Morgunblaðið - 25.06.1988, Side 2

Morgunblaðið - 25.06.1988, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988 Prestastefna íslands 1988: Brýnt að lög um f ósturey ðingar verði endurskoðuð Prestastefna íslands, sem lauk í Langholtskirkju í gær, tók undir ályktun kirkjuþings 1987 varðeuidi lög um fóstureyðingar. í sam- þykktinni segir að Prestastefnan telji sérstaklega brýnt að lög um fóstureyðingar verði endurskoðuð með tilliti til þess að framkvæmd lagagreinar um fóstureyðingar af félagslegum ástæðum hefur reynst önnur en til var ætlast er lögin voru sett. Þá var á Prestastefnunni gerð samþykkt í sex liðum um ferming- una. Leggur Prestastefnan áherslu á að fermingarstörfín séu fólgin í sam- starfí heimilis og safnaðar og hvetur til þess að þáttur foreldra í ferming- arstörfum verði efldur. Prestastefn- an samþykkir einnig að við gerð heildamámskrár kirkjunnar verði fyrst unnin námskrá um fermingar- fræðsluna. Stefnt er að að í námskrá um fermingarfræðsluna komi fram meg- inmarkmið, kjami viðfangsefna er skiptist á milli fræðslu- og samfé- lagsstunda, tilbeiðslu og þjónustu- verkefna, stundaflöldi í fermingar- fræðslu og helstu námsgögn. Þá var samþykkt að árlega verði haldið námskeið fyrir fermingarfræðara og hugað verði að nýjungum í ferming- arstarfi til dæmis með því að koma á samstarfshópi, ráða sérhæft starfs- fólk, stofna safnaðarskóla og skipu- leggja sumamámskeið. Sjá viðtöl á bls. 7 Tillögnr Bandaríkjamanna í GATT: Tilgangurinn að fá fram viðbrögð í GATT-viðræðunum á síðasta ári lögðu Norðurlöndin fram nokkrar tillögur, sem meðal annars fólu í sér að vissar takmarkanir yrðu gerðar á ríkisstyrkjum til land- búnaðar og frelsi í innflutningi landbúnaðarvara yrði aukið. Þess- ar tillögur hafa meðal annars ver- ið samþykktar af íslenska land- búnaðarráðuneytinu að sögn Ól- afs Sigurðssonar hjá viðskipta- deild utanrikisráðuneytisins. Hann sagðist þó ekki hafa séð skýrslu Bandaríkjamanna um við- ræðumar og sér kæmu dagsetn- ingar, sem þar væru nefndar, spánskt fyrír sjónir. „GATT-samningurinn heimilar hins vegar að settar séu ákveðnar reglur um innflutning landbúnaðar- vara til að vemda heilsu manna, dýra eða jurta, og það hefur verið lögð áhersla á það af okkar hálfu að halda því ákvæði í samningnum," sagði Ólafur. „Bandaríkjamenn lögðu fram til- lögu um afnám nánast allra hindrana í viðskiptum með landbúnaðarvörur á tíu árum. Það má segja að aðaltil- gangur tillögunnar hafi verið að fá fram viðbrögð aðildarríkjanna við henni, en ég held að Bandaríkjamenn hafí ef til vill gert sér grein fyrir því að hún var óraunhæf," sagði Olafur. ^ Sjá bls. 39 íuurguiujicUJKj/ rt.rm oæuerjf Þéttsetin Laugardalshöll hjá Cohen LaugardalshöUin var þétt setin fólki og nokkur hundruð höfðu að auki keypt sér stæði á tónleikum kanadíska tónlistarmannsins Leon- ards Cohen i gærkvöldi. Áhorfendur voru nokkuð eldrí en vant er á popptónleikum og virtust þekkja flest lögin sem Cohen flutti. Cohen hóf tónleikana á einu sinna þekktustu laga, Susanne, og í kjölfarið fylgdi meðal ann- ars lagið „First we take Manhattan". Síðasta hækkun á almennu fiskverði: Ríkisstjórnin gaf fyrir- heit um 3% gengissig „VIÐ ákvörðun um hækkun al- menns fiskverðs um síðustu mánaðamót, gaf ríkisstjóminn fulltrúum fiskvinnslunnar í yfimefnd Verðlagsráðs fyrir- heit um að heimild Seðlabank- ans til 3% gengissigs yrði nýtt. Nú kemur skyndilega í ljós að slíkt gengissig er ekkert á dag- skrá bankans. Hins vegar tala menn aðeins um hagræðingu innan fiskvinnslunnar eins og hún geti bætt gjaldeyristekj- utap vegna lækkandi afurða- verðs. Þetta tekjutap hjá húsum innan SH samsvarar verði allra íbúðarhúsa í 1.000 manna sjáv- arþorpi og munar um minna,“ sagði Jón Ingvarsson, formaður stjórnar Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna, i samtali við Morgunblaðið. Fimmta kæran frá Tjarnargötubúum: Kannað verði hvort hugmynd um bílageymslu sé lögleg NOKKRIR af íbúum Tjarnar- götu sendu félagsmálaráðherra í gær bréf þar sem byggingar- leyfi ráðhúss Reykjavíkur er