þau hjón greiðvikin
og góð heim að sækja: móðir mín
minnist einnig ánægjulegrar dvalar
hjá þeim heiðurshjónum úti í Viborg
í Danmörku sumarið 1938, þegar
fmmburður þeirra var á fyrsta ald-
ursári.
Fyrir okkur krakkana var heimil-
ið á Miklubraut miðstöð skemmt-
analífsins ef svo strákslega má
komast að orði, þar var gáski og
grallaraskapur okkar umborinn, og
þar vom okkur líka lagðar lífsregl-
umar. Og ekki má gleyma því, að
auðvitað gerði Jón við tennumar í
okkur strákunum!
Jón lagði mikla alúð við fræði
sín. Hann á gott bókasafn og les
raunar eðlisfræðibækur og stærð-
fræði sér til afþreyingar og hugar-
hægðar og mættu fleiri hafa slfld
fyrir stafni nú til dags þegar allt
stefnir til einföldunar. Maður kemur
ekkert að tómum kofa hjá Jóni, og
skiptir vist ekki máli hvar borið er
niður. Hann er margfróður.
Og heima hjá Jóni vom allar
veiðiferðimar skipulagðar. Við vor-
um raunar ekki fyrr komnar heim
úr Laxá en byijað var að skegg-
ræða og skipuleggja næsta ár! Eg
var svo lánsamur að njóta hand-
leiðslu Jóns þegar ég byijaði að
veiða fyrir tuttugu ámm, og ekki
er hægt að hugsa sér elskulegri
leiðbeinanda fyrir byijanda í list-
inni. Hann landaði fyrir mig fyrsta
laxinum úr Stórafossi, innrætti mér
að fara alltaf með gát þegar við
remm út á Mjósundið fyrir ofan
beljandi Æðarfossana, og hann hélt
meira að segja niðri í sér hlátrinum
úti f Hrúthólma, þegar veiðihjólið
mitt stóð á sér og stórlaxinn tókst
á vjð taugaveiklaðan byijanda!
Öll mín ár við Laxá hef ég verið
í veiðihóp eða „holli" með Jóni og
öðrum ágætum mönnum — ég nefni
hér einungis Víglund Möller og
Kolbein Jóhannsson, en við heiðruð-
um þá félaga þijá árið 1986, en
þá höfðu þeir veitt í hollinu óslitið
í 40 ár. Þessi hópur er samhentur
og heldur uppi sérstökum háttum
og siðum, sem frumheijamir við
ána tömdu sér. Hópurinn er svo sem
eins og sérstakt „ríki“ meðal Laxár-
manna, og bændur á bökkum Laxár
hafa verið svo elskulegir að leyfa
okkur að halda uppi þeirri sérvizku,
sem okkur er orðin eiginleg og við
viljum ekki breyta. Ég var á sömu
veiðisvæðum og Jón. Hann ávann
sér virðingu Laxárbænda, var fyrir-
mynd mín og víst margra annarra
í því hvemig á að umgangast veiði-
félagana og umhverfíð, þannig að
20 manna hópur verði nánast sem
einn maður og þó fái allir að njóta
sín.
Víglundur Möller var leikfélagi
Jóns í æsku. Hann lézt 8. maí 1987.
Hann sendi Jóni og okkur hinum
veiðifélögum sínum þessa kveðju:
Við Laxá hef ég iöngum yndis notið,
og lof sé þeim sem hennar feguið skóp.
En nú er senn í veiðiblað mitt brotið,
að baki dvöl í góðra vina hóp.
Jón tilkynnti okkur síðastliðið
sumar, að veiðitími sinn væri á
enda, hann væri fullkomlega sáttur
við dvöl sína við Laxá og óskaði
flokknum velfamaðar. Samt sem
áður sé ég hann nú fyrir mér á
Hólmavaðsstíflunni í byijun veiði-
ferðar. Hann byijar efst við homið
á Vaðhólmakvíslinni og bleytir flug-
una varlega. Hann á það til að takír
þama fast við landið!
Við veiðifélagamir sendum Jóni
innilegar hamingjuóskir á þessum
tímamótum og óskum honum vel-
famaðar um leið og við þökkum
honum samverustundimar á bökk-
um Laxár.
Jón verður að heiman í dag.
Orri Vigfússon
j ÍSLENSKUMORÐA-
RÓKUM FINNST t
N.Ö.R.D.
VATNSHITARAR
Vinsælu METR0 rafmagns-vatnshitarartil hvers kyns
nota i ibúðina eða sumarhúsið.
Þú færð mikiö af heitu vatni tii bööunar og i uppvask.
Sjálfvirk hitastýring. Hitarinn er emeleraður að inn-
an og hefur þess vegna mjög góða endingu. Ódýr i
notkun og auðveldur i uppsetningu.
Fæst i stærðum frá 5—300 Iftra.
Gott verð og greiöslukjör við allra hæfi.
ra -fj §m n
LÆKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI 50022
HBBi t Wi MyA
gWj Tj M M H I H
■HMi
í allt sumar.
íbúðir í besta gæðaflokki
rúma allt að 6 manns.
Verð frá
á farþega (miðað við 2 fullorðna og 4 böm)
HttfKVTMC
FERÐASKRIFSTOFA HALLVEIGARSTÍG 1 SÍMAR 28388 - 28580