Morgunblaðið - 25.06.1988, Page 1
76 SIÐUR B OG LESBOK
142. tbl. 76. árg.
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988
Prentsmiðja Morgfunblaðsins
Dollar
hækkar
um heim
allan
New York, London. Reuter.
Bandaríkjadollar hækkaði
gagnvart helztu gjaldmiðlum á
gjaldeyrismarkaði um heim all-
an í gær. Var jafnvel búist við
að hann ætti eftir að styrkjast
enn frekar.
Um tíma var gengi dollars
1,8205 þýzk mörk miðað við
1,7850 mörk í fyrradag og hafði
gengi hans ekki verið hærra frá
því í fyrrahaust. Vestur-þýzki
seðlabankinn reyndi að stemma
stigu við hækkun dollars með því
að losa sig við dollara en það hafði
lítil áhrif. Hins vegar lækkaði
gengi dollars smávegis er út
spurðist að bandaríski seðlabank-
inn hygðist gera ráðstafanir til að
stöðva hækkun hans. Fregnin
reyndist hugarburður en dollarinn
hafði lækkað í 1,8150 mörk og
130,40 jen er það fékkst staðfest.
Var það lokagengi hans gagnvart
þessum gjaldmiðlum í gær.
Lítilsháttar verðlækkun varð á
hlutabréfum á verðbréfamarkaði í
London og í kauphöllinni í Wall
Street í New York stóð Dow Jones
hlutabréfavísitalan í 2144 stigum.
Kurt Waldheim, forseti Austurríkis, tekur
við náðarmeðali frá Jóhannesi Páli páfa öðr-
um við útimessu í borginni Trausdorf í Aust-
urríki í gær. Eftir messu heimsótti páfi Maut-
hausen-fangabúðir nasista skammt frá Linz.
Við það tækifæri fordæmdi hann „sjúka hug-
myndafræði" nasista og bað menn að biðja
fyrir böðlum þeirra, sem voru líflátnir í búð-
unum.
Sjá ennfremur „Fordæmir... “ á bls. 32.
Tekið viðafláti
Reuter
Varaforseta-
efni demókrata:
Hafnar
Jackson
tilboði
Dukakis?
Boston, Reuter.
JESSE Jackson mundi hafna
útnefningu sem varaforsetaefni
demókrata ef Michael Dukakis,
ríkisstjóri í Massachusetts, byði
honum að fara fram með sér
við bandarisku forsetakosning-
arnar í haust, að sögn blaðsins
Boston Globe.
Blaðið sagðist hafa rætt við
marga ónafngreinda ráðgjafa
Jacksons og hefðu þeir sagt að
hann hefði sagt þeim í einkasam-
tölum að hann teldi sig fórna
pólitísku sjálfstæði ef hann tæki
boði um að vera varaforsetaefni
og þar með áhrifum.
Jackson hefur oft látið í veðri
vaka að hann hefði öðlast rétt til
þess að verða útnefndur varafor-
setaefni í ljósi frammistöðu sinnar
í forkosningunum. Á blaðamanna-
fundi í fyrradag sagðist hann hafa
gert upp hug sinn til framboðs en
sagðist ekki vilja skýra frá afstöðu
sinni.
w
Reuter
Kaltbað
Skipveijar á bandaríska birgða- og viðgerðaskipinu Frank
Cabie sprauta á fleytur grænfriðunga, sem efndu til mótmæla
í flotastöðinni í La Maddalena á norðurhluta Sikileyjar í gær.
Sjá „Grænfriðungar..." á bls. 30.
Noregur;
Er enn einþörunga-
plága í uppsiglingu?
Að þessu sinni í vötnum og vatnsbólum
Miklar rannsóknir fara nú fram I að sjálfsögðu vita hvemig á fjölg-
á þessum þörungum og vilja menn | un þeirra stendur.
Bandaríkin;
Byltingarkennt
stær ðfræðif orrit
í NOREGI óttast menn, að ný
þörungaplága sé í uppsiglingu
og að þessu sinni í vötnum og
vatnsbólum á landi. Valda því
eitraðir, blágrænir þörungar.
Hafa húsdýr drepist af því að
drekka vatnið og menn veikst
af þvi einu að baða sig í því.
Er þetta vaxandi vandamál í
allri Evrópu að þvi er segir í
Poplærvitenskapelig Magasin,
sem norska háskólaforlagið
gefur út.
Mönnum era kunnar 2.000 teg-
undir blágrænna þöranga en að-
eins fáar þeirra era eitraðar. Samt
era mörg dæmi um eitrun af
þeirra völdum í Noregi og það
fyrsta frá árinu 1974 þegar mest-
allur fiskur í Fröylandsvatninu á
Rogalandi drapst. 1978 drápust
nautgripir eftir að hafa drakkið
úr þessu sama vatni og nú hefur
fundist mikið af eitruðum, blá-
grænum þörangum í Akersvatn-
inu á Vestfold, sem er notað til
drykkjar, og í Hjörungdalsvatninu
á Mæri.
Santa Clara, Kaliforniu. Reutor.
UNGUR Bandaríkj amaður af
enskum ættum hefur búið til
tölvuforrit, sem gerir stærðfræð-
ingum kleift að ljúka á 20 sekúnd-
um við úrlausnarefni, sem áður
tók þá margar vikur við skjáinn.
Segja tölvusérfræðingar, að Mat-
hematica-forrit Stephens Wol-
frams muni valda byltingu i
vísinda- og stærðfræðinámi.
„Þetta er í einu orði sagt stórkost-
legt,“ sagði tölvufræðingurinn Bob
Korsan. „Stærðfræðistúdent á síðari
stigum námsins getur gengið út úr
lokaprófinu eftir nokkrar mínútur í
stað klukkustunda áður.“
Forritið leysir menn undan þeirri
kvöð að mata tölvuna á fjöldanum
öllum af stærðfræðiformúlum en eft-
ir sem áður verða þeir að kunna skil
á kenningunum. „Forritið tekur ein-
faldlega að sér leiðinlegustu verkin,"
sagði Korsan.
Stephen Wolfram, höfundur Mat-
hematica, er 28 ára gamall og fæst
við tölvuvísindi í háskólanum í Illino-
is. Nam hann áður við Oxford-
háskóla en síðar við Tækniháskólann
í Pasadena í Kalifomíu. Móðir hans
er heimspekimenntuð frá Oxford en
faðir hans er kaupsýslumaður og
fæst jafnframt við skáldsagnagerð.
Wolfram varð doktor í eðlisfræði
aðeins tvítugur að aldri og hann er
yngstur þeirra, sem fengið hafa styrk
MacArthur-sjóðsins.