kært. Kæran byggir að miklum hluta á atriðum úr fjómm fyrri kæmm frá Tjaraargötubúum, en nú er þess einnig krafist að ráðuneytið kanni hvort tillaga borgarstjóra um að láta fjar- lægja húsin númer lOe og 12 við Tjamargötu og reisa þar bílageymslu í stað stæðanna, sem hætt var við í ráðhúskjall- aranum, sé í samræmi við lög. Félagsmálaráðherra segir að þetta geti tafið afgreiðslu ann- arra kæra vegna ráðhússins, sem ráðuneytið hefur til um- fjöllunar. í bréfi Tjamargötubúa eru rakt- ar útvarpsfréttir um tillögu borg- arstjóra um byggingu blla- geymsluhúss við Tjarnargötu og í frambaldi af því er þess krafist að kannað verði hvort hugmynd þessi sé í samræmi við skipulags- lög. „Hvorki aðal- né deiliskipulag gerir ráð fyrir bílageymsluhúsi án þess að kynna mál fyrir íbúum eða stjóm sveitarfélagsins. Er nóg að framkvæmdastjóri sveitarfélags- ins, sem að vísu er jafnframt borg- arfulltrúi, ákveði þetta?“ spyrja Tjarnargötubúar. „Ég hef aldrei heyrt um það áður að menn kæri hugmynd eða tillögu," sagði Davíð Oddsson borgarstjóri í samtali við Morgun- blaðið. „Þetta er alveg nýtt í sög- unni.“ „Samkvæmt skipulagslögum er ráðherra skylt að senda kærur sem berast til umsagnar skipulags- stjómar og byggingamefndar," sagði Jóhanna Sigurðardóttir fé- lagsmálaráðherra. „Ef það reynist nauðsynlegt eru allar líkur á að það seinki niðurstöðum um aðrar kærur, sem ella hefðu legið fyrir í byijun næstu viku.“ Morgunblaðið innti Jón álits á ummælum Þorsteins Pálssonar, forsætisráðherra og Geirs Hall- grímssonar, seðlabankastjóra, í Morgunblaðinu í gær þess efnis að fískvinnslan yrði að auka hag- ræðingu í rekstri og gengissig væri ekki á dagskrá. „Það eru kaldar kveðjur, sem forsætisráðherra og seðlabanka- stjóri senda fiskvinnslunni í Morg- unblaðinu, að telja það íhugunar- efni hvort nægilega vel sé staðið að rekstri frystingarinnar," sagði Jón. „Tilefnið virðist að viðskipta- kjör þjóðarinnar hafí rýmað mjög verulega vegna söluerfíðleika og mikilla verðlækkana á frystum sjávarafurðum á undanfömum vikum og mánuðum. Til glöggvun- ar má geta þess að frystar sjávar- afurðir eru um 40% af öllum vöru- útflutningi landsmanna, þannig að þjóðin á meira undir fískvinnsl- unni komið en nokkurri annarri atvinnugrein hér á landi. Verðhmnið jafngildir, miðað við ársframleiðslu hraðfrystihúsa inn- an vébanda Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna, því að allt íbúðar- húsnæði í eitt þúsund manna sjáv- arþorpi tapist. Þegar þjóðarbúið verður fyrir áfalli af þessari stærðargráðu, hlýtur það að varða hvert mannsbam í landinu og áhrif þess ættu jafnvel að ná inn fyrir múra Seðlabankans. Það verður varla um það deilt, að það er meðal annars hlutverk stjóm- valda að búa útflutningsatvinnu- vegunum þau skilyrði, að þeir séu helzt ekki lakar settir en sambæri- legur atvinnurekstur í samkeppn- is- og viðskiptalöndum okkar. Til foma tíðkaðist það sumstað- ar að boðberar válegra tíðinda vom slegnir af, en hér á landi bregðast nú forsætisráðherra og seðlabankastjóri við þeim válegu tíðindum vegna stöðugra verð- lækkana á okkar helztu fískmörk- uðum með því að segja að físk- vinnslan verði að hagræða í rekstrinum og koma þannig í veg fyrir frekara tap. Ef til vill er það hagræðing í rekstri í þeirra skiln- ingi að segja öllu starfsfólki frysti- húsanna upp og hætta rekstri. Um síðastliðin mánaðamót beitti ríkisstjómin sér fyrir því, að almennt fískverð til útgerðar og sjómanna hækkaði um 5%. í því sambandi ákvað ríkisstjómin og gaf fulltrúum fískvinnslunnar í yfimefnd Verðlagsráðs fyrirheit um að sú heimild, er ríkisstjómin hefði gefið Seðlabankanum um 3% gengisbreytingu, skyldi notuð til að mæta fiskverðshækkuninni. Nú bregður svo við að seðlabanka- stjórinn segir að það sé ekki á dagskrá að nota þá heimild. Það verður fróðlegt að fylgjast með málum næstu daga, hvort Seðla- banki íslands verður látinn kom- ast upp með að virða að vettugi ákvarðanir og fyrirheit ríkis- stjómarinnar," sagði Jón Ingvars- son.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.